Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 33
AÐSENDAR GREINAR
• •
Oldungaráð
UNDANFARIÐ hafa
margir ungir og aldrað-
ir ritað í Qölmiðla um
málefni sem þá varða.
Gleymið því samt ekki,
að til eru margir, bæði
eldri en þið og yngri,
íj'öldi sérfræðinga, að
við tölum ekki um þing-
menn og bæjarstjórnar-
fulltrúa, sem vita nán-
ast allt um ykkur og
málefni ykkar! Óhætt
að segja „nánast allt“
því að þeir þurfa sjald-
an að leita tii ykkar
með mál sem varða
börn og unglinga eða
aldraða. Við sem erum á miðjum
aldri rifjum að vísu sjaldan upp
hvernig við hugsuðum, töluðum,
hegðuðum okkur og lékum þegar
við vorum börn og unglingar - og
við pælum reyndar ekki í því hvern-
ig það er að eldast eða verða og
vera gamall - nógur er tíminn. En
við vitum samt ótrúlega mikið! Og
fyrir alla muni látið ykkur helst
ekki detta í hug að þið eigið sameig-
inleg áhugamál og getið bæði unnið
saman og átt sameiginlegar góðar
og gleðilegar stundir.
Eða hvað? Er kominn
tími til að staldra aðeins
við og fá til liðs við sig
öldungaráð og
unglingaráð? Þegar við
sláumst i för með þekk-
ingu, visku og reynslu
erum við á ferð með
þremur frábærum
systrum.
Mikið vatn hefur
runnið til sjávar í vel-
ferðarmálum aldraðra
síðan frumhetjar í
Reykjavík, þær Geir-
þrúður Hildur Bernhöft
ellimálafulltrúi og Hel-
ena Halldórsdóttir, forstöðumaður í
félags- og tómstundastarfi hófu
störf fyrir tæplega þremur áratug-
um. Á fáum árum fengu þær til liðs
við sig um 100 sjálfboðaliða úr röð-
um kvenfélaga og félagasamtaka og
unnu mikilvægt starf, ruddu braut-
ina eins og ýmsir hafa gert víða um
land.
Á síðasta áratug hafa verið stofn-
uð félög eldri borgara í fjölda sveit-
arfélaga sem leggja mikilvægu mál-
efni lið á mörgum sviðum, auk þess
Þórir S.
Guðbergsson
Kanarí-
aö seljast upp
í vetur
... 39.932
Vikuíegar f erð«
í vetur
Kanaríferðir
Heimsferða hafa
fengið ótrúlegar
undirtektir og nú eru
margar ferðir okkar
uppseldar eða að seljast upp. Bókaðu
strax og tryggðu þér þá ferð sem hentar þér best í
vetur. Glæsilegt úrval gististaða í boði, beint flug með
glæsilegum Boeing 757-200 og þú nýtur traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu.
Lenamar
Verð frá kr.
Vikuferð til Kanarí 19. nóv., hjón með 2 börn, Australia.
Verð frá kr.
Ferð í 2 vikur, 4. mars, m.v. hjón mcð 2 börn, Australia.
39.932
19. nóv., hjón með 2 börn, Aus
54.132
ars, m.v. hjón mcð 2 börn, Aust
58.760
Hvenær er laust?
20. okt. - 11 sæti laus
19. nóv. - iaus sæti
26. nóv. - laus sæti
17. des. - uppselt
24. des. - 21 sæti laust
31. des - laus sæti
07.jan. - 12 sæti laus
14. jan. - laus sæti
04. feb. - 18 sæti laus
VtSA
Verð frá kr.
M.v. 2 í íbúð, Sonnenland, 26. nóv, 3 vikur.
lnnifalið í verði, flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli, íslensk fararstjórn.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600
Unglingaráð
sem fjöldi aldraðra stundar áhuga-
mál sín annars staðar „meðal allra
aldursflokka" - þar sem kynslóðirnar
tengjast áfram traustum böndum.
A hátíðarstundum er gjarna
minnst á „elstu kynslóðina" - „frum-
heijana", - „þá sem hafa lagt svo
mikið af mörkum að þeim verður
aldrei þakkað sem skyldi." í raun
má orða það eins með unglingana.
Á stundum er sagt: „Unglingarnir
eru framtíð þjóðarinnar - hlúum eins
vel að þeim og við frekast getum“
- og það er rétt.
Fyrir fáeinum árum voru stofnuð
samtök í Danmörku sem nefnast
Ældre sagen. Einu skilyrðin fyrir
þátttöku í samtökunum voru að fé-
lagar hefðu áhuga á málefnum aldr-
aðra.
Á tæplega tveimur árum var fjöldi
félaga orðinn um 200.000. Markmið
samtakanna var að hvetja fóik til
að hugsa fram í tímann, spá um
framtíðina, hugsa um samfélagsþró-
un á öllum sviðum þjóðlífsins - til
heilla fyrir aldraða og þar með þjóð-
arheildina.
Fulltrúar Ældre sagen fylgjast
með gangi málefna aldraðra í bæj-
arstjórnum og á danska þinginu -
og í tímariti samtakanna eru síðan
birtar fréttir af ákvörðun bæjar-
stjórna og þingmanna, ferli um-
ræðna, athugasemda og tillagna
fulltrúa félagasamtaka aldraðra.
Allir félagar fá að fylgjast með.
Víða hafa fyrirtæki er-
lendis, segir Þórir S.
Guðbergsson, komið á
fót ráðgjafanefndum
fyrrverandi starfs-
manna sem vilja veg
gömlu fyrirtækjanna
sem mestan og bestan.
Fyrir fáeinum árum var samþykkt
4-norska þinginu að komið skyldi á
fót „ráðgjafarnefndum eftirlauna-
þega“ eins konar öldungaráðum, í
öllum sveitarfélögum landsins, þar
sem megintilgangur var sá að nýta
og njóta ráðgjafar aðila sem höfðu
þekkingu, reynslu og vit á mála-
flokki sem skipti alla þegna landsins
miklu máli - málefnum aldraðra!
Við getum því spurt: Er heilla-
vænlegt að koma á fót öldungaráð-
um og unglingaráðum í bæjarfélög-
um og félagasamtökum?
í þessu máli sem öðrum skiptir
það miklu hveijir veljast til verksins,
hveijir eru hæfastir til að hafa heild-
arsýn yfir þarfir sveitarfélagsins og
vita, að fjárhagur sveitarfélagsins
setur okkur mörk - hvernig getum
við best nýtt hann, sniðið okkur
stakk eftir vexti og bætt fjárhaginn
til heilla fyrir þegnana um ókomna
framtíð á sviði menntunar, menning-
ar, lista, trúar, vísinda, tækni og
efnahags?
Við vitum að ekki eru allir jafn
hæfir og fúsir til starfsins. Við
þekkjum aldraða jafnt sem unga sem
eru „eilífir nöldurseggir" og hafa
ætíð allt á hornum sér. En við þekkj-
um sem betur fer enn fleiri sem eru
jákvæðir, víðsýnir, réttsýnir og hafa
bæði reynslu, visku og þekkingu í
farteskinu.
í raun má hugsa sér hvers kyns
útgáfu af ráðgjafarnefndum. Fátt
er endanlegt og sveigjanleiki er
nauðsynlegur.Við getum t.d. hugsað
okkur „öldunga/unglingaráð" eða
„unglinga/öldungaráð" þar sem
„æska og elli“ vinna saman - en
allt kostar tíma, vinnu, peninga og
ný viðhorf - og „allt hefur sinn tíma“.
„Framtíðarstofnun" er gott mál.
Mörg fyrirtæki og stofnanir halda
námskeið fyrir starfsmenn sína,
bæði endurmenntunarnámskeið og
starfslokanámskeið. Víða hafa fyrir-
tæki erlendis komið á fót ráðgjafar-
nefndum fyrrverandi starfsmanna
sem vilja veg gömlu fyrirtækjanna
sem mestan og bestan, með ferskar
og góðar hugmyndir.
Því betur sem við treystum stoðir
í málefnum aldraðra (það hriktir
talsvert enn í nokkrum stoðum) -
þeim mun betur undirbúum við jarð-
veginn fyrir ungu kynslóðina: fram-
tíð þjóðarinnar.
Höfundur er fræðslufulltrúi
öldrunarþjónustu
Reykjavíkurborgar.
ISLENSKT MAL
TORFI Jónsson, vísnavinur og
hreintungumaður, skrifar mér
mikið bréf. Verður tekið úr því
hið helsta í þessum pistli og
næsta, e.t.v. með einhveijum inn-
skotum frá umsjónarmanni.
Fyrst gagnrýnir T.J. sérhæft mál
langskólagenginna manna sumra
hverra og segir:
„Tilefni þessa bréfs er málfar
fólks, bæði í rituðu og mæltu
máli, sem mér er á stundum lítt
skiljanlegt. í fyrrasumar var ég
á ferð í bílnum minum og þurfti
að nema staðar við gatnamót,
þar sem rautt ljós blasti við mér
á götuvitunum. Ég kveikti á út-
varpinu og um leið heyrði ég
fréttamann segja við viðmælanda
sinn: „Ætlastu til að fólk skilji
þetta?“ Svarið var eitthvað á
þessa leið: „Ja, ég er nú að tala
til ákveðins hóps.“ „Viltu endur-
taka setninguna?" sagði þá
fréttamaðurinn og það gerði við-
mælandi hans. Þótt ég legði eyr-
un vel við tókst mér ekki að botna
neitt í því sem maðurinn sagði.
Þegar svo kom í ljós að þarna
var kennari við Háskóla íslands
á ferðinni, leizt mér hreint ekki
á blikuna. Mér flaug þá í hug
tilvitnun sem Halldór Laxness
hefur eftir enskum hagfræðingi
og prófessor í líffræði, Lancelot
Hogben að nafni: „the expensiv-
ely uneducated classes“= stéttir,
ómenntaðar fyrir of fjár (þýðing
Halldórs - Vettvangur dagsins,
bls. 279).
íslendingur, þótt lærður há-
skólakennari sé, sem getur ekki
túikað mál sitt svo að skiljist,
getur vart talizt menntaður. Og
slíkir menn, sem eiga að vera
nemendum sínum fyrirmyndir,
eru óvinir íslenzkrar tungu, því
ið greiðasta skeið til að skrílmenna þjóð
er skemmdir á tungunni að vinna.
(Stephan G. Stephansson:
Kolbeinslag.)
En gömul vísa eftir Gunnar
Pálsson skólameistara á Hólum
(1753-1785) kemur upp í hug-
Umsjónarmaður Gisli Jonsson
865. þáttur
ann, að gefnu þessu tilefni:
íslenzkan er eitt það mál
sem allir lærðir hæla,
og aldrei mun þín auma sál
annað fegra mæla.
Ef ég ætti að tíunda allt það
sem ergir mig í máli manna, þá
yrði þetta langt bréf, svo ég læt
nægja að tilgreina það sem ég á
verst með að sætta mig við:
Fólk er víst hætt að gera sér
grein fyrir hlutunum, það er
meðvitað um þá. Það eru afleit
skipti. Voninni hefur að mestu
verið úthýst, fólk bindur ekki
lengur vonir við neitt, það gerír
sér væntingar. Það gerir rann-
sóknir í stað þess að rannsaka
málin. Reynsla heitir nú upplifun.
Mikill léttir væri það ef fólk
hætti að klifa á orðunum: Mín
skoðun er sú - skoðun mín er
sú, miklu einfaldara er að segja:
ég tel, ég álít, jafnvel: mér finnst.
Kannske finnst því skoðun sín
svo þung á metunum, að bráð-
nauðsynlegt sé að koma henni á
framfæri á þennan hátt, en ég
leyfi mér þó að efast um að hún
geti verið það.“
★
Umsjónarmaður hefur lengi
ætlað sér að skrifa um leiðinlega
notkun orðsins áhersla. Nú hefur
Magnús Oskarsson tekið af hon-
um ómakið, og birtist með þökk-
um bréf hans um þetta efni:
„Ég felli mig ekki við nýja,
margbreytilega og óskilgreinda
merkingu orðsins áherzla, oftast
í fleirtölu, sem nú ríður húsum.
Dæmin eru mýmörg og til að
nefna eitthvað vísa ég til stór-
auglýsinga um nýja blaðið sem
á að rísa á rústum Tímans og
Dags. Á borgarafundum um land
allt kveðst ritstjóri þess munu
„kynna helstu áherslur blaðs-
ins...“ og fólk er hvatt til að
koma til að „heyra hverjar
áherslur verða í hinu nýja blaði“.
Einhvern tímann hefði verið tal-
að um efni blaðsins. Ég vona að
þetta sé ekki vísbending um
máltilfinningu ritstjórans.
Þokuhugsun og óskýrleiki í
máli er af hinu vonda. Verra er
þó þegar menn haga orðum sín-
um þannig viljandi, að hið sanna
sjáist illa eða ekki. Dæmi um það
er þegar menn halda að þeir geti
breitt yfir harkalegan ágreining
með því að kalla hann mismun-
andi áherzlur, eins og ég hef oft
heyrt.
Ávinningur væri að því að fá
álit þitt á þessu.“
★
í merkri bók um mannanöfn á
eynni Mön hefur Leslie Quilliam
dregið saman ósmáan fróðleik,
en meðal Manarbúa (Manks) eru
nöfn af margvíslegum uppruna,
t.d. gelískum, norrænum og róm-
önskum. Nafnið Leslie er ættað
frá Skotlandi og var upphaflega
staðarnafn og kynni að hafa
merkt „garður með kristþyrn-
um“. Hjá skáldinu Robert Burns
var nafnið kvenheiti, en nú oftast
karlheiti, sbr. hinn frábæra leik-
ara Leslie Howard. QuiIIiam á
Mön er náttúrlega okkar Vil-
hjálmur, en það nafn er nor-
mannskt. Einhveijir muna sjálf-
sagt eftir Dan Quayle. Síðara
nafn þessa Bandaríkjamanns
reyndist vera Manar-útgáfa af
okkar Páli (lat. paulus). En nú
er ég víst kominn harla langt frá
íslensku máli.
★
Hlymrekur handan kvað:
Það sagði Vilhjálmur West
(sem er vitað og berlega sést
á því hve illa honum ferst):
„Þeim var ég víslega verst-
ur sem mér unnu mest.“
„Annmarka hefir sérhver
sinn.“ (Hjálmar Jónsson sem sig
nefndi Eyfirðing, en oft er kennd-
ur við Bólu.)
Auk þess ber að þakka auglýs-
ingar til fulltingis íslensku tölvu-
máli.
Og Margrét Erlendsdóttir
fréttamaður (útvarpið 31. ágúst)
fær prik fyrir að slá Fróðársel:
„Spurn eftir húsnæðrí.