Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd: Þorsteinn Ásgeirsson.
BAULA og Litla-Baula í Norðurárdal. Myndin birtist í bókinni SIÐA úr ferðabók Sveins M. Sveinssonar af
„Landiðþitt", A-G, bls. 70. ferðalaginu frá 1912.
Húsafellshringiirinn
riðinn í júlí 1912
Ferðasaga eftir Leif
Sveinsson byggð á
dagbók Sveins M.
Sveinssonar
i.
ÞANN 5. júlí 1912 leggja þrír
menn af stað ríðandi áleiðis til
Þingvalla, þeir: Jón Hjartarson,
Suðurgötu 8B, kaupmaður, f. 15.
ág. 1888. Jón J. Setberg, Laufás-
vegi 2, trésmiður, f. 13. júlí 1870
og Sveinn M. Sveinsson,
versl.maður í Khöfn. f. 17. okt.
1891, en hann varð síðar forstjóri
Völundar hf. Frásögn þessi er
byggð á dagbók Sveins á þessu
tíu daga ferðalagi.
Fyrsti áfangi var Geitháls,
stoppað þar í 10 mínútur og drukk-
in mjólk. Næsti áfangi sæluhúsið
á Mosfellsheiði, þar snæddur mið-
degisverður. Komið til Þingvalla
kl. 17.15 og gist í Konungshúsinu.
Kaffi og kókó fyrst, en síðar góður
kvöldmatur.
II.
6. júlí lagt af stað frá Þingvöll-
um kl. 8.15 sem leið liggur með
Ármannsfelli, áð við Hofmannaflöt
og snæddur þar morgunverður
undir Meyjarsæti. Kl. 13 er áð í
Brunnum og tekið upp nesti. Kl.
14.20 eru þeir staddir við Beina-
kerlingu og leggja þá á dalinn.
Langihryggur er illur yfirferðar
og snjóþungur. Eftir að hafa lagt
Skúiaskeiðið að baki koma þeir til
Húsafells kl. 20.30. „Það fyrsta,
sem við urðum varir við á Húsa-
felli var hið góða og vinalega við-
• , mót húsmóðurinnar." Bar hún
þeim félögum skyr með ijóma, sem
þeim þótti nýnæmi í að fá. Hér
mun átt við ekkjufrú Ástríði Þor-
steinsdóttur, en maður hennar
Þorsteinn Magnússon andaðist
árið 1906. Gistingu fengu þeir á
Húsafelli, tveir voru „lagsbræður"
(tveir saman í rúmi), en einn svaf
á hurðarbaki.
SVEINN M. Sveinsson (fyrir miðju) ásamt hestafólki við Lögberg árið 1917.
KONUNGSHÚSIÐ á Þingvöllum. Myndin birtist upphaflega í bók
um Islandsferð Friðriks VIII sumarið 1907.
Ljósmynd: Sigríður Zoéga.
SVEINN M. Sveinsson um tví-
tugt árið 1912.
III.
7. júlí er síðan lagt af stað kl.
11.30 áleiðis að Surtshelli í fylgd
Þorsteins Þorsteinssonar bónda-
sonar á Húsafelli. Komið að Surts-
helli kl. 13.30. Eftir að hafa skoð-
að Beinahelli, „settum við okkur
niður í afhelli einum, kveiktum þar
4 ljós og settum á hellu eina, sem
við svo nefndum altari og borðuð-
um þar góðan og ljúffengan mið-
degisverð“. Síðan komu þeir við í
Kalmanstungu hjá Ólafi Stefáns-
syni bónda (1864-1930) og þágu
þar kaffibolla fyrir eggjan heima-
sætunnar.
IV.
8. júlí kl. 12.00 er lagt af stað
frá Húsafelli niður Hvítársíðu.
Skammt frá brúnni hjá Barnafossi
sjá þeir roliu í sjálfheldu á stalli
einum. Seig Sveinn niður á stallinn
á svipuskapti og tókst þeim síðan
í sameiningu að frelsa rolluna úr
prísundinni. Næst heimsækja þeir
Jón Sigurðsson hreppstjóra á
Haukagili (1871-1935), fyrrum
þingmann Mýramanna
(1908-11). Jón bauð þeim kaffi
og þótti þeim hann bæði fróður
og skemmtilegur. Enn halda þeir
félagar áfram ferðinni og næsti
áfangastaður er Norðtunga. Bóndi
þar Runólfur Runólfsson. Reyna
þeir þegar að ná símasambandi
við Reykjavík: „til að láta vita, að
menn væru heilir komnir úr
Kaldadal og lifandi úr Surtinum“.
Biðu þeir eftir samtali í tvo og
hálfan tíma. „Þótti mönnum biðin
löng án þess ekkert að starfa. Þar
eð Guðmundur Magnússon pró-
fessor ásamt fleiru góðu fólki var
þar á staðnum í ágætu skapi, tóku
menn sig til, fengu sér ljá og orf
í hönd og slógu af mesta kappi,
þar til losaðurI> var bærinn. Var
svo drukkið kaffi og þá er því var
lokið, var samband gefið. Nýgift
kona var líka stödd hér og hafði
beðið í nær fimm tíma eftir sam-
bandi, en þá er það var fengið,
náði hún tali af Jóni Hjartarsyni
og bauð honum ásamt förunautum
hans að gista hjá sér um nóttina
á bæ sínum, Steinum. Þáðum við
það auðvitað og áttum þar góða
nótt.“
V.
9. júlí er haldið af stað áleiðis
að Baulu og gekk ferðin þangað
mjög vel. Fljótastur var Sveinn
upp á Baulutind á 41 mínútu, en
Jónarnir voru 80 mínútur að klífa
fjallið. Uppi á vörðu þeirri, er reist
er uppi á tindinum, var svo hrópað
9-falt húrra fyrir ferðalaginu. Þeir
komu að Svignaskarði um mið-
nætti og vöktu þar upp. Sofnuðu
um tvöleytið örþreyttir.
VI.
10. júlí leggja þeir upp frá
Svignaskarði í átt að Haugum, en
nýja brúin yfir Norðurá hafði ver-
ið vígð árið áður, 24. júní 1911.
Eftir að hafa skoðað brúna héldu
þeir á vit heimasætanna á Haug-
um, þeirra Jóhönnu og Kristínar.
Þær gáfu kaffi og pönnukökur að
góðum íslenskum sveitasið. Síðan
reyna þeir félagar fyrir sér við
laxveiðar, en hafa ekki erindi sem
erfiði. Þannig er ritað í dagbókina:
„Seinna um daginn héldu drengir
á laxveiðar, fékk einn þeirra
bröndu eina, var það mjög lítill
urriði og veiddi hann Sveinn, sem
upp frá því var kallaður „Hornsíla-
Sveinn“.
VII.
11. júlí eru þeir félagar enn að
reyna við laxinn en afraksturinn
aðeins tveir urriðar. Áin er líkleg-
ast Norðurá. Um kvöldið stytta
þeir sér stundir við spil og söng
og virðast þeir vera enn á Haugum.
VIII.
Föstudaginn 12. júlí kl. 11.20
halda þeir félagar af stað suður á
bóginn og koma við hjá Oddi bónda
Jónssyni að Eskiholti. Þar innbyrt
súkkulaði og kaffi að venju. Þaðan
að Feijukoti, á bát yfir Hvítá, fram
hjá Hvítárvöllum og að Hvanneyri.
Skóiahúsið skoðað og veitingar
þegnar. Þaðan héldu þeir svo áfram
meðfram Hafnarfjalli að Höfn í
Melasveit til húsfreyju Þórunnar
Richardsdóttur Sívertsen. Gista þar
um nóttina við besta atlæti.
IX.
Laugardaginn 13. júlí kl. 11.20
halda þeir svo áfram suður með