Morgunblaðið - 07.09.1996, Síða 48
48 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
FI5H1N6 15 A CRUEl^/ulELL.THATS 5PORT, 5IR..I COULD / VOUR NEVER BE A PRIVILEGE, FI5MER PERSONU^MARCIE.// TH0U6HTY0u/l PID..N WENTT0 6ET/ I 60T 05 50ME ( 0NE 0F MY LUNCH .._J(FAV0RITE5
/ jf
i ii 7, m
Fiskveiðar eru grimmileg íþrótt, herra Ég hélt að þú
.. . ég gæti aldrei orðið fiskimaður hefðir farið
... Nú, þú átt rétt á því, Magga ... og náð í nest-
ið ...
Ég gerði það
... ég er með
uppáhalds-
matinn minn.
Fisk og franskar!
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Hvað gerðum
við af okkur?
Frá Þóru Kristínu Þórsdóttur:
VIÐKOMUSTAÐ og traust okkar,
Útideild fyrir unglinga, sem búsett
hefur verið í 20 ár í Tryggvagötu
12, mun verða lokað 1. febrúar
næstkomandi vegna tillitsleysis
stjórnvalda.
Ég ætlaði ekki að trúa því þeg-
ar ég frétti að loka ætti Útideild-
inni. Ég hef með vinum mínum
sótt staðinn í mörg ár og líkað
mjög vel. Útideildin hefur þá sér-
stöðu að vera bæði athvarf og
félagsmiðstöð og er með félags-
ráðgjafa í starfsliði. Þangað hafa
unglingar leitað með vandamál sín
(svo sem fíkniefnavanda og með-
virkni), sótt í félagsskap og átt
góðar stundir saman. Þar hefur
mikið og gott forvarnarstarf verið
unnið og allt verið gert ungu fólki
til hjálpar. Útideildin er skipuð
mjög hæfu og góðu starfsfólki og
mikil tengsl hafa skapast á milli
þeirra og okkar unglinganna sem
þangað koma. Starfræktir eru
stelpuhópar sem eru eins konar
meðferðar- og samskiptakennsla
og strákahópar sem eru í raun
ævintýrahópar. Myndbandakvöld
eru skemmtileg venja á fimmtu-
dögum en einnig er opið hús á
milli klukkan fjögur og sex á
mánudögum og þriðjudögum. Á
hveiju sumri er porthátíð á vegum
Útideildarinnar og þar gefst fólki
færi á að troða upp og þiggja veit-
ingar. Einnig er fastur liður að
skreyta vegginn í porti Útideildar
á ári hveiju, en þá fá unglingar
tækifæri til að tjá sig án fyrir-
mæla. Eitt af verkefnum Útideild-
ar er að keyra um hverfi Reykja-
víkur á föstudagsnóttum og fylgj-
ast þannig með því sem unglingar
aðhafast á þeim tíma. Þannig eru
þeir til taks ef eitthvað fer úrskeið-
is. í samvinnu við ÍTR og lögregl-
una er Útideildin svo með athvarf
á föstudagsnóttum til þess að
stuðla að því að unglingar undir
aldri stoppi stutt í Miðbæ Reykja-
víkur.
Útideildin hefur því miður lítið
verið kynnt og þess vegna vita
fæstir að hún er til. Nú ætla yfir-
völd að loka þessum yndislega,
óformlega og ómissandi stað frek-
ar en að kynna hann og auka starf-
semina! Fyrst Tindar og svo Úti-
deildin! Hvers eigum við að gjalda?
Eiga yfirvöld virkilega alltaf að
fá að traðka á minnihlutahópunum
og skera niður hjá þeim sem
minnst mega sín? Eru þetta skila-
boðin til þeirra sem erfa landið?
Eru þeir sem ekki hafa kosninga-
rétt þá einskis virði?
Unglingar eru verst umtalaði
hópur þjóðfélagsins. Sálfræðibæk-
ur og ævisögur segja oft þessi ár
þau erfiðustu á ævinni. Það er að
mínu mati ekki síst að þakka við-
horfi hins „fullorðna“ fólks til okk-
ar. í verslunum þykir allt í lagi
að fara fram fyrir okkur. Okkar
vímuefnaneysla er umtöluð (og
ýkt) í fjölmiðlum.
Ég hef heyrt að sú hugmynd
sé að mótast hjá yfirvöldum að
eftir lokun Útideildarinnar muni
starfsemin vera færð út í hverfin.
Einnig á þetta að vera meira fyrir
fjölskylduna og formlegt. Ég sé
fyrir mér að skipulagið verði þann-
ig að starfsfólk verði í búningi
(s.s. grænum drögtum), með nafn-
spjöld og þú og þín fjölskylda eig-
ið pantaðan tíma. Þú færð kannski
hálftíma til að skyrpa út þínum
vandamálum, færð svona greyið-
þú-augnatillit og annan tíma
seinna. Hvaða heilbrigði unglingur
færi á stofnun til að ræða vanda-
málin? Enginn sem ég þekki. Sárt
er til þess að hugsa að yfirvöldum
skuli detta svona breyting í hug
og halda að þeir séu að þjóna
okkur! Frekar vildi ég að hlustað
yrði á okkar skoðanir og Útideild-
in væri ennþá starfrækt. Þetta er
athvarf fyrir unglinga sem er búið
að hjálpa mörgum í tuttugu ár og
allir ánægðir. Það er beinlínis sið-
ferðislega rangt að loka Útideild-
inni. Hvar eigum við að vera?
ÞÓRA KRISTÍN ÞÓRSDÓTTIR,
Bræðraborgarstíg 52.
Hvað skal segja? 6
Væri rétt að segja: Þeir fóru í föt hvors annars?
Rétt væri: Þeir fóru hvor í annars föt.
Tveir menn fóru hvor í annars föt.
Þrír menn fóru hver í annars föt.
Tvær konur fóru hvor í annarrar föt.
Þrjár konur fóru hver í annarrar föt.
Tvö börn fóru hvort í annars föt.
Þijú börn fóru hvert í annars föt.
Margt fólk fór hvað í annars föt.
Allir fóru hver í annars föt.
Næst verða fleiri dæmi um notkun þessara sömu fornafna.
Allt efni sem birtist í Morgunbiaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.