Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 07.09.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 49 BRÉF TIL BLAÐSIIVIS Eftirlit lögreglu í byijun skóla Frá Ómarí Smára Ármannssyni: ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON, aðstoðaryfirlögregluþjónn. NÚ ÞEGAR grunnskólarnir hafa byijað störf að nýju loknu sumar- fríi, hefur lögreglan víðsvegar um land beint athygli sinni sérstaklega að umferð í nágrenni þeirra. Mark- miðið með aðgerðunum er að draga úr hraða ökuhraða, fá foreldra til að fylgja yngstu bömunum fyrstu dagana og benda þeim á öruggustu leiðina að og frá skóla og vekja athygli hlutaðeigandi á nauðsyn þess að fara varlega og reyna þann- ig að draga úr líkum á slysum á yngstu vegfarendunum. Þó lögreglan reyni eftir föngum að huga að eftirliti við skóla á öðrum tímum er sérstök ástæða til að leggja aukna áherslu á þann þátt eftirlitsins í byijun skólans. Af því tilefni er sérstök ástæða til að vekja athygli • barnanna á nauðsyn þess að fara gætilega, nota merktar gangbrautir þar sem þær eru, fylgja fyrirmælum gangbrautavarða, þar sem þeir eru til staðar, líta vel í kringum sig áður en farið er yfir götu og bera jafnan endurskinsmerki, • foreldranna á þeirri nauðsyn að fylgja byijendum fyrstu dagana í skólann, hjálpa þeitn að velja örugg- ustu leiðina á milli skóla og heimilis og fræða þau um þær hættur sem kunna að vera til staðar á leiðinni, °g • ökumannanna á þeirri nauðsyn að aka varlega í nágrenni skóla eða þar sem vænta má umferðar skóla- barna. Þar skiptir miklu máli að aka með varúð, nota athyglisgáfuna til hins ýtrasta og sýna tillitssemi. Þá ber ökumönnum að taka sérstakt tillit til og virða störf gangbrauta- varða þar sem þeir eru við störf. Það er von lögreglumanna að hver og einn leggi henni lið og geri sitt til að draga megi úr líkum á slysum á skólabörnum í umferðinni. Klæðum við okkur rétt miðað við starf eða tilefni? Tek að mér útlitsráðgjöf í fyrirlestrarformi fyrir hópa; s.s. fyrirtæki, félagasamtök, saumaklúbba o.fl. fatastíll fatasamsetning litgreining og förðun símar 587 2270 og 892 8778 í l ; Í Geturðu gert betri bílakaup? iBALENO 1.265.000,- kr. Gerðu samanburð... og taktu síðan dkvörðun. 86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri • samlæsingar • rafdrifnar rúðuvindur • rafstýrðir útispeglar • útvarp/segulband með 4 hátölurum • upjphituð framsæti • öryggisloftpúðar fyrir ökumann og farþega í framsæti • styrktarbitar í hurðum • samlitir stuðarar. Allt þetta og margt fleira í rúmgóðum og vönduðum 4ra dyra fólksbíl fyrir aðeins: SUZUKI • Afl og öryggi • SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. m AjA<i!r

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.