Morgunblaðið - 07.09.1996, Síða 50
50 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR
ÍDAG
Guðspjall dagsins:
Tíu líkþráir.
(Lúk. 17.)
ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Áskirkju er minnt á
guðsþjónustu í Laugarneskirkju.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Organisti Marteinn H. Friðriksson.
Dómkórinn syngur.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Prestur sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Organisti Kjartan
Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa fellur
niður vegna framkvæmda er tengj-
ast nýju kirkjunni. Sóknarnefnd.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Ragnar Fjalar Lárussson. Orgel-
tónleikar kl. 20.30. Jonathan Brown
orgelleikari frá Gambridge á Eng-
landi. Claire Collage, Chapel Choir
frá Cambridge syngur fjölbreytta
kirkjutónlist undir stjórn Timothy
Brown.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur II) syngur. Kaffi-
sopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Félagar úr Kór Laugar-
neskirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Kvöldguðsþjónusta kl.
20.30. Lifandi tónlist frá kl. 20. Ólaf-
ur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Halldór
Reynisson. Á eftir verður farið í
gróðursetningarferð í Heiðmörk.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Gylfi Jónsson.
Organisti Violeta Smid.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Organleikari Sigrún Stein-
grímsdóttir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prédikunarefni: Gleym-
ist okkur að þakka? Samkoma Ungs
fólks með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Sólveig Sig-
ríður Einarsdóttir. Sóknarprestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Lenka Mátéová. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Altarisganga. Organisti
Bjarni Þór Jónatansson. Guðsþjón-
usta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl.
15.30. Vígt verður nýtt orgel sem
er minningargjöf til heimilisins. Vig-
fús Þór Árnason.
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar
syngur. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
fellur niður vegna breytinga á kirkj-
unni. Sóknarnefndin.
Óslcalisti
brúðhjónanna
Gjafaþjómista fyrir
brúökaupið
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Ath. breyttan messutíma. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Org-
anisti Hörður Áskelsson. Sóknar-
prestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardag: Messa kl. 8. Biskupsmessa
og prestsvígsla Atla G. Jónssonar
kl. 14. Sunnudagur: Hámessa kl.
10.30. Fyrsta messa séra Atla G.
Jónssonar. Messa kl. 14. Aftan-
söngur með séra Atla G. Jónssyni
í Karmelklaustri kl. 18. Messa á
ensku kl. 20. Mánudaga til föstu-
daga: messur kl. 8 og kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Almenn
samkoma kl. 20. Ræðumaður Hafl-
iði Kristinsson. Allir hjartanlega
velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna-
þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Hjálpræðissam-
koma kl. 20 í umsjá Miriam Óskars-
dóttur.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta kl.
11. Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Sigurður Helgi Guðmunds-
son.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í Hvaleyrarskóla kl. 11.
Umsjónarmenn séra Þórhallur,
Bára og Ingunn. Kl. 14 guðsþjón-
usta við upphaf fermingastarfs. All-
ir prestar kirkjunnar þjóna. Organ-
isti Natalía Chow. Vænst er þátt-
töku fermingabarna og foreldra
þeirra. Kirkjukaffi eftir guðsþjón-
ustu. Tónlistarguðsþjónusta kl. 18.
Tónlistarflutning annast Natalía
Chow, organisti, Martin Frewer,
fiðluleikari, María Wess, fiðluleikari.
Prestur sr. Þórhallur Heimisson.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Guðs-
þjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjórn
Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Aðal-
safnaðarfundur verður í safnaðar-
heimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Einar Eyjólfsson.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Sunnudagur:
Aftansöngur kl. 18 með sr. Atla
G. Jónssyni. Messa sunnudaga kl.
8.30. Aðra daga kl. 8. Allir velkomn-
ir.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Guðspjall dagsins: Tíu
líkþráir. Ræðuefni: Hverjir eru hinir
líkþráu í dag? Prestur: Ólafur Oddur
Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syng-
ur. Organisti og söngstjóri: Steinar
Guðmundsson.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISPREST AKALL:
Guðsþjónusta sunnudag á Heilsu-
stofnun NLFÍ kl. 11. Séra Svavar
Stefánsson í Þorlákshöfn messar.
Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSPRESTAKALL:
Messa í Skálholtskirkju sunnudag
kl. 14. Síra Axel Árnason, prestur
í Stóra-Núpsprestakalli, messar.
Organisti Hilmar Örn Agnarsson.
Sóknarprestur.
ÓLAFSVALLAKIRKJA: Boðið er til
þakkargjörðar í kirkjunni kl. 21 á
sunnudag. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Almenn guðsþjónusta kl. 11.
Barnasamvera meðan á prédikun
og altarisgöngu stendur. Messu-
kaffi.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Ferming. Fermdur verður Haraldur
Garðarsson, Einigrund 19. Altaris-
ganga. Björn Jónsson.
Farsi
SKÁK
Umsjón Margcir
Póturssoii
• b c d • t g
HVÍTUR leikur og vinnur
STAÐAN kom upp á „Foxt-
rot“ mótinu í London í ág-
úst. Þar mættust reyndir
stórmeistarar og bestu
skákkonur heims. Vlastimil
Hort (2.545) var með hvítt
og átti leik, en Soffía Polg-
ar (2.480) hafði svart.
16. Rcb5!! -axb5 17.Rxb5
- Rf3+ (Örvænting, en eft-
ir 27. - Bxb5 18. Dxb5+ -
Rfd7 19. Hd2! á svartur
ekki viðunandi vörn við tvö-
földun hvítu hrókanna á d
línunni) 18. Dxf3 - Bxf4
19. Dxf4 - e5 20. Rc7+
- Kd8 21. Dd2 - Hc8
22. Rd5 - Rxd5 23.
Dxd5 og svartur gaf
þessa vonlausu stöðu.
Öldungarnir sigruðu
27 ‘A-22 'A. Einstakl-
ingsárangur þeirra var:
Portisch og Smyslov 6 ‘A
v. af 10, Hor tog Spas-
sky 5 ‘A v. og Taimanov
3'A v.
Árangur kvennanna:
Arakhamia 6'A v. Pia
Cramling 5 'A v., Xie Jun
4 ’/z v., Joseliani 4 v. og
Soffía Polgar 2 v.
Konurnar sigruðu í þess-
ari keppni í fyrra, en nú
munaði miklu um að Júdit
Poigar var fjarri góðu
gamni.
Undanrásir atskákmóts
Islands hefjast í dag kl. 13
í Skákmiðstöðinni Faxafeni
12 í Reykjavík og kl. 14 á
Akureyri í félagsheimili SA.
Pennavinir
TUTTUGU og tveggja ára
þýsk stúlka, vinnur á far-
þegaskipi, nemur finsku,
sænsku, þýsku og landa-
fræði við Kílarháskóla.
Hefur áhuga á dansi,
sundi, hjólreiðum o.fl.:
Maud-Karen Melson,
Lutherstrasse 4,
24114 Kiel,
Germany.
SEXTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á ljós-
myndun:
Megumi Nozaki,
2-131 Aza-Sibayama,
Rokunohemachi,
Kamikitagun,
Aomori 039-23,
Japan.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Tapað/fundið
Ullarhyrna
tapaðist
SKÆRGRÆN ullar-
hyrna með kögri frá
Benetton tapaðist á
göngustígnum í Skeija-
firði sl. þriðjudag. Skilvís
fínnandi vinsamlega
hringi í síma 551-8897.
Myndavél
tapaðist
OLYMPUS myndavél
tapaðist á Laugavegin-
um fimmtudaginn 29.
ágúst sl. í henni var
átekin svart/hvít Ilford-
filma, og er hennar sárt
saknað. Finnandi er vin-
samlega beðinn að
hringja í síma 462-7896
eða senda a.m.k. filmuna
í Eikarlund 22, 600 Ak-
ureyri.
Lyklakippa
fannst
BRÚNT lyklaveski með
fjórum lyklum og bíllykli
fannst við strætisvagna-
skýli á móts við Land-
spítalann sl. fimmtu-
dagsmorgun. Upplýs-
ingar í síma 551-6591.
Gæludýr
BLÁR lítill páfagaukur
flaug á höfuðið á ungri
telpu í Fossvogsdal sl.
mánudag. Upplýsingar í
síma 588-2075.
Með morgunkaffinu
að koma henni á óvart.
TM Reg. U.S. P»t Off — all rtghts resorvod
(c) 1996 Los Angolos Timos Syndicate
ÞVÍLÍKT vanþakklæti.
Hann fær að leysa
mann af og heimtar svo
Iaunahækkun!
tímann hugsað um það,
kæra tengdamamma,
að ef þú værir furutré
með þetta ummál, vær-
irðu 43 metrar á hæð?
Víkveiji skrifar...
KONA á sjötugsaldri hafði sam-
band við Morgunblaðið vegna
fréttar á baksíðu blaðsins á mið-
vikudag. í fréttinni sagði að „öldruð
kona“ hefði verið rænd á Bústaða-
vegi og kom fram síðar í fréttinni
að um væri að ræða konu á sjötugs-
aldri.
Konan, sem samband hafði við
blaðið, sagði að sér hefði sárnað
þessi frétt, þar sem að hún liti síð-
ur en svo á að hún væri sjálf öldr-
uð. Það væri því óskemmtileg
reynsla að sjá öðru haldið fram í
frétt í Morgunblaðinu. Þá væri eig-
inmaður hennar ails ekki á því að
hann væri giftur „aldraðri" konu.
xxx
etta er réttmæt og jafnframt
áhugaverð athugasemd. Auð-
vitað er ávallt matsatriði hvenær
nota eigi hugtök á borð við „ung-
ur“ eða „aldraður". Það getur verið
einstaklingsbundið hvað á betur en
jafnframt hefur þjóðfélagsþróun
síðastliðinna áratuga gert það að
verkum að líklega er ekki óeðlilegt
að taka notkun slíkra hugtaka til
endurskoðunar að einhveiju leyti.
Velmegunin sem við íslendingar
höfum notið síðustu hálfa öld hefur
leitt til að Islendingar lifa lengur
og jafnframt betur. Fólk heldur
fullri heilsu mun lengur en áður var
raunin og ekki er óalgengt að fólk
er lætur af störfum um sjötugt sé
hið hressasta og eigi mörg, mörg
góð ár eftir. Það kann því að vera
verulega hæpið að fullyrða að rúm-
lega sextugt fólk sé orðið „aldrað“.
Varla er við hæfi að nota slík orð
fyrr en fólk sé komið á áttræðisald-
ur. Ekki vegna þess að það sé nei-
kvætt að vera aldraður, síður en
svo, heldur vegna þess að fólk lifir
mun lengur en áður.
xxx
ÍÐASTLIÐINN þriðjudag birt-
ist lesendabréf frá Árna Bene-
diktssyni þar sem hann gagnrýnir
að í fréttum skuli því vera haldið
fram að Bill Clinton verði fyrsti
forseti Bandaríkjanna úr röðum
demókrata í um hálfa öld sem nær
endurkjöri, sigri hann í forsetakosn-
ingunum í nóvember. Telur Árni
að þeir Harry Truman og Lyndon
B. Johnson hafi verið endurkjörnir
þar sem að þeir hafi áður verið
kjörnir til að gegna embætti vara-
forseta og þar með forseta ef sitj-
andi forseti fellur frá.
Auðvitað má ávallt þræta um
atriði af þessu tagi. Það er hins
vegar vart hægt að leggja að jöfnu
kjör forseta og varaforseta. Truman
var kjörinn í fyrra skiptið sem vara-
forsetaefni Roosevelts og Johnson
sem varaforsetaefni Kennedys.
Staðreyndin er áfram sú að enginn
demókrati hefur verið kjörinn for-
seti og síðan náð endurkjöri frá
Franklin D. Roosevelt.
Þetta er ekki einungis túlkun
Morgunblaðsins og Rcuters-hviVa-
stofunnar heldur viðtekin túlkun
áustans hafs sem vestan.