Morgunblaðið - 22.09.1996, Side 8

Morgunblaðið - 22.09.1996, Side 8
8 B SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ UM DAGINN var blaða- manni Morgunblaðsins sagt frá sex ára dreng sem átti að hefja skóla- göngu sína í haust. Hann hafði verið í leikskóla og eignast þar ágæta vini og nú átti öll hersingin að fara í skóla. I skólaumdæmi drengsins hefur sá háttur verið hafður á að raða börnunum í bekki eftir því hvar í umdæminu þau búa. Samkvæmt þessari tilhögun átti umræddur drengur ekki að vera í bekk með neinum af vinum sínum úr leikskólanum. Foreldrar drengsins báðu um að hann yrði færður í bekk með einhverjum af leikskólavinunum. Ekki var víst að unnt yrði að verða við þeirri beiðni. Foreldrum drengsins þótti því rétt að vara hann við og sögðu honum varlega að ekki væri víst að hann myndi lenda með neinum af vinum sínum í bekk. Drengurinn þagði drykklanga stund og sagði svo: „Jæja, ég hugsa þá að ég hætti við.“ Hefði þessi drengur fæðst fyrir röskum níutíu árum hefði hann getað hætt við allt saman. Skóla- skylda var ekki lögfest á íslandi fyrr en árið 1907 og náði þá til 10 - 14 ára barna. Heimafræðsla var þá ennþá leyfð en undir opinberu eftirliti. Það var ekki fyrr en rúm- um þijátíu árum síðar sem skóla- skylda náði til sjö ára barna og upp í fjórtán ára. Tíu árum síðar var skólaskyldan lengd og náði þá til 15 ára aldurs. Árið varð skólaskylda lengd til 16 ára aldurs og árið 1990 var skóla- skyldan færð niður um eitt ár og þess vegna er drengurinn sem að ofan er vitnað til orðinn skóla- skyldur 6 ára gamall og getur ekki „hætt við“. Margt fólk hefur kviðið mjög fyrir því að byija í skóla en fyrir flesta er skólatíminn skemmtilegt tímabil í ævinni. Þá gerist ýmis- legt eftirminnilegt og mörg vin- áttubönd eru hnýtt svo rækilega að þau duga sumum ævina á enda. Aron Guðmundsson hét maður sem stundaði barnaskólanám í Bamaskólanum á Eyrarbakka. Hann hafði keypt sér nýjan penna og vildi reyna hann áður en hann færi að skrifa með honum í skrift- arbókina sína. Á borðinu hjá hon- um lá stílabók merkt Guðmundi Aron. Hann vildi ekki krota út bókina og skrifaði því orðið herra fyrir framan nafn sitt. „Þetta hefði ég ekki átt að gera“, segir hann í bók um umræddan skóla og vitn- ar í hin vísu orð, „hver sem upphef- ur sjálfan sig mun niðuríægður verða.“ Eftir þetta kallaði Pétur Guðmundsson, kennari Arons, hann aldrei annað en herra Guð- mund Aron og „það kom ónotalega við mig,“ segir Aron. Veturinn 1918-19 var síðasti vetur Arons í barnaskóla og kenndi Pétur honum sem fyrr, orðinn gamall maður og farinn að heilsu, hann átti meðal annars erfitt með gang og dró annan fót- inn. Strákarnir kepptust um að hlaupa sem hraðast heim þegar skóla var lokið. Einn daginn í vetr- arbyijun sat Aron í viðbragðs- stöðu. „Þú ætlar víst ekki að verða samferða mér heim herra Guð- mundur Aron,“ sagði Pétur kenn- ari. Aron ansaði engu heldur rauk af stað fyrstur krakkanna. Svo stansaði hann allt í einu, hugsaði ráð sitt, sneri við og sagði við Pétur: „Ég ætla að vera samferða þér heim,“ . Pétur leit á hann með undarlegu augnaráði og sagði: „Ég meinti ekkert með því sem ég sagði áðan, hlauptu bara heim.“ En þeir urðu samferða þennan dag og alla daga vetrarins og studdi Aron kennara sinn í stormi og hálku og voru þeir oft lengi á leið- inni. „Og nú hófst hið raunveru- lega nám mitt. Við vorum oft ekki lagðir af stað þegar hann byijaði að segja mér eitthvað," segir Aron. Þess þarf varla að geta að Pétur kallaði Aron aldrei herra eftir þetta. Við náttúrufræðipróf kom það í hlut eins skólabróður Arons að SKÓLABJALLAN í Menntaskólanum í Reykjavík. með félaga sínum. Olíuljós var í herberginu. Einn morguninn vakti göm'd kona í húsinu þá félaga klukkan sjö eins og þeir höfðu beðið hana um kvöldið áður. Hún kveikti á lampanum og fór út. Þeir félagar héldu áfram að sofa en lampinn tók að ósa og fylltist herbergið af reyk. Loks kæfði sót- ið ljósið og voru strákarnir þá báðir orðnir kolsvartir. Eftir að loks hafði tekist að vekja þá fóru þeir að þrífa sig en það gekk ekki vel. Þeir fóru svo í skólann. Kenn- arinn leit á Guðmund og sagði: „Hvað er að sjá yður Guðmundur? Maður hefur heyrt að það hafi komið fyrir að menn hafi orðið hvítir á hár á einni nóttu en ég hef ekki heyrt að menn hafi orðið dökkhærðir á einni nóttu.“ Guð- mundur sagði þá frá hrakförum þeirra félaga. „Þvoðuð þið ykkur ekki áður en þið fóruð í skólann?" spurði kennarinn. Jú, þeir sögðust hafa þvegið sér og notað allskonar hreinlætisefni. „Ekki þó keytu?“ var spurt. „Nei, það var ekki búið að hella saman úr koppunum eftir nóttina,“ svaraði Hagalín. Þéringar eru nú löngu aflagðar en sumir kennarar þéruðu nem- endur sína eftir að allir aðrir voru hættir því. Einn þeirra var Sigurð- ur Guðjónsson sem kallaður var Lærer. Hann þéraði raunar alla viðmælendur sína. Einu sinni báru nemendur kött inn í dönskutíma hjá Sigurði. Þegar kennslustundin var hálfnuð komst kötturinn á kreik og hljóp út á mitt gólfið við kennaraborðið. Sigurður opnaði dyrnar á stofunni þegar í stað og sagði við köttinn: „Farið þér út, þér eigið ekki að vera hér.“ Þótt Sigurður væri svona kurteis var hann harður í horn að taka. Einu sinni var hann að kenna sem oft- ar. Hurðin á kennslustofunni opn- aðist fram á ganginn. Krakkar, sem voru frammi, settu þungan steinöskubakka fyrir hurðina. Þegar bjallan hringdi ætlaði Sig- urður út en komst hvergi. Eftir nokkrar tilraunir setti Sigurður í ÞÍN NEMÖND. Nú eru skólar komnir vel af stað og margt sögulegt faríð að gerast þar fyrír utan allt 3að sem að venjulegn námi lýtur. Guðrún Guðlaugsdóttir gluggaði í ýmislegt sem lýtur að skólahaldi og skólaskopi. lýsa ánamaðkinum. Hann lýsti skepnunni og var að lokum spurð- ur hvaða dýraflokki ánamaðkurinn tilheyrði. Nú kom ekkert svar og loks sagði kennarinn: „ kannski að hann sé flugdýr!" Nemandinn svaraði þessari tilgátu játandi, allshugar feginn. Kennarinn leit með nístandi augum frá nemand- anum til prófdómarans og sagði „Þá vitum við það. Ánamaðkurinn er flugdýr." Siguijón Ólafsson gekk líka í barnaskólann á Eyrar- bakka. Hann var spurður um minnisstæðasta atvikið í skólan- um. „Þegar ég ætlaði að ónáða tvær skólasystur á nauðþurftar- stað, en það bitnaði á skólastjóran- um, því að það var þá hann, sem þarna var, en ekki þær.“ Dökkhærður á einni nóttu Guðmundur Hagalín rithöfund- ur fór ungur að árum í Núps- skóla, í skólanum voru 13 strákar og 7 stelpur. Við borðið sem strák- arnir sátu við voru aðeins tólf sæti svo Guðmundi, sem var minnstur strákanna, var vísað til sætis hjá stelpunum. „Á ég þá ekki að fara í kvenmannsföt," sagði Hagalín við skólastjórann. „Þér getið hagað yður um það eins og þér viljið, Guðmundur minn, en yður verður samt ekki vísað til sængur á Langaloftinu hjá stúlk- unum,“ svaraði skólastjórinn. I skólanum gekk Hagalín verst við leikfimi og teikningu. Einkum gekk honum illa með beinu strikin og var sífellt að stroka út og reyna að laga þar til blaðið var allt orð- ið öskugrátt. Þá fór hann að dunda við að teikna karla og kerlingar í laumi. Einhveiju sinni náði kenn- arinn í eina af myndum hans og virti hana undrandi fyrir sér og sagði: „Án þess að ég vilji bendla þig við þann vonda Guðmundur minn þá dettur mér í hug vísan: Skrattinn fór að skapa mann, skinnlaus köttur varð úr því. Seinna fór Guðmundur í menntaskóla og bjó þá í herbergi herðarnar og hljóp á hurðina. Hún lét undan með braki og brestum og Sigurður, sem þá var orðinn gamall maður, gekk fram.skóla- ganginn með hurðarbrotin á öxlum sér. Hann mætti skólastjóranum á leiðinni og ætlaði að snúa við. „Farið þér bara upp, Sigurður, þér hafið gert nóg,“ sagði þá skóla- stjórinn. Framhaldsskólar nútímans eiga sér rætur í gömlu skólunum í Skál- holti og á Hólum, sem nefndust latínuskólar frá siðaskiptum. Lög um menntaskóla voru sett árið 1946, þá voru starfandi í landinu þrír menntaskólar og einn verslun- arskóli, auk iðnskóla, húsmæðra- skóla, stýrimannaskóla, bænda- skóla og fleiri skóla. Meðan Menntaskólinn í Reykjavík starf- aði einn slíkra skóla þótti afar merkilegt að stunda þar nám og voru margar sögur sagðar af námsmönnum þar, ekki síst þeim sem síðar urðu helstir andans menn á íslandi. Einar Benedikts- son var þeim minnisstæður sem hann þekktu. Árna Þórarinssyni þótti Einar kátur og fjörmikill og segir af honum margar sögur í ævisögu sinni. Einari gekk vel að læra allt nema landafræði og hana las hann heldur aldrei. Svo kom að prófi og þá spurði Einar: „Hvaða land er styst í landafræð- inni?“ Árni segir það vera Sviss og biður Einar hann þá að fara í gegnum Sviss með sér. Árni gerði það og hlýddi Einari svo yfir og gaf honum 6 í einkunn. „Eg skal koma upp í Sviss,“ sagði Einar. Daginn eftir sagði Einar svo Bene- dikt Gröndal kennari heyrði: „Ég er alveg vitlaus í landafræðinni nema ég komi upp í Sviss.“ Einar vissi að Gröndal var mesta góð- menni og langaði ekki til að læri- sveinar hans stæðu á gati. Grön- dal tók svo Einar upp í Sviss og fékk hann 5,2 fyrir frammistöðuna en Árni fékk 5,1 og kunni þó alla landafræðina. Bara venjulegt pukur Benedikt Gröndal fékk sína menntun í Bessastaðaskóla, sem var forveri Menntaskólans í Reykjavík. „Sú skoðun ríkti hjá Bessastaðapiitum, og hefur ríkt í öllum skólum á öllum tímum, að skólapiltar væri afmarkað og ein- angrað fjelag, sem enginn utan- skólamaður hefði leyfi til að skygnast inn í, eins og það væri einhver mystiskur helgidómur, að vissu leyti einskonar „mysteria". En þetta er í rauninni eintómt form og innbyrling; jeg varð aldrei var við að piltar hjeldu meira sam- an en aðrir, nje hjálpuðu hver öðr- um fremur en aðrir; þetta var ekkert annað en venjulegt „Clique“ pukur, sem menn gera sig merkilega með, með því að útiloka aðra.“ Það var þó ekki heiglum hent að komast í þessa klíku sem Bene- dikt talar um í ævisögu sinni Dægradvöl. Fyrst var það skírnin: „Tveir og tveir þar til valdir fyrir- fram tóku einn nýsvein á milli sín og nú fór allur herinn út í nætur- myrkrið ofan sjóbúðarflötina og ofan að tjörn; þar var vaðið'út í með hvern nýsvein af tveimur og okkur dýft á kaf að höfðinu ofan í sjóinn, allt alveg þegjandi; síðan var farið heim aptur og við vorum - að mig minnir - látnir lofa þögn og tryggð með handabandi og þannig vorum vjer teknir inn í „skólafjelagið“. Jambus var annað sem yfirgekk skólasveina á Bessa- stöðum. „Nýsveinar voru teknir með ofríki af tveim eða fleirum og beygðir upp og niður óþyrmi- lega, og var þá ætíð sungið þetta: Snúða nú aptur enn til hvíldar öndin mín, nótt er komin en dagur dvín. Var þetta opt gert svo hroðalega að piltunum varð illt af, með höf- uðverk og blóðnösum, en engum hjelst uppi að kvarta." Þá var það svo Descensionin. „Nýsveinum var hrundið ofan Bessastaðahól; Hann var snarbrattur, en þetta var gert í þíðum og ieysingum og þótti fræknleikur að missa ekki fót- anna.“ Loks talar Benedikt um Aries, þá voru Ijós slökkt í bekknum og „gekk svo allur hópurinn hvor á annan, svo þeim lá við meiðingum sem innstir voru,“ einnig kom fyr- ir að eldri piltar „kipptu undan“ nýsveinum bekkjunum sem þeir sátu á þegar þeim minnst varði og duttu þeir þá á gólfið. Þessar lýsingar sýna að það var ekkert sældarbrauð að hefja nám í menntaskóla á árum áður og er hreint ekki víst að þessar inntöku- athafnir hafi versnað til muna, þetta er sagt þeim til huggunar sem enn eiga um sárt að binda eftir tolleringar og fleiri athafnir af líkum toga. En þótt þetta allt saman blasi við er ekki hægt að „hætta við“. Skólaskyldan er hlut- skipti allra þeirra barna sem mögulega geta lært og flestir fara í annað nám að auki. Skólaveran er líka mörgum ljúf að undirgang- ast. Margir krakkar taka miklu ástfóstri við kennarana sína. Eina litla stúlku þekkti ég sem þótti mjög vænt um kennarann sinn. Fyrir ein jólin ákvað hún að teikna fínt kort og senda kennaranum. Hún teiknaði á kortið jólasvein, jólabjöllur, jólatré og allt það besta sem hún gat hugsað sér. Svo skrif- aði hún á kortið stórum stöfum: „Gleðileg jól og farsælt ár. Þín nemönd ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.