Morgunblaðið - 22.09.1996, Page 9

Morgunblaðið - 22.09.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 B 9 GUÐMUNDUR Hálfdanarson, dósent í sagnfræði við Háskóla Islands. Hverfur þjóð- ernisvitund í Evrópu? Ýmsir hafa haldið því fram að samkennd í heiminum sé að breytast og velta því fyrir sér hvað verði um okkur sem þjóð í framtíð- inni. Hildur Einarsdóttir ræddi við Guð- mund Hálfdanarson, dósent í sagnfræði við Háskóla Islands, um þjóðernisvitundina og Evrópusamstarfið. Morgunblaðið/Kristinn EVRÓPUSAMSTARFIÐ og tæknivæðing, sem dregið hefur úr fjarlægð þjóða á milli, hefur Jcveikt margar spurningar í vitund íslendinga um hvað verður um okkur sem þjóð. Getum við sætt aukna alþjóðahyggju og sjálfstæði þjóðarinnar? Hefur ís- lensk þjóðernisvitund breyst á síðari árum? Margir góðir menn hafa leit- ast við að gera okkur grein fyrir á hvaða grunni við stöndum í þessum efnum og hvernig draga megi skyn- samlegar niðurstöður af stöðu okkar. Einn þeirra er Guðmundur Hálfdan- arson dósent í sagnfræði við Háskóla íslands sem skrifaði grein í vorhefti Skírnis sem hann nefndi: Hvað gerir íslendinga að þjóð? Þar hugleiddi hann uppruna og eðli þjóðernis út frá kenningum sem komið hafa fram á síðari tímum. Einnig flutti hann loka- orðin á málþingi um íslenska þjóðem- isstefnu sem haldin var í Norræna húsinu í byrjun mánaðarins. Inntak þeirrar' ráðstefnu var hvort íslensk þjóð sé sjálfsögð eða ímyndað samfé- lag svo vitnað sé til kenninga írsk- bandaríska stjómmálafræðingsins Benedicts Andersons. „Ég ætla að láta liggja milli hluta hvor hugmyndin er „réttari“, þ.e. sú hugmynd að íslendingar séu þjóð vegna þess að þeir trúa á goðsögnina um eigin uppruna eða að þeir séu þjóð vegna þess að þeir tala ís- lensku,“ segir hann þegar við biðjum hann að lýsa nánar hugmyndum sín- um um hvert þjóðernishyggja íslend- inga stefni. „Hins vegar langar mig til að velta fyrir mér þeim skilum eða rofi í anda Foucaults sem mér sýnist að átt hafi sér stað í íslenskri söguvitund á undanförnum árum og hefur breytt sýn manna á þjóðernið." Ungt fólk á erfitt með að tengjast fortíðinni „Ef við veltum fyrir okkur hvað sé þjóð þá má í stuttu máli segja að þjóð sé samfélag fólks bæði í fortíð, nútíð og framtíð. Sambandið við for- tíðina er öllum þjóðum mikilvægt vegna þess að þær leita uppnina síns í sögunni. Þjóðarsagan er um leið þroskasaga okkar sjálfra. En mér finnst ungt fólk eiga æ erfiðara með að skynja þessi tengsl við gengna foitíð og það er eins og ninn rauði þráður frelsisbaráttunnar hafi rofnað. Ein ástæða rofsins er auðvitað sú að íslendingum hefur gengið illa að hata Dani, enda leysa kúgarar fóm- arlömb sín sjaldnast út með gjöfum. Önnur ástæða er þéttbýlismyndunin, þróunin úr bændasamfélagi yfir í iðn- aðar- og þjónustusamfélag. Nútíma unglingur sem alinn er upp í Reykja- vík skilur tæpast tungumál og hugs- unarhátt íslenskrar bændamenning- ar. Það er einfaldlega erfitt fyrir fólk sem elst upp við velmegun nútímans umlukið innfluttum táknkerfum að skilja að við eigum eitthvað sam- merkt með bændafólki 18. aldar sem bjó í moldarkofum og kljáðist við náttúmöflin. Mun auðveldara er að skilja menn í svipaðri þjóðfélagsstöðu og á líku menntunarstig' og gildir þá einu hvort þeir búa hér á landi eða í nágrannalöndunum." Guðmundur segir skilin í söguvit- undinni birtast líka í breyttum áherslum í sögukennslu í skólum. „Hér áður fyrr var það yfirlýst stefna að kenna uppvaxandi kynslóðum um baráttu þjóðarinnar fyrir frelsi og bættum lífskjörum," segir hann. „Upp úr 1980 hætta skólayfirvöld að trúa á það sem meginmarkmið. Sagnfræðingar hafa líka sýnt fram á að fortíðin var ekki svona einföld. Nú er markmið kennslunnar ekki lengur að innprenta nemendum þá hugmynd að inntak íslenskrar sögu hafi fvrst. og fremst verið barátta sameinaðrar þjóðar við óstjórn út- lendinga. Meiri áhersla er lögð á að nemendur skilji fortíð sína og geri sér grein fyrir því hvernig íslenskt nútímasamfélag varð til. Jafnframt beinast sjónir að þjóðfélagshópum sem hafa orðið útundan í sögukennsl- unni eins og lægri stéttum og konum sem fram að þessu hafa verið fyrir- ferðarlitlar í sögunni." Náttúran mikilvægasta þjóðernistáknið - ekki tungan Hvað er það þá sem tákngerir þjóð- emisvitundina í hugum ungra íslendinga ef tengslin við fortíðina em rofin? „Fyrst vil ég taka það fram að jafnvel þótt tengslin við fortíðina séu ekki jafnnáin nú og þau voru áður hefur fólk enn tilfinningu fyrir því að það eigi sér sögu þótt það þekki hana ekki vel eða finnist hún skipta sig miklu máli í daglegu lífi. En ég held þó að mikilvægasta táknið í þjóðernisvitund nútíma íslendinga sé náttúran fremur en sagan og hún hefur að vissu leyti leyst söguna af hólmi. íslendingar eru afskaplega stoltir af fegurð lands síns. Mesti þjóðernislegi verknaðurinn er að græða landið. Það eru ekki margar þjóðir sem tengjast landi sínu jafn- sterkt og við Islendingar. Náttúran hefur auðvitað alltaf staðið íslend- ingum nærri, enda minnir hún oft óþægilega á sig. En náttúrusýn Ís- lendinga hefur breyst mjög mikið á síðustu árum. „Fögur er hlíðin,“ sagði Gunnar forðum, en hann sá fegurðina í bleikum ökrum og slegn- um túnum en ekki í hraunflákum eða jökulbreiðum. Nú kemur náttúru- dýrkun meðal annars fram í aukinni sumarbústaða- og jeppaeign. Það er eins og um leið og við erum að fjar- lægjast náttúruna nálgumst við hana aftur á nýjan hátt. .og ræturnar." Guðmundur segir að náttúran sé að mörgu leyti orðin sterkara þjóð- ernistákn en tungumálið. „Ástæðan fyrir því er kannski sú að náttúran er hlutlaust tákn, allir geta gert hana að sinni. Það sem dregið hefur úr áhrifum tungunnar sem sameicr- inlegs tákns er að sífellt er verið að skamma þjóðina fyrir að tala ekki rétt mál. Það er erfitt að tengjast tungunni tilfínningaböndum ef við erum sannfærð um að við getum ekki talað hana rétt. Ég tel að það myndi styrkja íslenskuna sem tákn íslensks þjóðernis ef við drægjum úr hreintungustefnunni enda get ég ekki séð að hún sé í nokkurri hættu stödd. Annars tengist tungan og náttúran í hugum fólksins, talað er um ræktun landsins og ræktun tung- unnar í sömu andránni. Við getum líka velt fyrir okkur hvernig þjóðríki verða til,“ segir Guð- mundur. „Þjóðir verða til við ákveðn- ar sögulegar aðstæður. íslenskt þjóð- ríki varð til frá árunum 1800-1918. Miðaðist þróunin við samgöngutækni, efnahagslíf og viðskiptaumhverfi á þeim tíma. Þá voru ákveðnar hindran- ir í verslun á milli landa en þróunin hefur orðið sú að múrarnir hafa verið að falla einn af öðrum. Það er að verða að veruleika það sem Adam Smith sagði í Auðlegð þjóðanna: „Búa á til vöruna þar sem hægt er að fram- leiða hana á hagkvæmastan hátt.“ Verður fullveldi þjóðanna skert æ meira eða ... Guðmundur segir enn óljóst hvort mögulegt sé að opna fyrir flæði í viðskiptum en jafnframt sjá til þess að fullveldi þjóðanna sé óskert Hann segir einn möguleikann vera að full- veldi þjóðanna verði skert æ meira. „Evrópa verði gerð að eins konar þjóðríki þar sem verði eitt þing og ein stjórn. Þetta getur verið jákvætt ef það leiðir til aukins friðar í álf- unni. Mér finnst líka jákvætt ef menningarleg samvinna eykst við slíkan samruna og ef það eykur möguleika fólks til að sækja sér störf og menntun annars staðar en í heimalandinu. Annar möguleiki er sá og sýnu verri að þjóðríkin hverfi á pappírnum en haldi áfram að starfa í raun og beiti áhrifum sínum gegn hagsmunum annarra eininga til að auka völd sín. Ef við fylgjum þeirri stefnu sem Evrópusambandið hefur markað sér á síðasta áratug þar sem æ stærri hluti ákvarðanatöku er tekinn fyrir utan þjóðríkin fyndist manni eðlilegt að til kæmi yfirþjóðleg stjórn sem endurspegli vilja þegnanna í lýðræð- islegum kosningum. Svo þannig kerfi virki mega þjóðríkin ekki starfa sam- an sem heildir því þannig yrðu sum- ar heildir stærri en aðrar. Ef þegn- arnir kysu eftir sannfæringu sinni án tillits til upphaflegs þjóðernis þá sé ég fyrir mér að þetta gæti gengið og einstakir hópar gætu unnið mál- um sínum eðlilegan framgang." - Ertu þá að segja að þjóðernisvit- und muni hverfa í Evrópu á næstu árum? „Eitt af hlutverkum þjóðernis- kenndarinnar er að sætta okkur við að fórna hluta af hagsmunum okkar fyrir heildina. Hyrfum við inn í stærri einingu yrði þessi vitund um sameig- inlega hagsmuni að vera til; vitund um eitthvað sameiginlegt með þeim sem eiga fullveldið með okkur. Ef til vill er æskilegast á þessu stigi málsins að samband Evrópuþjóðanna sé fyrst og fremst efnahagssamband hvað sem síðar verður.“ - Á grundvelli þess sem við höfum verið að tala um hér, finnst þér þá að íslendingar eigi að sækja um að- ild að Evrópusambandinu? „Við hljótum að þurfa að velta þeim möguleika fyrir okkur. Ýmsir hafa haldið því fram að samkennd í heiminum sé að breytast og verða hvort tveggja í senn alþjóðlegri og svæðisbundnari en áður, þ.e. þróunin stefni í þá átt að íbúar stærri þjóð- ríkja líti á sig fremur sem hluta af stærri heildum, eins og til dæmis ESB, og stundum ákveðnum héruð- um; íbúi Bretagne-skaga líti á sig sem Bretóna í annan stað og Evrópubúa hins vegar fremur en Frakka. Miðað við almenna þróun í nágrannalöndun- um virðist þessi hugmynd eiga við rök að styðjast, þótt við sjáum einnig mörg merki um hið gagnstæða, þ.e. aukna þjóðerniskennd, jafnvel öfga- kennda og ofbel.lissinnaða. Hvernig sem allt fer er fáum þjóðum jafnmikil- vægt og íslendingum að rækta sam- bandið við umheiminn og við getum ekki leyft okkur að einangrast hér úti í Atlantshafi. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá hljótum við að fylgja timans straumi, gallinn er bara sá að oft er ómögulegt að fullyrða um hvert hann streymir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.