Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 B 11
Húðin er mjúk og nær
hrukkulaus og hvítt hár-
ið myndar ramma um
fínlegt andlit Sigur-
bjargar Lárusdóttur, þar
sem hún situr 87 ára
gömul í stólnum sínum
og tekur ljúflega á móti
gestinum. Þegar hún lít-
ur á myndina í blaðinu af fegurðardrottning-
unni frá 1930 og haft er orð á að hún sé enn
jafn falleg, segir hún:„Mér finnst ég nú ósköp
lík, bara svolítið yngri þarna!" Hún man vel
eftir því þegar hún frétti að hún hefði verið
númer tvö í samkeppninni. Það var ekkert
verið að tilkynna henni það. Þá vann hún á
miðstöð Bæjarsímans í Reykjavík. Hún heldur
að vinkona hennar _ þar, Asta Pétursdóttir
seinna kona Björns Ólafssonar ráðherra, hafí
sent inn myndir af stelpum sem þar unnu. Það
var eftirsótt að vinna á símstöðinni og þar var
kátur og skemmtilegur hópur ungra kvenna
og í hópnum fallegar stúlkur. „Þegar myndirn-
ar af þeim sem unnu birtust sögðu sumir að
við hefðum fengið að vera með í þessari sam-
keppni í Teofani-pökkunum af því að við reykt-
um svo mikið. En við vorum 50 og ég held
að engin okkar hafi reykt.“
Sigurbjörg vann á Bæjarsímanum á árunum
1927-1930. Þar var mikið að gera við að af-
greiða öll símtöl í bænum. Sumir fóru að þekkja
röddina og sögðu áður en þeir báðu um númer-
ið: Er þetta fröken Sigurbjörg? Þegar Sigur-
björg hætti þar fór hún til Kaliforníu, þar sem
hún átti föðursystur, Oddfríði Eiríksson, sem
hana hafði alltaf langað til að heimsækja.
Faðir hennar, sr. Lárus Halldórsson prestur á
Breiðabólstað á Skógaströnd var þá látinn, en
móðir hennar Arnbjörg Einarsdóttir á lffi. Hún
ólst upp á Breiðabólstað til níu ára aldurs, er
þau fluttu til Reykjavíkur. Faðir hennar dó
úr „stóru pestinni 1918“.
Hélt til Kaliforníu
„Það var ægilega gaman að fara vestur.
Við vorum þijár saman, hinar, Kristín Áma-
dóttir og Anna Jónsdóttir, höfðu hugsað sér
að læra hárgreiðslu. Þetta var mikið ferðalag.
Við fórum með skipi til Québec í Kanada og
þaðan með lest til Winnipeg, þar sem við áttum
einhveija ættingja. Þar fréttum við af manni,
sem ætlaði að aka til Kaliforníu og fengum
far með honum með því að borga okkar hlut
í kostnaðinum. Svo hinar tvær slógust í för
með mér og fóru til Los Angeles þar sem þær
lærðu hárgreiðslu og giftust báðar Bandaríkja-
mönnum. Ég fór til San Diego til frænku
minnar, sem rak þar verslun og dóttir hennar
var í háskóla. Þar fór ég að læra hraðritun
og vélritun í Kelsey Jenney Commercial Scho-
ol, ætlaði að búa mig undir skrifstofuvinnu."
En Sigurbjörg ætlaði sér heim til Islands.
„Það var maður heima sem mér fannst sárt
að missa af, Baldvin Einarsson hjá Eimskip.
Þegar ég var komin til San Diego kom í ljós
að ég var ófrísk. Mér hafði ekkert dottið það
í hug, var svoddan barn. Var komin Ijóra
mánuði á leið þegar ég fór til læknis. Það var
ekkert auðhlaupið að því að komast heim aft-
ur. Ég átti svo dóttur mína Angelu þar. Frænk-
um mínum fannst það allt í lagi og voru fjarska
góðar við mig. Þarna var ég í þijú ár. Frænka
mín taldi svo betra fyrir mig að fara með telp-
una heim.“
Það gerði Sigurbjörg. Var hún trúlofuð
heima? „Nei, ég reiknaði með að við yrðum
hjón. En það breyttist allt saman. Hann hafði
hitt aðra. En við vorum alltaf góðir vinir.“
„Mamma lofaði telpunni að vera og ég fór
út að vinna. Ekki þó í fyrra starf, enda var
sjálfvirki síminn kominn og þurfti svo fáar
stúlkur. En ég vann á skrifstofu^ hjá Garðari
Gíslasyni í eitt ár og síðan hjá SIF, Sölusam-
bandi íslenskra fiskframleiðenda í Ingólfshvoli
í Austurstræti. Þar voru þessir karlar að flytja
út fisk, Kristján Einarsson, sem var giftur
systur mágs míns, og Ríkharð Thors. Við unn-
um oft fram á kvöld. Ríkharð gekk um gólf
Fegurðardrottning
frá 1930
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIGURBJÖRG Lárusdóttir, 1996.
Nýlega birtust myndir af þremur stúlk-
um, sem hlutu flest atkvæði þjóðar-
innar í myndasamkeppni úr Teofani-
sígarettupökkum um fegurstu stúlku
-------------------—-------------
á Islandi. Sigurbjörg Lárusdóttir var í öðru
sæti. Elín Pálmadóttir hafði upp á henni á umönnunar-
heimilinu Skjóli og sá að hún er enn gullfalleg.
VUfí
urbji
0tZl
og beið eftir útflutningsskjölunum og fleiru frá
okkur. Nei, við fengum ekki greidda auka-
vinnu, en höfðum hátt kaup, 200 krónur á
mánuði.“
Hitti mannsefnið á Borginni
Mannsefnið sitt, Braga Steingrímsson dýra-
lækni, hitti Sigurbjörg 1935. „Ég var með
nokkrum stelpum í kaffi á Hótel Borg og
Guðmundur Árnason með okkur. Bragi þekkti
hann, kom að borðinu til okkar og bauð öllum
hópnum heim. Hann sagði mér seinna að hon-
um hefði strax litist svona vel á mig. Þýsk
eiginkona hans var nýfarin frá honum, aðeins
viku fyrr. Við hittumst sannarlega á réttri
stundu. Mér fannst hann svo myndariegur og
skemmtilegur. Við vorum mjög ástfangin."
Ári seinna fóru þau upp að Stóra-Hrauni á
Snæfellsnesi og giftu sig. Voru í mánuð í ferð-
inni. Rósa systir Sigurbjargar var gift Þórarni
Árnasyni, syni sr. Árna, og þau þjuggu þar
með foreldrum hans. Þar sem sr. Árni var að
heiman, gaf aðstoðarpresturinn sr. Þorsteinn
Lúter Jónsson brúðhjónin saman.
Bragi stundaði dýrlækningar í Reykjavík,
en hafði ekkert fast starf. „Það var Jón Þor-
láksson borgarstjóri sem hafði skilning á því
að þyrfti dýralækna og fékk hann til að skoða
allar kýr í umdæminu þar sem seld var mjólk
til Reykjavíkur. Það voru einu föstu tekjurnar.
Það var heldur enginn skilningur á að þyrfti
dýralækni úti á landi, en Jón beitti sér líka
fyrir því að fengnir yrðu dýralæknar í fjórðung-
ana. Við bjuggum í íbúð sem Bragi átti á
móti Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara á
Freyjugötu 42 og ég hélt áfram að vinna til
1938. Þá var stofnað dýralæknisembætti á
Isafírði og Bragi fékk það. Við vorum þar í
tvö ár. Grímhildur, elsta dóttir okkar Braga,
fæddist 1937 og síðan hin hvert af öðru. Við
áttum 8 börn saman, það yngsta fæddist 1949.
Bragi fékk um það leyti dýralæknisembætti á
Austurlandi og við bjuggum eitt ár á Eski-
firði, tvö ár á Eiðum og 1945 var byggður
bústaður fyrir dýralækni á Egilsstöðum. Það
var mikill munur að fá einbýlishús til afnota.
Þar var ágætt að vera og við vorum á Egils-
stöðum í 13 ár. Bragi hafði keypt gamlan
Willisjeppa af Stebba Gutt á Reyðarfirði. Þetta
var rammgerður bíll, líklega sá besti sem við
áttum. Herbílamir voru svo sterkir. Það var
ekki fyrr en við vorum komin suður 1964 að
það hafðist loks í gegn að hann fengi embætt-
isbíl. Þá bjuggum við á Stóra-Fljóti í Biskups-
• tungum og hans embætti náði yfir
efri hluta Árnessýslu. Í
millitíðinni hafði
hann leyst Sigurð
Hlíðar af á Akur-
eyri. Það var heil-
mikið stand að vera
alltaf að koma sér
fyrir.“
Svo missti Bragi
heiisuna, segir Sigur-
björg. „Hann hafði
verið úti í mýri að
lækna hest, þurfti að
vaða vatnið í frosti. Það
kom drep í fótinn og
þurfti að taka hann af
honum. Hann dó 1971. Við
bjuggum þá á Baldursgötu
9 í Reykjavík. Baldur tví-
burabróðir hans átti húsið
og við keyptum það af hon-
um, nema viðbygginguna.
Þarna hefí ég svo búið þar til
fyrir 2-3 árum að ég kom hing-
að á Skjól. Raunar er heimilið
þar enn, yngsta dóttir mín er
þar. Börnin giftu sig öll og fóru,
ein er gift í Noregi. Þau eru öll
vel lukkuð og góð við mig. Og það
er fólkið hér á Skjóli líka. Mér líð-
ur vel og ég er ánægð. Engin ástæða til að
fá hrukkur," segir þessi snyrtilega, fallega
kona þegar við kveðjum.
U mh verfismála-
námskeið í HÍ
NÁMSKEIÐ í umhverfismálum
verður haldið í Háskóla íslands.
Til þess er stofnað fyrir nemend-
ur í Verkfræðideild og Raunvís-
indadeild en öðrum er fijálst að
taka þátt í því eða einstökum
kennslustundum, einnig þeim
sem ekki eru skráðir í Háskóla
íslands. Flutt verða 10 erindi og
er gert ráð fyrir umræðum á
eftir hverju þeirra. Námskeiðið
verður á mánudögum kl. 17 í
stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga
2-6.
Stúdentar sem á fyrra ári tóku
þátt í hluta af samsvarandi nám-
skeiði geta nú tekið það sem á
vantaði til að fylla upp í námsein-
ingu.
Eftirtalin flytja erindi: 30.
september: Unnsteinn Stefáns-
son, prófessor emeritus: Hafið
sem umhverfi; 7. október: Aðal-
heiður Jóhannsdóttir, lögfræð-
ingur, framkvæmdastjóri Nátt-
úruverndarráðs: Náttúruvernd í
framkvæmd; 14. október: Magn-
ús Jóhannesson, verkfræðingur,
ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
neytis: Sjálfbær þróun; 21. októ-
ber: Arnþór Garðarsson, prófess-
or, formaður Náttúruverndar-
ráðs: Um náttúru íslands og
náttúruvernd; 28. október: Ingvi
Þorsteinsson MS, Rannsókna-
stofnun landbúnaðarins: Gróður
og jarðvegseyðing á íslandi og
endurheimt landgæða; 4. nóvem-
ber: Júlíus Sólnes, prófessor í
byggingarverkfræði, fyrrverandi
umhverfisráðherra: Gróðurhúsa-
áhrif og skuldbindingar íslands
í því tilliti; 11. nóvember: Þorleif-
ur Einarsson, prófessor í jarð-
fræði: Umhverfisáhrif mann-
virkjagerðar; 18 nóvember: Jak-
ob Björnsson, verkfræðingur,
orkumálastjóri: Orkumál og um-
hverfi og 25. nóvember: Einar
B. Pálsson, prófessor emeritus:
Matsatriði í umhverfismálum.
r
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
L
---------------------------------------------------1
Lokað
vegna breytinga til 2. október næstkomandi.
Fótaaðgerðastofan, I
Búðargerði 12,
Reykjavík.
Tímapantanir áfram í síma: 553 3205.
Rósa Poroaldsdóttir,
lögg. fótaðgerðafr.
scrgr. fætnr sykursjúkra, inngr. neglur,
stangar- og sílikonmeðferðir.
Lokað |
vegna breytinga til 2. október næstkomandi.
Fegrun snyrtistofa,
Búðargerði 12,
Reykjavík. |
Tímapantanir áfram í síma: 552 3205.
Rósa Þorvaldsdóttir,
meistari í snyrtifræði. |
__________________________________________________I