Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 11
FRÉTTIR
Heildtæk
skólastefna
í Súðavík
í Súðavík er unnið að þróun nýrrar skóla-
stefnu með samvinnu leikskóla, grunnskóla
og tónlistarskóla. Nær hún yfir allt tímabilið
frá því bömin fara í leikskóla eins eða tveggja
ára gömul og þar til þau ljúka grunnskólan-
um 15 ára. Nýtt skólahús staðarins er hann-
að með þarfir skólastefnunnar í huga. Helgi
Bjarnason kynnti sér þróunarstarfið.
TEKIN hefur verið í notkun mikil
viðbygging við grunnskóla Súðavík-
ur svo og leikskóli, sambyggður.
Þessar nýju byggingar auka mögu-
leika á áframhaldandi þróun sam-
vinnu þessara tveggja skóla, auk
tónlistarskólans, sem hófst fyrir ári
undir vinnuheitinu „Heildtæk skóla-
stefna". Verkefnið er liður í mast-
ersnámi Bergljótar V. Jónsdóttur
skólastjóra grunnskóla Súðavíkur.
Blaðamaður ræddi við hana og
Steinunni A. Einarsdóttur leik-
skólastjóra um reynsluna af síðasta
vetri og framtíðina.
Endurskoðað í vetur
í grunnskólanum eru nú 49 börn.
Fyrstu þremur árgöngunum er
kennt saman og síðan tveimur og
tveimur nema hvað tíundi bekkur
er hafður sér. í leikskólanum eru
nú 19 börn, 1-5 ára.
Vegna fyrirhugaðrar uppbygg-
ingar skólans og leikskólans eftir
snjóflóðin var ákveðið að heija þró-
unarstarf þar sem gert er ráð fyrir
nánu samstarfi skólanna þriggja.
Leikskólinn var í grunnskólahús-
næðinu síðasta vetur og var þá
gerð tilraun með samkennslu. Börn
á aldrinum 5-8 ára, það er að segja
elstu börnin í leikskólanum og þrír
yngstu árgangar grunnskólans,
voru saman í myndmennt, heimilis-
fræði, tónmennt og íþróttum auk
þess sem þau fengu ókeypis kennslu
í blokkflautuleik. Steinunn og Berg-
Ijót eru sammála um að þessi til-
raun hafi að mörgu leyti gefist vel
þótt ýmsir agnúar hafi einnig kom-
ið í ljós. Bergljót segir að það verði
verkefni starfsfólks skólanna í vetur
að endurskoða það sem gert var í
fyrra og móta verkefnið til framtíð-
ar í ljósi fenginnar reynslu.
Þær segja að ekki hafi verið eins
mikill skólaleiði í leikskólanum. Þá
hafi elstu börnin tekið upp vinnu-
brögð sér eldri barna í samkennsl-
unni og jafnvel kennt sér yngri
börnum í leikskólanum. „Nú sé ég
þessi fimm ára börn frá því í fyrra
koma inn í grunnskólann eins og
þau hafi verið þar fyrir,“ segir
Bergljót.
Ýmsir niöguleikar
Þannig stendur á í vetur að eng-
in fimm ára börn eru í leikskólanum
og því verður ekki hægt að vera
áfram með samkennslu með sama
sniði og í fyrra. Bergljót og Stein-
unn sjá ýmsa aðra möguleika í stöð-
unni. Þær sjá möguleika á að lengja
skólatímann hjá yngstu deild grunn-
skólans, það er 6-8 ára börnum. Að
þau fái að fara í leikskólann í
klukkutíma tvo daga í viku og nýta
sér það sem þar er í boði og vera
því til hádegis í skólanum alla daga
vikunnar. Þær sjá möguleika á sam-
eiginlegum verkefnum og skemmt-
unum í vetur. „Við getum til dæmis
fengið að sjá leikrit hjá þeim og þau
hjá okkur," segir Steinunn.
ENN er unnið að frágangi nýs skólahúss í Súðavík.
Morgunblaðið/RAX
ÁGÚST Kr. Björnsson sveitarstjóri, Steinunn A. Einarsdóttir leik-
skólasljóri og Bergljót V. Jónsdóttir skólastjóri í salarkynnum
grunnskóla Súðavíkur.
Bergljót segist reikna með að
áfram verði haldið samkennslu í
verk- og listgreinum og íþróttum.
Reynt verði að koma á markvissri
málörvun til að auka orðaforða
barnanna og bæta árangur í lestri.
Á dagskrá er að hefja verkefni sem
snýst um rökhugsun og hugtaka-
nám til undirbúnings stærðfræði-
námi. Sú staðreynd að fimm ára
börnin vantar, setur þessu starfi
vissar skorður en Bergljót segir að
reynt verði að þróa þetta starf í
vetur þrátt fyrir það.
Tónlistarkenpslan er á vegum
Tónlistarskóla ísafjarðar og er löng
hefð fyrir þeirri samvinnu. Fyrir-
hugað er að halda henm' áfram en
starfið gert markvissara með því
að taka meira tillit til tónlistar-
kennslunnar við stundatöflugerð.
Góð skólalóð
Þessar vikurnar er verið að
ganga frá nýja skólahúsnæðinu og
umhverfi þess. Það var hannað með
þarfir heildtækrar skólastefnu í
huga. Skólarnir verða áfram sjálf-
stæðir en mikil samvinna á milli
þeirra. Vinnuaðstaða kennara er
sameiginleg, fundarherbergi, birgð-
ir og kennslugögn. Skólaeldhús er
sameiginlegt. Ekki hefur verið
ákveðið hvort boðið verður upp á
mat í hádeginu en það er í athug-
un. Öll aðstaða er mjög góð. Þann-
ig er innangengt í fþróttahúsið og
annast iþróttakennarar skólans
íþróttaþjálfun í þorpinu. Fyrirhugað
er að koma bókasafni hreppsins
fyrir í húsnæðinu ásamt skólabóka-
safni. Ágúst Kr. Björnsson sveitar-
stjóri segir að með þessari samvinnu
skólanna ætti starfsfólk og aðstaða
að nýtast betur og reksturinn að
verða ódýrari fyrir sveitarfélagið.
„Þetta er mikil breyting fyrir
mig. Ég hef verið eini leikskóla-
kennarinn og því að vissu leyti fag-
lega einangruð. Það er því mikill
munur að komast hingað og í sam-
band við kennara grunnskólans,"
segir Steinunn leikskólastjóri.
Skóla- og leikskólalóðin verður
mjög skemmtileg, að sögn Bergljót-
ar, og hún verður jafnframt leik-
svæði barnanna í Súðavík. Steinunn
bendir á að börnin úr skólunum
hittist úti á skólalóðinni og blandist
í leik. Hún segist geta verið sér
með yngri börnin á meðan þau eldri
leiki sér á skólalóðinni, nú eða þá
yngri börnin úr grunnskólanum
komi í heimsókn á leikskólalóðina.
„Það var reynslan upp frá í „gamla“
leikskólanum að þangað komu oft
eldri börn í heimsókn og mér finnst
það mjög gott að börnin hittist
meira,“ segir Steinunn.
Miðstöð félagsstarfs
Framkvæmdir við byggingu skól-
anna hófust síðastliðið haust. Unnið
var að innréttingum í vor og sumar
og enn er unnið að frágangi þótt
húsið hafi verið vígt 1. september
og tekið í notkun um miðjan mánuð-
inn. Nýja skólahúsnæðið er 514
fermetrar að stærð, þar af fer 120
fermetra grunnflötur undir leik-
skóla en plássið er að hluta til á
tveimur hæðum. Byggingin kostar
um 54 miiljónir kr., að sögn sveitar-
stjórans, og er byggt að stórum
hluta fyrir gjafafé Færeyinga sem
gáfu 25,7 milljónir kr. og Lions-
hreyfingarinnar sem gaf 6,6 millj-
ónir. Tryggingabætur vegna leik-
skólans sem skemmdist í snjóflóð-
inu nema 12 milljónum kr. Auk
þessa hefur fjöldi félaga og ein-
staklinga gefið peninga til fram-
kvæmda við skólalóðina.
Ágúst segir að nýja húsnæðið
verði meira en skóli, það verði mið-
stöð félagsstarfs í Súðavík. Nefnir
hann að brýn þörf sé fyrir félags-
starf fyrir eldri borgara og raunar
ekki vanþörf á að lífga við allt fé-
lagslíf í þorpinu. Og hann á von á
því að í salarkynnum skólans verði
haldnar margar fermingarveislur á
komandi árum.
Morgunbladid/RAX
BRÆÐURNIR úr Vigur, Bjarni, Magnús og Snorri Salvarssynir og á bak við þá eru Jónína Guð-
mundsdóttir umsjónarkona og Hilmar Gunnarsson frá Hrafnabjörgum.
Með bát
í skólann
SÚÐAVÍKURHREPPUR rekur
heimavist fyrir börn í hreppnum
sem ekki komast daglega á miili
heimilis og skóla, eða öllu heldur
heimili því yfirbragð er allt með
þeim hætti. I sumar fækkaði
börnum í Reykjanesskóla og
ákváðu hreppsnefndirnar þá að
hætta skólahaldi þar og hrepps-
nefnd Súðavíkurhrepps ákvað að
koma upp heimilisaðstöðu í Súða-
vík fyrir þrjá drengi úr Vigur
og síðar bættust við tveir dreng-
ir sem fluttu að Hrafnabjörgum.
„Þetta leggst bara vel í okkur.
Það eru svo miklu fleiri krakkar
hérna en í Reykjanesi. Við vorum
bara tíu þar í vetur,“ sagði Snorri-
Salvarsson úr Vigur þegar
blaðamenn litu við í skólaheimil-
inu en það er rekið í sumarhúsi
steinsnar frá skólanum. Bræð-
urnir eru sóttir á hraðbátnum
Blika út, í Vigur og komið er við
í Ogri til að taka strákana frá
Hrafnabjörgum. Þetta er áreið-
anlega eini skólabátur landsins.
Þeir koma til Súðavíkur á sunnu-
dagskvöldi og fara heim aftur
eftir hádegi á föstudegi. Þeir
láta vel af bátnum enda segjast
þeir vera vanir að fara á milli.
Undanfarna vetur hafa þeir ver-
ið fluttir með gúmbát upp á
Skarðsströnd fyrir skólabilinn í
Reykjanes.
Félagarnir taka undir það að
heimilislegt sé að vera í sumar-
húsinu en augljóslega er lieldur
þröngt um þá. Ágúst Kr. Björns-
son sveitarstjóri segir að þetta
sé bráðabirgðahúsnæði. Fyrir-
hugað sé að færa heimilið í tvo
bústaði og vonandi verði hægt
að byggja síðar yfir það.
„Þetta er allt of lítið, það er
varla hægt að hreyfa sig,“ segir
Jónína Guðmundsdóttir umsjón-
arkona. Hún sótti um starfið og
fékk og segist vera ánægð, telur
að fyrirkomulagið gangi upp.
Vissulega sé starfið bindandi,
það sé eins og að eiga mörg börn,
nema hvað frí sé um helgar, það
er að segja ef drengirnir teppist
ekki í landi vegna veðurs.