Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C
226. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• Fórnarkostnaður 20-40 milljónir • Ekkert bendir til að gosið sé í rénun •
Gossprungan er nú 8 kílómetrar • Vatnhæð í Grímsvötnum hefur náð hámarki
ísinná
Gríms-
vötnum
lyftist
KRÖFTUGT gos var undir Vatnajökli í allan gærdag
og ekkert benti til að það væri í rénun. Töluvert ösku-
fall hefur orðið til norðurs og suðurs. Gossprungan
hefur lengst til norðurs og er nú um 8 kílómetrar og
mökkurinn, sem stígur upp af jöklinum, nær í 5-6
kílómetra hæð. Hann er svartur af ösku neðst, en
hvítir gufubólstrar stíga hæst. Gosmökkurinn sást
langt að í góðu skyggni fyrri hluta dags í gær, m.a.
frá Norðurlandi og Austfjörðum.
íshellan sem er á Grímsvötnum lyftist æ meir, eftir
því sem meira vatn safnast undir hana, en í gær var
talið að gosið undir Vatnajökli hefði brætt um einn
rúmkílómetra af ís. Svo öflugt er gosið, að á einum
sólarhring hefur bráðnað jafn mikið úr jöklinum og
stærri Skaftárketillinn bræðir á tveimur til þremur
árum.
Vatnshæðin í Grímsvötnum náði hámarki eftir há-
degi í gær og viðbótarvatn brýtur sér því leið undan
jöklinum. í gærkvöldi hafði hlaup ekki hafíst, en var
óumflýjanlegt. Ákveðið var í gærkvöldi að ijúfa vegi
og varnargarða á Skeiðarársandi á nokkrum stöðum,
til að létta álagi af brúm. Ef áætlanir standast og
Vegagerðinni tekst að verja brýr og meginhluta vega
og varnargarða má samt búast við að kostnaðurinn
verði á bilinu 20-40 milljónir króna. Þá eru ótaldar
hugsanlegar skemmdir á rafmagnsstaurum og línum,
auk ljósleiðara Pósts og síma. Ef allt fer á versta veg
getur tjónið numið allt að Vh milljarði króna.
Askan berst í suður
í gærkvöldi var vindur að snúast til norðlægrar
áttar og var útlit fyrir hvassa norðanátt í nótt. í þeirri
átt berst gjóska frá eldstöðinni undir Vatnajökli lengra
suður eða suðsuðaustur.
í gær barst gjóskan norður og norðaustur, en lítið
varð vart við hana í byggð á Norðurlandi. Hún hafði
þó áhrif á flugumferð yfir landinu. Sum erlend flugfé-
lög vildu ekki koma eins nærri landinu og venjulega,
en þar sem flugumferð er mest í 30-37 þúsund feta
hæð hafði aska í lofti ekki eins mikil áhrif og ella,
enda var lítið um hana fyrir ofan 20 þúsund fetin.
Vatnið skilur mengandi
efni frá öskunni
í gær var magn flúors í öskunni mælt og reyndist
sá flúor, sem gæti verið mengandi, vera um 130
milligrömm í hveiju kílói ösku. Þetta telst fremur lítið
og til samanburðar má nefna að tíu sinnum meira var
í öskunni sem kom frá Heklugosinu árið 1970. Ástæða
þessa er sú, að vatnið í jöklinum dregur til sín gas-
efni. Meira væri því af mengunarvaldandi efnum í
öskunni ef gosstrókurir.n næði heitur upp úr jöklinum.
Litlar líkur eru taldar á að það gerist.
Vísindamenn segja að hlaup á Skeiðarársandi við
þessar aðstæður veiti þeim einstakt tækifæri til rann-
sókna á áhrifum gosefna á lífríki sjávar, þar sem
mengandi efni berist fram með vatninu.
■ Eldgosið/2, 4, 6, 38, 39 og 76.
MIKILL kraftur var í gosstöðvunum á
Vatnajökli þegar flogið var yfir
sprunguna í gærmorgun. Logn var og
allgott skyggni og þegar komið var
upp að jöklinum bar gosmökkinn við
himin. Súla blönduð gufu og ösku steig
hátt til lofts en í 3-4 kílómetra hæð
breiddi mökkurinn úr sér og myndaði
eins konar þak yfir sjálfri gossúlunni.
Jökullinn var orðinn mjög dökkur af
ösku norður af gosstöðvunum á hádegi
ígær.
Þegar komið var nær Grímsvötnum
Skörp skil
íss o g ösku
sást öskugosið betur og þeyttist svört
aska í um 300-500 metra hæð á tíma-
bili. Einnig virtist sem brot úr ísnum
þeyttust hátt á loft í stærstu sprenging-
unum. Síðan dró úr gosinu um tíma
og var þá ekkert að sjá nema gufu-
mökk. Eftir skamma stund hófust
sprengingar að nýju og fljótlega tók
að gjósa með engu minni krafti en
áður. Um klukkan 11.20 skaut lítilli
eldingu niður í gosmökkinn og skömmu
síðar annarri stærri.
Skammt sunnan við gosketilinn er
annar litlu minni. Fyrir hádegi bullaði
jökulvatn þar líkt og syði í katlinum.
Einnig hrundi ís stöðugt úr börmunum
vegna titrings frá goskatlinum.