Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján Neðanjarðar sýnd í Borgarbíói KVIKMYNDAKLÚBBUR Akureyrar sýnir myndina Neðanjarðar (Under- ground) í Borgarbíói næstkomandi sunnudag, 6. október kl. 17. Neðanjarðar er eftir leikstjórann Emir Kusturica sem kunnastur er fyrir kvikmyndirnar „Arizona Dream" og „Time of the Gypsies". Neðanjarð- ar hlaut Gullpálmann á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes árið 1995. Saga tveggja félaga, Marko og Svarts í hartnær hálfa öld er rakin í sögunni, en hún endurspegiar sögu landsins sem eitt sinn hét Júgóslavía og smábútur af heitir enn. Þeir slást í lið með andspymuhreyfingunni und- ir stjóm Tító og beijast gegn nasistum í síðari heimstyijöldinni. Innbyrðis beijast þeir um ást sömu stúlkunnar, sem heldur kýs að vera í slagtogi með nasistaforingja. Svartur gerir til- raun til að ræna henni en er handtek- inn, Marko bjargar honum og kemur fyrir í kjallara neðanjarðar og telur hann á að dveljast þar og framleiða vopn fyrir málstaðinn. Marko svíkur félaga sinn, segir honum ekki frá því að stríðinu sé lokið. Hann giftist stúlk- unni, er háttsettur innan kommún- istaflokksins og græðir vel á vopna- framleiðslunni. Fyrir tóma tilviljun sleppa Svartur og félagar hans út og þijátíu árum seinna em félagamir aftur staddir í miðju stríði. Sólgnar í vetrarrepjuna KÝRNAR á Hofi í Arnarnes- hreppi eru sólgnar í vetrarrepj- una sem þær fá að gæða sér á þessa mildu haustdaga. Þær eru þrjátíu saman í hólfinu og á hverjum morgni er girðingin færð fram en þær fá ákveðinn skammt á hveijum degi. Það bregst ekki að þær koma allar sem ein eftir morgunmjaltirnar og raða sér upp og taka strax að háma kálið í sig. Um allan Eyjafjörð var búfénaður úti við í gærdag, enda hefur lítið sem ekkert orðið vart við gjóskufall frá eldsumbrotunum í Vatna- jökli á svæðinu. Samþykkt ÍTA um byggingu knattspyrnuhúss við Hamar Leitað verði til- boða í hús yfir heil- an og hálfan völl ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Ak- ureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að beina því til fram- kvæmdanefndar bæjarins að afla tilboða í tvær útgáfur af knatt- spyrnuhúsum, þannig að hægt verði að taka afstöðu til þeirra við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár. Annars vegar tilboð í hús yfir hálfan knattspyrnuvöll og hins vegar hús yfir heilan knattspyrnu- völl. Útfærsla húsanna er byggð á skýrslu frá Knattspyrnusam- bandi íslands frá því í ágúst sl. Að undanförnu hafa staðið yfir viðræður milli nefndar á vegum ÍTA og íþróttafélagsins Þórs um yfirbyggingu knattspyrnuvallar á félagssvæði Þórs við Hamar. Til að hægt verði að fá raunhæfar kostnaðartölur eru aðilar sammála um að nauðsynlegt sé að leita til- boða í heilt og hálft hús. Eiríkur Björgvinsson, íþrótta- og tóm- stundafulltrúi bæjarins, segir að aðilar séu sammála um staðsetn- ingu hússins við Hamar en hins vegar liggi ekki fyrir hvaða form eigi að hafa við bygginguna. Rætt um þijár meginleiðir í því sambandi er rætt um þijár meginleiðir sem virðast koma til greina. Stofnað verði félag er sjái um uppbygginguna. Akureyrar- bær beri fjárhagslega meginþunga af uppbyggingunni en fram- kvæmdin og reksturinn jgæti verið í höndum Þórs og KA. I öðru lagi að gerður verði byggingasamning- ur við Þór á þeim nótum sem for- dæmi eru fyrir og félagið sjái um framkvæmd verksins og rekstur hússins. í þriðja lagi að Akureyrar- bær byggi húsið og reki en geri rekstrarsamning við Þór um afnot af búningsklefum og annarri að- stöðu. Boltinn hjá framk væmdanef nd „Við viljum sjá hvaða kostnað- artölur liggja fyrir áður en við förum út í það að taka ákvörðun um einhveija af þessum leiðum. Við höfum nú sent boltann yfír til framkvæmdanefndar, sem þarf m.a. að útvega pening til að útbúa útboðslýsingar. Ég veit ekki hversu fljótt þessir hlutir geta gengið fyrir sig en við erum þó að tala um einhveija daga og jafn- vel vikur. Málið á eftir að fara fýrir bæjarkerfið en ég hefði þó viljað fara að grafa fyrir húsinu áður en fer að fijósa nú í haust,“ sagði Eiríkur. Akureyrarbær Skipulag á Oddeyri í maí síðastliðnum auglýsti Akureyrarbær tillögu að deiliskipula- gi suðurhluta Oddeyrar ásamt tillögu að breytingu á aóalskipula- gi Akureyrar 1990-2010 (til samræmis við deiliskipulagstillögu- na). Vegna breytinga er gerðar hafa verið á skipulagstillögunni m.a. vegna athugasemda sem bárust á auglýsingatímanum hefur bæjarstjórn ákveðið að auglýsa tillöguna að nýju. Þær athugasemdir sem borist hafa verða afgreiddar endanlega með þeim athugasemdum sem kunna að berast við breytta tillögu. Deiliskipulagstillagan og tillaga um breytingu á aðalskipulagi er auglýst með vísan til 17. greinar skipulagslaga og greinar 4.4 í skipulagsreglugerð. Skipulagssvæðið afmarkast af Strandgötu í suðri, Eiðsvallagötu í norðri, Glerárgötu í vestri og Hjalteyrargötu í austri. Meginmarkmið tillögunnar eru eins og í fyrri tillögu að styrkja stöðu hverfisins sem íbúðarbyggðar, að viðhalda og styrkja megineinkenni byggðarinnar, bæta yfirbragð hennar og fjölga íbúðum m.a. með því að fylla í eyður og skörð í bæjarmyndinni. Helstu breytingar frá fyrri tillögu eru: íbúðarsvæði norðan Gránufélagsgötu austur við Hjalteyrargötu er stækkað til norðurs til móts við Eiðsvallagötu. Skipulagi íbúðarlóða sunnan Gránufélagsgötu og austan Hrís- eyjargötu er breytt. Fallið er frá stækkun stofnanalóðar Iðavalla og gert er ráð fyrir skerðingu lóðarinnar að Eiðsvallagötu 26 vegna gangstígs að opnu svæði austan Iðavalla. Skipulagsuppdráttur ásamt skýringarmyndum og greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis á skipulagsdeild Akur- eyrarbæjar, Geislagötu 9, 3. hæð, næstu 8 vikur frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til föstudagsins 29. nóvemþer 1996, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur er til kl.16.00 29. nóvember 1996 og skal athugasemdum skilað til skipulagsdeil- dar Akureyrarbæjar. Þeim sem telja sig verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna skipulagsgerðarinnar, er bent á að gera at- hugasemdir við tillöguna innan tilgreinds frests ella teljast þeir samþykkir henni. Skipulagsstjóri Akureyrar. Dröfn Friðfinns- dóttir í Listasafninu SÝNING á verkum Drafnar Friðfínnsdótt- ur verður opnuð í Lista- safninu á Akureyri næstkomandi laugar- dag, 5. október kl. 16. Dröfn sýnir að þessu sinni tréristur og mál- verk í öllum þremur sölum Listasafnsins. „I myndum Drafnar sam- einast kröftug og öguð framsetning í samspili aðferðar, lits og áferðar huglægri og tilfinn- ingalegri upplifun myndmáli flatanna. Þar finnur áhorfandinn að leið hans er vörðuð táknum sem eru hversdagsleg og auðþekkjanleg eins og blóm eða físk- ur eða tákn með djúpum skírskotun- um til fortíðar eins og ílátið, skum mannsins til að fylla af sjálfum sér,“ segir um myndimar í frétt frá Lista- safninu. Vel tekið í útlöndum List Drafnar hefur verið vel tekið í útlöndum og hefur hún hlotið sér- staka heiðursviðurkenningu alþjóð- legrar sýningar í State Gallery, Banská Bystrica í Tékkóslóvakíu 1995 og verið boðin þátttaka í Intergrafía í Krakow í Póllandi sem er sam- sýning listamanna sem hlotið hafa alþjóðlegar viðurkenningar. Einn- ig mun hún taka þátt í Triennalnum „Colour in Graphic Art! 1997 í Krakow. Nýlokið er sýningu í Wasa í Finn- landi með þátttöku Drafnar, en fjölmörg verk hennar seldust á sýningunni og vora kaupendur bæði opin- berar stofnanir og ein- staklingar. Dröfn er fædd árið 1946, hún nam við Myndlista- og handíðaskól- ann í Reykjavík 1993, Myndlista- skólann á Akureyri 1982-1986 og í Lathi Art Institute í Finnlandi 1987-1988. Sýning Drafnar í Lista- safninu á Akureyri er 10. einkasýn- ing hennar en hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á ís- landi og erlendis. Sýningunni í Listasafninu lýkur 26. október næstkomandi. Dröfn Friðfinnsdóttir Ný sundlaug verður til- búin í júní á næsta ári FRAMKVÆMDIR era hafnar við nýjan áfanga við Sundlaug Akur- eyrar, en þar er um að ræða jarð- vegsflutninga, gerð 25x16 metra sundlaugar auk þess sem innifalið í verkefninu er að ganga frá svæð- inu umhverfis laugina og lagnir vegna hennar sem og viðbyggingar sem síðar mun rísa. SJS verktakar áttu lægsta tilboð í þessar framkvæmdir og var fyrsta skóflustungan tekin síðastliðinn föstudag, en byijað af krafti í byrj- un vikunnar. Samkvæmt tilboði verktaka er um að ræða verkefni upp á tæpar 62 milljónir króna og er áætlað að því verði lokið í júní á næsta ári. Hádegis- tónleikar BJÖRN Steinar Sólbergsson organisti heldur hádegistón- leika í Akureyrarkirkju á morgun, Iaugardaginn 5. október, kl. 12. A efnisskrá tónleikanna verða verk eftir Dietrich Buxtehude, Johann Gottfried Walther og Hafliða Hall- grímsson. Lesari á tónleikun- um er sr. Birgir Snæbjörnsson prófastur. Aðgangur er ókeypis og era allir velkomnir. Sjálfsstyrkur og kreppa KARÓLÍNA Stefánsdóttir fjölskylduráðgjafi Heilsu- gæslustöðvarinnar á Akureyri flytur fyrirlestur um sjálfs- styrk og kreppu á opnu húsi Krabbameinsfélags Akur- eyrar og nágrennis næstkom- andi mánudagskvöld, 7. októ- ber, sem hefst kl. 20 á skrif- stofu félagsins í Glerárgötu 24, 2. hæð. Verk Daða kynntí Gallerí AllraHanda KYNNING á verkum Daða Guðbjörnssonar verður opnuð í Gallerí AllraHanda í Gróf- argili í dag, föstudag. Hún stendur í hálfan mánuð. Að þessu sinni verða kynnt nokk- ur grafíkverk og olíumálverk. Verk Daða hafa áður verið sýnd og kynnt í Gallerí Allra- Handa og eru vinsæl meðal gesta þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.