Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 66
66 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORCUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Skarkoli
og túnsúra
Ég borðaði nýsprottin túnsúrublöð með
skarkola um helgina, segir Kristín Gests-
dóttir, en túnsúran hefur ruglast í ríminu
og heldur að það sé komið vor.
EN ÞAÐ er fleira en
túnsúran sem er góð
núna, kolinn er upp á sitt
besta - feitur og ljúffengur.
Hann hefur ekki ruglast í rím-
inu, þetta er bara hans tími.
Einu sinni þegar ég bar kola á
borð, sagði eitt barna minna:
„Mamma, ég get ekki borðað
svona sleipan fisk.“ Það er lík-
lega ekki fjarri sanni að feitur
koli sé „sleipur", áferð holdsins
er þannig. Fólk
gerir alltof
lítið af því að
nýta þennan
ljúffenga fisk,
nennir ekki að
matreiða hann
heima, en dá-
samar hann
ef hann er á V*
veitingahúsi.
Ég vil borða
roðið á kolan-
um og sjúga
beinin,
griiiað
brak-
andi roð
á kola er
himneskt
- og ég
meina það. En þá verður að
skafa það vel áður og helst að
hella sjóðandi vatni yfir til þess
að það takist að ná hinu smá-
gerða hreistri vel af. Ef beinin
eru höfð í fiskinum þegar hann
er matreiddur, verður hann mun
bragðbetri. En ef við nennum
ekki að matreiða hann þannig,
eru fisksalar fljótir að flaka
hann fyrir okkur. Smáu beinin
liggja öll utan með fiskinum og
er auðvelt að forðast þau. Ekki
er sama á hvaða árstíma koli
er veiddur. Frá því í ágúst og
fram yfir áramót er hann feitur
og góður, og þó að feitur koli
sé einhver hinn besti matfiskur
er hpraður koli einn sá versti.
Við íslendingar eigum að borða
fleiri tegundir af fiski en við
gerum. Við skulum líka muna
að jafnvel feitasti fiskur er betri
megrunarfæða en hið magrasta
kjöt.
Hér á eftir er uppskrift af
heilum grilluðum kola með tún-
súru, en ef þið getið ekki náð í
túnsúru, má nota sitrónusafa i
staðinn. Kolann má setja bæði
á útigrillið og undir glóðarristina
í bakaraofninum.
Koli glóðaður
úti og inni
1 meðalstórkoli, u.þ.b. 1 kg
2 tsk. salt
nýmalaður pipar
mikið af túnsúrublöðum eða 1
msk. sítrónusafi
1 msk. smjör, helstósaltað
1 msk. matarolía
1. Hreinsið allt blóð úr kolan-
um, klippið af ugga.
2. Hellið sjóðandi vatni snöggt
yfir roðið báðum megin og skaf-
ið frá sporði að haus. Þvoið fisk-
inn síðan undir rennandi köldu
vatni.
3. Skerið niður eftir miðju
fisksins með beittum hnífi,
smeygið síðan hnífsblaðinu und-
ir og losið fiskholdið örlítið frá
beininu.
4. Stráið salti inn í rifurnar,
leggið síðan þvegin túnsúrublöð
við beinið undir fiskholdinu.
Malið pipar yfir allan fiskinn.
5. Bræðið smjör og olíu, pensl-
ið hvíta roðið með helmingi
smjör/olíublöndunnar. Hitið
glóðarristina á bakaraofninum
eða kveikið á útigrillinu. Smyijið
grindina á útigrillinu, ef þið not-
ið það en bökunarplötu úr elda-
vélinni ef þið notið hana. Leggið
fiskinn á bökunarplötuna eða
grindina á útigrillinu. Hvíta roð-
ið snúi upp. Glóðið við háan hita
í 6-8 mínútur, fylgist vel með
svo að ekki brenni.
6. Snúið fiskinum varlega við
með breiðum spaða og penslið
dökka roðið með því sem eftir
er af smjör/olíublöndunni. Látið
dökka roðið nú snúa upp. Grillið
aftur í 6-8 mínútur.
7. Stráið möndluflögum yfir
kolann í bakaraofninum, þegar
1 mínúta er eftir af steikingar-
tímanum, en setjið möndluflögur
á álbakka og leggið við hliðina
á fiskinum á útigrillinu í 1 mín-
útu í lokin. Fylgist með, möndlur
eru fljótar að brenna. Stráið yfir
þegar fiskurinn er borinn fram.
Meðiæti: Soðnar kartöflur,
kryddsmjör eða annað smjör, og
hrásalat.
Hrásalat
Vænn biti islenskt hvítkól
væn grein steinselja
'/2 dós sýröur rjómi, 10%
1. Saxið hvítkálið mjög fínt,
blandið saman við sýrða ijóm-
ann, setjið í skál, klippið stein-
selju yfir.
ÍDAG
Með morgunkaffinu
Ast er...
HÖGNIIIREKKVÍSI
„Næst Skuíarrt t//S fcí okturtii /rtfiA
CifWirbe/(fOo{tpú}la)vi$ farþegasseó/ö. "
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 llOOfrá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Meira um
bláber
KONA að vestan hringdi
og vildi leiðrétta athuga-
semd Höllu Soffíu í Vel-
vakanda sl. miðvikudag
um bláber og aðalbláber.
Hún segir það rétt hjá
Sveini Rúnari Haukssyni
að aðalbláberin geti orðið
alveg svört og glansandi
ef þau ná að þroskast
vel í góðu árferði, enda
þekkti hún þau af lýs-
ingu hans. Hún hafði
hins vegar ekki heyrt um
þessi svokölluðu aðalber,
svo líklega vaxa þau ekki
fyrir vestan.
Tapað/fundið
Hringur tapaðist
ÞYKKUR, breiður gull-
BRIDS
llmsjón Guðmundur Páll
Arnarson
„Þið hnekktuð sex hjörtum,
var það ekki, í spili 25.“
Þetta var meira krafa en
spurning hjá Frakkanum
Paul Chemla, þegar hann
settist niður með sveitarfé-
lögum sínum til að gera upp
leikinn við Sviss á EM í
Salsomaggiorie árið 1985.
José Le Dentu segir frá
þessu spili í bók sinni „Sigr-
ar og hrakfarir". Þetta spil
er í kaflanum um hrakf-
arirnar.
Norður
♦ KD
V KG8753
♦ 963
♦ 64
Vestur Austur
♦ ÁG1087652 * 943
y _ |||||l f 10
♦ 105 Hll11 ♦ KG72
♦ D102 ♦ K9873
Suður
♦
V ÁD9642
♦ ÁD84
♦ ÁG5
Á borðinu hjá Chemla
| gengu sagnir þannig:
hringur settur litlum
demöntum tapaðist ann-
að hvort í Kaffibrennsl-
unni eða á Café Romance
sl. föstudagskvöld. Hafi
einhver fundið hringinn
er hann beðinn að
hringja í síma 552-3085
eða í síma 898-3085.
Fundarlaun.
Gullhjarta
tapaðist
árið 1982
ÁRIÐ 1982 tapaðist við
Laugarnesveg 86 gull-
hjarta sem var grafið á
„Stella“ öðrum megin og
„Friðrik" hinum megin.
Ef einhver skyldi hafa
hjartað í fórum sínum
þá er hann vinsamlega
beðinn að hringja í síma
551-3732. Fundarlaun.
Vestur Norður Austur Suður
Collaros Chemla Catzeflis Perron
1 hjarta
3 spaðar 4 hjörtu Pass 4 spaðar
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Perron fékk út lauftvist
upp á kóng og ás. Þar með
þurfti ekki að spyrja að
leikslokum; þrátt fyrir að
tígulkóngur lægi fyrir svín-
ingu, hlaut vörnin að fá tvo
slagi — einn á lauf og einn
á tígul.
„Nei, við hnekktum ekki
sex hjörtum," sögðu félagar
Chemla. „Og ekki heldur
sjö!“
Á hinu borðinu höfðu
Svisslendingarnir villst alla
leið upp í sjö hjörtu. Þar
voru Soulet og Lebel í AV,
og Soulet hitt.i líka á lauf
út, en valdi tíuna!? Það hafði
ótrúleg áhrif á þróun mála.
Lebel_ taldi víst að suður
ætti ÁDGx í laufi og lét lít-
ið lauf í fyrsta slaginn. Suð-
ur fékk þar með tólfta slag-
inn á laufgosa. Sagnhafi
trompaði síðan hjónin í
spaða og spilaði hjörtunum
til enda. Lebel taldi sig til-
neyddan til að halda í K98
í lauf og henti því tveimur
tíglum!? Sagnhafi svínaði
þá tíguldrottningu og fékk
þrettánda slaginn á tígul-
áttu.
Víkveiji skrifar...
UMRÆÐA um vegamál hefir
blossað upp í þjóðfélaginu
undanfarna daga í tilefni ummæla,
sem forsetinn hafði í heimsókn
sinni á sunnanverða Vestfirði. Sitt
sýnist hveijum eins og gengur.
Það vakti athygli Víkveija saga
sem hann heyrði í vikunni um
vegaframkvæmdir á Suðurnesjum.
Suðurnesjamenn hafa sótt fast að
fá Reykjanesbrautina tvöfaldaða í
áraraðir en orðið Iítt ágengt. Hins
vegar gerðist það fyrir nokkru að
keyrðir voru 80 bílar af möl í
gamla Sandgerðisveginn. Hver bíll
bar 20 tonn þannig að á tveimur
dögum voru keyrð 1.600 tonn af
möl í veg, sem ekki er lengur í
notkun nema fyrir 2 eða 3 kotbýli
og einn golfvöll. Þessi vegur hefir
lengi verið slæmur yfirferðar en
hann má vera það og á að vera
það, sagði viðmælandi Víkveija.
xxx
RÁÐAMENN þjóðarinnar,
þingmenn og ráðherrar,
koma hver á eftir öðrum
þessa dagana í fjölmiðlana þar sem
þeir lýsa því yfir að rauntekjur
landsmanna séu alltaf að hækka.
Launþegar verða ekki varir við
þessa peninga og ættu þessir sömu
menn að lýsa betur fyrir fólki Hvar
þessi aukning kemur fram. Ef
þeir eru að tala um hækkun iauna-
vísitölu þá er spurningin þessi:
Hækkar launavísitalan þegar laun
þingmanna og stjórnenda fyrir-
tækja hækka?
Launamenn verða hins vegar
áþreifanlega varir við skattahækk-
unina sem varð um mánaðamótin
en þá hækkuðu gjöld, sem hétu
hér áður fyrr því einfalda nafni
brunatrygging, um tæp 100%.
Þetta heitir í dag viðlagagjald, við-
bótargjald vegna ofanflóðasjóðs,
forvarnargjald og umsýslugjald og
var samþykkt samhljóða í þinginu
í vor.
Þetta þýðir það að meðaljóninn
sem á hús upp á 10 milljónir (og
skuldar kannski 5 milljónir í því)
fær á sig 4-5 þúsund kr. skatta-
hækkun sem vátryggingafélögin
eru látin innheimta fyrir ríkið. Það
ber minna á hækkuninni þannig.
Það má halda áfram að útfæra
þetta reikningsdæmi og fyrrnefnd-
ur Jón er með 100 þúsund kr. tekj-
ur á mánuði og fær 3% kauphækk-
un. Það eru 3 þúsund krónur. Af
þeim fær hann 17-18 hundruð
krónur í budduna þannig að bara
þessi eina skattahækkun étur upp
kauphækkunina fyrstu 2-3 mánuð-
ina á næsta ári. Svo má búast við
að samningahrotan taki nokkra
mánuði þannig að laun hækki ekki
fyrr en í febrúar-marz.
Við launþegarnir verðum því að
bíða enn um hríð eftir betri tíð
með blóm í haga eins og sagt er.
Þá skulum við og vona að það
komi ekki til annars stríðs milli
fraka og Bandaríkjamanna því þá
hækkar bensínið um nokkrar krón-
ur lítrinn ög förum við í mínus út
úr væntanlegri langþráðri kaup-
hækkun.