Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 59 | ----------------------------------- I ar og hjörtum, elsku Haukur, Sig- | rún og Dísa. Jóhann Arni og Jón Ari. ) ) i .1 : I J I : f I í í í 4 4 4 4 4 4 4 4 4 4 í minningunni eru menntaskóla- árin á Akureyri að miklum hluta sveipuð ævintýraljóma. Lífið var fram undan - að sjálfsögðu bjart og einkar fagurt, hvergi bugðu að sjá! Þetta var á þeim árum þegar farið með Norðurleiðarútunni til Akureyrar kostaði hundrað sjötíu og fimm krónur og tvö hundruð krónur skyldu duga ti! bókakaupa og vasapeninga á mánuði. Margir voru að fara í fyrsta sinn að heiman í nýtt og framandi um- hverfí, talsvert óöruggir með sjálfa sig og tilveruna þrátt fyrir beinu brautina sem beið þess eins að við fetuðum hana. í nánu samfélagi, eins og í heima- vist, fer fátt fram hjá fólki. Við „litlu stelpurnar" tókum fljótlega eftir því að stelpurnar í efri bekkjunum fengu stundum dularfull bæjarleyfí og máttu þá koma heim nokkru eftir venjulegan lokunartíma. Þegar þær voru inntar nánar eftir þessu var svarið að þær hefðu verið hjá henni Friðfinnu. Friðfínnu? Það hlaut að vera merkileg kona - gefíð leyfi út á hana. Við urðum því harla kát, bekkjarsystkinin, þegar það fréttist einn daginn í skólanum að hann Haukur í A-bekknum ætti mömmu sem héti Friðfinna og ætlaði nú að bjóða okkur heim. Þetta var fýrsta ferðin á Bjarmastíginn af ótal mörg- um næstu fjögur árin. Þama mætti okkur lítil, kvik, ijör- leg kona með alla heimsins hlýju í fasinu, nóga handa öllum. Gestrisnin á þessum bæ var satt að segja eng- in venjuleg gestrisni. Það fór ekki fram hjá neinum að hann var vel- kominn. Og hvílíkar kræsingar! Otal ferðir farnar upp og niður stiga að sækja meira svo allir fengju nú miklu meira en nóg. Uppi sat Viktor, hæg- ur og ljúfur, og hafði lúmskt gaman af öllu tilstandinu, dætumar, Sigrún og Dísa, og einkasonurinn Haukur, á þönum að sjá um að öllum liði vel. Svona er myndin sem ég man - og svona gekk þetta til næstu árin - hringt með reglulegu millibili og léti fólk ekki sjá sig í einhvern tíma hringdi Friðfínna og spurði hvort eitthvað hefði nú komið fyrir. Þessi kona þekkti ekki hugtakið kynslóðabil og hún hafði alveg ótak- markaðan áhuga á ungu fólki og nálgaðist það af velvilja og umburð- arlyndi þess sem ekki þekkir for- dóma. Hún uppskar líka ríkulega og áttatíu og sjö ára gömul átti hún gamla og nýja vini á öllum aldri - ekki fáa - heldur ótal marga. Það segir sína sögu. Það var gaman að koma í áttatíu og fimm ára afmælið hennar. Þama sat hún í upphlutnum sínum, um- vafin ijölskyldu og vinum, mundi allt, fylgdist með öllu og var áreið- anlega enn að stjórna! Og enn var glatt á hjalla eins og svo oft er hjá góðu fólki. Árum saman opnaði Friðfinna heimili sitt okkur bekkjarsystkinum Hauks og eiginlega má segja að hún hafi bætt yfir fiörutíu „börn- um“ í fjölskylduna yfír vetrarmán- uðina og búið okkur „heimili að heiman". Sumir komu örugglega aldrei inn á annað heimili á Akur- eyri á þessum árum enda þótt aðrir væru svo heppnir að eiga þar góðar frænkur að auki. Nú kostar mörg þúsund krónur að komast til Akureyrar og tvö hundruð krónur duga vart fyrir stílabók - en sumt breytist aldrei; faðmur Friðfinnu stóð okkur opinn fram á síðasta dag. Eg veit að ég mæli fyrir hönd bekkjarsystkina minna, MA-stúd- enta 1957, þegar ég þakka Frið- finnu að leiðarlokum fyrir það sem skiptir okkur svo miklu máli í líf- inu, ómælda vináttu og umhyggju. Haukur minn, kærar þakkir fyrir að veita okkur hlutdeild í þessari frábæru fjölskyldu þinni. Innilegar samúðarkveðjur til þín og fjölskyld- unnar og ykkar, kæru Sigrún og Dísa. Megi allar góðar vættir fylgja Friðfinnu um ókunna stigu. Alexía M. Gunnarsdóttir. BRIDS Umsjön Arnór G. Ragnarsson íslandsmót í einmenningi um helgina Islandsmótið í einmenningi verður haldinn nú um helgina, 5.-6. október. Spilamennska hefst kl. 11 á laugar- dag og verða spilaðar tvær umferðir, til um kl. 20.30. Á sunnudag verður ein umferð frá kl. 11 til 16. Enn er nægt að skrá sig í mótið og verður tekið við þátttökutilkynningum hjá Bridssambandi íslands þar til í kvöld. Bridsfélag Hreyfils Spilaður var eins kvölds upphitun- artvímenningur sl. mánudag og mættu 24 pör. Spilaður var Michell og urðu eftirtalin pör efst í N/S: RóbertGeirsson-GeirRóbertsson 271 SkaftiBjömsson-JónSigtryggsson 270 Ásgr. Aðalsteinss. - Sveinn Aðalsteinss. 230 Hæsta skor í A/V: Rúnar Gunnarsson - Brynjar Jónsson 27 4 Ámi Kristjánsson - Friðbjöm Guðmundss. 266 Óskar Sigurðsson - Sigurður Steingrímss. 254 Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Mánudaginn 23. sept. spiluðu 18 pör Mitchell. Hæsta skor í N/S: Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 262 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 254 SæbjörgJónsdóttir-Þorsteinn Erlingsson 226 A/V: Ólafurlngvarsson-JóhannLútersson 243 Karl Gunnarsson - Gunnlaugur Þorsteinsson 240 Eysteinn Einarsson - Bergsveinn Breið§örð 239 Meðalskor 216 Fimmtudaginn 26. sept. spiluðu 22 pör Mitchell. Hæsta skor í N/S: ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 250 Bragi Melax - Sigurleifur Guðjónsson 248 Rafn Kristjánsson - Oliver Kristófersson 242 A/V: Eysteinn Einarsson - Bergsveinn Breiðprð 251 Eggert Kristinsson - Þorsteinn Sveinsson 251 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 247 Meðalskor 216 Föstudagsbrids BSÍ Föstudaginn 27. september var spilaður eins kvölds tölvureiknaður Mitchell-tvímenningur með forgefn- um spilum. 29 pör spiluðu 9 umferð- ir með 3 spilum á milli para. Meðal- skor var 216 og efstu pör urðu: NS: Gróa Guðnadóttir — Unnar Atli Guðmundsson 266 EggertBergsson-JónStefánsson 238 RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 235 Ámína Guðlaugsdóttir - Bragi Erlendsson 234 AV: Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 277 María Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 249 Óli Bjöm Gunnarsson - Valdimar Elíasson 241 Jóhann Magnússon - Hákon Sigmundsson 241 Tíu sveitir í útslættinum! Að tvímenningnum loknum var spiluð sveitakeppni með útsláttar- formi, 6 spila leikir. Þátttakan var mjög góð að venju, alls 10 sveitir. Eftir mikla baráttu komust sveitir Þórðar Sigfússonar (Þórður, Guðjón Siguijónsson, Ormarr Snæbjömsson og Þorsteinn Karlsson) og Árna H. Friðrikssonar (Árni, Gottskálk Guð- jónsson, Hákon Sigmundsson og Jó- hann Magnússon) í úrslitaleikinn. Sveit Þórðar sigraði nokkuð örugg- lega, eða með 25 ima mun. Dagskráin í vetur Keppnisformið í vetur verður með þeim hætti að spiiaðir verða eins kvölds tvímenningar, Mitchell og Monrad Barómeter á víxl. Alltaf verða forgefin spil í tvímenningskeppnum vetrarins. Þegar tvímenningi lýkur um kl. 23 hefst svo sveitakeppni með hefðbundnu útsláttarformi. Keppnis- stjórarnir Sveinn Rúnar og Matthías, hjálpa til við myndun para og sveita. Tekið verður vel á móti öllum og reynt að aðstoða eftir mætti. Stigahæstu spilarar vetrarins verða verðlaunaðir. Spilamennska hefst alltaf stundvís- lega kl. 19. Notkun HP-skannans er emfold og auðskilin. Þú sérð þetta gert einu sinni og kannt það siðan. Skjalið birtist á skjánum. Þú getur lesið það inn í t.d. Word eða Excel, unnið með textann, prentað skjalið út eða sent það í tölvupósti. ^STEFNVNIÐ URST Þú setur skjalið í HP-skannann, lítið galdratæki á milli lyklaborðs og skjás. Skjalið er skannað nær samstundis inn i minni tölvunnar. ^vvurrr o $canJet4s ■ Einimtt þaö sem mig vantaði ! HP-skanninn setur prentuð gögn á tölvutækt form á einfaldan og ódýran hátt Nýi HP-skanninn er LykiLatriói í pappírslausum vióskiptum bylting í meóferð og úrvinnslu prentgagna með tölvum galdratæki sem opnar nýja möguleika fyrir tölvunotendur Nýi HP-skanninn kostar aðeins 19.900 kr. HEWLETT PACKARD Viðurkenndur þjónustu- og söluaðili Upplýsingatækni Armúla 7, sími 550 9090
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.