Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bill Clinton Bandaríkjaforseti á lokasprettinum fyrir kosningarnar á þriðjudag
„Get ekki eig*n-
að mér einum
árangurinnu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hóf lokasprett
kosningabaráttu sinnar á miðvikudag og
ætlaði að heimsækja a.m.k. tuttugu af fímm-
tíu ríkjum landsins fram að kosningadegi,
5. nóvember. Fréttaritari Morgunblaðsins í
Detroit, Bjöm Malmquist, var viðstaddur
þar sem forsetinn kom fyrst við, á svæði
Eastem Michigan háskólans, í bænum Ypsil-
anti, rétt fyrir utan Detroit.
CLINTON forseti í hópi ánægðra stuðningsmanna í Ypsilanti.
Reuter
RÚMUM tveimur tímum áður en
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
hóf ræðu sína á fundi stuðnings-
manna rétt fyrir utan Detroit á
miðvikudag hafði þegar myndast
löng og margföld röð fólks fyrir
framan fundarstaðinn í miðju há-
skólasvæðisins. Fólk hafði enda
verið hvatt til að mæta snemma
vegna öryggisráðstafana, sem
helst líktust því sem gert er á al-
þjóðaflugvöllum; hver einasti gest-
ur varð að ganga í gegnum málm-
leitartæki, allar töskur, veifur og
skilti voru bönnuð og leyniþjón-
ustumenn og öryggisverðir voru á
hverju strái.
Samkoman var öllu viðameiri
en kosningafundur Bobs Dole for-
setaframbjóðanda repúblikana í
síðustu viku nálægt Detroit. Meira
en helmingi fleira fólk kom til að
sjá Clinton, auk þess sem heim-
sókn forseta landsins hefur sjálf-
krafa meira vægi í huga fólks, þó
svo að kosningar séu á næsta leiti.
Fundurinn var haldinn í rúmgóðri
íþróttahöll háskólans, þar sem
pláss var fyrir um fimm þúsund
manns í sæti, að sögn staðarhald-
ara. Stuttu áður en dagskráin
hófst, klukkan hálf þijú að staðar-
tíma, voru einungis örfá sætanna
enn laus, blaðamannastúkan var
þéttskipuð og til hliðar sat fjörutíu
manna hljómsveit skólans og spil-
aði lög úr bandarískum söngleikj-
um; það var von á forsetanum
eftir hálftíma, klukkan þijú.
Umræðuefni dagsins
Clinton forseti hefur að undan-
fömu haft þann háttinn á að tala
um eitt einstakt málefni á kosn-
ingafundum sínum. Fundurinn í
Ypsilanti fjallaði um konur í við-
skiptalífínu og leiðir til að auka
þátttöku þeirra á því sviði. Dag-
skráin hófst þar af leiðandi með
því að þijár konur, sem allar áttu
það sammerkt að hafa komið fyrir-
tækjum á laggirnar, töluðu um
reynslu sína og þá hjálp sem ríkis-
stjórnin veitti þeim. Umræðuefnið
var vel valið; meirihluti óákveðinna
kjósenda eru konur og með því
að fjalla um málefni hugstæð
þeim, vonast demókratar eftir
stuðningi þeirra þegar að kosning-
um kemur. Forsetinn þarf hins
vegar ekki að hafa verulegar
áhyggjur af sínu eigin gengi; allar
skoðanakannanir benda nú til þess
að hann verði endurkjörinn í emb-
ættið. Nú er svo komið að kosn-
ingalið hans velur fundarstaði með
það fyrir augum að höggva skörð
í fylgi repúblikana og styrkja
frambjóðendur Demókrataflokks-
ins til fulltrúa- og öldungadeildar
alríkisþingsins. Það síðamefnda
var einnig tilgangur fundarins í
Ypsilanti; þar á fijálslynd fulltrúa-
deildarþingkona í harðri baráttu
við íhaldssaman andstæðing sinn
úr röðum repúblikana.
Forsetinn á slaginu
Eins og venjan er með fundi
forsetans, þá var dagskráin á þess-
um skipulögð út í ystu æsar, næst-
um því upp á mínútu - og stundum
gott betur. Nákvæmlega á slaginu
þijú steig Clinton upp á sviðið, við
dynjandi lófatak gesta og undirleik
hljómsveitarinnar sem spilaði ein-
kennislag forseta Bandaríkjanna,
„Hail to the Chief“. Hópurinn sem
sótti fundinn var að mestu vin-
veittur forsetanum og þegar líða
tók á ræðu hans, varð Clinton oft
að gera hlé á máli sínu, þegar
rödd hans drukknaði í lófataki.
Áhorfendum var bannað að taka
með sér kosningaspjöld, en örfáir
áhangendur Doles höfðu þó laum-
að með sér skiltum með nafni
hans og veifuðu þeim óspart. For-
setinn lét sem hann sæi þau ekki
og hélt ótrauður áfram, jafnvel á
meðan tveimur ungum mönnum
var vísað úr húsi fyrir að kalla
framm í fyrir honum.
Sterkur efnahagur
Eins og við var að búast, varð
Ciinton tíðrætt um árangur efna-
hagsstefnu sinnar og hann hafði
á hraðbergi tölur því til sönnunar.
„Fjárlagahalli alríkisstjórnarinnar
er nú 63 prósentum lægri en fyrir
fjórum árum, efnahagurinn hefur
skapað tíu og hálfa milljón nýrra
starfa, tvö síðastliðin ár hefur
venjuleg fjölskylda aukið tekjur
sínar um 1600 doilara..." í sam-
ræmi við þema dagsins, kynnti
forsetinn einnig nýjar tillögur sín-
ar sem miða að því að auka enn
hlut kvenna í viðskiptalífinu.
Forsetinn talaði einnig um nýja
efnahagsskýrslu ríkisstjórnarinn-
ar sem út kom sama dag og fund-
urinn var haldinn. Þrátt fyrir að
bent sé á í skýrslunni, að hægt
hafi á hagvexti síðan fyrr á þessu
ári, tókst Clinton að gera sér mat
úr henni. „Efnahagur okkar vex
enn um næstum 3 prósent á ári
og eftir að rauntekjur verkafólks
hafa staðið í stað síðastliðin 20
ár, vaxa þær nú 5 prósent á ári
og við erum enn laus við verðbólg-
una,“ sagði forsetinn og bætti síð-
ar við: „Ég get ekki eignað mér
þennan árangur einn,“ sagði hann,
„en efnahagsstefna okkar hefur
hjálpað ykkur að skapa atvinnu-
tækifæri," sagði Clinton.
Lítið sem minnir á kosningar
í samanburði við kosningafund
Bobs Dole í nágrenni Detroit í síð-
ustu viku, þar sem hann réðst
harkalega að forsetanum, var auð-
velt að gleyma því að Clinton á
enn í kosningabaráttu. Þrátt fyrir
að næstum klukkutíma löng ræða
hans hafi fjallað að miklu leyti um
árangur síðustu fjögurra ára i
efnahagsmálum, þá minntist hann
aðeins tvisvar á Dole; í hvorugt
skiptið með nafni. Clinton tókst
þó að gera grín að ummælum
Doles um efnahaginn. „Háttvirtur
andstæðingur minn sagði í dag
að efnahagsástandið hefði ekki
verið verra síðustu tuttugu árin.
En fyrir hálfum mánuði sagði
hann að núverandi efnahags-
ástand væri það versta á þessari
öld! Okkur fer greinilega fram“.
Sú stefna Clintons, að láta
næstum sem Dole sé ekki til og
tala lítið sem ekkert um kosning-
ar, hefur vakið upp spurningar um
hvort Clinton og lið hans telji að
kosningabaráttunni sé í raun lok-
ið. Mike McCurry, blaða-
fulltrúi forsetans, sagði í
samtali við Morgunblaðið
að sú væri alls ekki raun-
in. „Forsetinn hefur í
langan tíma verið að
reyna að sameina kjós-
endur, hvar í flokki sem þeir
standa,“ sagði McCurry og benti
á að fundurinn í Ypsilanti hefði
ekki verið hugsaður sem venjuleg
kosningasamkoma, heldur sem
fundur um sérstakt málefni, stöðu
kvenna í efnahagslífinu.
Engar áhyggjur af ásökunum
um spillingu
Demókrataflokkurinn og Clint-
on forseti hafa að undanförnu leg-
ið undir ásökunum um að hafa
þegið ólögleg fjárframlög til kosn-
ingabaráttunnar. Dole hefur
óspart gert sér mat út þessum
vandræðum andstæðinga sinna,
auk þess sem hann hefur dregið
upp dökka mynd af siðferði forset-
ans. McCurry sagðist hins vegar
hafa litlar áhyggjur af því að þetta
myndi skaða framboð Clintons.
„Enn sem komið er, bendir fátt
til þess að þetta mál hafi haft
áhrif á hvernig fólk ætlar að veija
atkvæði sínu,“ sagði McCurry.
„Bandaríkjamenn kjósa leiðtoga
sína fremur með tilliti til þess
hvað þeir ætla til dæmis að gera
fyrir efnahaginn, fjölskylduna og
menntakerfið en vegna málefna
sem kannski vekja mesta athygli
meðal stjómmálamanna í Wash-
ington,“ sagði McCurry.
Árangur mikilvægari en
ásakanir
Tvær konur sem sótt höfðu fund
Clintons, tóku óbeint undir sjónar-
mið McCurrys. Fréttaritari talaði
stuttlega við Tonyu Kostarziwa
og Rosemary Mann, sem eru í
námi við Eastern Michican háskól-
ann. Þær sögðu báðar að stefna
forsetans í efnahags og þjóðfé-
lagsmálum skipti þær meira máli
en það sem fram færi bak við tjöld-
in. „Opinberar ákvarðanir og laga-
setning skipta mig meira máli en
það sem forsetinn gerir í einkalífi
sínu,“ sagði Mann. Kostarziwa tók
undir þetta og bætti við; „Einkalíf
forsetans og það sem hann gerir
utan embættis síns, hefur lítið með
það að gera hversu hæfur hann
er að stjórna.“
Lokasprettur sem endar
í Little Rock
Skömmu eftir fundinn í Ypsil-
anti flaug forsetinn ásamt fylgdar-
liði sínu til Denver í
Colorado-ríki. Þaðan er
förinni meðal annars
heitið til Arizona,
Nevada og Kaliforníu.
Þessi lokasprettur kosn-
ingabaráttunnar endar
síðan næstkomandi þriðjudag í
Little Rock, höfuðborg Arkansas-
ríkis, þar sem Clinton lýsti yfír
forsetaframboði sínu fyrir fimm
árum síðan. Óstaðfestar fregnir
herma að undirbúningur sigur-
veislunnar sé nú þegar hafinn.
Ertu búin að máta
jólakjólinn?
7 vikur til jóla.
7 vikna árangursrík fitubrennslunámskeið hefjastí. nóv.
n.k. Notaðu nú tækifærið og komdu þér f gott form fyrir jðlin.
Gott aðhald, vigtun, matardagbók, uppskriftir að léttum
réttum og að sjálfsögðu árangursríkir tímar 3 sinnum í viku
fram til 21 desember. Frjáls mæting í alla opna tima.
Handklæði, sjampð og hárnæring fylgja frítt við hverja komu.
Pantaöu núna f sima 588 1616. Takmarkaðurfjöldi á námskeið.
BAÐHUSIÐ
helUuUnd fyrirkcnur
Armúla ao sImi oao ioio
Áherslan á
aukinn hlut
kvenna