Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 21
LISTIR
UNGMENNAFÉLAGIÐ íslendingur í Borgarfirði æfir nú gaman-
leikinn Þorlák þreytta og verður verkið frumsýnt á laugardag.
Benedikt
sýnir í
Gallerí
Horninu
BENEDIKT Kristþórsson opn-
ar sýningu í Gallerí Horninu,
Hafnarstræti 15, á morgun,
laugardag. Sýningin ber yfir-
skriftina „Kyrralífsteikningar"
og samanstendur af lágmynd-
um unnum í pappír. Benedikt
stundaði nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík og síðar
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands þaðan sem hann útskrif-
aðist úr grafíkdeild árið 1987.
Frá 1994 hefur Benedikt
kennt pappírsgerð og grafík við
MHÍ auk þess að stunda papp-
írsforvörslu á Þjóðskjalasafni
Islands.
Hann hefur haldið eina
einkasýningu í Lúxemborg árið
1992 og hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum.
Láraí
Listagallerí
GALLERÍ kynnir í nóvember-
mánuði verk listmálarans Guð-
rúnar Láru Halldórsdóttur en
verk sín vinn-
ur hún ýmist
með vatns-
eða olíulitum.
„Sérstaða
hennar felst
ekki hvað síst
í túlkun
hennar á kon-
unni og til-
finningum
hennar.
Þema kynningarinnar er „Ljóð
konunnar" eða með orðun Guð-
rúnar: Ljóð konunnar um betri
heim. Verkin endurspegla á
ljóðrænan hátt feminíska hug-
sýn mannlífs og jarðar," segir
í kynningu.
Kynningin stendur til 28.
nóvember.
Gallerí
Sýnirými
í nóvember
ÞRJÁR sýningar verða opnaðar
á morgun, laugardag, á vegum
galleríkeðjunnar Sýnirýmis;
í gallerí Sýniboxi, sem er
viðarkassi staðsettur utan á
vegg Dún- og fiðurhreinsunar-
inanr við Vatnsstíg, opnar Vict-
or C. Cilia málverkasýningu.
Opnun er kl. 12 og eru allir
velkomnir.
í gallerí Barmi, sem er sífar-
andgallerí, sýnir að þessu sinni
Haraldur Jónsson. Valerður
Matthíasdóttir mun bera Gall-
erí Barm út mánuðinn.
I símsvaragalleríinu Hlust
flytur skáldkonana Margrét
Lóa Jónsdóttir áður óbirtan
ljóðabálk, Draumey. Verkið
Draumey er úr væntanlegri
ljóðabók hennar.
Sýningartími útibúa gallerís
Sýnirýmis er allan sólarhring-
inn. Sýningar standa mánuð í
senn og eru opnanir sérhvern
„langan laugardag". Allir vel-
komnir.
Sýningn Jóns
Garðars að
ljúka
SÝNINGU Jóns Garðars Henr-
yssonar í efri sölum Hafnar-
borgar lýkur nú á mánudag.
Þar hefur Jón sýnt fantasíur
og frásagnarmyndir úr kon-
ungsríki Sækalds konungs.
Þetta er fyrsta einkasýning
Jóns Garðars, en hann útskrif-
aðist úr MHÍ 1991.
MYNPLIST
Stúdíó Bubba —
J L - h ú s i ð
MYNDVERK
Guðbjörn Gunnarsson, Chris Sayers,
Jóhann G. Jóhannsson, Sigurður
Vilhjálmsson. Opið virka daga kl.
14-18. Sunnudaga 14-22.
Til 1. nóvember. Aðgangur ókeypis.
NÝTT listhús hefur verið opnað í
JL-húsinu að Hringbraut 118, sem
hlotið hefur nafnið „Stúdíó Bubba"
í höfuðið á forsvarsmanninum Guð-
birni Gunnarssyni rýmislistamanni
sem tekið hefur sér listamannsnafn-
ið Bubbi. Guðbjörn er skólaður í
Englandi en í stað þess gera strand-
högg í heimsborginni London nam
hann á slóðum Hróa hattar, nánar
tiltekið Notthingham Trent Univers-
ity, er með BA-gráðu þaðan.
Bubbi hefur haldið 4 einkasýning-
ar, auk þátttöku á samsýningum,
og er skifara minnisstæðust sýning
hans í listhúsinu Fold í október á
sl. ári, sem vakti góða athygli fyrir
fágaða smíð og óaðfinnanlegt hand-
bragð. Það gera verkin 12 á sýning-
unni einnig, en nú tekur hann sjálft
rúmtakið og hreinar efnisandstæður
í ríkari mæli fyrir, annars vegar
brons og gler en hins vegar járn og
stein. Fyrrnefndu verkin eru frekar
smá, og nefnast samkvæmt því
„mineatúrar" og þar kemur form-
rænn skýrleiki, reisn og einfaldleiki
helst fram í nr. 1. Einfaldleikinn er
svo sterkasta hlið Bubba að þessu
sinni svo sem í verkunum „Borg“
(8) og „Rennsli (9), en báðar virka
þær sem þreifingar að stærri og ris-
meiri athöfnum. Má í þeim kenna
meiri átök við form og rými en verk-
unum í Fold, en hins vegar er sjálf
smíðin ásamt óljósum hugmyndun-
um að baki, fulleftirtakanlegar stað-
reyndir í flestum hinna verkanna.
Lítið þekki ég til Kanadamannsins
Chris Sayers, sem hefur drjúga skól-
un að baki og hefur síðustu árin
verið yfirmaður grafíkdeildar fyrr-
nefnds skóla r Notthinham. Það er
kórrétt sem stendur í skrá að mynd-
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR Tónlist-
arfélags Isaíjarðar, þeir fyrstu á
þessu starfsári verða haldnir í sal
Grunnskóláns á ísafirði,_laugardag-
inn 2. nóvember kl. 17. Á tónleikun-
um koma fram þær Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari og Delana
Thomsen píanóleikari.
Meginverk tónleikanna er Fiðlu-
konsert op. 15 eftir enska tónskáldið
Benjamin Britten sem verður flutt
með píanóundirleik, en Guðný hyggst
flytja verkið með Sinfóníuhljómsveit
ir hans séu gæddar sérstakri kímni,
gáskafullri og opinmynntri, og kem-
ur hún helst fram í nr. 19 „Bad
Head“, sem jafnframt er hreinasta
og litglaðasta þrykkið. Sayer tekur
fyrir mannleg samskipti og það er
líkast sem eigendum andlitanna í
verkum hans sé mikið niðri fyrir og
vilji ólmir blanda geði við skoðend-
ur. Hins vegar eru vinnubrögðin
tæpast nógu hrein í þessum útgáf-
um, eða myndirnar njóta sín einfald-
lega ekki á veggjunum.
Jóhann G. Jóhannsson á langflest-
ar sýningar að baki og hér getur
að líta gamalkunna hlið hans, sem
eru rómantískar og ljóðrænar lands-
lagsstemmur í frekar dökkum tón-
um. Nokkuð skortir á að hann nái
þeirri fyllingu og dýpt sem stundum
hefur sést til hans áður og svo er
erfitt að njóta myndanna á staðnum
vegna speglunar á glerinu.
Sigurður Vilhjálmsson er útskrif-
aður frá málunardeild MHÍ (1991)
og hefur tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum, auk þess að hann sýndi
á Kaffistofu í Borgarkringlunni fyrir
tveim árum. Borið saman við sýning-
una þar virðist vera mikil getjun í
vinnubrögðum hans um þessar
mundir, svo margt vilji fá útrás að
hann ráði hreinlega ekki við það.
Myndstíllinn sem hann leggur út af
krefst líka mjög samfelldra vinnu-
bragða, því úthverfa innsæið er
kröfuharður húsbóndi. Helst tengj-
ast litirnir innri lífæðum myndflatar-
ins í „Morgunn“ (13) og „Kvöld“
(16).
Eftir skoðun sýningarinnar leggst
húsnæðið þannig í mig að það sé
helst fallið fyrir einkasýningar því
einhvern veginn er slagkrafturinn
ekki nógu afgerandi í þessu formi.
Nokkur og eðlilegur upphafssvipur
er þannig yfir framkvæmdinni en
það er afar mikilsvert að fá sýning-
arsal á þennan stað sem ber í sér
dijúga sögu af athöfnum á vett-
vangi myndlista. Nær allt aftur til
1954 er húsalengjan var svo til ný-
byggð og hýsti m.a. Gagnfræðaskóla
verknáms. Ber að óska listhúsinu
langra lífdaga.
íslands á næstunni. Þá mun Guðný
flytja stutt einleiksverk eftir Jónas
Tómasson, Ballett IV, frá árinu
1992, en að því loknu kemur eins
konar „óskalagaþáttur"! Áheyrendur
fá lista yfir lög, sem þær eru tilbún-
ar að leika, og mega velja úr það
sem þá langar mest að heyra.
Delana mun einnig halda master-
class námskeið í Tónlistarskóla ísa-
fjarðar föstudaginn 1. nóvember kl.
15.30-18 og er námskeiðið öllum
opið.
„Þorlákur
þreytti“ hjá
íslendingi
FYRIR tuttugu árum hóf ung-
mennafélagið Islendingur I
Borgarfirði leiklistarstarfsemi
sína og hafa félagar í ungmenna-
félaginu sett á svið leikverk ann-
að hvert ár allar götur síðan.
Nú, á tuttugu ára afmælinu,
hefur gamanleikurinn Þorlákur
þreytti orðið fyrir valinu. Æfing-
ar hafa staðið yfir í sex vikur
og er frumsýning næstkomandi
laugardag í Félagsheimilinu
Brún í Bæjarsveit.
„Gamanleikurinn Þorlákur
þreytti er einn af þessum gömlu
försum þar sem allt getur gerst,“
segir í kynningu. Tíu leikarar
taka þátt í sýninguni og er titil-
hlutverkið leikið af Bjarka Má
Karlssyni. Frumsýningin er sem
fyrr segir laugardaginn 2. nóv-
ember kl. 21 í Félagsheimilinu
Brún, 2. sýning þriðjudaginn 5.
nóvember kl. 21, 3. sýning
fimmtudaginn 7. nóvember kl.
21 og 4. sýning laugardaginn 9.
nóvember kl. 21.
Sigrún sýnir
hjá Sævari
SIGRÚN Ólafsdóttir opnar sýningu
í Galleríi Sævars Karls, Bankastræti
9, í dag, föstudag, kl. 16 til 18.
Sigrún er fædd árið 1963 í
Reykjavík og stundaði nám við
Myndmótunardeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands. Hún stundaði
framhaldsnám við Hochshule der
Bildende Kúnste í Saarbrúcken í
Þýskalandi hjá prófessor Wolfgang
Nestler.
Sigrún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga í Þýskalandi og hlaut
listastyrk Saarbrúckenborgar 1996.
------4- ♦ ♦-----
Síðasta sýning-
arhelgi Helgu
SÝNINGU Helgu Ármanns á kola-
og rauðkrítarteikningum sem stend-
ur yfir í Hafnarborg, menningar- og
listastofnun Hafnaríjarðar, lýkur á
mánudag.
Á sýningunni eru myndir unnar á
sl. 2 árum. Þær eru allar unnar á
blandaðan pappír, vélunninn og
handgerðan. Sýningin ber yfirskrift-
ina „Veðurbrot" og er heiti mynd-
anna sótt í veðuriag og náttúrufar.
Sýningin er opin frá kl. 12-18.
Kynnum
haustlitina
í dag og d
morgun.
Glæsilegir burstar og
blýantar fylgja þegar
keyptir eru 2 eða fleiri
hlutir af haustlitunum.
Fjöldi annarra
tilboða.
CiflLÍM..
Kringlunni 8-12 sími 568 9033
HRUSTDRGRR OG HLVJRR P6VSUR
föstudag - laugardag
20% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum
15% afsláttur af kortum
€f þú vilt
góóon fotnoó
benellon
Laugavegi 97, sími 552 2555
Guðrún Lára
Halldórsdóttir
Bragi Ásgeirsson
Tónleikar á ísafirði