Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 35 Eru hallalaus fjárlög raunhæft markmið? í UMRÆÐUM á Alþingi hefur komið fram mikil eindrægni um það markmið að afgreiða fjárlög fyrir næsta ár án haila. Skilningur fer vaxandi meðal þjóðarinnar á því að áframhaldandi hallarekstur auki skuldir ríkisins og leggi þannig grunn að hærri sköttum í fram- tíðinni. Fjárlagahalli kallar einnig á lántök- ur ríkissjóðs til að brúa bilið milli gjalda og tekna, en þær leiða til aukinnar lánsijáreftir- spurnar á íjármagnsmarkaði og þar af leiðandi hærri vaxta. Nú er svo komið vegna langvar- andi fjárlagahalla og skuldasöfnun- ar, að ríkið þarf að greiða árlega 13-14 milljarða króna í vexti. Fyr- ir þá ijárhæð gæti ríkið staðið und- ir rekstri allra skóla í landinu eða rekstri sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Akureyri svo dæmi séu nefnd. En má treysta því að ijárlögin standist? Hefur afkoman ekki ávallt verið miklu lakari en ijárlög ráðgerðu þegar upp er staðið? Því er til að svara að afkomuáætlanir ijárlaga hafa staðist betur á undan- förnum árum en áður. Ástæðan er m.a. sú, að auðveldara er að gera áætlanir við efnahagslegan stöðug- leika. Það á ekki einungis við heim- ili og fyrirtæki heldur einnig rekst- ur hins opinbera. Á meðfylgjandi mynd (súlurit 1) má sjá muninn á áætluð- um halla samkvæmt fjárlögum og raun- verulegum halla. Séu tekin saman árin 1989, 1990 og 1991 kemur í ljós að hallinn á verðlagi 1996 var um 20 milljörðum króna hærri en ijárlög ætluðu. Séu með sama hætti tekin saman árin 1994, 1995 og 1996 verður raunveruleg af- koma hins vegar 2 milljörðum betri en gert var ráð fyrir í ijár- lögum. í fyrirtækjarekstri er stundum talað um afkomu fyrir fjármagns- kostnað. Sé slíkri aðferð beitt á fjárlögin má sjá að árangur í rík- isfjármálunum hefur orðið veruleg- ur (súlurit 2). Sívaxandi greiðsiu- byrði vegna vaxta veldur því hins vegar að hægar gengur en ella að ná jöfnuði á ijárlögum. Þjóðir Evrópusambandsins búa sig um þessar mundir undir þátt- töku í Evrópska myntsambandinu (EMU). Þótt íslendingar hafí kosið að gerast ekki aðilar að ESB er nauðsynlegt að efnahagsástandið hér á landi sé sambærilegt og helst í betra lagi en í aðildarríkjum ESB. Þannig styrkjum við samkeppnis- stöðu okkar gagnvart þeim. Það er athyglisvert að Island er nú eitt fjögurra Evrópuríkja sem uppfylla öll skilyrði fyrir inngöngu í Mynt- Afkomuáætlanir fjár- laga hafa staðist betur á undanförnum árum en áður. Friðrik Soph- usson segir ástæðuna þá, að auðveldara sé að gera áætlanir við efna- hagslegan stöðugleika. samband Evrópu, en skilyrðin eru að verðbólga, vextir, afkoma hins opinbera og skuldir séu undir ákveðnu marki. Þróist samstarf ESB-ríkjanna með þeim hætti að við teljum hag okkar betur borgið innan sambandsins en utan, getum við gerst aðilar án þess að grípa til sársaukafullra aðgerða til að uppfylla þessi skilyrði. Með betri hagstjórn á undan- förnum árum hefur okkur tekist að lækka þá vexti sem ríkið þarf að greiða lánardrottum sínum. Með innköllun spariskírteina var vaxtakostnaður lækkaður um tvo milljarða og með betri lánshæfis- einkunn frá viðurkenndum al- þjóðafyrirtækjum hafa lánskjör ríkisins batnað á erlendum lána- mörkuðum. Ráðdeild og sparnaður hafa því skilað árangri. Næsti áfangi í ríkisfjármálum er að skila nægilegum afgangi á fjárlögum til að standa undir nýjum skuld- Friðrik Sophusson FJÁRMALARÁÐUNF.YTIÐ Milljónir króna 14.000 Halii ríkissjóðs - frávik frá fjárlógum Á verölagi 19V6 198R 1989 1990 * Án áhrifa af innköllun spariskfneina Milljónir króna r 14.000 j- 12.000 L 10.000 - 8.000 f- 6.000 r 4.000 L 2.000 ■'Esrt0 -2.000 -4.000 FJÁRMÁLARÁÐUNE\TIÐ 28.10.1996 Milljónir króna 10.000 -j 8.000 -i 6.000 j 4.000 - 2.000 1991 1992 Afkoma ríkissjóös án vaxla Á vcrölagi 1996 1993 1994 1995 Milljónir króna - 10.000 j- -2.000 r -4.000 r -6.000 L -8.000 19% 1997 Áætlun Frumvarp bindingum, sem ekki koma til greiðslu fyrr en eftir nokkur ár. Hér er einkum átt við áfallna, ógreidda vexti og lífeyrisskuld- bindingar, sem koma ekki til út- borgunar fyrr en viðkomandi starfsmaður tekur lífeyri. Afgang- ur á fjárlögum er enn mikilvægari fyrir þá sök að hann spornar við óæskilegum þensluáhrifum vegna þess að afgangur á viðskiptin við útlönd hefur nú snúist í halla. Hallalaus fjárlög er ekki inni- haldslaust slagorð heldur í senn æskilegt og raunhæft markmið, sem getur enn styrkt stöðu okkar til að takast á við sameiginleg verk- efni þjóðarinnar í framtíðinni. Höfundur er fjármálaráðherra. Veislusolir o 1 Veitingohá/ið IB GflPi-mn sími 555 4477 Blað allra landsmanna! HÍ0V0nidHaM^ - kjarni málsins! Kjarvalsstaðir Bækur, kort, plaggöt, gjafavörur. Opið daglega frá kl. 10-18. LANCOME Tefðu tímann með Primordiale. Kaupauki: Glæsileg ferðasnyrtitaska fylgir hverju 50 ml kremi og Fluide. LANCÖME verslanir Aðrar þjóðir öfundð okkur af lífeyrissjóðakerfinu vep: ■ Samtryggingar, sem greiðir sjóðfélögum ellilífeyri ævilangt og er auk þess trygging fyrir óvæntum áföllum s.s. við orkutap eða andlát. • Sjóðsöfnunar, sem stuðlar að auknum þjóðhags- legum sparnaði og gerir sjóðina betur í stakk búna að standa undir lífeyrisskuldbindingum í framtíðinni. •BfcyaSBL' -. ’ • Skylduaðildar, sem tryggir öllum starfandi mönnum aðgang að lífeyrissjóðum, þannig að enginn verði afskiptur. iandssaiáand lífeyrissjóða Samband almennra lífeyrissjóða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.