Morgunblaðið - 01.11.1996, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 39
MINNINGAR
Nóvembertilboð
KRISTJÁN HÓLM-
STEINN HELGASON
+ Kristján Hólm-
steinn Helga-
son var fæddur að
Felli á Vopnafirði
19. nóvember
1923. Hann lést á
Landspítalanum i
Reykjavík 26.
október síðastlið-
inn, 72 ára að aldri.
Foreldrar hans
voru Helgi Frí-
mann Magnússon,
f. 1882, d. 1939, og
Matthildur Vil-
hjálmsdóttir, f.
1883, d. 1969.
Kristján fluttist ungur að Felli
á Vopnafirði með fjölskyldu
sinni og ólst þar upp til ungl-
ingsaldurs eða þar til hann
flytur til Reykjavíkur með
móður sinni eftir að faðir hans
lést árið 1939. Fljótlega tóku
þau mæðgin að sér fósturson,
Helga Straumfjörð Kristjáns-
son og ólu hann upp til ungl-
ingsaldurs. Kristján átti fimm
systkin. Þau eru Gunnlaugur
Þór Helgason, f. 1912, d. 1942,
Jóhanna Helgadóttir, f. 1914,
Elín Helgadóttir, f. 1916, Jón
Helgason, f. 1918, og Haraldur
Helgason, f. 1921, d. 1994.
Eftirlifandi eiginkona
Kristjáns er Guðrún Ólöf
Hulda Jóhannesdóttir, f. 6.6.
1924. Kristján giftist Guðrúnu
14. nóvember 1958. Hún er
dóttir hjónanna Asgerðar Sig-
ríðar Bjarnadóttur, f. 13.4.
1891, d. 1.4. 1981, og Jóhann-
esar Kristjáns Guðbrandsson-
ar, f. 23.11. 1891, d. 28.9.
1972. Þau eignuðust saman 5
börn. Þau eru: 1) Matthildur,
f. 7.8. 1955, gift William E.
Calvert, f. 6.12. 1953, og eiga
þau 3 börn, Maryann Calvert,
f. 14.2. 1973, Elisabetu Ann
Calvert, f. 1.12. 1974, og
Kristjönu Guð-
rúnu, f. 8.10. 1981.
2) Ásgeir Jóhann-
es, f. 3.8. 1958,
sambýliskona hans
er Hólmfríður
Árný Vilhjálms-
dóttir og eiga þau
3 börn. Þau eru
Jóhannes Helgi, f.
15.6.1977, Margrét
Halldóra, f. 8.7.
1979, og Anna Mar-
ía, f. 23.4. 1983. 3)
Kristrún, f. 31.7.
1959, gift Halldóri
Guðmundssyni, f.
28.9. 1958. Eiga þau saman
eitt barn, Guðmund, f. 19.9.
1992. Kristrún átti 2 börn fyr-
ir, Matthías Inga Árnason, f.
23.11. 1979, og Rúnar Inga
Sigurðsson, f. 14.10. 1982. 4)
Elín Guðfríður. Sambýlismað-
ur hennar er Kristján Hafberg
Ólafsson, f. 12.10. 1962. Barn
þeirra er Kristján Hafberg, f.
1.8. 1980. 5) Gunnlaugur Þór,
f. 11.8. 1963. Hann á eitt barn,
Sævar Orra, f. 22.10. 1988.
Sambýliskona_ Gunnlaugs er
Vigdís Heiða Ólafsdóttir. Einn
fósturson átti Kristján og heit-
ir hann Helgi Straumfjörð
Kristjánsson, f. 1939, giftur
Sæunni Guðmundsdóttur.
Helgi á 4 börn, þar af 3 með
Sæunni. Guðrún átti fyrir 2
börn áður en þau Kristján
kynntust, þau eru Alda Breið-
fjörð Indriðadóttir, f. 22.3.
1946, gift Einari Bjarnasyni
og eiga þau 4 börn, Pétur
Breiðfjörð Indriðason, f. 20.4.
1947, giftur Sigurveigu Árna-
dóttur og eiga þau 5 böm.
Barnabarnabörn Kristjáns eru
þijú.
Útför Kristjáns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 10.30.
Elsku pabbi okkar, nú ert þú
farinn til allra hinna sem þér þótti
svo vænt um en fóru á undan
þér. Ég veit að það verða mjög
góðir endurfundir hjá þér og
Gunnlaugi bróður þínum sem þér
þótti svo vænt um. Það var svo
gott að hafa þig hjá sér og gott
að snúa sér til þín þegar við þörfn-
uðumst þín til að tala við og allt-
af varst þú til taks fyrir okkur.
Elsku pabbi. Þetta var löng og
erfið barátta en nú er henni lok-
ið. Þú barðist vel og varst ávallt
sterkur og reyndir að láta þennan
illvíga sjúkdóm hafa engin áhrif
á þig. Við söknum þín sárlega en
vitum þó að þér líður vel þar sem
þú ert núna. Megi Guð styrkja
mömmu og okkur í þessari miklu
sorg. Þakka þér fyrir allt sem þu
gerðir fyrir okkur. Þú varst besti
pabbi í heimi.
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótti þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S.Kr. Pétursson)
Börnin.
Elsku afí okkar. Við kveðjum
þig með söknuði en munum svo
lengi sem við lifum hve góður þú
varst við okkur. Nú ert þú farinn
og eftir sitja góðar minningar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn siðsta blund.
(V. Briem.)
Jóhannes, Margrét
og Anna María.
Elsku Kristján okkar. Nú hefur
þú fengið hvíldina eftir löng og
mikil veikindi. Við þökkum fyrir
að hafa fengið að kynnast þér.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur.
Sál ris frá foldu,
birta umlykur,
allar kvalir burt strýkur.
Kristur við tekur,
hans kærleikur þekur,
til himna hann leiðir.
(Maren Jakobsdóttir.)
Tengdabörn.
Rutland þéttir,
bætir og kætir
þegar að þakið
fer að leka
Á ÞÖK - VEfifil - GÓLF
Rutland er einn helsti
framieiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
pp
&CO
Þ. ÞORGRÍMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK
SÍMI 553 8640 / 568 6100
Sósan er frábær með öllu grænmeti.
Hún erkjörin í samlokur og omissandi
í salatið.
Prófaðuþessa! Húnerpottþétt.
VOGABÆR
190UogarSími:4246525
5
-y*1, S:,
Fyrir aðeins
7.000
færðu myndatöku af börn-
unum þínum og eina
stækkun 30 x 40 sentimetra
innrammaða og 10 jólakort.
Að auki færðu að velja úr
10-20 öðrum myndum af
börnunum og þær færðu
með 50% afslætti
frá gildandi verðskrá
et þú pantar strax.
ÚRVALS JÓLAGJÖF
Hringdu og láttu senda þér
frekari upplýsingar, en bíddu
ekki of lengi, tilboðið gildir
aðeins í ákveðinn tíma.
Ljósmyndastofan Mynd,
sími 565 4207.
3 Ódýrari
Alltaf tilbúnir í fjörið!
- kjarni málsins!