Morgunblaðið - 15.01.1997, Page 20

Morgunblaðið - 15.01.1997, Page 20
I 20 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 LISTIR „Hláturinn hjálpar“ * UNGVERJINN George Tabori; leikskáld, leikstjóri (og stundum leikari), er 82 ára gamall og býr í Vínarborg. Þrátt fyrir háan aldur þykir sköpunargleði hans vera með eindæmum og vart líður það leikár að ekki sjáist nýtt leikrit eftir hann á fjölum evrópskra leikhúsa. Ævi- og starfsferill þessa kraftmikla leik- húsmanns er enda með nokkrum ólíkindum. „Hitler var einmana" Tabori er fæddur í maímánuði árið 1914 í Búdapest. Hann og fjöl- skylda hans voru gyðingar og töld- ust til menntamanna í landinu. Fað- ir hans var kennari og gerði sömu- leiðis kvikmyndir um félagslegar aðstæður þeirra sem minna máttu sín í Ungvetjalandi á árunum eftir fyrri heimsstyijöld. Tabori hélt til Þýskalands að loknu stúdentsprófí árið 1932 og settist að í Berlín. Hann langaði til þess að verða rit- höfundur, en var gert að læra hitt og þetta í sambandi við hótelrekst- ur. í þeim tilgangi starfaði hann um tíma á Hótel Hessler, litlu en virðulegu hóteli í Kantstræti, og upplifði þá hrikalegu óróatíma sem fylgdu falli Weimar-lýðveldisins og valdatöku nasista. Tabori sá Hitler fagna kanslaratign sinni í Vil- hjálmsstræti hinn 30. janúar 1933 og fékk ekki betur séð en að þar færi afskaplega einmana maður. Ekki það að hann vorkenndi mann- inum. En rétt eins og flestir í Þýska- landi gerði Tabori sér litla grein fyrir því á þeim tíma, hverskonar helvíti Adolf Hitler og fylgismenn hans voru um það bil að innrétta í Þýskalandi: „Fólk vissi ekki neitt. Það djöfullega við ráðabrugg nas- ista var að það voru ætíð tekin lítil skref í hvert eitt sinn. Nokkrir menn handteknir eða barðir. Fangabúðir? Jú, fólk hafði heyrt um þær, en hverskonar fangabúðir voru þetta? Ógn nasismans barst til fólks um langan veg.“ George Tabori yfirgaf Berlín í kjölfar valdatöku nasista, sneri aft- ur til Búdapest og starfaði sem blaðamaður. Hann flutti til London árið 1935 og vann síðan sem stríðs- fréttaritan fyrir BBC í Mið-Austur- löndum. Árið 1943 flutti hann aftur til London. í seinni heimsstytjöldinni gerðust afdrifaríkir hlutir í líft George Tab- oris. Þeir mörkuðu ekki aðeins líf hans upp frá þvl, heldur og allt hans ævistarf og þá ekki síst I leik- húsinu. Nánast allir ættingjar hans, nákomnir sem og fjarskyldir, lentu í fanga- og útrýmingarbúðum nas- ista. Þaðan áttu þeir ekki aftur- kvæmt. Faðir hans dó í Auschwitz árið 1944, en móðir Taboris fór huldu höfði í Búdapest til stríðs- loka. Reyndar var hún tekin hönd- um dag einn, er hún var á leið til systur sinnar og sett um borð í troð- fulla lest sem flutti gyðinga frá Búdapest til Auschwitz. Á einskon- ar „umskipunarstöð“ við landamær- in náði móðir hans hins vegar að sannfæra þýskan liðsforingja um að sleppa sér, eftir að hafa veifað vegabréfi frá sænska Rauða kross- inum. Hún horfði á eftir 4.000 gyð- ingum halda rakleiðis í opinn dauð- ann, en tók fyrstu lest aftur til Búdapest og fór heim til systur sinnar að spila brids! Þessa ótrúlegu sögu færði Tabori í leikbúning árið 1979 og nefndi „My Mother’s Cour- age“, eða „Hetjan móðir mín“. Tabori gerist handritahöfundur í Holiywood Tabori kvæntist fyrstu konu sinni á stríðsárunum og hóf að skrifa skáldsögur. Alls komu út 4 bækur eftir George Tabori, áður en hann fluttist til Bandaríkjanna, árið 1947. Hann hugðist dvelja þar í alls þrjá mánuði, en bjó þar í 22 ár. Tabori hélt þó enskum ríkisborg- ararétti sínum og náði aldrei að festa neinar rætur í Ameríku: „Mér Nemendaleikhús Leiklistarskóla Islands sýn- ir nú leikritið „Hátíð“ (,,Jubilee“), eftir Ge- orge Tabori. Þetta er í fyrsta sinn sem leik- rit eftir Tabori er sett á svið á íslandi og af því tilefni skrifaði Bjarni Jónsson með- fylgjandi grein um höfundinn. Fyrir nokkrum árum flutti Útvarpsleikhúsið leikritið „Hetjan móðir mín“ eftir Tabori. George Tabori fannst Bandaríkin spennandi, en mér fannst ég aldrei eiga þar heima... Ég var eftir sem áður enskur ríkisborgari og undir niðri gat ég ekki slitið mig í burtu frá Evrópu." Það var aðalstarfi George Tabor- is allan sjötta áratuginn að skrifa handrit fyrir draumaverksmiðjurn- ar í Hollywood. Á sama tíma kynnt- ist hann mörgum af fremstu og þekktustu lista- og menntamönnum Evrópu, sem höfðu flúið ógnaröld- ina í hinni gömlu heimsálfu og reyndu nú eftir bestu getu að koma undir sig fótunum í Ameríku. Hann vann með Bertolt Brecht, þeim leik- húsmanni á þessari öld sem Tabori hefur ætíð þótt mest til koma („Brecht var næsta óþekktur í Hollywood, það voru bara Þjóðvetj- arnir sem könnuðust við hann.“). Tabori undirbjó einnig framleiðslu á kvikmynd, gerðri eftir „Töfrafjall- inu“, skáldsögu Thomas Manns. Peningamenn í Hollywood hristu hins vegar hausinn og hlógu, enda var viðvarandi ótti við allt sem tald- ist „evrópskt", eða „kommúnískt". Tabori leigði ásamt móður sinni hjá leikkonunni Sölku Viertel. Þar var ávallt margt um manninn og helstu átrúnaðargoð Taboris frá því í æsku héldu meira og minna til í húsi hennar; Charlie Chaplin, Greta Garbo, Amold Schönberg... fólk sem var misvel stætt fjárhagslega og stóð langt því frá allt í hæstu þrepum mannvirðingastigans í Hollywood. „Fellow traveller" George Tabori fékk sitt fyrsta leikverk, „Flight into Egypt“, fært upp á Broadway árið 1952. Leik- stjórinn var ekki ómerkari maður en Elia Kazan, sem þá var einn metnaðarfyllsti leikstjórinn á Broadway og hafði m.a. átt stóran þátt I velgengni Tennessee Will- iams. Tabori og Kazan urðu góðir vinir, en sú vinátta kólnaði snögg- lega eftir að áhrif hins svonefnda „McCarthy-isma“ fóru að koma í ljós og innibyrgður ótti bandarísks samfélags fékk útrás í heiftarleg- um nornaveiðum, þar sem fórn- arlömb yfirvalda voru oftar en ekki framsæknir mennta- og listamenn. Tabori segir Kazan hafa verið al- gjörlega háðan almenningsálitinu og því hafi það ekki komið á óvart þegar Elia Kazan tók upp á því að ófrægja samverkafólk sitt í því skyni að koma sér í mjúkinn hjá höfundum „svarta listans". Tabori vann ekki með Kazan eftir þetta. „Við vorum svo móralskir á þessum tíma. En menn geta orðið undar- lega spilltir þegar þeir fara að njóta einhverra vinsælda." Þar kom að George Tabori var einnig settur á svarta listann, sem „fellow travell- er“, þótt hann segist aldrei hafa aðhyllst kommúnisma. „Það var aldrei neinn kommúnismi til í dæm- inu. Fáránleiki McCarthy-tímans var þessi móðursýki. Ekki það að menn væru myrtir. En mönnum var bannað að vinna, þeir frömdu sjálfsmorð, lentu í fangelsi." Áður en Tabori sneri baki við kvikmyndunum skrifaði hann handritið að kvikmynd Alfred Hitchcocks, „I Confess", árið 1953. Ekki varð þó af frekara samstarfi þeirra. Tabori mat manninn mikils, en var ekki mikill aðdáandi hans sem kvikmyndagerðarmanns. „Skrýtlan er fullkomnasta form bókmenntanna" Tabori stjórnaði um langt skeið eigin leikhópi í New York, ásamt annarri eiginkonu sinni, Vivicu Lindfors. Hann skrifaði leikrit sem sett voru á svið í borginni, þ. á m. „Mannæturnar"; leikrit um fanga í Auschwitz sem eru svo aðfram- komnir af hungri að þeir neyðast til þess að éta einn samfanganna. Tabori setti leikritið síðan sjálfur upp í Schiller-leikhúsinu I Berlín árið 1969. Þar með hófst sá kapít- uli I lífi hans sem enn sér ekki fyrir endann á og er helgaður evr- ópsku leikhúsi. Hann fluttist bú- ferlum til Þýskalands og vakti strax athygli fyrir afgerandi skoð- anir sínar á leiklist og leikstjórnar- aðferðir þær sem hann notaði til þess að virkja undirmeðvitund leik- aranna. í Bandaríkjunum komst Tabori rækilega í kynni við þær aðferðir sem þarlendir sálkönnuðir höfðu reynt á sjúklingum sínum. Hann hafði sjálfur leitað aðstoðar sálfræðinga, þar sem honum gekk afar illa að sætta sig með einhvetj- um hætti við hörmungarnar sem höfðu dunið yfir hann og fjölskyldu hans í heimsstytjöldinni. í tengsl- um við uppsetningar sínar stóð Tabori oft fyrir leiksmiðjuvinnu, og fékk á sig það orð að vera mis- kunnarlaus í umgengni við þátttak- endur. Markmið hans var ætíð hið sama: Að fá leikarana til þess að opna fyrir tilfinningar og afstöðu sem þeir héldu aftur af. Slík vinnu- brögð eru án efa árangursrík, en þeim fylgir mikil ábyrgð, þar sem leikstjórinn getur ekki opnað fyrir tilfinningaflæði hjá leikara, ef hann kann ekki að höndla það sem kemur upp á yfirborðið. Af George Tabori fer hins vegar það orð að hann svíkist ekki undan merkjum á ögurstund og líti á það sem per- sónulegan ávinning að vinna með leikurum sem gangast inn á vinnu- aðferðir hans. Gaman og alvara Það er einkennandi fyrir leikhús- manninn George Tabori að hann beitir jafnt sársauka og kímni í þeirri viðleitni sinni að kalla fram viðbrögð hjá áhorfendum. í „Hetj- an móðir mín“ spyr ein persónan í lestinni sem er á leið til Ausch- witz: „Hvar er matarvagninn hérna?“ Og ókunnur maður hefur mök við móður Taboris þar sem þau standa í mannþröng í lestinni, með orðunum: „hvort hún vilji vera svo góð - þetta sé kannski í síð- asta sinn..." (!) Þessi endalausi línudans á milli gleði og alvöru segir Tabori að sé honum svo gott sem í blóð borinn. „Það kemur ætíð upp sú staða í leikritunum mínum að þau hætta að vera fynd- in. Ég held að húmor virki ekki nema að baki búi dauðans alvara. Þá er ég að tala um brandarana, sem mér finnst vera fullkomnasta form bókmenntanna: Brandarar eru stuttir, ganga algjörlega upp og koma ætíð á óvart.“ Tabori starfaði sem leikstjóri I Bremen um skeið, en var síðan fastráðinn leikstjóri við Kam- merspiele í Munchen árið 1978. Þar vann hann sýningar upp úr textum eftir Samuel Beckett og Franz Kafka, sem hlutu fádæma lof áhorfenda og gagnrýnenda. Árið 1987 tók hann síðan við stjórn eigin leikhúss í Vínarborg. Leik- húsið kallaðist „Der Kreis" eða „Hringurinn“ og þar hélt Tabori áfram að þróa aðferðir sínar og vinnubrögð. Þremur árum seinna hætti George Tabori sem leikhús- stjóri og hefur hin síðustu ár ein- beitt sér að því að skrifa leikrit auk þess sem hann leikstýrir af og til. Hann segist vera svo hepp- inn að hafa ávallt alið með sér barnslega ástríðu gagnvart leik- húsinu og líti á það sem fegursta og raunsannasta form mannlegra samskipta. Leikhúsið standi á ber- svæði í dag og verði að leita svara við fjölmörgum spurningum sem ekki sé lengur hægt að svara með hjálp marxískra fræða eða mark- aðshyggju. Hann hefur ekki áhyggjur af því að leikhúsið nái ekki að endurspegla raunveruleika nútímans og tekur sem dæmi að eitt sinn hafi hann logið upp draumi og sagt hann sálfræðingi sínum. Er hann ákvað að segja konunni hvernig I pottinn var búið, þá svaraði hún því til að lygin hafi samt sem áður verið raunveru- leg I hans eigin huga - líkt og draumur. „Þegar maður skáldaði upp sögu, væri maður að gera ákafa tilraun til þess að tjá þann raunveruleika sem býr að baki ímynduninni. - Leikhúsmaðurinn í mér tvíefldist við þessi orð!“ • Að ofan er vitnað til orða George Tabori í þýska leikhústímaritinu Theater Heute, maihefti ársins 1994. Höfundur er leiklistnr- og bókmenntaráðunautur. MORGUNBLAÐIÐ Tímarit • Á VEGUM bókafulltrúa rík- isins í menntamálaráðuneytinu eru komnar út þtjár ársskýrsl- ur; Ársskýrsla almennings- bókasafna 1994, Ársskýrsla skólasafna í grunnskólum 1994- 95 og Arsskýrsla skóla- safna í framhaldsskólum 1995- 96. Árið 1994 voru almennings- bókasöfnin 176 alls, þar af eru 42 bæjar- og héraðsbókasöfn, 112 hreppsbókasöfn og 22 stofnanasöfn. í almennings- bókasöfnunum voru nærri 1,9 milljónir bóka og eru það rúm- lega 7 bækur á hvern íbúa landsins. Vestfirðingar eiga langmest eða 17 bækur á íbúa. Útlán safnanna voru 7,44 bæk- ur á íbúa en heildarútlán þegar öll safngögn eru talin með voru 7,74 á íbúa og hefur þeim fjölg- aðum 6,5% milli ára. íbúar á Suðurlandi fengu lánaðar flestar bækur enda var Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi með hæstu útlánatölu á landinu, 15,5 bækur á íbúa. Það met hefur safnið átt síðan 1992 erþað sló Bókasafni Siglufjarðar við. Annað í röð- inni var Héraðsbókasafn A-Húnvetninga á Blönduósi með 13 bækur á íbúa. Almenningsbókasöfnin höfðu rúmlega 453 milljónir króna til ráðstöfunar þetta ár sem er um 1.700 krónur á íbúa. Helmingur þessarar upphæðar fer til þess að borga laun en fjórðungur til þess að kaupa safnkost. Kvennasaga í konfektdós í TILEFNI af opnun Kvenna- sögusafns íslands í Landsbóka- safni íslands - Háskólabóka- safni 5. desember sl. var opnuð sýning á gögnum og munum úr fórum safnsins. Þar má sjá handrit, bréf, Ijósmyndir og ýmis skjöl er varða sögu kvenna, ljósmyndir frá kvenna- frídeginum 24. október 1975, bækur með blaðaúrklippum um kosningabaráttu Vigdísar Finn- bogadóttur árið 1980 og fleira. I kynningu segir: „Sýningin ber yfirskriftina Kvennasaga í konfektdós og er merking þess tvíþætt. Annars vegar sýnir hún á hvem hátt konur hafa varð- veitt sögu sína og skáldskap í gegnum tíðina, í konfektöskjum eða í öðrum umbúðum. Hins vegar má líta svo á að kven- nasagan sé eins og konfekt sem gefur hinni hefðbundnu sögu bragð og margbreytileika". Sýningin er á 2. hæð Lands- bókasafns í Þjóðarbókhlöðu og verður opin til 16. janúar nk. Unglingar í Skruggu- steini SIBBA, Sigurbjörg Jóhannes- dóttir sýnir nú smá- myndir I skotinu í Listmuna- galleríinu Skruggu- steini, Hamraborg 20a, Kópa- vogi. Sýningin er opin alla virka daga kl. 12-18 og á laugardög- um frá kl. 11-16. Sibba er útskrifuð frá MHÍ 1995 (málun). Hún hefur einnig stundað listnám í Myndlista- skóla Reykjavíkur og á Spáni. Hún hefur verið með fjórar einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði hér heima og á Spáni. Sýningin stendur til 27. jan- úar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.