Morgunblaðið - 15.01.1997, Side 28

Morgunblaðið - 15.01.1997, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Hallur Guð- mundsson fæddist i Krossavík við Þistilfjörð 20. ágúst 1918. Hann lést í Landspítalan- um 6. janúar síð- astliðinn. Foreldr- ar hans voru Guð- mundur Einarsson og Elín Guðmunds- dóttir, Fagranesi á Langanesi, síðar ^ Garði í Þistilfirði. Systkini Halls eru: Sigríður, býr í Sunnuhlíð í Kópa- vogi; Aðalsteinn, látinn; Guð- mundur, látinn; og Einar, lát- inn. Hallur flutti árið 1936 til Karlsskála við Reyðarfjörð, til Sigríðar systur sinnar og Stef- áns Guðnasonar hreppsljóra. Hinn 4. júlí 1953 kvæntist Hallur eftirlifandi eiginkonu sinni, Þóru Olöfu Guðnadóttur Ég átti erfitt með að trúa því, J*~er mér barst sú fregn til eyrna, að vinur minn Hallur Guðmunds- son væri látinn. Margvíslegar minningar runnu gegnum hugann. Síðast hitti ég Hall 22. desem- ber sl. á sjúkrahúsinu í Neskaup- stað. Hann hafði þá í einhverja daga dvalið þar vegna lungna- bólgu sem hann hafði fengið, en var allur að hressast og sagðist mega fara heim á Þorláksmessu og hlakkaði hann til þess að geta verið á sínu heimili um hátíðarn- - ar. Forlögin höguðu því hins vegar svo til að honum auðnaðist ekki að eiga gleðileg jól á sínu notalega heimili í faðmi fjölskyldunnar. Að vísu kom hann heim eins og áætl- að var, en heilsa hans tók stefnu niður á við og fór hann því aftur á sjúkrahúsið í Neskaupstað á jóla- dag. Hrakaði heilsu hans enn og var hann sendur til Reykjavíkur 2. janúar sl. og lagður inn á Land- spítalann, þar sem hann kvaddi síðan þetta jarðneska líf aðfara- nótt sl. mánudags. Hallur var við nám við Alþýðu- skólann á Eiðum 1941-1942. Sótti síðar námskeið í matreiðslu ^;í Neskaupstað og í sjómannaskó- lanum í Reykjavík. I mörg ár var hann matsveinn á ýmsum bátum og skipum. Má þar nefna eftirtalin skip: Birkir SU, Björg SU, Goðaborg SU, Geir Goði GK, Svalan SU, Víðir SU, Jón Kjartansson SU, Seley SU, Vattarnes SU, Austfírðingur SU, Hólmatindur SU, Hólmanes SU og Barðinn NK. Hallur þótti einkar snjall mat- reiðslumaður og útsjónarsamur. Hann var árum saman í forsvari fyrir matvælaþættinum á þorra- blótum Eskfirðinga. Þegar hið umfangsmikla landsmót UMFI var haldið á Eiðum árið 1968, var Hallur fenginn til að vera yfirmat- sveinn og var það mál manna að einkar vel hefði tekist til með þann þátt mála. frá Karlsstöðum í Vöðlavík. Þau hófu búskap á Karls- stöðum í Vöðlavík og bjuggu þar til ársins 1956, er þau fluttust til Eski- fjarðar. Bjuggu þau fyrst í Klaustri en síðan á Karls- stöðum, eða Kirk- justíg 4 á Eskifirði. Börn Halls og Þóru eru: Einar, f. 18.10. 1954; dóttir, and- vana fædd 9.10. 1957; og Guðmund- ur Unnsteinn, f. 12.8. 1965. Barnabörn þeirra eru: Sigurð- ur Elmar Einarsson, f. 2.1. 1975; Louise Ballund, fóst- urbarn Einars, f. 25.1. 1980; og Sophia Oddný Einarsdóttir, f. 14.11. 1985. Hallur var jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju 11. janúar síðastliðinn. Hann rak sjoppu og matsölu í Keflavík fyrir Snorra Gíslason, var með mötuneyti fyrir byggingarfé- lagið Snæfell hf. á Eskifirði á uppgangsárum þess og enn fremur mötuneyti fyrir Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. á síldarárunum. Um árabil var Hallur skilvindu- maður í síldar- og loðnubræðslu Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. og tók í því sambandi þátt í starfs- menntun á vegum Titan-fyrir- tækisins, sem framleiddi umrædd- ar lýsisskilvindur. í byrjun áttunda áratugarins rak hann um tveggja ára skeið Hótel Öskju hf. á Eskifirði. Leigði hann húsnæðið af Eskifjarðar- kaupstað og rak hótelið alfarið á eigin reikning ásamt Þóru eigin- konu sinni. Sem krakki á Eskifirði kynntist ég Halli. Hvort tveggja var að vin- skapur var með fjölskyldum okk- ar, auk þess sem Éinar sonur hans var bekkjarfélagi minn, sessunaut- ur og leikfélagi árum saman. Þá var sérstaklega kært með Halli og Hilmari bróður mínum. Sagði Hilmar mér að hann hefði átt hauk í homi þar sem Hallur var en þeir unnu saman sumarið 1957 í línu- flokki við lagningu háspennulínu frá Egilsstöðum tii Neskaupstað- ar. Hilmar var þá 17 ára en Hall- ur 39 ára og sá um matseld uppi á Eskiijarðarheiði fyrir vinnu- flokkinn. Hilmari fannst hann um margt óreyndur sveitadrengur uppalinn norður í Árneshreppi á Ströndum og að vinnufélagar hans, sem allir voru eldri, hefðu um margt forskot á hann. Þá hafði Hilmar þá sérstöðu meðal vinnufé- laganna að vinnuveitandinn, Bóas Emilsson, var móðurbróðir hans. Til marks um sérstakt samband sem þarna tókst með Halli og Hilmari þá skrifuðust þeir á í mörg ár eftir þetta enda voru þeir þá hvor í sínum landshluta. Hallur var barngóður og börn hændust að honum. Hann gaf sér ávallt tíma til að ræða málin, enda þótt börn eða unglingar ættu í hlut, ekki síður en um fullorðið fólk væri að ræða. Síðar lágu leiðir okkar Halls saman á vinnumarkaðnum, fýrst við handflökun fisks í frystihúsinu og seinna er ég var háseti á skut- togaranum Hólmanesi, þar sem hann leysti þá af sem kokkur. Mér er minnisstætt hið hressi- lega og skemmtilega andrúmsloft er ríkti um borð þá túra sem Hall- ur var þar. Hann var mjög pólitísk- ur og hafði mjög gaman af skoð- anaskiptum um landsins gagn og nauðsynjar. Voru alltaf afar fjör- ugar og í senn gagnlegar umræð- ur um hin margvíslegustu mál er efst voru á baugi hveiju sinni. Hallur var greindur maður, sem fylgdist vel með hinu pólitíska vafstri í landsmálum sem og bæj- armálum. Hann var gagnorður og mælskur en jafnframt stríðinn og hafði jafnan haft betur í orðaskipt- um, þegar upp var staðið eftir að skipst hafði verið á skoðunum um umdeild málefni. Hallur setti sterkan svip á bæj- arlífið á Eskifirði. Þegar þingmenn kjördæmisins komu og héldu sam- eiginlega framboðsfundi var Hall- ur að sjálfsögu mættur til að hlýða á framboðsræður frambjóðenda. Þessir fundir voru oft hinir skemmtilegustu, ekki bara vegna mælsku og athyglisverðra skoð- anaskipta þingmannanna, heldur ekki síður vegna framíkalla og athugasemda frá áheyrendum, sem nú höfðu tækifæri til að meta efndir löngu gefinna kosningalof- orða. Á slíkum fundum var Hallur ómissandi. Mætti í því sambandi nefna ógleymanleg atvik og orða- skipti, er gera það að verkum að það eina sem enn er minnisstætt af fundum sem þeim, er einmitt innlegg eins og Hallur skaut að. Hallúr var sterkur samvinnu- og félagshyggjumaður. Menn stóðu ekki einir ef Hallur var í félagsskapnum. Enda var hann alla tíð virkur og áhugasamur í þeim efnum. Um það geta félagar hans í Verkalýðsfélaginu Árvakri vitnað, svo og áhugamenn og sam- heijar hans í landsmála- sem og bæjarpólitíkinni. Reynsla mín af Halli er sú að hann var sérstaklega tryggur og traustur maður. Við áttum far- sælt, gagnlegt samstarf árum saman, og vinskapur hélst ætíð með okkur. Eins og áður segir markaði Hallur sér sess í hinu daglega lífi hér á Eskifirði. Það var alltaf vinsamlegt og ánægju- legt að mæta Halli, nú hin síðari ár á sínum daglegu og heilsusam- legu göngutúrum með hundinn Zorro sér við hlið. Hallur spurði þá iðulega frétta af útgerðarmál- unum og var áhugasamur um framgang atvinnumála byggðar- lagsins. Með Halli er genginn góður drengur. Að leiðarlokum vil ég þakka honum fyrir allt og allt. Halls mun ég ávallt minnast með hlýhug og virðingu. Eftirlifandi eiginkonu, Þóru Guðnadóttur, og sonum þeirra Einari og Guð- mundi, svo og öðrum aðstandend- um vottum við hjónin einlæga samúð okkar. Guð blessi minningu Halls Guð- mundssonar. Emil Thorarensen. Það er skarð fyrir skildi í röðum okkar E-lista manna á Eskifirði. Með Halli er genginn einn af áhugasömustu og duglegustu ein- staklingum, sem stóðu á bak við hið óháða framboð E-listans til bæjarstjórnarkosninganna á Eski- firði vorið 1994. Hallur lét að sér kveða í bæjarmálum kaupstaðar- ins og hafði iðulega á hreinu sínar skoðanir á mönnum og málefnum. Hallur var einkar seigur og öt- ull samheiji og síðast en ekki síst baráttuglaður. Það var reglulega lærdómsríkt, gaman og ánægju- legt að eiga samstarf við hann. Hallur átti sæti í bæjarmálaráði listans og mætti iðulega á fundi þess. Það var framboðinu veruleg- ur stuðningur að njóta margvís- legrar reynslu hans, hollra ráða og umsagnar um hin ýmsu mál- efni. Að leiðarlokum kveðjum við Hall með söknuði. Við minnumst hans að öllu góðu og þökkum jafn- framt fyrir samstarfið. Eiginkonu Halls, Þóru, og sonunum, Einari og Guðmundi, svo og öðrum aðstandendum send- um við innilegar samúðarkveðjur. Bæjarmálaráð E-listans, Eskifirði. HALLUR + GUÐMUNDSSON GUÐMUNDUR ÓLASON Guðmundur Olason fæddist á Smjörhóli 17. desember 1907. Hann lést að morgni 26. desem- ber síðastliðinn á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Foreldrar Guð- mundar voru Oli Jón Jóhannesson, f. 12.3. 1881, d. 20.3.1943, og Ánna Friðfinna Guð- mundsdóttir, f. 16.2. 1880, d. 27.8. 1950. Þau bjuggu á Smjörhóli í Oxarfirði. Systkini Guðmund- ar voru Jóhanna Ingibjörg, dó ung, Jóhanna Guðbjörg, f. 18.7. 1916, d. 17.9. 1991, henn- ar maður var Ársæll Jóhann- son og bjuggu þau á Ytra Lágafelli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Svava, f. 3.10. 1919, húsmóðir á Smjörhóli, Oxar- firði, hennar mað- ur var Sigurður Ingólfsson frá Víði- hóli, f. 27.10. 1917, d. 19.11.1954, eign- uðust þau fjögur börn. Ingibjörg, f. 2.7. 1913, hennar maður er Guðmar Gunnlaugson, f. 9.9. 1913, þau eru búsett á Akureyri og eignuðust þau sex börn. Guðmundur hafði búið allt sitt líf á Smjör- hóli og varla hægt að segja að hann hafi annars staðar alið manninn á meðan hann lifði sína löngu og góðu ævi. Útför Guðmundar fór fram frá Skinnastaðarkirkju í Öxar- firði 4. janúar síðastliðinn. Það var sár og erfið staðreynd sem var smellt framaní andlitið á mér eins og blautri tusku að morgni 26.12. síðastliðins, þegar mér var tilkynnt það umbúðalaust að nafni minn á Smjörhóli væri látinn. Hann hafði dottið daginn áður og brotn- að, en það hafði láðst að segja mér frá því. Hann hafði verið fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann lést þennan umrædda morgun. Fyrir vikið var þetta mun erfiðara fyrir mig, en eftir nokkurn grát og gnístran tanna tókst mér að komast yfir það mesta. Það verður að viðurkennast eins og er að þessi gamli maður átti stóran stað í hjarta mínu, vegna þess að ég hafði aldrei þekkt hann nema að góðu einu og alltaf reyndist hann mér hið besta. Ég held nefni- lega að ég hafi fallið í þá gryfju sem ég held að svo margir falli í, að líta svo á að þetta gamla fólk sem hefur alltaf verið í kringum okkur allt okkar líf eigi bara að vera þar. Ég held að við séum of eigingjörn og gerum gamla fólkinu bara erfiðara fyrir, að fara þegar það gengur veg sinn á þessu til- verustigi á enda. Guðmundi man ég alltaf eftir í sveitinni í Öxarfirði frá því að maður fór að koma þangað sem var nokkuð oft á mínum byijunar- árum í lífinu. Alltaf fór maður með pabba og mömmu ef eitthvað var um að vera í sveitinni og svo var ég heillaður af þessari sveit sem ég vil halda fram að sé yndisleg- asti staður á jarðríki, því ég held að hvergi líði mér eins vel og í Öxarfirðinum, að ég eyddi ófáum sumrunum, svo og jóla- og páska- fríunum þar. Um leið og síðasta prófið var búið að vori var hoppað uppí mjólkurbílinn hjá Gulla Indriða og brunað sem leið lá inní Smjör- hól, ekki mátti ég vera að því að bíða eftir einkunnunum því sauð- burðurinn var löngu byijaður. Og það varð hreinlega að draga mann burtu að hausti því skólinn þurfti endilega að byija áður en göngurn- ar voru búnar. Yfir sumarið var það heyskapurinn, að reka rollu- skjáturnar úr túninu (Surtlu mína), bruna um á dráttarvélunum og síð- ast en ekki síst var það að skríða um alla mela og móa og gróður- setja plöntur með nafna mínum. Þeir voru ófáir dagarnir sem fóru í það með gamla manninum að gróðursetja blessaðar hríslurnar hans. Á þeim dögum komu margar sögurnar sem gaman var að hlusta á, sérstaklega hafði gamli maður- inn gaman af því að segja manni sögur af atburðum sem höfðu átt sér stað í því umhverfi sem við vorum í, í hvert skipti. Alltaf var maður jafn hissa á því hvernig hann nennti að labba um allt, með eitthvað á bakinu, hann labbaði hreinlega um allar jarðir og alltaf hélt hann á einhvetju á bakinu. Svona var það í göngum. Ég minn- ist þess varla að hafa séð hann á hestbaki, hann labbaði um allt þvers og kruss. Auðvitað var það það sem gerði að hann var alltaf svona heilsuhraustur. Þar sem bækur voru líf hans og yndi fór maður ekki varhluta af því þann tíma sem maður var á Smjörhóli. Alltaf var hann að gauka að manni einhverri skruddu, þar sem hann bað mann um að finna eitthvað og segja sér síðan frá og útskýra. Hann gerði sér nefnilega grein fyrir því að ég var enginn lestrarhestur og hafði reyndar ekkert gaman af að læra heima á meðan maður var í skólan- um, en með þessu síaðist ýmislegt í hausinn á manni sem maður hafði gaman og gagn af. Sérstaklega hafði hann gaman af því að láta mig leita að einhveijum ljóðum eða vísum og ég man alltaf eftir einni sem hann sagði mér. Þetta er eins- konar gáta, ég átti að finna út hvetju væri verið að lýsa, og var hún svona: Einfætling ég úti sá ei til ferða laginn báðum öxlum ber hann á bull og ragn á daginn. Þessa vísu sagði hann mér einu sinni að vori þegar ég mætti í sveit- ina og neitaði að segja mér svarið fyrr en um haustið, en ég lék á gamla manninn og fann vísuna og svarið í bók um sumarið og þóttist heldur en ekki grobbinn að geta sagt honum frá „símastaurnum". Það verður hinsvegar að viður- kennast að gamli maðurinn var sérviskuhundur. Hversu oft var maður ekki búinn að hrista hausinn yfir því, hversvegna í ósköpunum hann þurfti að slá með orfi og ljá hvern einn og einasta lófastóran blett á landareigninni sem óx gras á og ekki var hægt að slá með vél. Og enn þann dag í dag fæ ég ekki skilið hvers vegna hann leyfði honum pabba mínum heitnum ekki að ala undan Skjónu gömlu, þeim besta hesti sem nokkurntíma hefur á Smjörhóli verið fyrr og síðar. Já, svona er lífið, það á að bera virð- ingu fyrir svona mönnum, sem standa fastir á sínu og gefa sig hvergi, þetta er þeirra einkenni, og þetta var svo sannarlega einkenni sem hann bar. Kæri nafni minn, þín mun ég alltaf sakna, símtalanna frá þér sem komu alltaf þegar maður var farinn að skammast sín fyrir að hafa ekki slegið á þráðinn lengi, jafnvel þótt þú hefðir ekkert að segja var eins og þér fyndist skylda að hafa samband. Ég bið að heilsa þér og öllum sem ég þekki þarna hinum megin. Við sjáumst síðar. Guðmundur Jónasson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.