Morgunblaðið - 21.01.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stjóru BSRB falið að ræða grund- vallarmál Viðræður um vinnustaðasamninga í uppnámi vegna deilu rafiðnaðarmanna í Helguvík Landssambönd styðja RSI og mættu ekki til boðaðs fimdar VIÐRÆÐUR Vinnuveitendasam- bands íslands og helstu landssam- banda Alþýðusambands íslands um vinnustaðasamninga eru í upp- námi. Forystumenn landssam- banda innan ASÍ frestuðu boðuð- um samningafundi, sem vera átti í gær, eftir að Rafiðnaðarsamband- ið sleit viðræðunum fyrir sitt leyti vegna þeirrar deilu sem upp er komin varðandi uppgjör við rafiðn- aðarmenn sem vinna að nýbygg- ingu SR-mjöls í Helguvík. Deilt er um hvort greiða eigi fyrir vinnu mannanna sem ákvæðisvinnu eða tímavinnu. „Um vanefndir á gildandi kjara- samningi er að ræða og vangreidd laun starfsmanna. Áskilur RSÍ fyr- ir hönd félagsmanna sér allan rétt til aðgerða til þess að knýja fram að rétt laun verði greidd," segir í harðorðu bréfi sem Rafiðnaðar- sambandið sendi VSÍ í gær. „Raf- iðnaðarsamband íslands slítur hér með frekari viðræðum við VSÍ um gerð vinnustaðasamninga. RSÍ og félagsmenn þess hafa náð árangri í gerð vinnustaðasamninga í fyrir- tækjum þar sem VSÍ hefur ekki komið nálægt og mun vinna áfram á þeim grunni." Stöndum við hlið RSÍ Björn Grétar Sveinsson, forseti Verkamannasambands Íslands, segir að forystumenn annarra landssambanda, þ.e. VMSÍ, Sam- iðnar, Iðju og Landssambands verslunarmanna, hafi ekki séð ástæðu til að mæta á fundinn sem boðað hafði verið til í gær eftir að hafa fengið vitneskju um deiluna í Helguvík, og afstöðu Rafiðnaðar- sambandsins til hennar, þar sem þar sé ekki staðið við samnings- ákvæði. Ákvörðun um frestun fundarins var tekin sameiginlega af forystu- mönnum landssambandanna á fundi sem boðaður var til að und- irbúa hinn fyrirhugaða samninga- fund. „Við ákváðum að bregðast sam- eiginlega þannig við að fara ekki í viðræður meðan við sæjum hvern- ig þessu máli suðurfrá reiddi af. Já, við álítum að viðræður um vinnustaðasamninga séu í upp- námi. Rafiðnaðarsambandið er einn aðili að þessum samningi með okkur og við stöndum við hliðina á þeim meðan á þessu gengur," sagði Björn Grétar. „Ef svona mál á að stöðva gang viðræðnanna er það vegna þess að menn hafa verið að leita sér að tilefni til þess,“ segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, aðspurður um þessi tíðindi. Þórarinn segir að VSÍ eigi ekki aðild að deilunni í Helguvík. Þar sé um að ræða 10 rafiðnaðarmenn sem starfa hjá þremur rafverktök- um og deilt sé um hvort iðnaðar- mennirnir eigi að vinna í ákvæðis- vinnu eða tímavirinu. „Við erum auðvitað ekki aðilar að þeirri deilu. Þetta er eins og hvert annað deilu- mál úti á vinnustöðum. Við teljum einmitt að þetta ætti að vera mönn- um áminning um mikilvægi þess að hafa skýrar reglur um vinnu- staðasamninga,“ sagði Þórarinn. „Ég vona að þetta sé tímabund- ið hlé og það sé hægt að taka málið upp á nýjan leik og þá kannski horfa á það hvernig fyrir- tækjasamkomulag gæti stuðlað að því að koma í veg fyrir svona mál eins og hefur þarna risið upp. Það er hins vegar fráleitt að fara að blanda deilum um uppgjör sam- kvæmt samningi milli 10 rafvirkja og þriggja rafverktaka inn í hinar stóru línur í kjarasamningum." STJÓRN Bandalags starfsmanna rík- is og bæja var á sameiginlegum fundi formanna aðildarfélaga BSRB og stjómarinnar falið að ræða við helstu viðsemjendur aðildarfélaganna um ýmis grundvallarmál sem stæðu samningaviðræðum fyrir þrifum. Annars vegar var ákveðið að stefna að viðræðum við ríki og Reykjavíkur- borg um breytt launakerfi en hins vegar að hefja viðræður við Samband sveitarfélaga um lífeyrismál og rétt- indamál starfsmanna sveitarfélaga. Aðildarfélög BSRB hafa almennt sett fram kröfur um verulega hækkun grunnkaups, að samið verði um allar breytingar á launakerfinu og að launahækkanir verði ekki látnar renna inn í einstaklingsbundna samn- inga. I tilkynnirigu frá BSRB segir að viðsemjendur aðildarfélaga banda- lagsins hafi „ekki verið til viðræðu um kröfur aðildarfélaganna heldur reynt að drepa málunum á dreif með því að bjóða upp á viðræður um tækni- legar útfærslur á launakerfinu án þess að vera tilbúnir að semja um breytingamar." Morgunblaflið/Ásdís Selurinn Kobbi synti til hafs SELURINN Kobbi, sem verið hefur í fóstri hjá fjölskyldu í Vík í Mýrdal frá því í nóvember á síðasta ári, synti til hafs á laugardag. Fóstri hans, Gísli Daníel Reynisson, sagði að Kobbi skilaði sér ef til vill aft- ur, en heima bíða hans 700 kíló af frosinni síld. Kobbi útselskópur fannst yfir- gefinn austur á Mýrdalssands- fjörum, þá líklega um það bil einnar viku gamall. í fyrstu fékk hann rjómabland og lýsi í pela,v en Gísli Daníel varð sér úti um miklar birgðir af frosinni beitu- síld, sem Kobbi hefur gert góð skil. Á laugardag var svo farið með Kobba í bað í fjöruborðinu, eins og oft áður. „Hann lék sér i flæðarmálinu i klukkustund, en þegar ég gekk að bílnum elti hann ekki, eins og hann var vanur að gera, heldur synti til hafs,“ sagði Gísli Daníel. „Kobbi var nú orðinn feitur og pattara- legur, svo ég hef engar áhyggj- ur af honum, en hann skilar sér kannski aftur þegar fer að taka Morgunblaðið/RAX GÍSLI Daníel Reynisson með selinn Kobba. innan úr honum. Hér hefur ver- ið haugasjór og brim. Hann þreytist kannski á þessum sjó- gangi o g skilar sér aftur. Hann þyrfti helst að klára síldina." Gerði stykkin sín í kofa barnanna EINHVER miður geðfelldur ná- ungi gerði sér lítið fyrir um helg- ina og gekk öma sinna inni í litl- um leikkofa í garði leikskólans Laugaborgar við Leirulæk og var það því ekki fógur sjón sem blasti við bömum og starfsmönnum leikskólans í gærmorgun þegar þetta uppgötvaðist. Að sögn Unnar Brynju Guð- mundsdóttur leikskólakennara voru um 60 til 70 böm nýkomin út í garð, þegar ein af eldri telp- unum kom og sagði starfsmönn- um leikskólans frá þessu. „Hún ætlaði varla að geta komið þessu út úr sér því hún kúgaðist svo mikið vegna lyktarinnar sem var inni í kofanum," segir Unnur. „Yngstu bömin höfðu ekki gert sér grein fyrir þessu og var þetta komið í fötin hjá mörgum þeirra, auk þess sem þau vora búin að stíga í þetta og dreifa þessu út um garðinn," segir hún. Verkamenn hjá borginni §ar- lægðu stykkin, sótthreinsuðu kofann og tóku öll leikföng sem úti við vora og settu í sótthreins- un. Þá vora fót bamanna sett í poka og foreldrar beðnir um að þrífa þau sérstaklega. Úrkoma minni í gær en ráð var fyrir gert Varpa ljósi á grun- samlegar misfellur LÖGREGLAN í Kopavogi deyr ekki ráðalaus þegar út- vega þarf tæki, sem auðveldað geta störfin þar á bæ. Lög- reglumenn þurfa oft að grand- skoða bíla í leit að fíkniefnum eða þýfi. Afbrotamenn eru hugvitssamir þegar þeir leita felustaða fyrir slíkt og því þarf lögreglan að vera enn hugvitssamari. Sævar Finn- bogason, aðstoðarvarðstjóri í Kópavogi, ákvað því að smíða spegil á hjólum. Speglinum er rennt undir bíla og ljós sitt hvorum megin við hann lýsa upp undirvagn bílsins. Ef ein- hver misfella sést er bílnum lyft upp og kannað hvað þar er á seyði. Afbrotamenn í Kópavogi komast því ekki upp með að fela fíkniefni eða þýfi undir bílunum og lögreglan hefur sparað sér dijúgan skildinginn með smíðinni, í stað þess að panta svona leit- artæki frá útlöndum. Magnús Einarsson, yfirlögregluþjónn, sýndi Ijósmyndara hvernig spegillinn er notaður. V erulega dregið úr snj óflóðahættu VERULEGA hefur dregið úr snjó- flóðahættu um allt land eftir að djúp lægð, sem fylgst hefur verið með vegna hættu á snjóflóðum á Austur- landi, gekk hraðar yfir landið en spáð var. Af þeim sökum varð úr- koma einnig minni en ráð var fyrir gert. Svanbjörg Haraldsdóttir, starfsmaður Snjóflóðavarna á Veð- urstofunni, sagði í gærkvöldi að búist væri við að lægðin gengi alveg yfir um nóttina. Svanbjörg segir að verkefni snjó- flóðavaktmanna í gær hafí einkum verið að fylgjast með hugsanlegum afleiðingum úrkomu á austanverðu landinu. Veður hafi hins vegar orðið skárra en spáð var, m.a. vegna þess að skilin hafi gengið hraðar yfir landið en ætlað var. Enn hætta við Seyðisfjörð Við norðanverðan Seyðisfjörð er enn í gildi hættuástand og í gær- kvöldi hafði íbúa og gestum far- fuglaheimilisins Haföldunnar ekki verið leyft að snúa aftur í hús sitt. Að sögn Hallgríms Jónssonar, snjó- athugunarmanns á Seyðisfirði, hlýn- aði mjög snögglega í veðri í gær og taldi hann að áframhaldandi hláka gæti verið varhugaverð. Á Siglufirði var í gærkvöldi ekki talin ástæða til að hafa sérstaka snjóflóðavakt. Vegagerðin varaði í gærdag við töluverðri hálku víða á landinu. Síð- degis í gær voru nokkrir fjallvegir ófærir vegna snjóa og skafrennings. Á vestanverðu landinu voru Bratta- brekka og Hrafnseyrarheiði ófærar og skafrenningur var á Steingríms- fjarðarheiði. Þá voru Fljótsheiði og Vopnafjarðarheiði á Norðaustur- landi ófærar. í \ i \ I i I I í I i i i i I i I I i i i i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.