Morgunblaðið - 21.01.1997, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTl 1
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Freyr Franksson
HÁKON Freyr, 11 ára, bendir á holu sem hann var næstum fallinn ofan í við 5-6 metra háan jaka á Skeiðarársandi á sunnudag. Hákon
var á ferð með systur sinni Kolbrúnu Siv, 9 ára, og föður, sem tók þessa mynd.
*
Danska sendiráðið gerir athugasemdir við framkvæmd Islands á GATT
Telja innflutning danskra
búvara torveldaðan
SENDIRÁÐ Danmerkur á íslandi
hefur gert athugasemdir við fram-
kvæmd íslands á GATT-samkomu-
laginu og telur hana hindra aðgang
danskra landbúnaðarafurða að ís-
lenzka markaðnum. Danir kvarta
undan því að innflutningur á dönsk-
um kjötvörum sé hindraður með vís-
an til heilbrigðisástæðna. Þá telja
þeir að uppboð á innflutningskvóta
á lágum tollum hækki verð landbún-
aðarvara og geri innflutninginn því
lítt fýsilegan.
Ernst Hemmingsen, viðskiptafull-
trúi í danska sendiráðinu, staðfesti
í samtali við Morgunblaðið að sendi-
ráðið hefði tekið málið upp við utan-
ríkisráðuneytið. Kristinn F. Árnason,
skrifstofustjðri viðskiptaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins, segir að
fundur verði haldinn í dag með sendi-
ráðsmönnum og fulltrúum utanríkis-
og landbúnaðarráðuneytanna, að ósk
danska sendiherrans, Klaus Kappel.
Þá hafi verið rætt um af hálfu sendi-
ráðsins að halda síðar fund um mál-
ið með Verzlunarráði og Neytenda-
samtökunum og hafí sendiherrann
þegar haft samband við þessi sam-
tök.
Innflutningur dansks svína- og
fuglakjöts ekki leyfður
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru Danir afar óánægðir
með ákvörðun landbúnaðarráðuneyt-
isins, sem auglýst var 6. desember
síðastliðinn, um að leyfa innflutning
hreindýrakjöts frá Grænlandi og
hreindýrakjöts, svínakjöts og ali-
fuglakjöts frá Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi en ekki frá Danmörku.
Auglýsingin, sem tekur til sláturaf-
urða er ekki hafa verið soðnar eða
fengið aðra hitameðferð, er sett með
vísan til reglugerðar um varnir gegn
því að dýrasjúkdómar berist til lands-
ins og um takmörkun á innflutningi
dýra, sem fengið hafa vaxtaraukandi
efni.
Sjónarmið danskra framleiðenda
er að heilbrigðismál séu í góðu lagi
í Danmörku, enda sé Danmörk einn
stærsti útflytjandi svínakjöts í heim-
inum og ekkert vestrænt ríki banni
innflutning dansks svínakjöts nema
ísland. Hin norrænu ríkin flytji lítið
út og á hærra verði en Danir og inn-
flutningur þaðan veiti íslenzkum af-
urðum því minni samkeppni.
Samkvæmt GATT-samningnum
má ekki banna innflutning búvara
frá öðrum ríkjum nema á grundvelli
heilbrigðis- og sjúkdómavarna.
Verða slíkar hindranir hins vegar að
byggjast á vísindalegum rökum.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, sagði of snemmt að tjá sig um
kvartanir Dana. Hann gat þess þó
að í ríkjum Evrópusambandsins
hefðu verið rýmri heimildir til notk-
unar vaxtaraukandi efna í svína-
og fuglarækt en í norrænu ríkjun-
um, sem staðið hefðu utan sam-
bandsins.
Vörubíll valt í flughálku í Búlandshöfða
Tveir menn stukku út
Ólafsvík. Morgunblaðið.
VÖRUFLUTNINGABIFREIÐ með
20 tonn af frosinni rækju valt í Bú-
landshöfða á Snæfellsnesi um níu-
leytið í gærmorgun. Tveir menn sem
voru í bifreiðinni náðu að stökkva
út úr henni áður en hún valt. Biíreið-
in, sem var á leið frá Dalvík til Ólafs-
víkur, stöðvaðist u.þ.b. 200 m frá
vegkantinum.
Flutningabifreiðin lenti í ógöngum
eftir að bílstjóri hennar þurfti að
stöðva bifreiðina efst i Búlandshöfða-
brekkunni vegna snjóskafls. Vegna
mikillar hálku tók bifreiðin að renna
aftur á bak og tókst bílstjóra ekki
að ná stjórn á bifreiðinni eftir það.
Þegar afturhjól á aftanívagni bif-
reiðarinnar voru komin út af veg-
kantinum hentu bílstjóri og aðstoð-
arbílstjóri sér út úr bílnum. Mennirn-
ir tveir runnu talsvert langt niður
brekkuna eftir að þeir stukku út.
Varð þeim ekki meint af.
Að sögn Gests Arnaldssonar að-
stoðarbílstjóra var það nokkuð til-
komumikil sjón þegar bíilinn valt út
af veginum með full Ijós í kolsvarta
myrkri með tiiheyrandi hávaða.
Morgunblaðið/Guðlaugur Wium
UNNIÐ var að því í gær að ná bílnum upp á veginn aftur.
Varað við
hættu á
Skeiðar-
ársandi
SIGURÐUR Gunnarsson, sýslu-
maður í Vík, segir að sett verði
upp skilti á Skeiðarársandi til
þess að vara fólk við hættulegum
pollum sem leynst geti við ísjak-
ana þar. Sýslumaður segir ekki
hægt að loka tilteknum svæðum
á sandinum því ógerningur sé
að fylgjast með umferð svo langt
frá byggð. Maður féll í pytt við
ísjaka á laugardag og þá var
drengur nærri dottinn ofan í
holu sem ísskán hafði brotnað
ofan af á Skeiðarársandi á
sunnudag. Á sandinum er eitt-
hvað um jakaför sem ekki hefur
skafið í en þunnt íslag myndast
yfir djúpar holurnar, að sögn
heimamanna.
Freyr Franksson var á ferð á
Skeiðarársandi á sunnudag með
hópi reiðhjólamanna ásamt dótt-
ur sinni og syni. „Við feðginin
vorum á rölti þarna nánast við
veginn. Drengurinn var á hjóli
og fór nærri upp að einum jakan-
um, sem var líklega 5-6 metra
hár. Síðan heyrðum við brak og
bresti en drengurinn náði að
forða sér áður en jörðin brotnaði
undan honum,“ segir Freyr.
Jafnframt féll maður í djúpan
pytt milli tveggja ísjaka á laugar-
dag. Enginn var nærri mannin-
um, sem tókst að krafla sig upp,
að sögn Reynis Ragnarssonar
lögreglumanns í Vík, en maður-
inn þurfti ekki að leita aðhlynn-
ingar.
Aðstæður kannaðar
um leið og hægt er
Sigurður Gunnarsson, sýslu-
maður í Vík, segir ekki hafa ver-
ið hægt að kanna aðstæður á
sandinum í gær vegna veðurs en
lögreglan muni gera það við
fyrstu hentugleika. „Það verða
settar upp merkingar þar sem
finnast pollar svo fólk sé ekki á
ferli þar. Eg er ekki viss um að
farið verði út í það að loka fyrir
umferð því svæðið er langt frá
mannabyggð og óframkvæman-
legt að vakta það,“ segir hann.
Sigurður segir sandinn á
mörkum Skaftárhrepps og Hofs-
hrepps og því þurfi hrepparnir
að semja um kostnað vegna var-
úðarmerkinga áður en til kemur.
■ Jörðin opnaðist/6
Þrír í snjó-
flóðum
ÞRÍR menn lentu í snjóflóðum
um helgina, þar af einn þrisvar
en þeim varð ekki meint af.
Vélsleðamaður kastaðist af
sleðanum í snjóflóði á Hrafna-
bjargahálsi, björgunarsveitar-
maður grófst í hálftíma undir
flóði í Esjunni og annar björg-
unarsveitarmaður krafsaði sig
upp úr flóði í Hlíðarij'alli og
flaut ofan á tveimur öðrum
flóðum.
■ Siýóflóð/6 og 14