Morgunblaðið - 21.01.1997, Side 18

Morgunblaðið - 21.01.1997, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 VIÐSKIPTI ÚRVERINU MORGUNBLAÐIÐ Verslanakort koma í stað bankakorta í Svíþjóð Verslanir greiða 5 % vexti á innstæður Kaupmannahöfn. Morgunblaðid. ÞROUNIN í Danmörku undanfarin ár hefur verið sú að æ fleiri nota svokallað „Dankort", sem er sam- eiginlegt debetkort dönsku bank- anna. En ef stórar verslanakeðjur ráða ferðinni gæti framtíðin orðið sú að fólk borgaði fyrir vörukaup með debetkortum verslunarinnar, eftir að hafa lagt þar inn peningana sína og fengið mun hærri vexti en bankarnir veita. En í Svíþjóð er þetta engin framtíðarsýn, heldur nútíðarsýn og þar hefur Göran Persson, forsætisráðherra og fyrr- um fjármálaráðherra, verið öflug- asti auglýsandi þessara verslunar- hátta. FDB er verslanakeðja dönsku samvinnuhreyfmgarinnar. í stað þess að leggja eingöngu áherslu á tilboðsverð og fast afsláttarverð i samkeppninni við ódýrustu keðjurn- ar eins og Netto hefur keðjan tekið upp meðlimskort, sem kostar í fyrstu ekkert að fá. Þetta plastkort sýnir viðskiptavinurinn þegar hann borgar og um leið er skráður af- sláttur sem hann getur fengið. Síð- an á að borga afsláttinn með því að senda fólki ávísanir. Hugmyndin er að gera neytendur trúa keðjunum, svo þeir kaupi alltaf inn á sama stað, en flakki ekki á milli. Þetta hefur þó ekki haft þau áhrif sem ætlast var til. Og Netto, sem leggur áherslu á lágt verð, hefur ekki gleypt við kortahug- myndinni, heldur lagt áherslu á að auka vöruúrvalið og vera með fjöl- breytt úrval tilboðsvara, bæði mat- vöru, húsbúnaður, föt og smávörur. Olíufélagið Statoil hefur lengi verið með neytendakort, sem skráir bensínkaup og annað sem keypt er í verslun þess, sem eru eins og vel búnar sjoppur, með matvöru, sæl- gæti, gos og vín, bílavörur og smá- vöru. Af öllu þessu er síðan reiknað- ur afsláttur og viðskiptavininum send ávísun, ef upphæðin fer yfir rúmlega 200 íslenskar krónur, en annars geymist hún þar til næst. Sænska fyrirmyndin: fimmfaldir bankavextir Nú eru báðar þessar keðjur að hugleiða að gefa viðskiptavinum möguleika á að leggja inn fé á reikninga, rétt eins og í banka og hugsanlega að veita einhver neyslu- lán líka. Bankamenn hafa augun á þessum mögulegu keppinautum, en segjast ókvíðnir, því keðjumar muni örugglega reka sig á að bankarekst- ur sé dýr og flókinn og geti ekki boðið betur en þeir. Neytendasam- tökum líst illa á áætlanirnar, því þegar allt komi til alls muni neyt- endur borga brúsann og neytenda- vænna sé að stefna að lágu verði. í Svíþjóð hefur þessi leið þegar verið farin. Sænska verslunarkeðj- an ICA, sem hefur 34 prósent mark- aðshlutdeild á matvörumarkaðnum, fór að gefa út viðskiptamannakort 1990 og þau hafa náð slíkum vin- sældum að 2,2 af um sjö milljónum Svía hafa kortið, debet- eða kredit- kort. Með kortinu geta viðskiptavin- ir lagt inn fé í búðunum, sem búð- irnar greiða fimm prósent í vexti fyrir, meðan venjulegir bankavextir eru um eitt prósent. Bestu viðskiptin fyrir keðjuna eru að þeir 700 þúsund viðskiptavinirn- ir, sem hafa kreditkort hennar, noti það, en þar sem kreditkortavið- skipti eru ekki vel séð af sænskum stjórnmálamönnum er aðaláherslan lögð á debetkort keðjunnar. Og besti auglýsandi viðskiptakortanna var Göran Persson, sem í fjármála- ráðherratíð sinni sagði bankavexti fyrir neðan allar hellur og nær væri fyrir fólk að leggja fé sitt inn hjá ICA. Velgengni ICA á þessu sviði hefur ýtt undir kortahugleið- ingar Konsum, sænsku samvinnu- keðjunnar og það er samkeppni, sem ICA gæti fundið fyrir, þar sem tuttugu prósent sænskra heimila eru í Konsum. Reynslan á eftir að sýna hvort Danir taka nýju viðskiptakortunum tveimur höndum. Þar gætir þó kortaþreytu og fólk er ekki endilega sælt að bæta kortum í budduna. En fimm prósent vextir gætu hugs- anlega fengið fólk til að skipta á launareikningi bankans og verslun- arkorti. Deutsche Bank segir upp sjóðsstjóra íLondon Frankfurt. Reuter. DEUTSCHE BANK reynir að gera lítið úr uppsögn sjóðsstjóra í London og segir að uppsögnin muni ekki spilla fyrir tilraunum til að gera bankann að alþjóðlegum fjárfesting- arbanka. Sjóðsstjórinn, Nicola Horlick, lstarfaði hjá alþjóðlegum fjárfesting- ararmi Deutsche í London, Deutsche Morgan Grenfell, og var rekin vegna ásakana um að hún hefði reynt að fá samstarfsmenn til að ganga til liðs við keppinauta fyrirtækisins. Sjóðsstjórinn neitaði ásökununum og fór til Frankfurt til að ræða við stjórn Deutsche. Bankinn sagði að stjórn hans mundi neita að ræða við Horlick, gerði lítið úr brottvikningu hennar og kvað algengt að fólki væri sagt upp í hörðum heimi alþjóðlegra fjár- festinga. Skömmu áður en Horlick var rek- in var skýt frá því að Deutsche yrði að greiða 200 milljóna dollara met- bætur vegna óreiðu hjá Morgan Grenfell Asset Management (MGAM) í London. Þannig hefur stærsti banki Evr- ópu beðið álitshnekki í alþjóðavið- skiptum tvisvar sinnum með stuttu millibili, en sérfræðingar telja slík áföll óhjákvæmileg þegar reynt sé að færa út kvíarnar á markaði þar sem samkeppni sé miskunnarlaus. Neikvæð umfjöllun kann að leiða til þess að MGAM missi af einhvetj- um viðskiptum að sögn sérfræðing- anna. Málið bendi þó alls ekki til þess að útþensla sú sem Deutsche hafi lagt mikið kapp á borgi sig ekki. News Corp kemur a fót alnetsþjónustu íKína Peking. Reuter. BARÁTTA Ruperts Murdochs fyrir því að vinna hylli Kínveija hefur borið þann árangur að sameignar- fyrirtæki News Corp-fyrirtækis hans og Dagblaðs alþýðunnar í Peking hefur komið á fót alnetsþjónustu að sögn embættismanna. Alnetsþjónustan mun koma frétt- um og gögnum um upplýsingatækni áleiðis til vaxandi fjölda kínverskra notenda alnetsins að sögn talsmanna sameignarfyrirtækisins, PDN Xinr- en Information Technology Co. fjónustan er fyrsti árangur 20 ára sameiginlegs framtaks upp á 5.4 milljónir dollara, sem News Corp og málgagn kinverska kommúnista- flokksins sömdu um 1995 og talið var liður í tilraunum fjölmiðlakóngs- ins til að sækja inn á kínverskan markað. News Corp leggur 2.5 milljónir dollara í þjónustuna, ChinaByte, og verður tekna aflað með auglýsing- um. Tilgangur þjónustunnar verður að draga úr töfum, sem kínverskir not- endur verða fyrir þegar þeir reyna að fylgjast með breytingum á upp- lýsingatækni á netinu, og tryggja að þeir standi jafnfætis vestrænum notendum að sögn embættismanna. ChinaByte veitir meðal annars aðgang að gagnabanka tölvufyrir- tækja í Kína og að tæknifréttum og hugbúnaði frá bandaríska tölvu- ritaútgefandanum Ziff-Davis Publ- ishing Co, sem er í eigu Softbank Corp í Japan. Efnið verður rannsakað gaum- gæfilega til að tryggja að það brjóti ekki í bága við almennt velsæmi að sögn forstjóra Asíudeildar Ziff- Davis. Liður í stórri áætlun Sérfræðingar segja að samvinna við kínverska embættismenn sé mikivægur liður í þeirri stefnu News Corp að nýta sér möguleika á hinum geysistóra markaði í Kína. Murdoch reitti Kínveija til reiði 1993 þegar hann sagði að gervi- hnattasjónvarp og fjarskipti væru „ótvíræð ógnun við allar alræðis- stjórnir,“ en síðan hefur honum að mestu tekizt að vinna hylli Kínverja. Árið 1994 varð Murdoch við opin- berum tilmælum frá Peking um að hætta sendingum frá BBC til Kína um STAR gervihnatta sjónvarps- kerfið og Harper Coliins deild hans samþykkti að gefa út ævisögu kommúnistaleiðtogans Deng Xiaop- ing á ensku. Stofnun sameignarfyrirtækisins PDN Xinren í júní 1995 ásamt dótt- urfyrirtæki Dagblaðs alþýðunnar var talin mikilvægur þáttur í tilraun- um News Corp að auka sig í áliti í Kína, þótt embættismenn viðurkenni að tekið hafí lengri tíma en búizt hafi verið við að koma rekstrinum í gang. Morgunblaðið/Þorsteinn G. Kristjánsson SKIPVERJAR á Jóni Sigurðssyni GK taka inn trollið en þeir hafa nú skipt yfir á loðnunót. Síldveiðum í nót hefur verið hætt SÍLDVEIÐUM í nót hefur nú ver- ið hætt en Húnaröst SF og Arney KE skiptu yfir á troll um helgina en samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins gengu veiðarnar treglega í gær vegna veðurs. Auk Húnarastarinnar og Arneynnar eru Heimaey VE, Antares VE og og Jóna Eðvalds SF einnig á trollveiðum og landaði Jóna Eðvalds SF um 150 tonnum af síld á Hornafirði í gærmorgun en síldin fékkst í Litladýpi á sunnudag í þrem- ur holum. Síldin verður öll unnin til manneld- is hjá Skinney hf., að mestu flökuð fyrir niðurlagningu í dósir á Dan- mörku en hluti af henni frystur. Á vertíðinnni hefur verið tekið á móti um sjö þúsund tonnum af síld hjá Skinney hf. og hefur langstærsti hluti síldarinnar farið til manneldis- vinnslu, aðeins um "5-6% hafa farið til bræðslu. Bræla á loðnumiðum Allur loðnuskipaflotinn var í landi í gær vegna brælu á miðunum en langflest skipin komu til hafnar í fyrrakvöld með hálffermi eða minna, þegar veðrið fór að versna. Jón Kjart- ansson SU og Elliði GK lönduðu slöttum á Eskifirði í gærmorgun og fór loðnan að mestu til frystingar. Hólmaborg SU landaði einnig 1.600 tonnum af loðnu þar í gærmorgun og fór aflinn allur til bræðslu. Frá áramótum hafa borist 10.432 tonn af loðnu til Eskifjarðar en alls hefur verið landað um 29 þúsund tonnum á landinu frá áramótum. Alls veidd- ust 473.964 tonn af loðnu á sumar- og haustvertíðinni og eru því um 714 þúsund tonn eftir af upphafskvóta ásamt 480 þúsund tonna viðbótar- kvóta. Þróunarsjóður sjávarútvegsins Þijú fiskverkunar- hús úrelt í fyrra ALLS LAGÐI Þróunarsjóður sjávar- útvegsins fram um 7,6 milljónir króna vegna úreldingar þriggja fisk- verkunarhúsa á síðasta ári. Kaupverð húsanna var um 31,1 milljón króna en söluverð um 23,5 milljónir króna. Fiskverkunarhúsin þijú sem úrelt voru á síðasta ári og Þróunarsjóður keypti voru fiskverkunarhúsið Bás- vegi 8 í Keflavík sem sjóðurinn keypti á tæpar fimm milljónir króna en seldi á þijár milljónir króna. Fiskverkun- arhúsið að Óslandi á Höfn í Homa- firði var keypt á 22,9 milljónir króna en selt á um 18 milljónir króna og fiskverkunarhúsið Hafnargötu 29 á Fáskrúðsfirði var keypt á um 3,2 milljónir króna en selt á um 2,5 millj- ónir króna. Nokkrar umsóknir liggja fyrir Þar að auki liggja fyrir nokkrar umsóknir um úreldingu fiskverkun- arhúsa sem Þróunarsjóður hefur þeg- ar samþykkt en ekki hefur verið gengið endanlega frá. Þá hefur sjóð- urinn ennþá til meðferðar nokkrar umsóknir sem bárust fyrir áramót en hafa ekki verið samþykktar. Frá árinu 1994 hefur Þrónunar- sjóður úrelt níu fískverkunarhús. Framlag sjóðsins hefur á þessum tveimur árum verið um 24,2 milljón- ir króna en kaupverð húsanna var um 101 milljón króna og söluverðið 76,9 milljónir króna. 190 skip úrelt Á síðasta ári greiddi Þróunarsjóð- ur út um 447 milljónir króna í úreld- ingarstyrki til skipa. Þá höfðu alls verið greiddir úreldingarstyrkir til 190 skipa frá upphafi, alls um 463 milljónir króna. Þar af voru úreltir 161 krókabátur og 29 aflamarksskip, alls um 824 rúmlestir. Um áramót höfðu þar að auki 74 krókabátar og 5 aflamarksskip fengið samþykkt styrkloforð upp á um 259 milljónir króna. Þróunarsjóðurinn hefur því þegar ráðstafað um 722 milljónum króna í úreldingarstyrki, en umsókn- ir 15 krókabáta og 3 aflamarksskipa bíða enn afgreiðslu. Samkvæmt upplýsingum frá Þró- unarsjóði hefur sjóðurinn fest kaup á um 50 skipum en ekkert þeirra hefur ennþá verið selt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.