Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 21
ERLENT
Ríkissátta-
semjari í
Finnlandi
rekinn
Helsinki. Morgnnblaðið.
JORMA Reini, ríkissáttasemj-
ara Finna, var sagt upp störf-
um á föstudaginn í kjölfar þess
að hann hafði verið sekur fund-
inn í sakamáli í undirrétti.
Reini var dæmdur til fjögurra
mánaða skilorðsbundinnar
fangelsisvistar fyrir að láta
ófriðlega eftir veitingahúsa-
ferð.
Reini var dæmdur á fimmtu-
daginn og bjuggust menn við
því að hann myndi láta af
embætti ríkissáttasemjara að
eigin frumkvæði. Þegar svo
varð ekki tók ríkisstjórnin af
skarið í málinu. Reini var á
8. og 9. áratugnum kunnur
baráttumaður innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þegar hann
gerðist ríkissáttasemjari fyrir
nokkrum árum var eins og
hann hefði snúið við blaðinu.
í tíð Reinis í embættinu voru
örfá meiriháttar verkföll því
oftast tókst honum að þreyta
viðsemjendur og þvinga þá
þannig til samkomulags.
Tvö sprengju-
tilræði á
N or ður-Ir landi
Belfast. Reuter.
SPRENGJUM var kastað á lög-
reglustöð í Belfast í gær og lögregl-
an taldi árásina sýna að Irski lýð-
veldisherinn (IRA) væri staðráðinn
í að drepa lögreglumenn á Norður-
Irlandi. Sprengja sprakk einnig
undir bíl hjóna með fimm mánaða
barn í Larne, sjávarbæ nálægt Belf-
ast, en þau sluppu öll ómeidd.
Sprengjum var kastað á vegg
lögreglustöðvar í austurhluta Belf-
ast. Kona í grenndinni var flutt á
sjúkrahús vegna hjartaáfalls en
aðra sakaði ekki.
„Ég hélt að húsið myndi hrynja
yfir okkur,“ sagði kona sem býr í
grennd við lögreglustöðina. Rúður
brotnuðu í nálægum húsum þegar
sprengjurnar sprungu.
Þriðja árásin á
þremur dögum
Þetta er þriðja árás IRA á norð-
ur-írsku lögregluna á þremur dög-
um. Tveimur sprengjum var varpað
á lögregluvarðstöð í Downpatrick á
laugardagskvöld og lögreglan fann
einnig sprengjugildru, sem ætluð
var lögreglubíl nálægt London-
derry.
Engan sakaði í árásunum um
helgina en Ronnie Flanagan, lög-
reglustjóri Norður-írlands, sagði að
írski lýðveldisherinn virtist staðráð-
inn í að drepa norður-írska lög-
reglumenn. Óttast var að tilræðin
yrðu til þess að skæruliðar, sem
vilja að Norður-írland verði áfram
hluti af Bretlandi, ijúfi vopnahléið
sem þeir lýstu yfir í október 1994.
Lögreglan telur nánast öruggt
að IRA takist fyrr eða síðar að
drepa lögreglumenn og óttast að
það verði til þess að skæruliðar úr
röðum mótmælenda hefni árásanna
og þar með hefjist nýr vítahringur
hermdarverka og ofbeldis á Norður-
írlandi. Frelsisher Ulster, ein af
bönnuðum hreyfingum sambands-
sinna, sagðist í síðasta mánuði ætla
að tjúfa vopnahléið ef einhver félli
í árásum IRA.
Bandaríkjamaðurinn Steve Fossett slær öll met á Anda einsemdar
Flaug hálfa
leið umhverf-
isjörðina
st.
/ touls, _ . ,
/ / ■ þriðjudag V I
14-=J?n>'/tý'L4Af: 'S- Ubýa
Árrah^f
HAF
■ Varanasi,
/Inarándr \
mánudag 2.
j jan.
\ \ \ mr \ m
\ \ \ W. \ \
Loftsigling „Anda einsemdar
Reuter
„NEI, ég er ekki vonsvikinn í raun
og veru. Þetta var talsvert afrek
í sjálfu sér og allt gekk vel. Ferða-
lagið staðfestir að við erum
skammt frá því að geta flogið loft-
belg umhverfis jörðina,“ sagði
Bandaríkjamaðurinn Steve Foss-
ett skömmu eftir að hafa lent
belgfari sínu, Anda einsemdar, í
Indlandi í gærmorgun. Afráðið var
að lenda í Asíu þar sem ella var
mikil hætta á að Fossett kæmist
ekki nema inn á mitt Kyrrahaf í
hnattflugstilraun sinni.
Fossett sagðist hafa misreiknað
það eldsneyti sem hann hefði þurft
til ferðarinnar, til þess að hita upp
loftbelginn. Fóru rúmlega sólar-
hrings byrgðir forgörðum er hann
varð að leggja lykkju á leið sína
til þess að komast fram hjá Líbýu.
Þarlend stjórnvöld synjuðu honum
um heimild til yfirflugs og gerðu
þar með út um hnattflugstilraun
hans.
Þar sem Fossett hafði ekki
heimild til að lenda í Kína ákvað
að lenda í Indlandi fremur en halda
áfram. Loftstraumar hefðu líkast
til borið hann að Himalajafjöllum
og yfir til Kína. Lagði belgfarið
að baki rúmlega 16.000 kílómetra
og hafði farið rúmlega hálfa leið
umhverfis jörðina frá flugtaks-
staðnum í St. Louis í Missouriríki
er það lenti við þorpið Nonkhar,
550 km suðaustur af Nýju Delhí.
Gekk lendingin að óskum þó stinn-
ingskaldi væri en rétt á eftir
kræktist belgurinn í tré og rifnaði.
Fossett sló tvö belgflugsmet.
Annars vegar eigið langflugsmet,
sem var 8.747 kílómetrar, sett í
flugi frá Seoul í Suður-Kóreu til
Kaliforníu. Hins vegar met fyrir
að vera lengur á lofti en nokkur
annar, eða 6 sólarhringa, 2 stund-
ir og 54 mínútur. Eldra metið,
sem var frá 1981 og í eigu Banda-
ríkjamannanna Ben Abruzzo og
Troy Bradley, bætti hann um tvær
stundir og 38 mínútur.
Eftir lendinguna bar Fossett sig
vel þrátt fyrir þrönga og kalda
vist í belgfarinu en klefi hans var
aðeins röskir tveir fermetrar og
1,7 metrar á hæð. Kvaðst hann
þreyttur enda átti hann erfitt með
svefn og svaf aðeins í um tvær
klukkustundir á sólarhring. Að-
spurður um það hvort hann myndi
reyna aftur, sagðist hann ekki
hafa haft tíma til að íhuga það.
Bo Kemper, stjórnandi í höfuð-
stöðvum hnattflugstilraunarinnar,
sagðist hins vegar ekki gera ráð
fyrir öðru en Fossett gerði aðra
tilraun að ári.
Segist
hættur
pólferðum
NORÐMAÐURINN Borge Ous-
land varð um helgina fyrstur
manna til að ganga yfír Suður-
skautslandið einn og án aðstoð-
ar. Hann kom á laugardag að
Scotts-stöð á Rosseyju en hann
lagði upp frá Berknereyju í
Weddelhafí, 64 dögum fyrr.
Þetta var önnur tilraun Ouslands
til að komast yfir Suðurpólinn
en hann hefur farið yfir Norður-
pólinn og yfir Grænlandsjökul á
skíðum. Ferðin reyndist enginn
barnaleikur, frostið fór allt niður
í 40° og Ousland dró um 160 kg
með sér á sleða. Hann notaðist
við segl þegar meðvindur var og
komst allt að 200 km dagleið
þegar mest var.
Var Ousland mun skemur á
leiðinni en hann ætlaði, hafði
talið að ferðin tæki allt að 90
daga. Hann segir erfitt að beita
seglinu, það reyni mjög á kraft-
ana. Ousland telur að þetta verði
sín síðasta pólferð, segist ekki
hafa þörf fyrir að ganga enda-
laust fram af sjálfum sér.
A ÞÍNUM EIGIN BÍL MÉÐ NORRÆNU
A VIT ÆVINTÝRANNA! Á síðasta ári fóru um 2.000
manns á eigin bíl til Evrópu
meb Norrænu .
Varst þú einn af þeim ?
SUMARBÆKLIXGURINN
ER
KOMINN ÚT !
FAÐU HAW
SEXDAX HEIM !
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
ÖLL ALMENN FERÐAÞJONUSTA
Á PERSONULEGAN HATT ! -
2BÍLPAKKA TILBOÐ
• FLUG OG FERJA
ÓDÝRIR GISTIMÖGULEIKAR
Ódýrar ferðir í janúar og febrúar til
Glasgow, Amsterdam og London.
Q
os
£
Q
BS
PO
'<
as
pí
u.
co
EVRÓPA Á ESGIN BÍL
NDRRÆNA
(— t
-AM *
FERÐASKRIFSTOFAN
LAUEAVEGUR 3 • SÍMIS 562 6362
AUSTFAR HF
472 1111