Morgunblaðið - 21.01.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.01.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR21. JANÚAR 1997 23 ERLENT Franz Vranitzky segir af sér eftir áratug í embætti Austurríkiskanslara Dæmi -Létta^ LEID L ÝSINGAR HF Verð bíls Útborgun Láns- / leigutími 1.000.000 kr. 250.000 kr. 36 mán. Hefðbundið bílalán 24.600 kr. á mán. Lokaafborgun 0 kr. Létta leiðin Lokaafborgun 10.600 kr. á mán. 550.000 kr. I báðum tilvikum er greiðslugjald, 7,8% vextir og verðtrygging inni- falið í mánaðarlegu greiðslunni. Afsögn í Lettlandi ANDRIS Shkele, forsætisráð- herra Lettlands, afhenti for- seta landsins, Guntis Ulmanis, afsagnarbréf sitt og ríkis- stjómar sinnar í gær. Sagði hann ástæðuna þá að forseti og aðrir háttsettir stjórnmála- menn hefðu sakað sig um „reyna að þvinga fram sið- lausar ákvarðanir". Shkele, sem farið hefur fyrir sam- steypustjórn átta flokka, mætti mikilli andstöðu er hann reyndi að fá þingið og forset- ann til að samþykkja að kaup- sýslumaðurinn Vassilí Melnik yrði fjármálaráðherra en hann hefur verið sakaður um aðild að ýmsum vafasömum við- skiptum. Vitað hverjir myrtu Rauða kross-fólk TALSMAÐUR innanríkisráðu- neytis Tsjetsjníju sagði um helgina að vitað væri hveijir hefðu myrt sex starfsmenn Alþjóðaráðs rauða krossins í síðasta mánuði. í samtali við Itar-Tass sagði talsmaðurinn að mennirnir hefðu komist úr landi og að leitað hefði verið aðstoðar Interpol til að hafa upp á þeim. Ekki er vitað hvers vegna morðin voru framin. I desember voru 15 félagar í tsjetsjenskum glæpasamtök- um handteknir en nokkrir fé- lagar komust undan. Ekki var upplýst hvort að þeir væru taldir bera ábyrgð á morðun- um. Kína o g Guatemala semja KÍNA og Guatemala hafa náð samkomulagi sem felur í sér að Kínverjar muni ekki beita neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að koma í veg fyrir að friðar- gæslusveitir verði sendar til Guatemala til að tryggja ný- legt friðarsamkomulag. Sam- komulagið felur m.a. í sér að Guatemala mun láta af stuðn- ingi sínum við ályktun um að Tævan fái sæti á þingi SÞ. Jeltsín heim af sjúkrahúsi BORÍS Jeltsín Rússlandsfor- seti hélt í gær heim af sjúkra- húsi, en hann var lagður inn fyrir tæpum hálfum mánuði með lungnabólgu. Var forset- inn fluttur í sumarhús hans fyrir utan Moskvu, þar sem læknismeðferð verður haldið áfram. Repúblikani bauð Lebed ÞAÐ reyndist vera öldunga- deildarþingmaðurinn og repú- blikaninn William Roth sem bauð Alexander Lebed, fyrr- verandi formanni rússneska öryggisráðsins að vera við- staddur embættistöku Bills Clintons, Bandaríkjaforseta, sem fram fór í gær. Talsmenn Hvíta hússins höfðu áður neit- að því að forsetinn hefði boðið Lebed, sem var viðstaddur at- höfnina. Létta Lýs'n9ar ht. aðferð sem léttir einstaklinqum bílakaup boði hjá öllum bílaumboðunum I l/Cirlf i i • • LyaliIU III* FYRSTIR MEÐ NÝJUNCAR SUÐURLANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVÍK SÍMI533 1500, FAX 533 1505 Reuter FRANZ Vranitzky, kanslari Austurríkis, stillir sér upp fyrir ljós- myndara fyrir blaðamannafund, sem hann hélt um afsögn sína. hríð. Hann var aðstoðarbankastjóri Kreditanstalt 1976 til 1981 og banka- stjóri Lánderbank, sem þá var næst- stærsti banki landsins, frá 1981 til 1984. Hann var einnig landsliðsmaður í körfubolta. Vranitzky kvaðst segja af sér af þeirri ástæðu einni að hann vildi að yngri maður tæki við. Hins vegar hefur ýmislegt gengið á í stjóm hans undanfarið og stjómarsamstarfíð við Ihaldsflokkinn verið stirt. Agreining- ur um einkavæðingu Kreditanstalt, næststærsta banka Austurríkis, varð til þess að hrikti í undirstöðum stjóm- arinnar. Hentugur tími til að fara Vín. Reuter. FRANZ Vranitzky, kanslari Aust- urríkis, tilkynnti afsögn sína á laug- ardag og kom sú ákvörðun hans flestum að óvörum. Hann sagði á sunnudag að hann hefði ekki áhuga á að gegna öðru pólitísku starfi, hvorki heima fýrir né erlendis. Arf- taki Vranitzkys í embætti og forustu sósíaldemókrata verður Viktor Klima fj ármálaráðherra. Klima lét ekkert eftir sér hafa um helgina og gaf aðeins út stutta yfirlýsingu í gær. Kvaðst Klima mundu gera grein fyrir stefnu sinni þegár hann hefði tekið við embætti. Búist er við að það verði í lok þessarar viku. Vranitzky hélt á sunnudag blaðamanna- fund þar sem hann leit aftur yfir næstum 11 ár í valdastóli. „Samsteypustjórnin, sem nú situr, fagnar 10 ára afmæli á valdastóli á þriðjudag," sagði Vranitzky. „Það er hentugur tími til að fara.“ Afsögn Vranitzkys kom fréttaskýrendum í opna skjöldu og töldu flestir að hann hygðist halda lengur um valdataum- ana eftir að hafa staðið af sér hvert áhlaupið á fætur öðru í október eftir ósigur í kosningum til Evrópuþings. Gott vín og góð bók Þegar Vranitzky var spurður um framtíðaráætlanir kvaðst hann hlakka til að drekka glas af góðu víni og lesa góða bók. Hann sagðist hvorki hafa augastað á stöðu hjá Evrópusambandinu í Brussel, né for- setaembættinu í Austurríki. Hann kvaðst telja að helsta afrek sitt í embætti væri að leiða Austur- ríkismenn inn í Evrópusambandið eftir hik þeirra í upphafi og binda þannig enda á hálfrar aldar einangr- un í tíð kalda stríðsins. Austurríkismenn samþykktu með miklum meirihluta að ganga í Evr- ópusambandið í júní 1994 og var veitt innganga 1. janúar 1995. Tveir af hveijum þremur greiddu atkvæði með inngöngu í ESB. Síðan hefur hins vegar verið gripið til niðurskurð- ar í opinberum útgjöldum til að upp- fylla skilyrðin fyrir Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) og eru margir Austurríkismenn nú að fyll- ast efasemdum. Hann kvaðst einnig hafa ýtt undir atvinnusköpun og hampaði áætlun sinni til að bæta efnahagslífið. Aust- urríki hefði verið í kreppu á áttunda áratugnum, en væri nú í fararbroddi í Evrópu. Áhrif fortíðar Fortíðin var Vranitzky einnig ofar- lega í huga og kvaðst hann hafa lagt sitt af mörkum til að bæta ímynd Austurríkis, sem hafði látið á sjá í forsetatíð Kurts Waldheims, sem var gagnrýndur um allan heim fýrir að reyna að fela fortíð sína í röðum nas- ista._ „Á undanförnum árum hefur okkur tekist að taka okkur tak í af- stöðu okkar til hlutar Austurríkis í heimsstyij- öldinni síðari,“ sagði Vranitzky. Vranitzky aflaði sér viðurkenningar þegar hann sagði í þingræðu árið 1991 að Austurrík- ismenn ættu að biðja gyðinga afsökunar á framgöngu sinni í stríð- inu og þegar hann fór til ísraels árið 1993 og sagði að Austurríkis- menn yrðu einnig að axla ábyrgðina á þeim glæpum, sem nasista- stjóm Adolfs Hitlers framdi gegn gyðingum. Hann kvaðst telja að Sósíaldemó- krataflokkurinn hefði aldrei staðið jafn illa í almennum kosningum og árið 1994 og í kosningunum tii Evr- ópuþingsins í október hefði keyrt um þverbak. Þá fékk flokkur hans aðeins 60 þúsund atkvæðum meira en hægri flokkur þjóðemissinnans Jörgs Haid- ers, Frelsisflokkurinn. Fylgi sósíaldemókrata fór þá niður fyrir 30%, en flokkur Haiders fékk tæplega 28% fylgi, en hafði aðeins um 9% fylgi áður en Haider tók við honum. Haider og Vranitzky tóku við flokk- um sínum um svipað leyti árið 1986. Vanmat Haider Vranitzky viðurkenndi á blaða- mannafundinum á sunnudag að hann og aðrir sósíaldemókratar hefðu van- metið Haider og flokksmenn hans. Austurrískir ijölmiðlar sögðu að Vranitzky hefði tímasett afsögn sína vel og lofuðu hæfíleika Klima, arftaka hans. Aðeins einn leiðtogi í Evrópu hefur verið lengur við völd en Vranitzky og það er Helmut Kohl, kanslari Þýskalands. Vranitzky er 59 ára gamall, fædd- ist 4. október 1937. Hann gekk í við- skiptaháskóla Vínar og fór til starfa hjá austurríska seðlabankanum eftir að hafa unnið hjá iðnfyrirtækjum um VIKTOR Klima verður næsti kansl- ari Austurríkis. FERMINGARMYNDIR P E TUR PETUR5SON L ] Ó S M Y NDAS T Ú D í (3 Laugavegi 24 • Reykjavik Sími 552 0624 Mcðlimur i 1 jósmvndaratéla^i Islands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.