Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KENNARARNIR Svandís Ingimundardóttir og Birgir Einarsson með nemendum 10. bekkjar á vikulegum samráðs-
fundi, þar sem ýmis málefni eru rædd ofan í kjölinn.
NÁM MÁ EKKIENDA
í BLINDGÖTU
ONNUR bekkjardeildin er í
Fellaskóla en þangað
sækja 15 nemendur 9.
bekk víðs vegar að úr
borginni, en 10. bekkur með 20
nemendur er í Réttarl oltsskóla.
Grundvallast þessar bekkjardeildir
á tillögu sem Aslaug Brynjólfsdótt-
ir fyrrverandi fræðslustjóri í
Reykjavík lagði fram í september
1995 um að settur yrði á laggirnar
sérstakur skóli eða sjálfstæð deild
sem byði upp á hagnýtt starfsnám
fyrir nemendur í 8.-10. bekk grunn-
skólans. í tillögunni var tekið fram
að mikilvægt væri að nemendur
ættu þess kost að ljúka grunnskóla-
námi „sem grundvallast á öðrum
forsendum en hinn hefðbundni
bóknámsskóli.“
Valkostur í stað
sérstakra úrræða
Vinnuhópur sem skipaður var í
kjölfarið skilaði áliti í nóvember
1995. í tillögum hans var tekið fram
að mikilvægt væri að ekki yrði grip-
ið til „sérúrræða" fyrir þennan hóp
nemenda heldur „valkost" um leiðir
í skólakerfínu og þá í nokkrum
skólum til að byija með.
Ennfremur sagði í greinargerð
að einn meginvandi íslenska grunn-
skólakerfisins væri hversu einhæfar
kröfur væru gerðar um
bóklegt nám til allra nem-
enda. Vandinn yrði eink-
um ljós í efstu bekkjum
grunnskólans þegar kröf-
ur um nám í greinum eins
og íslensku, stærðfræði _____
og tungumálum ykjust til
muna. Afleiðingin væri, að of marg-
ir nemendur kiknuðu undan kröfun-
um, fylltust námsleiða og stöðugum
kvíða gagnvart skólanum.
Bent var á að námið mætti ekki
enda í blindgötu og huga þyrfti að
því við skipulagningu að nemendur
ættu þess kost að halda áfram námi
með svipuðum formerkjum.
Tryggja þyrfti þeim rétt til inn-
göngu á fyrirfram ákveðnar brautir
nokkurra framhaldsskóla.
Engin svör ennþá
Svandís Ingimundardóttir og
Birgir Einarsson umsjónarmenn
fjölnámsins í 10. bekk, sem svo
hefur verið kallað, hafa spurst fyrir
í haust voru myndaðir fjölnámsbekkir í
tveimur grunnskólum fyrir nemendur, sem
hentar ekki hefðbundið bóknám. Hildur
Friðriksdóttir komst að því að enn hefur
ekki verið afráðið hvort þeir nemendur sem
ljúka 10. bekk í vor fái framhaldsvist í öðr-
um skóla né hvers konar nám hentar þeim.
Langt er síðan
unglingurinn
hefur verið
svona ánægð-
ur í skóla.
um það sem af er vetri í hinum
ýmsu framhaldsskólum hvort nem-
endurnir fái þar inngöngu. „Því
miður getur enginn tekið af skarið
um það hvort nemendur sem fara
hér í gegn án samræmds prófs verði
teknir inn á sömu forsendum og
þeir sem þreytt hafa samræmt próf
og fengið einkunnina 1. Þeir hafa
möguleika á að hefja nám í for-
námsdeild, en skilaboðin um hvað
gerist ef nemendur þreyta ekki
samræmt próf eru mjög óljós.“
Svandís segir að kennsluráðgjafi
Fræðslumiðstöðvar sem umsjón
hefur haft með náminu ráðleggi
nemendum að taka samræmd próf
hver svo sem útkoman verði. „Við
erum aftur á móti mjög ósátt og
hefðum frekar viljað nota
tímann fram á vor til að
byggja nemendur enn
frekar upp á þeim sviðum
þar sem þeir eru sterkir,"
segir hún.
Hún segir samstarf við
foreldra vera mikið, s.s.
löng einkaviðtöl skömmu eftir
skólabyijun, þar sem m.a. er lagt
upp úr hvaða eiginleikum foreldr-
arnir telji að barnið sé búið og fram-
tíðaráætlunum þeirra. Greinilegt sé
að þeir vilji að nemendurnir taki
samræmdu prófin. „Það helgast
auðvitað af þeim upplýsingum sem
við höfurn," bætir Birgir við og
segir að ráðuneytið hafi ekki heldur
getað svarað þeirri spurningu hvort
framhaldsskólinn geti tekið við
nemendum, sem ná ekki samræmd-
um prófum.
Aðspurð hvort nemendur hafi
bætt árangur sinn á jólaprófum frá
því þeir hófu nám í skólanum segja
þau það ekki spurningu. „Við próf-
uðum úr því námsefni sem við höfð-
um unnið með. Okkur finnst áber-
andi að leið nemenda hefur legið
upp á við eftir að þeir uppgötvuðu
að þeir réðu við verkefnin. Við lögð-
um ekki fyrir þau gömul samræmd
próf, því við ætlum okkur ekki að
gera kraftaverk á einum vetri með
nemendur, sem eru ekki né hafa
verið vel að sér í bóknámi," segja
þau.
Tenging við atvinnulífið
Markmiðið með fjölnáminu er að
veita nemendum alhliða menntun
með því að hafa tengingu við at-
vinnulífið, en miða námið eins mik-
ið og hægt er við aðalnámskrá.
Einnig er mikið lagt upp úr tölvu-
notkun, samskiptum, siðvitund,
tjáningu og framkomu sem tengist
inn í allar námsgreinarnar. Sömu-
leiðis er vægi starfsþjálfunar og
starfskynningar mikið og fer til
þess einn dagur í viku. Þurfa nem-
endur sjálfir að koma sér á fram-
færi við fyrirtæki, því það að geta
komið fyrir sig orði og að koma
skoðunum sínum á framfæri er eitt
af markmiðum námsins.
Hugsunin var einnig sú að fara
aðrar leiðir að markmiðinu en eftir
þeim hefðbundnu, þar sem flestir
nemendur eiga við ákveðna náms-
örðugleika að stríða s.s. vegna
dyslexíu, Tourette-heilkenna eða
vegna félagslegra erfiðleika. „Mjög
margir krakkar í skólakerfínu eiga
við sértæka námsörðugleika að
stríða sem veldur þeim erfíðleikum
við að ná prófum. Mörg þeirra hafa
ekki fengið greiningu, eru orðin
niðurbrotin og hafa ekki trú á hæfi-
leikum sínum," segir Birgir. „Það
er alveg ljóst að hér er engin greind-
arskerðing á ferðinni. Mörg þeirra
hafa hæfileika á ýmsum sviðum,
sem því miður eru ekki metnir í
grunnskólanum."
í samtali við móður eins nemand-
ans kom í ljós að erfiðleika nemand-
ans í námi mátti meðal annars rekja
til dyslexíu. Barnið var greint les-
blint seint á grunnskólaárunum og
fékk þá aðstoð í stafsetningu hálfan
veturinn. „Okkur var bent á að
margir væru verr staddir og því
væri lítið hægt að gera meira,“
segir móðirin. Síðar fékk húri skila-
boð frá sérkennaranum í gegnum
kennarann að nemandinn skýldi sér
á bak við „meinta" dyslexíu af því
hann vildi ekki læra. Móðirin tók
það ráð að fara með unglinginn í
Greiningarstöð ríkisins og þar var
úrskurðurinn „dyslexía". „Ég gerði
ekkert meira úr þessu í skólanum
því þá var búið að sækja um skóla-
vist hér,“ segir hún og bætir við
að þetta nám henti sínu bami ákaf-
lega vel og það sé mjög ánægt í
skólanum. „Það er langt síðan ungl-
ingurinn minn hefur verið svona
ánægður í skóla.“
Vantar fjölbreytileika
Hjá skólafólki, sem þekkir vel til
bama með námsörðugleika af ýms-
um toga, heyrast þær raddir æ oftar
sem vitna til þeirra náms- ---------
leiða sem voru í boði á Mörgum
samhengi vantar á milli skólastiga."
Undir þetta tekur Ágúst Péturs-
son sem kennir fjölnámið í 9. bekk
í Fellaskóla. „í starfslýsingu á þess-
um fjölnámsdeildum var tekið fram
að ekki væri verið að kenna nemend-
um undir samræmt próf, þó að heim-
ilt væri að sjálfsögðu að þreyta þau.
Reiknað var því með frá upphafí að
í þessar deildir veldust krakkar sem
væru með einkunnir á bilinu 3-5 ef
þau tækju samræmd próf, en krakk-
ar með þessar einkunnir flosna
gjarnan upp úr framhaldsskóla."
Hann segir að það sem vanti í
skólakerfið sé valkostur fyrir þessa
nemendur. Þeir hafí áhuga fyrir
ákveðnum þáttum í náminu, sem
venjulega séu á verknámssviðinu,
hafí jafnvel hug á að komast inn í
iðnnám eða verknám að loknum
grunnskóla en hvorki getu né áhuga
fyrir hefðbundnu framhaldsskóla-
námi. „Þessir krakkar eiga fárra
kosta völ og sífellt þrengjast mögu-
leikarnir á að fá nám við hæfí.“
Ágúst segir að kennarar með
langa starfsreynslu hafí horft upp á
fjölda nemenda sem hafí hæfíleika
og eigi góða möguleika á að skapa
sér mannsæmandi líf, „vera menn
með mönnum, ef þeim er gert það
kleift", eins og hann segir. Fjölnám-
ið átti að vera tilraun til að koma
til móts við þessa krakka, en á sama
tíma er verið að þrengja valmögu-
leika þeirra sem fá undanþágu frá
samræmdum prófum. Framhalds-
skólamir virðast fá aukið frelsi um
inntökuskilyrði og enginn vill nem-
endur sem hafa ekki lokið sam-
ræmdum prófum. ,;Við getum ekki
sagt annað við þau börn sem við
erum með: „Þið verðið að taka sam-
ræmdu prófín þótt þið gerið ekkert
annað en skrifa nafnið ykkar. Það
er auðvitað ekki til neins annars en
bijóta þau niður.“
Hann segir að námið í Fellaskóla
sé byggt upp á svipaðan hátt og
námið í Réttarholtsskóla. „Það var
minni aðsókn í 9. bekkinn en þann
10. enda lengra í alvöru lífsins og
margir á þessum aldri skynja ekki
alvöruna á bak við námið fyrr en
dagana fyrir samræmdu prófín,"
segir hann.
Hvað er framundan?
Þegar kennarar og umsjónar-
menn fjölnámsins voru spurðir
hvernig þeir vildu sjá næsta vetur,
segir Birgir Einarsson að upphaf-
lega hugmyndin hafi verið sú að
10. bekkur bættist við Fellaskóla
og 9. bekkur við Réttarholtsskóla.
„Nú erum við farin að heyra að
lítið sé um peninga og að minnsta
kosti eigi að skera niður í öðrum
skólanum," segir hann.
Núna segir hann að sé mikilvæg-
ast að sjá framhaldsskólamálið al-
veg leyst, þannig að kennararnir
viti nákvæmlega hvaða kröfur og
áherslur þurfi að setja fram það
sem af er vetri. „Einnig vildi ég
sjá meiri undirbúningsvinnu af
okkar hálfu varðandi starfsfræðsl-
una, þannig að við næðum betra
sambandi við ákveðin fyrirtæki,
sem við gætum skipulagt móttök-
urnar í samvinnu við. Gott væri
einnig ef nemendurnir gætu fengið
tímabundna vinnu í fyrirtækjun-
---------- um.“
Ágúst Pétursson seg-
tímum gagnfræðaprófsins þessara nema 'st v'lja sía verkmennta-
gamla. Svandís Ingimund- h*»n*aAi uel að brautir víðar en í Borg-
ardóttir er ein þeirra. „Það . . . .. . arholtsskóla. „Það er
var margt gott við það * i ■ DeKK Vaerl mjgg einkennileg hug-
kerfi, því fólk hafði val DcBtt VIO. mynd að sópa öllum
eftir því hvemig gekk í
námi. Þeir sem hneigðust til bók-
náms fóru í landspróf og þaðan í
framhaldsskóla en aðrir gátu valið
um almennt gagnfræðapróf, verk-
nám eða verslunardeild. Síðar kom
svo til sögunnar 5. og 6. bekkur við
Lindargötuskóla. Nú er einungis ein
leið út úr grunnskóla. Af þeim sök-
um vildum við setja námið upp sem
valkost í 10. bekk við hliðina á bókn-
áminu,“ segir hún.
Hún segir fráleitt að hafa sam-
ræmt próf í fjórum bóknámsgreinum
en engu verklegu fagi. „Ég get ekki
séð að þessar fjórar greinar gefi
neitt til kynna um að viðkomandi
verði góður húsasmiður eða málari.
Við erum alltaf að reka okkur á að
nemendum með vanda-
mál saman í einn skóla. Mér finnst
líka að menntunarkröfur þurfi að
vera breytilegar í sambandi við
iðnnám. Mér finnst engin skynsemi
í því að til þess að verða múrari
eða húsasmiður þurfi viðkomandi
endilega að hafa stúdentspróf í
dönsku."
Svandís Ingimundardóttir legg-
ur áherslu á að einn vetur í fjöln-
áminu dugi ekki. „Það er kannski
svolítið snemmt félagslega að
þurfa að taka ákvörðun eftir 8.
bekk að flytja sig í annað skóla-
hverfi. Það mundi henta mörgum
þessara krakka vel að 11. bekk
væri bætt við. Ég tel að með því
móti næðu þau að fóta sig.“