Morgunblaðið - 21.01.1997, Qupperneq 33
32 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 33
JMwgtsiiMftfrifr
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
DRAUMSYN
CLINTONS
CLINTON forseti Bandaríkjanna sór embættiseið sinn fyrir
síðara kjörtímabil á hádegi að staðartíma í Washington í
gær. Forseti Bandaríkjanna ræddi um framtíðina og kvaðst myndu
auka veg gamalla gilda í upphafi nýrrar aldar. Hann hvatti þjóð-
ina til að sýna stórhug. Hann kvaðst myndu berjast gegn hryðju-
verkum og lýsti í raun draumalandinu, þar sem enginn þyrfti að
óttast að verða fyrir skotárás eða verða eiturlyfjum að bráð, þar
sem enginn þyrfti að líða fyrir kynþáttamisrétti eða trúarskoðan-
ir sínar. Hann minntist Martins Luthers Kings, sem fyrir 34 árum
hefði átt draum um betra þjóðfélag - bandaríska drauminn.
Clinton strengdi þess heit að nú, þegar ný öld gengi í garð,
myndi hann gera sitt til þess að nú hæfist merkasti kaflinn í
sögu þjóðar sinnar. Bandaríkin væru stærsta lýðræðisríki heims
og að baki væri öld tveggja tilrauna alræðisins til þess að ná
heimsyfirráðum og öld kalda stríðsins. Hann kvaðst vilja sjá
Bandaríkin í forystu fjölda lýðræðisríkja um heim allan.
Draumsýn Clintons eins og hún birtist í ræðu hans í gær var
um hið fullkomna ríki. En hvernig hann ætlar að gera hana að
veruleika útskýrði hann ekki. Spyija má, hvort hún sé ekki langt
undan í ríki þar sem ofbeldi og kynþáttahatur er jafn ríkur þátt-
ur og orð fer af. En þótt erfitt sé að sjá á hvern hátt unnt sé að
gera slíka draumsýn að veruleika, fer ekki á milli mála, að í
Baridaríkjunum ríkir frelsi til orðs og athafna einstaklingsins.
í upphafi fyrra kjörtímabils virtist Clinton ætla að hefja bar-
áttu fyrir víðtækum umbótum í bandarísku þjóðfélagi, ekki sízt
í heilbrigðismálum og menntamálum. Forsetinn kallaði hins vegar
fram mótstöðu, sem varð til þess að hann fór sér hægar en hann
ætlaði sér í upphafi og þá áreiðanlega með endurkjör í huga.
Stóra spurningin nú er sú, hvort Clinton tekur þessa baráttu upp
á nýjan leik, þegar hann þarf ekki lengur að hugsa um endur-
kjör. Eftirmæli hans sem forseta munu byggjast á því hvaða
ákvörðun hann tekur í þeim efnum.
LJÓÐSKÁLD Á UM-
BROTATÍMUM
JÓN SKÁLD úr Vör er áttræður í dag. Hann var meðal þeirra
fyrstu sem stuðluðu að formbreytingu í íslenzkri ljóðlist, enda
var svo komið að gamalt form og hefðbundin viðhorf gátu ekki
lengur fullnægt þeirri ungu skáldakynslóð sem hóf hina svoköll-
uðu formbyltingu. Annað skáld átti einnig merkisafmæli nýlega,
vestfirzki bóndinn Guðmundur Ingi Kristjánsson, sem varð níræð-
ur, og af því tilefni héldu sveitungar hans honum veglegt hóf á
heimaslóðum. Guðmundur er góður fulltrúi hefðar og sólbjartrar
sýnar til heimahaganna.
Þorpið (1946) er meðal fyrstu órímuðu ljóðabóka á íslenzku.
Umhverfi þess er einnig vestfirzkt, raunar kreppuárin þar vestra.
Form og efni nýstárlegt í íslenzkri ljóðlist; bernska skáldsins séð
og upplifuð í umbrotum mikilla þjóðfélagsátaka. Verkið er raun-
sæislegt en fegurð lífsins hvergi undanskilin.
Með Þorpinu og öðrum verkum sínum hefur Jón úr Vör stuðlað
að þeirri nauðsynlegu þróun til fijálsræðis sem orðið hefur í ís-
lenzkri ljóðlist. Um leið hefur hann lagt áherzlu á þau verðmæti
lífsins sem felast í tignun daglegs lífs og hógværðar. Gagnvart
yfirgangi og ógnum tímanna stendur maðurinn, í senn einfaldur
og vitur í þeirri trú að hið góða muni sigra.
Ljóðlistin hefur fylgt íslenzku þjóðinni frá aldaöðli. Vonandi
breytist það ekki í fjörbrotum gamalla hefða.
MENGUN YIÐ
MIKLUBRAUT
UMFERÐARÞUNGINN í höfuðborginni er óvíða meiri en á
Miklubrautinni. Sólarhringsumferð Iangleiðina í fimmtíu
þúsund bíla. í skýrslu, sem unnin var fyrir borgaryfirvöld í lok
árs 1996, kemur fram, að hávaði frá umferð í grennd við Miklu-
braut fer víða yfir 55 desibela mörkin við húsvegg. Af þessum
sökum teljast rúmlega tvö þúsund manns, búandi við Miklubraut,
þjökuð af hávaða. Loftmengun er einnig mikil. Samkvæmt skýrsl-
unni búa íbúar við Miklubraut, frá Eskihlíð að Stakkahlíð, rúm-
lega 260 talsins, við óviðunandi loftmengun frá umferðinni. Og
samkvæmt umferðarspá eykst umferð um Miklubrautina um 15%
fram til ársins 2008.
Fólk fjárfesti á sínum tíma í íbúðarhúsnæði á þessu svæði við
allt aðrar búsetuaðstæður en nú eru fyrir hendi, að því er framan-
greind atriði varðar. Borgaryfirvöld, sem skipulögðu þetta íbúða-
svæði og stóðu fyrir úthlutun lóðanna, eiga íbúum þar skuld að
gjalda. Það er óhjákvæmilegt að taka á málum þeirra með einum
eða öðrum hætti. Umferðarþróunin í borginni, sem borgaryfirvöld
hljóta að axla ábyrgð á, hefur gert búsetu lítt viðunandi, þar sem
hávaða- og loftmengun er mest, og rýrt söluverðmæti húsnæðis-
ins. Það má raunar einnig segja um húsnæði í gamla miðbænum.
Astæðan: skemmtistaðir og hávær tónlist, einkum um helgar.
STEFNA íslenskra dómstóla hefur verið sú að því harðari sem efnin eru því þyngri eru dómarnir.
Þyngsta
refsing sex
ára fangelsi
Þyngsti dómur Hæstaréttar
er fjögurra ára fangelsi
Rannsókn stóra fíkniefnamálsins, sem kom
upp í lok síðasta árs, miðar vel. Málið er eitt
hið stærsta sem komið hefur upp hér á landi
og hefur lögreglan lagt hald á rúmlega 20
kíló af hassi, auk um 500 E-pilla og 260
grömm af amfetamíni. Ragnhildur Sverris-
dóttir rifjaði upp stærstu fíkniefnamálin
og dóma í þeim.
Norrænt samstarf undir
stj órn Norðmanna
Meginmarkmiðið hlýtur að vera það, segir
Thorbjöm Jagland, að tengsl á milli landa,
þjóða og þjóðarbrota geti þróast með jafn
friðsömum hætti og raun hefur orðið á
á Norðurlöndum.
STÓRA málið, sem nú er til
rannsóknar, hófst þegar
hollenskur karlmaður og
kona á fimmtugsaldri voru
stöðvuð á Keflavíkurflugvelli með
tæp 10 kíló af hassi í fórum sínum.
Smyglið uppgötvaðist í vanabundnu
eftirliti tollgæslu. Þá kom fíkniefna-
deildin til sögunnar og vaknaði fljótt
grunur um að smyglið tengdist inn-
lendum aðilum.
í framhaldi af því hófust víðtækar
aðgerðir fíkniefnadeildarinnar, sem
hefur handtekið hátt á þriðja tug
manna og yfirheyrt, en fimm manns
sitja enn í varðhaldi. Þá var fjöldi
húsleita og fundust 10,5 kíló af hassi
til viðbótar, um 500 E-pillur og 260
grömm af amfetamíni, auk um 250
þúsund króna í peningum og áhalda
til neyslu fíkniefna. Samtals er verð-
mæti fíkniefnanna talið nema um
35 milljónum króna á markaði hér-
lendis.
Málið er eitt hið stærsta sinnar
tegundar sem upp hefur komið hér-
lendis, ekki síst með tilliti til ijölda
þeirra sem handteknir voru. Nokkur
mál önnur teljast þó jafn stór eða
stærri, ef litið er á efnin sem fundust
og í því máli, sem áður var óumdeilan-
lega „stóra“ fíkniefnamálið, voru 18
ákærðir fyrir innflutning á samtals
um 40 kílóum af hassi og 6 kílóum
af amfetamíni. Með dómi undirréttar
1994 voru þrír sýknaðir en 15 hlutu
dóma. Sá sem talinn var höfuðpaurinn
hlaut 4 ára fangelsi. Dómamir vora
staðfestir í Hæstarétti.
183 kíló af marijúana
Það kannabismál, sem óneitanlega
á metið, kom upp árið 1982, þegar
183 kíló af marijúana fundust í send-
ingu frá Bandaríkjunum. Lögregla
fylgist með sendingunni í nokkra
daga, í þeirri von að eigandi hennar
hér á landi gæfi sig fram, en áður
en til þess kom birti dagblað
frétt um sendinguna og var
eftir það fullvíst að enginn
reyndi að nálgast hana.
Ekki var hægt að full-
yrða að nokkur hér á landi
hafi átt sendinguna og
töldu sumir að ísland hefði aðeins
verið umskipunarhöfn fíkniefnisins,
sem væri á leið til meginlands Evr-
ópu. Aðrir töldu þessa sendingu
fyrstu tilraun erlends glæpahrings
til að sölsa fíkniefnamarkaðinn á Is-
landi undir sig. Með því að flytja inn
gífurlegt magn í einu myndi verðið
hrynja, aðrir sölumenn gefast upp,
en erlendi hringurinn verða einráður
á íslenska markaðinum þaðan í frá.
Verðið myndi því strax hækka á ný
og þar með væru erlendu glæpamenn-
imir á grænni grein, því hér á landi
væri marijúana selt dýrum dómum
og hagnaðarvonin umtalsvert meiri
en á meginlandinu.
Þrátt fyrir að þessi 183 kíló af
marijúana færu aldrei inn á íslenskan
markað virtist framboðið
nóg. Árið 1982 var maður
dæmdur í tveggja ára
fangelsi fyrir innflutning
á tæpum 25 kílóum af
hassi, auk 100 gramma
af hassolíu. Héraðsdómur
og Hæstiréttur voru sammála um
lengd fangelsisvistar.
65 kiló í málningu
Árið 1993 felldi Hæstiréttur svo
dóm yfír tveimur mönnum, vegna
innflutnings á 65,5 kílóum af hassi.
Hassinu smygluðu þeir til landsins
með því að pakka því í lofttæmdar
umbúðir og sökkva í málningarfötur.
Mennirnir voru dæmdir í íjögurra
ára fangelsi í héraði og staðfesti
Hæstiréttur þá niðurstöðu.
Dómar í málum, þar sem svokölluð
hörð fíkniefni koma við sögu, hafa
verið til muna þyngri en í kannabis-
málum. Árið 1988 var Brasilíumaður
dæmdur í héraðsdómi til fjögurra ára
fangelsisvistar. í fórum hans höfðu
fundist tæp 450 grömm af
kókaíni og taldi dómari inn-
flutning hans á efninu til
landsins alvarlegan, þrátt
fyrir að hann hefði ekki
selt efni hér á landi eða
ætlað það til sölu hér. Mað-
urinn undi dóminum og kom hann
því ekki til kasta Hæstaréttar.
Hæstiréttur dæmdi hins vegar í
máli íslendings þremur árum síðar.
Sá var sakfelldur fyrir innflutning á
tæplega einu kílói af kókaíni og var
efnið tiltölulega hreint. Þegar hann
var handtekinn hafði honum tekist
að selja helming efnisins. Hæstiréttur
taldi rétt að dæma manninn í fjög-
urra ára fangelsi, eða til sömu refs-
ingar og Brasilíumanninn. Með dómi
sínum mildaði Hæstiréttur dóm und-
irréttar, sem taldi hæfílegt að mað-
urinn sæti inni í 4 'h ár.
Áður en þetta mál kom upp hafði
þyngsti dómur í fíkniefnamáli verið
5 ára fangelsi, árið 1986. Það mál
snerist um innflutning á 1.600
skömmtum af LSD og sagði í dómi
undirréttar að fordæmi vantaði við
refsiákvörðun enda hafði svo stórt
LSD mál aldrei komið til kasta dóm-
stóla. Undirréttur taldi hins vegar 5
ára fangelsi hæfilegt og kvaðst taka
tillit til „hinna gríðarlega miklu
hættueiginleika sem neysla ofskynj-
unarefnisins LSD hefur í för með sér
og dóminum eru kunnir og sem dóm-
urinn telur að almennt séu þekktir.“
Hæstiréttur tók ekki þann pól í hæð-
ina og mildaði refsinguna; taldi hana
hæfilega 2 'h ár.
Hámarksrefsing
10 ára fangelsi
I lögum er kveðið á um að refsing
vegna fíkniefnabrota geti verið allt
að 10 ára fangelsi, en svo þungir
dómar hafa aldrei fallið. Það sjónar-
mið, sem birtist í dómi undirréttar í
LSD-málinu, er þó ríkjandi í dómum
í fíkniefnamálum. Harðari efni þýða
harðari dóma. Dómarar bregðast líka
ókvæða við nýjum efnum, eins og
E-pillunni. Fyrir réttum mánuði féll
þyngsti dómurinn í fíkniefnamáli hér
á landi, þegar Hollendingur á þrí-
tugsaldri var dæmdur í 6 ára fang-
elsi og til greiðslu tveggja milljóna
króna í sekt vegna innflutnings á
964 E-pilIum og rúmum 58 grömm-
um af kókaíni.
í nóvember voru fjórir íslendingar
dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir
stórfelldan innflutning og sölu á al-
sælutöflum á árinu 1995.
Stöðva sókn útlendinga
Þótt ekki sé sú stefna opinber
segja þeir sem til þekkja að útlend-
ingar fái vísvitandi harðari
dóma en Islendingar, þar
sem dómarar vilji með
þeim hætti sporna við til-
raunum erlendra glæpa-
samtaka til að hasla sér
völl hér. Tilraunir í þá átt-
ina hafa verið gerðar, að því er menn
telja og vísa þar til stóru marijúana-
sendingarinnar. Þá er skemmst að
minnast heimsóknar lögregluforingja
hjá Interpol, sem varaði íslensk
stjórnvöld við að ísland gæti orðið
viðkomustaður fíkniefna sem smygl-
að er frá Bandaríkjunum til Evrópu,
þar á meðal heróíns. Reynslan sýni
að hluti efnanna verði eftir í viðkomu-
landinu og þannig gæti heróín náð
fótfestu hér. Það hefur aldrei komið
við sögu íslenskra dómstóla.
ANN 1. janúar síðastliðinn
tóku Norðmenn við for-
ystu í samstarfi norrænu
ríkisstjórnanna. Við tók-
um við blómlegu búi af
Finnum sem stýrt höfðu samstarfinu
allt árið 1996. Þetta ár berum við
ábyrgð á því að ýta áfram baráttu-
málum okkar og tækifærið verður
vissulega ekki látið ónotað.
Mikilvægur tími er framundan í
norrænu samstarfi. Við Norðurlönd-
um blasa nýjar áskoranir og ný
tækifæri bjóðast í samskiptunum við
ESB eftir að Finnland og Svíþjóð
gengu til liðs við bandalagið til við-
bótar Danmörku. Norðurlöndin hafa
axlað nýja ábyrgð í tengslum við
nágrannasvæði okkar, einkum og
sér í lagi hvað varðar Rússland og
Eystrasaltsríkin. Á þessum tímum
stöðugra tæknibyltinga og fjölmiðl-
unar eru Norðurlöndin verkfæri sem
við getum beitt til þess að slá vamar-
hring um sameiginlegan tungumála-
og menningararf þjóðanna.
Norræna samstarfinu má lýsa
sem samskiptaneti og stikkorðið fyr-
ir norsku forystuna er uppbygging
nýrra samskiptaneta. Náin tengsl
norrænu þjóðanna byggjast upp frá
grunni og fram og aftur á milli ein-
staklinga, fjölskyldna, samtaka, at-
vinnulífs og stjórnmálaflokka. Við
ferðumst milli Norðurlandanna án
vegabréfs og löndin eru með sameig-
inlegan atvinnumarkað. Þegar við
heimsækjum annað norrænt land
erum við nær því að vera heima en
annars í útlöndum.
Er þetta í raun ekki sama hugsýn-
in og um hina nýju Evrópu sem nú
er að vaxa úr grasi? Bæði NATO
og ESB ætla að bæta við sig aðildar-
ríkjum. Þá verður mjög mikilvægt
að koma í veg fyrir skörp skil á
milli þeirra ríkja sem ganga í banda-
lögin og þeirra sem áfram munu
standa utan við þau. Við getum
komið okkur upp öryggisneti og
samstarfsleiðum sem byggjast á
margbreytni.
Norrænt samstarf hefur gengið
út frá þessu undanfama áratugi.
Öll ríkin fimm eru aðilar að Samein-
uðu þjóðunum, Öryggisstofnun Evr-
ópu (ÖSE), og Evrópuráðinu. Þijú
ríkjanna eru í NATO, tvö þeirra eiga
samstarf við NATO í Samtökum um
frið, þijú landanna eru í ESB, tvö
þeirra eru í EFTA og öll eiga þau
aðild að sameiginlegum Evrópu-
markaði í gegnum EES.
Þessi mynd gæti breyst. Fleiri
norræn ríki gætu gengið í bæði
NATO og ESB. Lykilatriðið er að
sú nýja Evrópa sem smám saman
er að koma í ljós líkist um margt
Norðurlöndunum. Meginmarkmiðið
hlýtur að vera það að tengsl á milli
landa, þjóða og þjóðarbrota geti þró-
ast með jafn friðsömum hætti og
raun hefur orðið á á Norðurlöndum.
Við viljum stunda virka upplýs-
ingamiðlun varðandi það hvernig
samstarf okkar er byggt upp, eink-
um með tilliti til svæðanna í Mið-
og Austur-Evrópu sem nú eru að
mynda sín samskiptanet. Hér gefast
Norðurlöndum viðbótar-
færi með því að Danir eru
í ár I forsæti fyrir ÖSE.
Á árinu 1997 mun
norska forystan einkum
leggja áherslu á sex svið:
I fyrsta lagi munum við
leggja megináherslu á samstarf um
evrópsk og alþjóðleg málefni.
Stærsta áskorunin er sú að gefa
hvergi eftir norræna sérstöðu þótt
tvö ríki til viðbótar hafi nú gengið
í ESB. Þessi staðreynd gerir til okk-
ar kröfur. Möguleikar okkar tengj-
ast einkum því að EES-sáttmálinn
tengir okkur saman og færir Norð-
urlöndunum sameiginlegan heima-
markað. Við samþykkjum mikið af
sameiginlegum reglum fyrir milli-
ríkjaverslun og förum því nýjar leið-
ir til þess að halda áfram langri
hefð varðandi norrænt samstarf á
sviði löggjafar.
Við stefnum einnig að því að þróa
norrænt viðvörunarkerfi („Early
Warning") varðandi ESB/EES-mál-
efni þar sem við gætum haft áhuga
á að samræma afstöðu okkar. Við
höfum einnig þörf fyrir
sameiginlegar umræður
um hvaða áhrif samevr-
ópskur gjaldmiðill
myndi hafa á Norður-
löndin sem heild.
í fyrra tryggðum við
norrænt vegabréfafrelsi
með því að Norðurlönd
öll munu eiga aðild að
Schengen-samstarfinu.
Ef Noregur og ísland
hefðu ekki náð sam-
komulagi hefði afleið-
ingin getað orðið landa-
mæravarsla á
fínnsk/norsku og
sænsk/norsku landa-
mærunum ásamt vega-
bréfaeftirliti með feiju-
farþegum. Nú breiðist vegabréfa-
frelsið út og undir lok áratugarins
munu fleiri Evrópulönd taka þátt í
þessu samstarfi. Um leið eykst fjöl-
þjóðlegt samstarf lögreglu í barátt-
unni gegn eiturlyíjum og skipu-
lagðri glæpastarfsemi.
Á einu mikilvægu sviði mun sam-
starfið taka skref fram á við. Við
viljum stuðla að ákveðnari norrænni
samvinnu um friðargæslu. Við vilj-
um að komið verði á laggirnar nor-
rænu liði sem gæti unnið
að þannig aðgerðum á
þeim svæðum sem við höf-
um aflað okkur víðtækrar
reynslu, nú síðast með
samnorrænni framgöngu
í Bosníu. I fyrsta sinni í
sögu Norðurlandaráðs mun norskur
varnarmálaráðherra mæta til þess
að gera grein fyrir þessari samvinnu.
I öðru lagi leggjum við áherslu á
samvinnu varðandi þau nágranna-
ríki þar sem Norðurlönd eiga að
leggja sitt af mörkum hvað varðar
stöðugleika, lýðræði og sjálfbæra
þróun. Samstarfíð um Barentshaf
og Eystrasalt er mjög áhugavert og
vænlegt dæmi um svæðisbundið
samstarf í Evrópu. Norðurlöndin
binda þessi tvö svæði saman. Við
viljum vinna að því að aðgerðir í
Barentshafi og á Eystrasalti verði í
auknum mæli álitnar einn og sami
hluturinn.
Við viljum koma á nýjum tengsl-
um fram og aftur yfír landamæri á
sama hátt og gerst hefur á Norður-
löndum. Jafnt staðbundnum stjórn-
völdum sem ríkisstjórn-
um í Rússlandi og Eyst-
rasaltsríkjunum verður
boðið til norrænna
funda. Samvinnan við
Eystrasaltsríkin, sem
stundum er kölluð 5+3
samvinnan, mun einnig
halda áfram.
Við ætlum okkur að
koma í gang samstarfi
á sviði samskipta og
gagnkvæmra skipta
ungs fólks á Norður-
löndum og á nálægum
svæðum. Við ætlum að
vinna áfram að hinum
lífsnauðsynlegu um-
hverfismálum á norður-
slóð. Við ætlum okkur
að bæta við nýjum sviðum, svo sem
heilbrigðismálum, en þau eru á sama
hátt og ógnir gegn umhverfinu sam-
eiginleg verkefni allra þjóðanna.
I þriðja lagi munum við veita
börnum og unglingum forgang. Á
Norðurlöndum og í Evrópu allri er
búið að þróa nýtt skipulag á náms-
mannaskiptum. Við höfum áhuga á
að beina kröftum okkar að ungu
fólki áður en það hefur langskóla-
nám og að styrkja þróunaráætlanir
einnig hvað varðar nálæg
svæði. Það er ódýr leið til
þess að skapa samskipti
og koma á traustvekjandi
starfsemi að láta ungt fólk
ferðast á milli landa og
kynnast.
Norðurlönd hafa verið í farar-
broddi hvað varðar baráttuna gegn
vinnu barna og kynferðislegum mis-
þyrmingum barna. Við munum
fylgja eftir norrænum áherslum á
þessum sviðum, meðal annars í
tengslum við undirbúning hinnar
miklu ráðstefnu gegn vinnu barna
sem Norðmenn og UNICEF halda í
Osló í október á þessu ári.
í fjórða lagi ætlum við að virkja
frjáls félagasamtök. Við munum
hvetja til aukinnar samvinnu nor-
rænna stofnana og frjálsra félaga-
samtaka á Norðurlöndum, einkum
hvað varðar samskipti við nálæg
svæði. Fijáls félagasamtök er for-
senda virks borgarasamfélags. Við
viljum leggja okkar af mörkum til
þess að koma þeim á laggirnar á
nágrannasvæðum okkar. Það tekur
sinn tíma en norrænu ríkin geta
stuðlað að því að þetta ferli hefjist.
Þess vegna er það ögrandi verkefni
fyrir norræn samtök að koma með
hugmyndir og tillögur um hvernig
hægt er að koma þessu samstarfi í
ga ng.
I fimmta lagi ætlum við að veðja
á upplýsingatæknina. Upplýsinga-
tæknin mótar samfélög okkar en
hún er einnig lykillinn að því að
byggja upp ný samskiptanet til að
flytja þekkingu milli fólks. Við vilj-
um efla norræn tengsl til þess að
vernda norræn séreinkenni, tungu-
mál og menningu. Við ætlum okkur
að bjóða til fyrsta norræna fundar
ráðherra sem ábyrgð bera á upplýs-
ingatækni og við viljum vinna að
því að koma á fót norrænni miðstöð
um upplýsingatækni til þess að þróa
ný samskiptanet á Norðurlöndum,
einkum á menntunar- og rannsókn-
arsviðum.
í sjötta lagi viljum setja viðfangs-
efni velferðarsamfélagsins á dag-
skrá. Þjóðfélög okkar byggjast að
miklu leyti á sömu fyrirmynd og nú
blasa við ný verkefni á sviði heil-
brigðismála, menntunar og öldr-
unarstefnu. Við höfum reynslu af
efnahagslegum kúvendingum. Á öll-
um þessum sviðum ætlum við okkur
að auka samnorrænar viðræður og
íhugun, líka stjórnmálaflokka á
milli. Velferðarsamfélag morgun-
dagsins er þemað á fundi hinna fjög-
urra norrænu sósíaldemókratísku
forsætisráðherra í Ósló að loknum
ársfundi SAMAKs dagana 16. og
17. janúar.
í öllum norrænu ríkjunum er að
finna fjölbreytta menningu. Saman
munum við leggja áherslu á sam-
hljóm og umburðarlyndi og vinna
gegn ótta við framandi þjóðir og
kynþáttahatri. Þetta er eitt það mik-
ilvægasta sem við getum lagt til
málanna í friðsamlegri þróun hinnar
nýju Evrópu.
Þetta er helstu verkefni okkar.
Þar að auki má nefna stöðuga sam-
vinnu á íjölda sviða. Samskiptanetin
innan Norðurlandanna eru marg-
þætt. Við ætlum okkur að styðja við
bakið á þeim sem fyrir eru og koma
nýjum á fót.
Við munum vinna að frekari upp-
byggingu orkunetanna til þess að
við getum betur nýtt okkur þessar
auðlindir. Einn góðan veðurdag mun
kannski blasa við sjónum sameigin-
legt net gasleiðslna um Skandinavíu
alla sem einnig teygir anga sína
yfir Eystrasalt til Eystrasaltsríkj-
anna.
Við munum vinna að frekari upp-
byggingu norrænnar þekkingarm-
iðlunar til að gera Norðurlöndin að
heildstæðu þekkingarsvæði þar sem
námsfólk og aðrir þeir sem
vinna með þekkingu geta
starfað að sameiginlegum
þekkingargrunni.
Við munum vinna að
áframhaldandi uppbygg-
ingu samskiptanetsins á
milli ungs fólks og almennra sam-
taka. Við viljum styrkja stöðu Norð-
urlandanna sem alþýðlegra Norður-
landa.
Verið því velkomin til að kynnast
norskri forystu á Norðurlöndum. í
þessari viku verður opnaður aðgang-
ur að heimasíðu norsku forystunnar.
Ég býð ykkur velkomin á http://od-
in.dep.no/ud/nordisk
Höfundur er forsætisráðherra
Noregs.
Þyngstu
refsingu
aldrei
verið beitt
Mjög stórt
fíkniefnamál
er nú rann-
sakað
Mikilvægur
tími framund-
an í norrænu
samstarfi
Thorbjörn
Jagland
Áhersla á
samhljóm og
umburðar-
lyndi