Morgunblaðið - 21.01.1997, Qupperneq 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
EG Skrifstofubúnaður ■».
Ámúla 20. 108 Rvík. Sími 533 5900
FÓTHVÍLA
Efþú vilt láta þér líða
virkilega vei.
BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR
fyrir WINDOWS
Sjáðu nýjan frábæran
hugbúnað:
www.treknet.is^throun
gn KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
Inniskór frá 490
kuldaskór frá 1990
smáskór
í bláu húsi
v/Fákafen
AHRIFARIK HEILSUEFNI
Auka orku, úthald og einbeitingu
PROPOLIS
Gæöaefni frá
Healthilife
$ Ih'allhiliíi
fropolis £
!
nOp>
Extract
Æa
u
Sterkir
Propolis
belgir (90
stk) virkavel.
Gott verð.
URTE PENSIL
Sólhattur
og Propolis virka
vel saman
BIO QINON Q-10
Eykur orku og úthald
,S*-.
9
Skalli Plus
vinur magans
Bio Silica,
járn í melassa
Super
Bio-Qinon
QlO tepoto
!. tsspS'
Þú getur treyst heilsuefnum
frá Parma Nord 100%
Bio-Biloba Ginkgo
Bio-Selen + Zink
Bio-Chróm
Bio-Glandin
Bio-Calcium
Bio-Fiber o.fl.
HIO-SELEN UMB, SIMI 557 6610
lOII ÍSLENSKA ÓPERAN sími 551 1475
KÁTA EKKJAN
Óperetta eftir Franz Lehár
Texti eftir Viktor Léon og Leo Stein
íþýðingu Þorsteins Gylfasonar og Flosa Ólafssonar.
Hljómsveitarstjóri
Leikstjóri
Leikmyndahönnuður
Búningahönnuður
Ljósahönnuður
Danshöfundur
Páll Pampichler Pálsson
Andrés Sigurvinsson
Stígur Steinþórsson
Hulda Kristín Magnúsdóttir
Björn B. Guðmundsson
Ástrós Gunnarsdóttir
• Signý Sæmundsdóttir • Garðar Cortes •
Sigurður Björnsson • Marta Halldórsdóttir •
Þorgeir Andrésson • Jón Þorsteinsson •
Stefán H. Stefánsson • Ólafur Frederiksen •
Magnús Jónsson • Kristinn Hallsson •
Sieglinde Kahmann • Árni Tryggvason
Kór Islensku óperunnar
Hljómsveit íslensku óperunnar
FRUMSÝNING laugardaginn 8. febrúar, HÁTÍÐARSÝNING sunnudaginn
9. febráar, 3. sýning föstudaginn 21. febrúar, 4. sýning laugardaginn 22. rebrúar.
Sýningar heljast kl. 20.00.
Styrktarfélagar íslensku óperunnar eiga forkaupsrétt í miðum dagana 21.-24. janúar.
Almenn sala hefst laugardaginn 25. janúar.
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 15—19, sýningardaga
til kl. 20.00. Sími 551 1475. Greiðslukortaþjónusta.
skák
llmsjón Margeir
Pctursson
STAÐAN kom upp á
Excelsior Cup mótinu í
Gautaborg sem lauk í síð-
ustu viku. Helgi Áss Grét-
arsson (2.470), stórmeist-
ari, hafði hvítt og
átti leik, en sænski
alþjóðameistarinn
Mats Sjöberg
(2.430) var með
svart.
36. Bxd7! - Rxd7
37. b5! og svartur
gafst upp, því hann
getur ekki komið í
veg fyrir að hvítur
komi peði upp í borð
og veki upp nýja
drottningu. Besta
vömin er 37. — Rb8,
en þá leikur hvítur
38. d7! - Rxd7 39.
bxc6 og svartur er varnar-
laus.
Helgi Áss var með flensu
í upphafi mótsins og byrj-
aði illa. En hann náði sér
á strik og endaði í 2.-3.
sæti. Skák hans við neðsta
mann mótsins í síðustu
umferð endaði í jafntefli,
en með sigri hefði hann
orðið efstur.
Úrslit mótsins:
1. Evgení Gleizerov, Rúss-
landi 6 v. af 9
2. -3. Helgi Áss Grétars-
son og Mikhail Rytsjagov,
Eistlandi 5‘A v.
4.-5. Tiger Hillarp Pers-
son, Svíþjóð og Jacep
Gdanski, Póllandi 5 v.
6. Johnny Hector, Sviþjóð
4 ‘A v.
7. —8. Ari Ziegler, Svíþjóð
og Mats Sjöberg, Svíþjóð 4
v.
9. Karl Johan Moberg, Sví-
þjóð 3 v.
10. Johan Hultin, Svíþjóð
2'h v.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Góð reynsla af
bekkjaleikfimi
VIKTORÍA hringdi og
vildi taka undir það sem
Fanney sagði í Velvak-
anda 15. janúar um bek-
kjaieikfimi. Hún segist
hafa mjög góða reynslu
af þessum bekkjum og
hvetur aðrar konur til að
prófa þá.
Tapað/fundið
Sundbols saknað
SÍÐASTLIÐINN laugar-
dag var ég í Sundlaug
Seltjarnamess ásamt
öðrum skokkuram úr
TKS (Trimmklúbbi Sel-
tjarnarness). Þar lá mér
eftir nýr sundbolur og
gamalt handklæði en nú
finnst hvorugt þrátt fyrir
mikla eftirgrennslan.
Mér er sama um hand-
klæðið en sundbolurinn
var mjög kær. Hann er
mjög sérstakur, ljósgulur
og blágrænn, símunstr-
aður, en gular fellingar
era á brjósti og í baki.
Eg keypti bolinn úti í
Malaysíu í sumar og í
minningu minni tengist
hann góðu sumarleyfi á
framandi slóðum.
Ég vil nú skora á þann
sem tók bolinn minn í
misgripum um að skila
honum til mín eða í sund-
laugina. Mig sárvantar
hann og ég sé eftir hon-
um. Eg heiti góðum
fundarlaunum. Síminn
minn er 562-3434.
Kristín Jónsdóttir.
Trúlofunar-
hringur
UM áramótin tapaðist
trúlofunarhringur. Inni í
hringnum stendur þín
Lilja. Skilvís finnandi er
beðinn um að skila
hringnum til óskiladeild-
ar lögreglunnar.
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hluaveltu nýlega til
styrktar Hjálparstofnun kirkjunnar og varð ágóðinn
5.000 krónur. Þau heita Ingibjörg Helga, Dóra Sif,
Diljá og Katrín.
Yíkveiji skrifar...
TÆKIFÆRI fólks til bílakaupa
eru meiri en áður. Bílaumboð,
tryggingafélög og fjármögnunar-
fyrirtæki keppast um að auglýsa
margar tegundir af lánum til þess
að auðvelda fólki að kaupa bíl. Nú
síðast hefur Sp-fjármögnun, sem
er í eigu sparisjóðanna, boðið upp
á 7 ára lán til bílakaupa.
Allt er þetta jákvætt, svo lengi
sem viðskiptavininum er gerð grein
fyrir því, hvert raunverulegt kaup-
verð bíls er, sem keyptur er með
þessum hætti. Þess vegna voru at-
hugasemdir Samkeppnisstofnunar
við auglýsingar Brimborgar á dög-
unum eðlilegar. Samkeppnisstofnun
gerði m.a. kröfu til þess að fyrir-
tækið upplýsti viðskiptavini sína um
heildarverð bílsins, þegar hann
væri keyptur með þeim lánskjörum,
sem í boði eru.
Víkveiji tók hins vegar eftir því
í auglýsingum bílaumboða í Morg-
unblaðinu um helgina að þau fylgja
þessum fyrirmælum ekki, þótt
a.m.k. ein auglýsing hafi birzt frá
Brimborg, þar sem heildarverð er
gefíð upp og kemur þá í ljós, að
endanlegt verð bílsins er mun hærra
en staðgreiðsluverð eins og við var
að búast.
Það á að vera sjálfsagt mál, að
slíkar upplýsingar komi fram, ekki
bara í bílaauglýsingum heldur í öll-
um auglýsingum, þar sem fólki er
boðið upp á hagstæð greiðslukjör.
xxx
RAUNIR Víkvetja í jólainnkaup-
unum í Hagkaup vekja spurn-
ingar um hæfni starfsmanna og
þjónustu verslunarinnar. Víkveiji
var staddur í sérvörudeild Hag-
kaups í Kringlunni sunnudagskvöld-
ið fyrir jól. Þar var mikið að gera
og biðraðir á öllum kössum. Ymis
tilboð voru í gangi og þar sá Vík-
veiji að bók sem hann hafði áhuga
á að kaupa var á hagstæðu verði,
en hún kostaði 2.295 krónur sam-
kvæmt verðmerkingu á hillunni.
Víkverji greip bókina, rölti um
verslunina og endaði í biðröð á
kassa sem var í hinum enda hús-
næðisins. Þegar verð bókarinnar
var skannað inn, eftir nokkra bið
í röðinni, kom í Ijós að það var
misræmi milli verðsins á hillunni
og verðsins í tölvukerfinu. Verðið
í tölvunni var 200 krónum hærra.
Víkveiji sagði afgreiðslustúlkunni
frá tilboðsverðinu en hún sagði að
öll tilboðsverð væru komin inn í
tölvukerfið. Víkveiji sagði þetta
ekki rétt en hún endurtók sitt svar.
í þessari stöðu fannst Víkveija
vænlegast að borga bókina en
ákvað samt að reyna að fá leiðrétt-
ingu í bókadeildinni ef verðupplýs-
ingarnar á hillunni væru réttar.
Þangað var skundað og beðið í
annarri biðröð. Þegar að af-
greiðsluborðinu var komið og er-
indið hafði verið borið upp var svar-
ið sem Víkveiji fékk „þú verður
að fara aftur á hinn kassann og
fá endurgreiðsluna þar, ég get
ekki greitt hana út hér“. Víkverja
fannst þessi þjónusta fyrir neðan
allar hellur, þar sem verslunin hefði
hæglega getað séð til þess með
einföldu móti að slíkar endur-
greiðslur færðust á milli kassa við
uppgjör. Hann sagði að lítil von
væri um að fá endurgreiðsluna
þar, þar sem afgreiðslustúlkan
hefði þrætt við sig um verðið og
hann sæi ekki hvernig hún ætti
að geta sannreynt það, nema arka
þvert yfir salinn. Afgreiðslustúlkan
í bókadeildinni gekk að hillunni og
fullvissaði sig um að Víkverji hefði
rétt fyrir sér. Hún tók upp símann
og gaf þeirri sem hafði afgreitt
Víkveija áður upplýsingar um rétt
verð. Víkverji spurði hvort hann
þyrfti að standa í þriðju biðröðinni
til að afgreiða þetta mál, en var
sagt að hann skyldi gefa sig strax
fram á kassanum.
Þegar á fyrri kassann kom var
verið að afgreiða viðskiptavin með
fulla körfu af vörum svo enn mátti
Víkveiji bíða. Stúlkan baðst afsök-
unar á mistökunum og tók við
kassakvittuninni, en þá kom babb
í bátinn. Hún horfði vandræðaleg í
kringum sig og spurði „er einhver
klár í reikningi?" Víkveiji trúði ekki
eigin eyrum og ákvað að bíða og
sjá hvað gerðist. Hún beið þar til
önnur starfsstúlka hafði lokið við
afgreiðslu og spurði „hvað á ég að
gefa til baka? Ég stimplaði inn
2.495 en þetta áttu að vera 2.295“.
Starfssystir hennar leysti þetta
„flókna“ vandamál greiðlega. Vík-
veiji fór heim með 200 króna sparn-
að eftir 40 mínútna hrakningar í
versluninni og staðfestingu á því
að stærðfræðikunnátta íslenskra
nemenda er óviðunandi.