Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
25. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Mótmælin í Búlgaríu færast enn í aukana
Stóm
stundin
eyðilögð
London. The Daily Telegraph.
HJÓNALEYSI í Englandi hafa
hótað að höfða mál gegn ensku
biskupakirkjunni eftir að
hjónaband þeirra var lýst ógilt
vegna þess að í ljós kom að
óvígður táningur gaf þau sam-
an.
Hjónaefnin höfðu eytt sem
svarar 800.000 krónum í brúð-
kaupið og uppgötvuðu ekki fyrr
en viku síðar að hjónabandið
er ógilt. Vegna misskilnings
hafði staðgengiil sóknarprests-
ins þeirra komið of seint í
hjónavígsluna og hann taldi að
ungi maðurinn sem gaf þau
saman væri aðstoðarprestur.
Síðar kom í ljós að hann er
átján ára námsmaður, sem
gegnir yfirleitt hlutverki
messuþjóns í kirkjunni.
Talið er að ungi maðurinn
hafi ákveðið að hlaupa í skarð-
ið fyrir prestinn til að hjónaefn-
in yrðu ekki fyrir vonbrigðum
á þessum mikilvæga degi í lífi
þeirra.
„Ég trúði þessu ekki. Stærsti
dagurinn í lífi okkar var eyði-
lagður," sagði „brúðurin".
Talsmaður biskupakirkjunn-
ar sagði að lög heimiluðu ekki
málshöfðanir gegn kirkjunni
sjálfri.
Major tekst
ekki að
auka fylgið
London. Reuter.
BRESKA íhaldsflokknum hefur ekki
tekist að saxa á forskot Verka-
mannaflokksins, ef marka má skoð-
anakönnun sem dagblaðið The Tim-
es birtir í dag.
Samkvæmt könnuninni hefur
fylgi Verkamannaflokksins aukist
um fjögur prósentustig frá því í
byijun desember og er nú 55%. Fylgi
íhaldsflokksins er óbreytt, eða 30%.
Þessi niðurstaða er áfall fyrir John
Major forsætisráðherra, sem verður
að boða til kosninga ekki síðar en
22. maí. Engum breskum stjórn-
málaflokki hefur tekist að fara með
sigur af hólmi i kosningum eftir að
hafa haft svo lítið fylgi fjórum mán-
uðum fyrir kjördag.
Fjolda-
handtökur
Reuter
Kveikt í
helgidómum
HÓPAR indónesískra múslima
kveiktu í kirkjum og hofum austur
af Jakarta í gær eftir að fréttir
bárust af því að kristin kona hefði
móðgað múslima. Konan mun hafa
ausið úr sér óbótaskömmum yfir
hóp múslimskra ungmenna, sem
henni þóttu of hávær. Höfðu ung-
mennin gengið um hverfi í borg-
inni og barið bumbur til að vekja
fólk svo að það gæti matast áður
en sólin kæmi upp. Nú er Ramad-
an, föstumánuður múslima, sem
neyta þá ekki matar frá sólarupp-
komu til sólarlags.
Þátttaka í allsherj-
arverkfalli eykst
Pantar
Sofíu., Reuter.
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í Búlgaríu lokuðu helstu vegunum til
Grikklands og Tyrklands og efndu til allsheijarverkfalla í gær, annan
daginn í röð. Létu þeir sig engu skipta áskorun ríkisstjórnar sósíalista
um að ganga til viðræðna um hvenær efna ætti til nýrra þingkosn-
inga. Loka þurfti skólum, verksmiðjum og námum vegna verkfallsins
og forystumaður Sambands óháðra verkalýðsfélaga sagði að þátttakan
hefði verið mun meiri en daginn áður. 250.000 manns hefðu lagt niður
vinnu og hálf önnur milljón Búlgara hefði tekið þátt í ýmsum mótmæla-
aðgerðum til að knýja á um að boðað yrði til kosninga þegar í stað.
Reuter
BÍLUM og strætisvögnum var lagt til að stöðva umferð um þjóð-
veginn milli Sofiu og næststærstu borgar Búlgaríu, Plovdiv.
í næststærstu borg Búlgaríu,
Plovdiv, lokuðu stjórnarandstæð-
ingar stærstu gatnamótunum með
kyrrstæðum bílum og leigubílstjór-
ar komu fyrir vegatálmum á þjóð-
veginum frá Sofiu til tyrknesku
landamæranna. Strætisvagnabíl-
stjórar í Sofíu kváðust ekki ætla
að aka öðrum en mótmælendum til
fjöldagöngu, sem farin hefur verið
daglega undanfarna 25 daga til að
krefjast þess að sósíalistar fari frá
völdum og gengið verði til þing-
kosninga.
Sósíalistar hafa fengið umboð til
að mynda nýja stjóm, sem þeir
segja að eigi að sitja til bráða-
birgða, í þrjá til fimm mánuði. Sam-
band lýðræðisafla, sem er stærsti
flokkurinn í stjórnarandstöðunni,
hafnaði þessar málamiðlun og ítrek-
aði kröfu sína um kosningar þegar
í stað.
Stöðugleiki forsenda aðstoðar
Petar Stoyanov, forseti Búlgaríu,
var staddur í Brussel í gær og ræddi
þar við fulltrúa Evrópusambandsins
(ESB). Hann sagði á miðvikudag
að Búlgarir kynnu að lenda í van-
skilum með erlendar skuldir, sem
næmu um 10 milljörðum dala, um
700 millljörðum ísl. kr., nema til
kæmi erlend aðstoð. Hans van den
Broek, sem fer með utanríkismál í
framkvæmdastjórn ESB, svaraði
því hins vegar til að Búlgarir skyldu
ekki vænta frekari aðstoðar fyrr
en pólitískum stöðugleika væri náð
í landinu.
Osku Gandhis dreift
Allahabad. Reuter.
ÞÚSUNDIR Indverja komu saman
við Ganges-fljót í gær þegar ösku
Mahatma Gandhis var dreift yfir
fljótið, nákvæmlega 49 árum eftir
að indverski þjóðarleiðtoginn var
myrtur.
Hindúar sungu sálma meðan
einn af afkomendum leiðtogans,
Tushar Gandhi, tók skreytt duft-
ker úr trékassa, sem hafði verið
í öryggisgeymslu í indverskum
banka í tæpa hálfa öld þar til
hann var afhentur afkomendunum
fyrr í vikunni. Tushar, eiginkona
hans og tvö börn, sem sjást á
myndinni, helltu síðan mjólk og
lögðu blóm í kerið eins og venja
er við slíkar athafnir á Indlandi.
Tignir gestir snertu kerið með
enninu áður en öskunni var dreift
yfir fljótið. „Lengi lifi Mahatma
Gandhi!“ hrópuðu þúsundir
manna sem fylgdust með athöfn-
inni á bakka fljótsins.
„Þetta er einn af stærstu dög-
unum í lífi mínu því ég hef fengið
að sjá ösku Mahatma Gandhis,"
sagði Kamlesh Srivastava, félagi
í góðgerðasamtökum sem eru
kennd við eiginkonu þjóðarleið-
togans.
Kerið hafði verið geymt í banka
í borginni Cuttack frá árinu 1950
og nokkrir indverskir embættis-
menn vefengdu að aska Gandhis
væri í því. Margir Indverjar töldu
þó að svo væri og sagt var að
kerið hefði gleymst þegar ösku
leiðtogans var dreift til allra ríkja
Indlands eftir dauða hans.
Lagt var til að deilan yrði út-
kljáð með því senda öskuna í
DNA-greiningu, en afkomendur
Gandhis höfnuðu því. Þeir sögðu
að slíkt hefði verið „mesta móðg-
un“ við leiðtogann, sem stjórnaði
sjálfstæðisbaráttu Indverja fyrir
tæpum 50 árum.
í Kosovo
Belgrad. Reuter.
SERBNESKA lögreglan hefur
handtekið að minnsta kosti 26 Alb-
ani í Kosovo-héraði í Serbíu á síð-
ustu þremur dögum, að sögn frétta-
stofunnar Beta í Belgrad í gær.
Beta sagði að flestir hinna hand-
teknu væru annaðhvort pólitískir
andófsmenn eða starfsmenn hjálp-
arstofnana.
Lýðræðisbandalag Kosovo,
flokkur sem berst fyrir réttindum
albanska meirihlutans í Kosovo,
sagði að 35 manns hefðu verið
handteknir, þeirra á meðal albansk-
ir starfsmenn Rauða krossins. Lög-
reglan hefði ráðist inn á heimili
þeirra, brotið húsgögn og iagt hald
á eigur þeirra „undir því yfirskini
að hún væri að leita að vopnum
eftir nokkur hermdarverk á síðustu
vikum“.
Mikil ólga hefur verið í Kosovo
og vestrænir fréttaskýrendur hafa
lengi óttast að átök milli Serba og
Albana í héraðinu geti gert friðar-
umleitanirnar á Balkanskaga að
engu.