Morgunblaðið - 31.01.1997, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fasteignatengd gjöld í Reykjavík
Mesta hækkun 22,9%
á fjórum árum
Breytingar á
gjaldskrá VISA
Mest
hækkun á
aukakorti
Farkorts
BREYTINGAR á gjaldskrá
korthafa VISA taka gildi 18.
febrúar næstkomandi, en
gjaldskráin hefur að mestu
verið óbreytt frá árinu 1994.
Helstu breytingarnar eru
þær að árgjald almenns korts
hækkar úr 1.800 í 1.900 kr.,
árgjald aukakorts hækkar úr
900 í 950 kr. og árgjald auka-
korts Farkorts hækkar úr
1.250 í 1.500 kr. Færslugjald
af raðgreiðslum fer úr 100 í
120 kr. og útskriftargjald
hækkar um 10 kr. Það verður
eftir hækkunina 170 kr. fyrir
greiðslu með gíróseðli en 70
kr. fyrir skuldfærslu á reikn-
ing. Þóknun vegna úttektar
reiðufjár innanlands hækkar
um 0,10% og verður 1,35%.
Úttektargjald verður óbreytt,
85 kr., og 100 kr. myndgjald
fellur niður, enda mynd af
korthafa nú á öllum tegundum
VISA-korta.
Aukakorthafar fá
sjálfstæð fríðindakort
Einar S. Einarsson, forstjóri
VISA, segir aðalhækkunina,
og þá einu umtalsverðu, vera
á gjaldi fyrir aukakort Far-
korts, sem hækkar um 250
kr. „Það á sér þá skýringu að
þjónusta við aukakorthafa hef-
ur verið stóraukin og þeir fá
nú sjálfstæð fríðindakort og
annað sem áður var aðeins
ætlað aðalkorthöfum," segir
Einar.
Hann skýrir hækkun þókn-
unar vegna úttektar reiðufjár
innanlands með vaxtahækk-
unum. „Við tökum alla þessa
peninga að láni, það líður
mánuður eða jafnvel upp í 45
dagar þar til fólk þarf að borga
þessa úttekt reiðufjár. Við
höfum þurft að fjármagna
þetta með lántökum í bönkum
og á fjármagnsmarkaði og nú
hafa vextirnir hækkað. Ég
bendi þó á að við höfum alla
tíð verið lægri en keppinautur
okkar hvað þetta varðar," seg-
ir hann.
Hækkun gjaldskrárinnar er
skýrð með því að á undanförn-
um misserum hafi ýmsir liðir
sem hafi áhrif á tilkostnað
fyrirtækisins tekið breyting-
um, sem nú komi fram í gjald-
skránni. Sem dæmi um slíkar
breytingar nefnir Einar hækk-
anir á póstburðargjöldum og
ýmsu sem snerti reksturinn
sjálfan og að einnig hafi ýmis
fríðindi innifalin í kortunum
hækkað í verði.
RAUNHÆKKUN fasteignatengdra
gjalda í Reykjavík frá árinu 1994
miðað við 10,7% hækkun byggingar-
vísitölu er 18,1% að meðaltali fyrir
108,2 fermetra íbúð í blokk, 22,9%
að meðaltali fyrir 150 fermetra rað-
hús og 9,8% að meðaltali fyrir 202,2
fermetra einbýlishús, samkvæmt
upplýsingum frá Húsatryggingum
Reykjavíkur.
Fasteignagjöld skiptast í fast-
eignatengd gjöld og brunatengd
gjöld. Fasteignatengd gjöld eru fast-
eignaskattur, lóðarleiga, tunnu- og
sorphirðugjald, vatnsgjald og
holræsagjald sem fyrst var lagt á
árið 1995. Brunatengd gjöld eru
brunabótaiðgjald, viðlagatrygginga-
gjald, umsýslugjald sem fyrst var
lagt á árið 1995 og forvarnargjald,
sem lagt er á í fyrsta sinn á þessu
ári og á að renna í ofanflóðasjóð.
Rétt er að taka fram að um síð-
ustu áramót urðu grundvailarbreyt-
ingar á álagningu vatnsgjalds. Miðað
var við rúmmál húsa en nú er miðað
við fast gjald á hveija íbúð eða 2.000
krónur + 78 krónur fyrir hvern fer-
metra. Breytingin hefur í för með
sér að vatnsgjald lækkar í húsnæði
þar sem hátt er til lofts en hækkar
með hveijum fermetra. f flárhagsá-
ætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið
1997 er gert ráð fyrir að tekjur
Vatnsveitunnar hækki milli ára um
rúm 11% og munar þar mestu um
vatnsgjaldið.
í krónum talið hafa fasteignagjöld
fyrir 108,2 fermetra blokkaríbúð
hækkað um 30,8% að meðaltali frá
árinu 1994. Fasteignagjöld fyrir 150
fermetra raðhús hafa hækkað um
36% að meðaltali og fasteignagjöld
fyrir 202,2 fermetra einbýlishús hafa
hækkað um 21,6% að meðaltali yfir
sama tímabil.
Fasteignagjöld: Blokkaríbúð, 108,2 ferm.
Fasteignagjöld ** í Reykjavík, samtals 1994 1995 1996 1997 Hækkun frá 1994
Kr. 45.103 55.713 56.347 58.981 18,1%*
Fasteignatengd gjöld:
Fasteignaskattur 28.190 27.980 28.152 28.451
Lóðarleiga 457 465 470 480
TunnuL/sorphirðugjald 1.170 1.170 1.287 1.287
Vatnsgjald 10.623 10.836 10.944 10.440
Holræsagjald - 9.969 10.031 10.137
Brunatengd gjöld:
Brunabótaiðgjald 1.501 1.528 1.577 1.673
Viðlagatryggingargjald 2.680 3.001 3.097 3.286
Brunavarnargjald 482 491 507 538
Umsýslugjald - 273 282 299
Forvarnagjald - - - 2.390
** Um meðaltalsgjöld í Reykjavík er að ræða * Raunhækkun miðað við byggingarvísitölu
Gýmismálið í Hæstarétti
Eigandi og dýra-
læknir dæmdir
Fasteignagjöld: Raðhús, 150,0 ferm.
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær eig-
anda reiðhestsins Gýmis og dýra-
lækni sem mat hestinn hæfan til
þátttöku í forkeppni Landsmóts
hestamanna á Gaddastaðaflötum
sumarið 1994 til að greiða íjársektir
fyrir brot á lögum um dýravernd.
í forkeppninni fór hesturinn úr
kjúkulið á vinstra framfæti með þeim
afleiðingum að nauðsynlegt þótti að
aflífa hann.
Héraðsdómur hafði dæmt hvorn
mannanna til að greiða 170 þús. kr.
sekt en Hæstiréttur dæmdi eiganda
hestsins til að greiða 170 þús. og
dýralækninn 120 þús. kr. Hafnað var
kröfu um að eigandi hestsins yrði
sviptur rétti til að hafa hesta.
í niðurstöðum Hæstaréttar segir
að með ákvörðun eiganda hestsins
um þátttöku dýrsins í forkeppni
mótsins og atbeina dýraklæknisins
að því hafi mennirnir orðið brotlegir
við lagaákvæði um dýravernd og
störf dýralækna en byggft er á því
að hesturinn hafi verið haltur í girð-'
ingu fáum stundum fyrir forkeppnina
og að dýralæknirinn hafi verið
kvaddur til að sinna honum.
Þá segir að fullsannað sé að hest-
urinn hafi verið sprautaður með stað-
deyfilyfinu lídókaíni skömmu fyrir
keppni og að eigandanum hafi hlotið
að vera kunnugt um það en ósannað
er talið að dýralæknirinn hafi staðið
að því að sprauta í fót hestsins.
Lagl hald á þýfi
LOGREGLAN lagði hald á ætlað
þýfi í húsi í Grafavogi í fyrradag,
sem talið er vera úr mörgum innbrot-
um, þar á meðal þijár tölvur og
ýmsa muni aðra.
Þýfið var flutt á lögreglustöðina í
Völvufelli. Sólarhring áður höfðu lög-
reglumenn þar handtekið nokkra ein-
staklinga og fengið í kjölfarið vitn-
eskju um hveijir höfðu staðið að inn-
brotum í Breiðholti seinustu vikur,
þar á meðal í íþróttahúsi Leiknis og
Fellaskóla, auk þess að bijóta rúður
í skólanum einnig.
Fasteignagjöld** 1994 1995 1996 1997 Hækkun frá 1994
í Reykjavík, samtals Kr. 51.770 65.104 64.583 I 70.411 22,9%*
Fasteignatengd gjöld:
Fasteignaskattur 34.817 34.918 34.391 34.733
Lóðarleiga 616 629 445 454
TunnuL/sorphirðugjald 1.000 1.000 1.100 1.100
Vatnsgjald 10.751 10.913 11.022 13.700
Holræsagjald - 12.441 12.254 12.375
Brunatengd gjöld:
Brunabótaiðgjald 1.476 1.502 1.550 1.645
Viðlagatryggingargjald 2.636 2.950 3.046 3.231
Brunavarnargjald 474 483 498 529
Umsýslugjald - 268 277 294
Forvarnagjald - - - 2.350
Fasteignagjöld: Einbýli, 202,2 ferm.
Fasteignagjöld** 1994 1995 1996 1997 Hækkun frá 1994
í Reykjavík, samtals Kr.81.828 103.139 96.039 99.489 9,8%*
Fasteignatengd gjöld:
Fasteignaskattur 54.953 55.454 50.962 49.716
Lóðarleiga 1.240 1.266 895 912
Tunnul./sorphirðugjald 2.000 2.000 2.200 2.200
Vatnsgjald 17.268 17.435 16.366 17.772
Holræsagjald - 19.758 18.158 17.714
Brunatengd gjöld:
Brunabótaiðgjald 2.049 2.086 2.153 2.284
Viðlagatryggingargjald 3.659 4.098 4.229 4.486
Brunavarnargjald 659 670 384 734
Umsýslugjald - 372 277 408
Forvarnagjald - - - 3.263
Þyngsti dómur í fíkniefnamáli hér á landi
Sex ára fangelsi fyrir
að smygla E-pillum
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær hollenskan mann
á þrítugsaldri, Lahouari Sadok, í 6 ára fangelsi
vegna innflutnings á 964 E-pillum og rúmum 58
grömmum af kókaíni. Þetta er þyngsti dómur sem
Hæstiréttur hefur kveðið upp í fíkniefnamáli en
þó vægari en dómur Héraðsdóms því þar hafði
maðurinn, auk 6 ára fangelsis, verið dæmdur til
greiðslu 2 milljóna króna sektar.
Maðurinn var handtekinn í Kópavogu eftir komu
til landsins þann 12. nóvember og fannst fyrr-
greint magn fíkniefna í myndramma í fórum hans.
Vafasamasti vímugjafinn
Maðurinn bar að hann hefði tekið að sér að
flytja myndina til landsins. Hann hefði vitað að
innihaldið væri ólöglegt en ekki hvað það væri.
í dómi Hæstaréttar segir að sannað sé að mað-
urinn hafi flutt þessi fíkniefni til Iandsins í því
skyni að koma þeim hér til sölu og dreifíngar.
Hæstiréttur vitnar til greinargerðar dr. Þorkels
Jóhannessonar, prófessors og yfírmanns Rann-
sóknastofu í lyfjafræði, þar sem segir að MDMA,
sem er hið efnafræðilega heiti á E eða ecstacy,
hafi flókna verkun og sé greinilega hættulegri
vímugjafi en bæði amfetamín og lýsergíð [LSD],
sér í lagi ef tekið sé tillit til bráðra og banvænna
eituráhrifa.
„Ef MDMA á eftir að breiðast út hér á landi,
er við búið að það leiði af sér fleiri bráð eitrunar-
tilfelli en þekkist eftir amfetamín og lýsergíð og
mörg dauðsföll að auki. Við þetta bætist að MDMA
getur valdið langvarandi truflunum í starfsemi
miðtaugakerfisins engu síður en amfetamín og
lýsergíð svo sem áður er nefnt. MDMA er sam-
kvæmt framansögðu einn vafasamasti, ef ekki
langvafasamasti vímugjafi, sem skotið hefur upp
kollinum á vímuefnamarkaði hér á landi,“ segir í
greinargerð prófessors Þorkels.
Hugvitsamlega pakkað inn í gjafapappír
Þá segir Hæstiréttur að við ákvörðun refsingar
beri að hafa í huga að með atferli sínu hafi maður-
inn stefnt að því að koma í dreifingu hér á landi
miklu magni hættulegra vímuefna. „Aðferðin við
innflutning efnanna bar vott um þaulskipulagt
brot, en þeim hafði hugvitsamlega verið komið
fyrir í myndramma, sem pakkaður var inn í gjafa-
pappír," segir Hæstiréttur og staðfesti ákvörðun
Héraðsdóms um 6 ára fangelsi en felldi niður
ákvörðun Héraðsóms um 2 m.kr. sektarrefsingu
þar sem umrædd efni komust ekki til dreifingar.