Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ DAIMSKI VINIMUMARKAÐURINN FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 15 EINN af mörgum kostum kerfis vinnustaðasamn- inga sem Danir hafa þróað er að í aðalatrið- um endurspegla kjarasamningar þau laun sem greidd eru á mark- aðinum. Fyrirtækin og trúnaðar- menn gera samninga um þau laun sem greidd eru í viðkomandi fyrir- tæki, en yfirborganir eru ekki tíðkaðar í þeim mæli sem er hér á landi. Ákvæði um viðbótarlaun í aðalkjarasamningi í Danmörku líkt og á íslandi tíðkast að greiða starfsmönnum viðbótarlaun ofan á umsamin laun. í aðalkjarasamningi er ákvæði þar sem beinlínis er vísað til þessa. Þar segir: „Samtökin eru sammála um að atvinnurekendur eigi eftir meginreglu að leggja kerfisbundið mat til grundvallar ákvörðun um launadreifingu, þannig að tekið sé tilskilið tillit til einstakra starfs- manna t.d. varðandi dugnað, reynslu, menntun og þátttöku í framleiðslunni, jafnframt því sem taka skai tillit til þeirra krafna sem starfið gerir til starfsmanna, þar með einnig sérstakra óþæginda sem eru tengd því að vinna starf- ið.“ Samkvæmt kjarasamningum hafa starfsmenn rétt á að óska eftir aðstoð trúnaðarmanna þegar þeir ræða við stjómanda fyrirtækis um viðbótarlaun sér til handa, en að sögn Dines Schmidt Nielsen, hagfræðings landssambands málmiðnaðarmanna, notfæra starfsmenn sér almennt ekki þenn- an rétt. Hann segir að launamunur milli manna á sama starfssviði sé u.þ.b. 25-30% þar sem hann sé mestur. Samkvæmt ákvæði að- alkjarasamnings CO-Industri og Dansk Industri geta fyrirtæki og trúnaðarmenn samið í vinnustaða- samningum um að trúnaðarmenn fái upplýsingar um laun hvers og eins starfsmanns. Uppbygging danska launa- kerfisins er þannig að það er til- tölulega gegnsætt öfugt við það sem tíðkast hér á landi. Hér er algengt að ofan á taxta sé bætt ýmiss konar viðbótargreiðslum, sem ekki eru hluti af lqarasamn- ingum. Kerfið er því tvöfalt, ann- ars vegar það sem stéttarfélögin semja um við samtök atvinnurek- enda og hins vegar það sem hver og einn starfsmaður semur um við sinn vinnuveitanda. Starfsmenn eiga ekki möguleika á að hafa áhrif á þessar viðbótargreiðslur á annan hátt en í gegnum einstakl- ingsbundnar viðræður við sinn vinnuveitanda. í Danmörku ná menn utan um stærstan hluta af öllum greiddum launum í vinnustaðasamningun- um. Þörfin fyrir að vera með tvö- falt kerfi er ekki fyrir hendi vegna þess að það er hagur bæði fyrir- tækisins og trúnaðarmannsins að semja um heildstætt kerfi á vinnu- staðnum. í Danmörku heyrist því ekki krafan um að færa taxta að greiddu kaupi vegna þess að í aðal- atriðum er greitt eftir þeim samn- ingum sem samið er um inni á vinnustöðunum. Lágmarkslaunin eru um 800 kr. á tímann í aðalkjarasamningi skuldbinda fyrirtækin sig hins vegar til að greiða laun ekki undir vissu lág- marki. í samningum Dansk Ind- ustri og CO-Industri er þetta lág- mark 73,05 kr. á tímann eða lið- lega 800 íslenskar krónur á tím- ann. Lágmarkslaun þeirra sem eru innan við 18 ára mega ekki vera lægri en 41,30 kr. á tímann. Lág- markslaun hækka upg í 74,80 kr. á tímann 1. mars nk. í lok síðasta árs voru meðallaun danskra málmiðnaðarmanna 117 kr. átím- ann. Nauðsynlegt er að hafa í huga að vinnuvikan er styttri í Dan- mörku en á íslandi og yfirvinna er miklu fátíðari þar en hér. í síðustu aðalkjarasamningum, Morgunblaðið/Egill SÍÐUSTU kjarasamningar í Danmörku byggðust á þeirri forsendu að kaupmáttur hækkaði árlega um 0,6%, Mikilvægt að launakerfið sé sveigjanlegt Framkvæmdastjórí samtaka iðnrekenda í Danmörku segir nauðsynlegt að það ríki sveigjanleiki á vinnumarkaðinum vegna þess að danskur iðnaður eigi í harðrí samkeppni á alþjóðlegum markaði. Aðalrítarí landssam- bands iðnfélaga telur að reynslan hafí kennt aðilum vinnumarkaðaríns að ekki sé hægt að fylgja miðstýrðrí launastefnu. í þessarí síðustu grein um danskan vinnumarkað lýs- ---- ^ ir Egill Olafsson helstu kostum danska kerfísins og fjallar um greiðslur sem eru umfram samningsbundin laun. sem undirritaðir voru 20. febrúar 1995 var gengið út frá þeirri forsendu að kaupmáttur launa hækkaði um 0,6% á ári. Þar fyrir utan var samið um sveigjanlegri vinnu- Stjórnum ekki breytingum í miðstýrðum samningum tíma og aukin fæðingarorlofsrétt- indi. Arlegur kostnaður atvinnu- rekenda við samninginn er því meiri en 0,6%. Á síðasta ári hækk- uðu laun málmiðnaðarmanna í Danmörku u.þ.b. 2,5%, en verð- bólga var um 2%. I þeim kjaraviðræðum sem nú eru að hefjast virðast lífeyrismál ætla að verða meginviðfangsefni, en fram hafa komið hugmyndir um að hækka lífeyrisaldur og auka möguleika fólks eldri en 60 ára til að 'vera í hlutastarfi. Dansk Industri og CO-Industri sömdu til þriggja ára árið 1995, en aðrir sömdu til ---------------------- tveggja ára. Niels Stefnt að Overgaard aðstoðar- o,6% kaup- framkvæmdastjón hjá V.. „„Jl Dansk Industri, segir að ma«arauKn þetta komi til með að valda erfiðleikum þegar þetta kerfi þannig að það ríkir all- gott jafnvægi milli hagsmunaaðila. Það ríkir ákveðið jafnvægi milli atvinnurekenda og launþega og einnig milli launþega innbyrðis t.d. milli launþega á almenna markað- inum og opinberra starfsmanna. Þetta jafnvægi byggist á trausti milli samningsaðila. Menn virðast almennt einsetja sér að leysa ágreiningsmál án verkfalla. Kerfið er sveigjanlegt og samningsaðilar hafa tiltölulega frjálsar hendur til að aðlaga það ólíkum aðstæðum. „Það er mikill sveigjanleiki í danska launakerfinu og það er afar mikilvægt. Danskur iðnaður á í harðri samkeppni á alþjóðlegum markaði. Við flytjum út meira en helming af allri okkar framleiðslu. Danska krónan er mjög tengd gengi þýska marksins og það er því ekki um það að ræða að fylgja sveigjanlegri gengis- skráningu. Þess vegna við að hafa vissan verðum sveigjanleika í launakerfinu," segir Hans Skov Christensen, fram- kvæmdastjóri Dansk Industri. Miðstýringu hafnað Ingu á ári Vemer Elgaard, aðalritari CO- Industri, landssamtaka iðnfélaga, telur einnig að sveigjanleiki sé einn af mikilvægum kostum danska kerfisins. Hann segir að aðilar vinnumarkaðarins, báðum megin borðsins, hafi komist að þeirri nið- urstöðu að það gangi ekki upp að reyna að stýra breytingum á vinnu- markaði í miðstýrðum samningum. ________ „í gegnum árin hefur sú staða komið upp að við höfum fallist á að takmarka launahækkan- ir í aðalkjarasamningi. Vinnuveitendur hafa hins vegar áttað sig á SAMKOMULAG náðist í síðustu samningum um að auka sveigj- anleika í vinnutíma starfsfólks. samið verði í vinnustaðasamning- um í vor. Sumir starfsmenn komi þá til með að vísa til launahækk- ana sem stéttarfélög þeirra hafa samið um en aðrir starfsmenn verða þá með óbreytta samninga. Jafnvægi, traust og sveigjanleiki Það sem einkennir danska vinnumarkaðinn er kannski eink- um þrennt, jafnvægi, traust og sveigjanleiki. Danir hafa þróað ar. því, og það sama má segja um okkur, að það er útilokað að stjóma launaþróuninni með slíkum hætti því þar með er verið að takmarka möguleika til nauðsynlegrar þró- unar á vinnumarkaðinum, svo það hefur orðið að samkomulagi að fella út úr samningum slík ákvæði. Þróun verður að eiga sér stað og til þess þurfa samningsaðilar að hafa svigrúm til að gera þær breyt- ingar sem þeir telja skynsamleg- segir Elgaard.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.