Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 20

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnu- lausir voru 750 færri en árið 1995 ATVINNULAUSUM fækkaði um nærri 750 manns að meðaltali í fyrra samanborið við árið 1995 sam- kvæmt skráningu vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins. Allt árið voru að meðaltali 5.790 manns atvinnulausir eða 4,3% af mannafla á vinnumarkaði en á árinu 1995 voru þeir 6.538 eða um 5%. Þegar eingöngu er litið á atvinnu- leysi í desembermánuði jafngildir það því að 5.818 manns hafí að meðaltali verið atvinnulausir í mán- uðinum, 2.542 karlar og 3.276 kon- ur. Þetta jafngildir 4,5% atvinnu- leysi, 3,4% hjá körlum og 5,9% hjá konum. Atvinnulausum fjölgar frá nóvembermánuði um 649, en sam- anborið við desembermánuð í fyrra fækkar atvinnulausum um 432. Síð- ustu ár hafa ekki verið jafnfáir at- vinnulausir í desember og nú og fjölgun atvinnulausra milli nóvem- ber og desember í fyrra er einnig verulega minni en hún hefur verið að meðaltali síðustu ár að því er fram kemur í frétt frá vinnumála- skrifstofunni. 1.206 atvinnuleyfi Segja má að atvinnuástand versni eitthvað á öllum landssvæð- um milli nóvember og desember, nema á Suðumesjum. Hlutfallslega eykst atvinnuleysið mest í desember á Austurlandi, en tölulega er fjölg- unin mest á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysi er alls staðar minna nú í desember en á sama tíma árið á undan nema á Vestfjörðum. Þá kemur fram að samtals voru veitt 1.206 atvinnuleyfí á síðasta ári og 33 laus störf voru skráð hjá vinnumiðlunum í lok ársins. Loks spáir vinnumálaskrifstofan því að atvinnuleysi aukist í janúarmánuði frá desembermánuði og verði á bil- inu 4,9-5,3%. VIÐSKIPTI Atvinnuleysi í okt., nóv. og des. 1996 Hlutfall atvinnulausra LANDS- BYGGÐIN m 3,2% 3,9» NORÐUR- LAND EYSTRA VEST- FIRÐIR HÖFUÐBORGAR- SVÆÐIS f\_,. SUÐURLAND af heildarvinnuafli Á höfuðborgarsvæðinu standa 3.726 atvinnulausir á bak við töluna 4,5% í desember og hafði fjölgað um 278 f þvi í nóvember. Alls voru 5.818 atvinnulausir á landinu öllu (4,3%) í desember og hafði fjölgað um 649 frá því ínóvember. AUSTUR LAND NORÐUR LAND VESTRA VESTURLAND LANDID ALLT O N D 1 SUÐURNES Frakkar lækka vexti Paris. Reuter. FRAKKLANDSBANKI hefur lækk- að vexti í 3,10% úr 3,15% og er ákvörðunin talin sýna áhrif tveggja nýiya manna í stjóm bankans. Ákvörðunin kemur flatt upp á hagfræðinga, sem hafa sagt að hækkandi gengi dollars hafi dregið úr líkum á vaxtalækkun. Fyrir nokkru voru Pierre Guillen og Jean-Rene Bernard skipaðir í níu manna bankaráð og við það er talið að breyting hafí orðið á valda- hlutföllum í ráðinu. Getum er leitt að því að breyting verði á gætilegri stefnu bankans og vaxtalækkanir geti orðið tíðar. Nýju mennirnir eru taldir hand- gengnir Jacques Chirac forseta og fylgjandi frjálslegri stefnu í pen- ingamálum. Þeir tóku við að ein- dregnum stuðningsmönnum Jean- Claude Trichet bankastjóra, sem er sagður harðlínumaður. Flugleiðir hf. hagnast um 400 milljónir á sölu Boeing 757 flugvélar Söluhagnaður véla samtals 1 'A milljarður á 2 árum FLUGLEIÐIR hf. hafa selt eina af Boeing 757-200 þotum sínum til bandaríska fjármálafyrirtækis- ins Heller Financial Inc. Þotan verður þó áfram í notkun hjá fé- laginu þar sem það hefur leigt hana af kaupandanum til næstu fímm ára. Áætlaður hagnaður Flugleiða af sölunni er 400 milljón- ir króna. Hagnaður félagsins af sölu þotna sl. tvö ár nemur hálfum öðrum milljarði króna. Átta Bo- eing þotur eru nú í millilandaflug- flota félagsins, þar af fímm leigu- vélar. Einar Sigurðsson, aðstoðarmað- ur forstjóra Flugleiða, segir að sala þotunnar sé liður í áætlunum félagsins um endumýjun flugflot- ans. Flugvélar í núverandi milli- landaflugflota voru keyptar nýjar til félagsins á árunum 1989-92. Það hafí fengið þær á góðu verði og fjármagnað kaupin með hag- stæðum lánum með það í huga að selja þær síðar með hagnaði. Þetta er fjórða þotan sem Flug- leiðir selja og leigja síðan aftur á rúmum tveimur árum. Fyrsta vélin var seld í desember 1994, önnur í janúar 1995 og hin þriðja, Boeing 757, í desember síðastliðnum. Seg- ir Einar að samtals hafi sala þess- ara fjögurra véla skilað félaginu tæplega 1,5 milljörðum króna í hagnað og eigið fé á tímabilinu. Átta þotur eru nú í millilanda- flugflota Flugleiða, fjórar Boeing 757-200 og fjórar 737-400. Félag- ið á þijár flugvélar sjálft, eina 757-200 og tvær 737-400, en leig- ir hinar fimm. Frá árinu 1989 hefur félagið því keypt sjö Boeing þotur en selt fjórar aftur. Áttundu Boeing vélina hefur félagið aldrei keypt heldur leigt frá upphafi. Aðspurður segir Einar að engar ákvarðanir hafí verið teknar um sölu á fleiri vélum enda sé talið rétt að viðhalda ákveðnu jafnvægi í flotanum milli leiguvéla og eignarvéla. „Með sölunni er félag- ið að innleysa dulda eign, sem það á í þessum þotum, en þær hafa hækkað verulega í verði síðan við keyptum þær. Eftir að leigusamn- ingur vélanna rennur út eftir 5-7 ár er líklegt að stefnt verði að því að kaupa nýjar vélar í þeirra stað.“ Nýjar vélar í smíðum Um næstu áramót fá Flugleiðir afhenta nýja Boeing 757-200 þotu frá Boeing verksmiðjunum í Se- attle í Bandaríkjunum og eiga kauprétt á annarri rúmu ári síðar. Frekari áætlanir um viðbótarvélar eru í undirbúningi að sögn Einars. Hann segir að vegna vaxandi umsvifa geri félagið ráð fyrir því að bæta flugvél við flotann annað hvert ár fram til ársins 2005. 9.900 I BJ-30 A4 bleksprautu- prentari 720 dpí / 3 bls. á mln. 30 blaöa arkamatarl Prentar m.a. á papplr og glærur enturum Nú er tækifærið á að næla sór í góðan bleksprautuprentara á stórlækkuðu varði á meðan birgðir endast. ■ Nýherjabúðin er opin laugardaga frá 10-14 ■Tölvukjör er opin laugardaga frá 10-16 ■ Umboðsmenn eru um land allt 24.S Canon BJC-70 A4 lita-blek- sprautuprentari 720 dpi 3 bls. á mín. Sjálfvirkur 30 blaða arkamatari Fyrlr alla almenna prentun úr DOS og Windnws á papplr □ g glærur 19.BÐ0, atVrWHir- BJC-BOOe A4 lita-bleksprautu- prentari á netkeríiö 72Q dpi / 3-4 bls. á mín. Sjálfvirkur 100 blaöa arkamatari. Fyrir alla almenna prentun úr D0S □ g Windows á pappír og glærur Skaftahlíö 24 • Sími 569 7700 http://www.nyhsrji.is BJC-4100 A4 lita-bleksprautuprentari 720 dpi / 4,5 bls. á mín. 100 blaöa sjálvirkur arkamatari Fyrir aila almenna prentun úr D0S ng Windows á pappír og glærur <33) NÝHERJI . Verðhruit á pr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.