Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 21

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FÖSTUDAGUR 31.JANÚAR1997 21 Mc2 x 4= Frá aðeins 399!!! ÚR VERIIMU Mikil hagræðing framundan hjá Básafelli hf. FYRIRTÆKIÐ Búlandstindur er á Djúpavogi. Þróunarsjóð- ursýknaður af kröfu Mata HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur sýknað Þróunarsjóð sjávarútvegs- ins af öllum kröfum Mata ehf. og tuttugu og tveggja tengdra aðila um forkaupsrétt að hlutabréfum sjóðs- ins í sjávarútvegsfyrirtækinu Bú- landstindi á Djúpavogi. Það þýðir að forkaupsréttarhafar að 70 millj- óna króna eignarhlut sjóðsins á genginu 1,15 verða 35 talsins og kemur því hlutafé að nafnvirði 2 milljónir króna í hlut hvers og eins. Gunnar Gíslason hjá Mata sagði að niðurstaða dómsins væri til skoðunar og engin ákvörðun hefði verið tekin um áfrýjun hans. Forsaga málsins er sú að Þróun- arsjóði ber að auglýsa eignarhluti sína í sjávarútvegsfyrirtækjum til sölu einu sinni á ári og berist tilboð í þá er skylt að gefa eigendum og starfsmönnum viðkomandi fyrir- tækja kost á að nýta sér forkaups- rétt að eignarhlutnum og skiptist eignarhluturinn jafnt á milli þeirra aðila sem nýta sér hann. Eignarhlutur Þróunarsjóðs í Bú- landstindi var auglýstur síðsumars í fyrra og barst eitt tilboð í eignar- hlutinn 26. ágúst frá ísfélaginu í Vestmannaeyjum á genginu 1,15. Var síðan leitað eftir upplýsingum hjá Búlandstindi um starfsmenn og eigendur og voru þeir fyrrnefndu 118 talsins og þeir síðarnefndu 40. Síðan sendi Þróunarsjóður þessum aðilum ábyrgðarbréf í byijun sept- ember þar sem þeim var boðinn for- kaupsréttur að hlutafénu og þeim gefinn frestur til 24. september að nýta sér hann. í framhaldinu gerðist það að hlutabréf í Búlandstindi hf. hækkuðu í verði í viðskiptum á Opna tilboðs- markaðnum og fór gengið yfir 2 á skömmum tíma. Mata hf. keypti hlutabréf í fyrirtækinu 20. septem- ber og tilkynnti það stjórn Búlands- tinds í bréfi dagsettu 23. september. Daginn eftir tilkynnti Mata að það hefði selt hlutafé sitt 22 aðilum að frátöldu hlutafé að upphæð 8 þúsund krónur. Krafist var forkaupsréttar að hlut í félaginu fyrir hönd þessara aðila, en Þróunarsjóður hafnaði því á þeirri forsendu að hlutabréfin hefðu verið keypt eftir að Þróunar- sjóður tók tilboði í fyrirtækið. í kjöl- farið var lagt lögbann á sölu hlutafj- árins og málið höfðað í framhaldinu til staðfestingar þess. í niðurstöðu dómsins segir að deilt sé um það í málinu hvort miða eigi forkaupsréttinn við þann tíma sem tekið var tilboði í félagið eða við það tímamark þegar frestur rann út til þess að neyta forkaupsréttar. Tímalengd frestsins sé ekki lögbund- inn heldur sé hann ákveðinn einhliða af Þróunarsjóði og eflaust við það miðað að rétthöfum gefist eðlilegt ráðrúm til þess að taka ákvörðun. Síðan segir : „Hlutabréfum í Bú- landstindi hf. fylgir ekki forkaups- réttur að hlutum í félaginu sam- kvæmt efni bréfanna sjálfra eða samþykktum félagsins. Um er að ræða lögákveðinn rétt sem sam- kvæmt 12. gr. laga nr. 92/1994 skapast eigendum og starfsfólki þeirra fyrirtækja sem stefndi á hlutafé í þegar hann tekur ákvörðuri um að selja hlutafé sitt sem honum er lögskylt að bjóða árlega til sölu. Með framsali hlutabréfanna einu sér þarf því ekki endilega að fylgja for- kaupsréttur heldur er tilurð hans undir ákvæðum 12. greinarinnar komin. Hvort hægt er að framselja hinn lögbundna rétt einan sér er annað mál sem hér þarf ekki að taka afstöðu til. Þótt hvorki sé það tekið fram í 12. greininni né um það getið í greinargerð með frumvarpi til lag- anna eða öðrum lögskýringargögn- um þá benda líkur til þess að fyrir löggjafanum hafi vakað að fá þeim eigendum og starfsfólki þess fyrir- tækis sem stefndi hafði eignast hlut í aukinn rétt öðrum fremur, þ.e.a.s. þann rétt sem fólginn er í forkaups- rétti eða hlutafé, og þá þeim sem áttu hlut í fyrirtækinu og störfuðu hjá því áður en forkaupsrétturinn varð virkur. Þykir því eðlilegt að skýra 12. greinina þannig að í henni sé við þennan hóp átt eins og hann var á þvi tímamarki að forkaups- rétturinn varð virkur en ekki þá sem verða hlutafjáreigendur á því tíma- bili sem stefndi hefur ákveðið í því skyni að gefa forkaupsréttarhöfum ráðrúm til þess að taka ákvörðun um það hvort þeir neyta réttarins eða ekki.“ ------»-»-4----- Halldór Guð- bjarnason end- urráðinn HALLDÓR Guðbjarnason var end- urráðinn bankastjóri Landsbanka íslands til næstu fimm ára frá 1. janúar 1997 að telja á fundi banka- ráðs Landsbankans í gær. Aðrir umsækjendur um starfið voru Astþór Magnússon Wium, framkvæmdastjóri, Sigurður Ingi Sigmarsson, járnsmíðameistari, og Margrét Þórðardóttir, húsmóðir. ------».♦""4---- Árétting ÓNÁKVÆMNI gætti í frétt um sölu verðbréfafyrirtækisins Handsals á skuldabréfum fyrir franskan banka í Morgunblaðinu í gær. Þar var sagt að Pálmi Sigmarsson væri fram- kvæmdastjóri Handsals, en rétt er að hann er framkvæmdastjóri verð- bréfasviðs Handsals. Þorsteinn Ólafs er framkvæmdastjóri Handsals. Bæði SH og ÍS selja afurðir fyrirtækisins BÁSAFELL hf. á ísafirði mun að lokinni sameiningu við Kamb hf. á Flateyri gera út 10 togara og báta og reka fískverkun á fjórum stöðum. Ljóst er að mikil endurskipulagning og hagræðing mun standa fyrir dyrum meðal annars breytingar á skipastól fyrirtækisins. Eins og er selur Básafell afurðir sínar gegnum að minnsta kosti nokkur sölufyrir- tæki, en olía og tryggingar verða keyptar af Olíuféiaginu, Trygging- amiðstöðinni og VÍS. Fyrirtækin sem mynda Básafell verða að lokinni þessari sameiningu Kambur á Flateyri, sem rekur botn- fiskverkun, frystingu og söltun, Sléttanes á Þingeyri, rækjuverk- smiðjan Ritur, rækjuverksmiðjan Básafell, Togaraútgerð ísafjarðar og Hraðfrystihúsið Norðurtanginn, sem vinnur botnfisk. Básafell gerir þá út Guðmund Péturs og Hafra- fell, Pál Jónsson, Gyili, Jónínu, Jó- hannes ívar og Styrmi og frystiskip- in Sléttanes, Skutul og Orra. Fimmta stærsta fyrirtækið Fyrir sameininguna keypti Norð- urtanginn olíu af Skeljungi, en nú er olía á Orrann keypt hjá Olíufélag- Heildarkvóti gæti orðið tæp 11.000 tonn innan land- helginnar inu. Olía á báta Kambs hefur verið keypt af Skeljungi, en verður eftir sameiningu keypt af Olíufélaginu. Öll fyrirtækin voru áður með trygg- ingar hjá VÍS og verður svo áfram, en VÍS og Olíufélagið eru stórir hluthafar í Básafelli. Með samein- ingunni við Kamb er Básafelli mest- ur fengur í kvóta fyrirtækisins, starfsfólki og einkum mikilli reynslu í saltfiskverkun, sem er lítil sem engin við Djúp. Auk þess verður við þessa sameiningu töluverð hagræð- ing í rekstri, hagkvæmari útgerð, minni stjórnunarkostur og betri við- skiptakjör. Heildarkvóti Básafells eftir sameininguna við Kamb verður um tæplega 11.000 þorskígildis tonn og er það þá fimmti stærsti kvótahandhafinn á landjnu. Stærri eru Samheiji, Grandi, ÚA og HB, en Síldarvinnslan er á svipuðu róli með um 10.800 tonn. Fyrir sameiningu fyrirtækjanna seldu Ritur og Norðurtanginn afurð- ir sínar gegnum SH og svo gerir Kambur einnig. Básafell og Slétta- nes létu ÍS um sölu afurða sinna og Marbakki seldi rækjuna af Skutli. Nú eru botnfiskafurðir seldar gegn- um SH en ÍS selur frystu rækjuna. Niðursoðin rækja er svo seld af ýmsum fyrirtækjum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er það stefna stjórnenda fyrirtækisins að skipa sölumálum sínum áfram með þessum hætti. Frekari áform um sameiningu við Djúp óljós Að lokinni þessari sameiningu eru úr sögunni fyrri áform um samein- ingu Kambs, Hraðfrystihúss Hnífs- dals, Bakka í Bolungarvík og Frosta, Súðavík. Óvíst er hver fram- vindan verður á næstunni, það er- hvort þessi þijú síðastnefndu fyrir- tæki hyggja á sameiningu. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru þar ýmis ljón í veginum. Sá möguleiki er einnig talinn fyrir hendi að Hraðfrystihúsið í Hnífsdal gangi til liðs við Básafell, enda inn- an sama sveitarfélags, en hin fyrir- tækin tvö eru í öðrum sveitarfélögun og kann það að torvelda sameiningu. „Netarallið“ boðið út H AFRANN SÓKNASTOFNUNIN hyggst bjóða út mælingar á hrygn- ingarstofni þorsks, svokallað neta- rall, en það fer nú fram í annað sinn. Netarallið fór fram í tilraunaskyni í fyrsta skipti í fyrra og var því ekki boðið út líkt og nú. Togararall- ið svokallaða hefur verið boðið út með líkum hætti síðustu ár. Ha- frannsóknastofnunin hefur því aug- lýst eftir netabátum til verksins. Áð sögn Jakobs Jakobssonar, for- stjóra Hafrannsóknastofnunar, verða í netarallinu lögð net á hrygn- ingarsvæðinu frá Breiðafirði og austur undir Hornafjörð. Netin verði lögð eftir ákveðnum reglum og á tilteknum stöðum í því skyni að fá samanburðarhæfa langtímamæl- ingu um fiskgengd á hrygning- arslóðinni. Starfsfólk stofnunarinn- ar verður um borð í bátunum og mun afli ganga upp í leigu skip- anna. Netarallið fer fram í október og munu fimm netabátar taka þátt í rallinu þetta árið, frá Breiðafirði, Faxaflóa, Þorlákshöfn, Vestmanna- eyjum og Hornafirði. Opnað verður fyrir tilboð 5. febrúar nk. 449 kr.!! [Venjulegt verð 589 kr. Sparið w 140 kr.)^ Mc2 STJORNUMALHÐ Mc2= Tvöfaldur McOstborgari: Tvcer safaríkar kjötsneiðar og tvœr þykkar ostsneiðar. Lítil: Mc2, lítill McFranskar, 0,25 1 gos - 449 kr. Mið: Mc2, miðstærð McFranskar og 0,4 1 gos - 549 kr. Stór: Mc2, stór McFranskar og 0,5 1 gos - 599 kr. Þú sparar a.m.k.lðO kr. frá listaverði. ENN MEIRJ SPARNAÐUR’ Fjölskyldu/hóptilboð: 4 máltíðir eða fleiri: Lítil Mc2 Stjörnumáltíð 399 kr. hver Mið Mc2 Stjörnumáltíð 499 kr. hver Stór Mc2 Stjörnumáltið 549 kr. hver Þið sparíð a.m.k. 720 kr. frá listaverdi /V\ |McDonajds AÐEINSISTUTTAN TIMA AusturstraNi 20 Suðurlandsbraut 56

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.