Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 23

Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 23 ERLENT Evróið má hvorki vera kantað né úr nikkel Brussel. Reuter. SÉRFRÆÐINGANEFND, sem undirbýr sláttu evró-myntar, sem notuð verður í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) frá og með árinu 2002, hefur orðið að endurskoða tillögur um lögun og málminni- hald evró-smápeninganna vegna athugasemda frá fjármálaráð- herrum aðildarríkja ESB. Athugasemdir ráðherranna tengjast hagsmunum og áhuga- málum einstakra ríkja. Sérfræðingarnir lögðu til að hálft evró yrði sjökantaður pen- ingur til þess að auðvelda blind- um að þekkja hann frá öðrum peningum. Þá kemur hins vegar upp úr kafinu að framleiðendur myntsjálfsala í sumum ríkjum, einkum Þýzkalandi, telja það munu reynast tæknilega örðugt að breyta sjálfsölunum þannig að þeir taki köntuðu peningana. I ýmsum öðrum aðildarríkjum ESB hafa kantaðir peningar hins vegar lengi verið í umferð, til dæmis í Bretlandi og á írlandi. EVRÓPA^ Þá hefur f’ármálaráðherra Svíþjóðar gert athugasemdir við málmblönduna í 10 og 20 senta peningunum. Sænskir heilbrigð- issérfræðingar munu hafa bent á að taka bæri tillit til fólks með nikkelofnæmi og minnka nikkel- magnið í peningunum. Sérfræð- inganefnd ESB hafði hins vegar viljað hafa nikkelmagnið svipað og í flestum smápeningum, sem nú eru í umferð, til þess að auð- velda endurvinnslu evró-myntar. Reuter TANSU Ciller heilsar de Charette frá Frakklandi, Dini frá Ítalíu, Kinkel frá Þýzkalandi og Rifkind frá Bretlandi. Ciller hótar að hindra stækkun NATO Tyrkjum sett skilyrði um frið Róm, Washington. Reuter. TANSU Ciller, utanríkisráðherra Tyrklands, lét að því liggja á fundi með utanríkisráðherrum fimm stærstu ríkja Evrópusambandsins í Róm í fyrradag að Tyrkir myndu hindra stækkun Atlantshafsbanda- lagsins (NATO) til austurs, yrði þeim ekki lofað aðild að ESB. Ráðherrarn- ir svöruðu því til að Tyrkland ætti fullan rétt á aðild að sambandinu, en tyrknesk stjórnvöld yrðu fyrst að tryggja mannréttindi, leysa vanda- mál kúrdneska minnihlutans, semja við Grikki um skiptingu Eyjahafsins og stuðla að lausn Kýpurdeilunnar. Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands, Þýzkalands, Spánar og Ítalíu hvöttu mjög til þess á fundin- um í Róm að Tyrkir hölluðu sér áfram að Evrópu, fremur en að múslimaríkjunum í Asíu. Ekki hægt að stækka NATO án leyfis Tyrklands Herve de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði að Tyrkland sagði að engar „hindranir í grund- vallaratriðum" væru fyrir ESB-aðild Tyrklands í framtíðinni, en að áður- nefnd óleyst vandamál „hefðu að sjálfsögðu í för með sér erfiðleika á leið Tyrklands tii mögulegrar aðild- ar.“ ESB hefur sett ríkjum Austur- og Mið-Evrópu, sem sótt hafa um aðild að sambandinu, svipuð skilyrði. Áður en fundurinn hófst sagði Ciller að farið væri með Tyrkland sem annars flokks ríki í samskiptum við Evrópusambandið. Hún sagði að ekki væri hægt að líta á stækkun NATO og ESB-aðild Tyrklands sem aðskilin mál. „Hvernig haldið þið að hægt sé að stækka NATO án leyfis Tyrklands?" spurði hún. Eftir fundinn með utanríkisráð- herrunum sagði Ciller hins vegar að viðræður þeirra hefðu sýnt sér fram á að Tyrkland yrði ekki útilokað frá aðild í framtíðinni. Stærri aðildarríki ESB eru tekin að þreytast á afstöðu Grikkja, sem hafa reynt að spilla samskiptum sam- bandsins við Tyrki. Sagði Malcolm Rifkind, utanríkisráðherra Bretlands, að núverandi tengsl Tyrklands við sambandið væru „ófullnægjandi". Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins gaf í gær í skyn að Bandaríkjamönnum hefðu þótt tals- menn ESB setja Tyrkjum of ströng skilyrði á fundinum í Róm. „Þegar allt er tekið með í reikninginn hafa Bandaríkin sterk rök fram að færa fyrir því að Tyrkland eigi að taka fyllri þátt í Evrópusamrunanum, þrátt fyrir þá staðreynd að mann- réttindin eru vandamál," sagði tals- maðurinn, Nicholas Burns. Toyota vill EMU- aðild Bretlands London, Tókýó. Reuter. HIROSHI Okuda, stjórnarformaður japönsku bílaverksmiðjanna Toyt- ota, hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bretlandi, ekki sízt innan íhalds- flokksins, með ummælum sínum um að gangi Bretland ekki í Efnahags- og myntbandalag Evrópu (EMU) árið 1999, kunni Toyota að íhuga að færa fjárfestingar sínar til megin- landsins. Okuda sendi í gær frá sér yfírlýs- ingu til „skýringar“ á ummælum sínum. Hann tekur þar fram að frek- ari fjárfesting í Bretlandi sé einn af mörgum kostum, sem fyrirtækið hafi til athugunar. Framtíðarfjár- festingar í Evrópu séu í skoðun og ekkert hafí verið ákveðið. Hins veg- ar ítrekar stjórnarformaðurinn þá skoðun sína að aðild ríkja að EMU sé einn þáttur, sem Toyota muni taka tillit til við staðarval nýrra verk- smiðja. Fyrir fyrirtæki, sem starfi í Evrópu, muni sameiginlegur gjaldm- iðill draga úr gengisáhættu og verða ótvíræður kostur. Sérfræðingar í Tókýó segja að með ummælum sínum hafi Okuda ýtt óþyrmilega við brezkum stjóm- völdum og opnað augu þeirra fyrir því að japönsk stórfyrirtæki hafi áhyggjur af núverandi stefnu stjórn- ar Ihaldsflokksins, sem er að „bíða og sjá“ í EMU-málinu. Um 40% af fjárfestingum japanskra fyrirtækja í Evrópu er í Bretlandi. Toyota er ekki fyrsta japanska fyrirtækið, sem varar Breta við að standa utan EMU. Svipaðar yfírlýs- ingar hafa komið frá Nissan. Michael Heseltine, aðstoðarfor- sætisráðherra Bretlands, sagði í út- varpsviðtali í gær að írafárið vegna ummæla Okudas væri stormur í vatnsglasi. Heseltine varði stjórnar- stefnuna og sagði að útskýringar stjórnarformannsins sýndu að ekki væri ástæða til að óttast að japansk- ir fjárfestar sneru baki við Bretlandi. Ándstæðingar Evrópusambands- ins í íhaldsflokknum sökuðu Okuda aftur á móti um að blanda sér með óviðurkvæmilegum hætti í baráttuna fyrir komandi þingkosningar. JUHGIiE sfeðnur. •. eru, ÁíBiaatr sflir WÝJAR GERÐIR iggy'y nú frá S3IQEEQ Stærðir 35-45 Litir: Svart - blátt - hvítt - grænt - rauð'brúnt Útsalan er í fullum gangi DESTROY skór frá 1.500 DESTROY stígvél frá 1.500 Laugavegi, skódeild s. 511 1727 Kringlunnl, s. 568 9017 NOATUN Veisla fyrir lítið! MEÐAN BIRGÐIR ENDAST! 4 NÓATÚNS HAMBORGARAR m/brauði 250. Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld NOATUN NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.