Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 25
Blaðaljós-
myndir í
Gerðar-
safni
AFMÆLISSÝNINGU Blaða-
mannafélagsins og Blaðaljós-
myndarafélagsins á bestu
fréttamyndum nýliðins ár og
úrvali fréttamynda liðinna ára
og áratuga lýkur nú á sunnu-
dag í Gerðarsafni í Kópavogi.
Sýningin hefur verið vel sótt
og hlotið góða dóma.
Sýningin er opin frá kl.
13-18.
PÉTUR Eggerz í hlut-
verki Skarphéðins.
Búkolla baul-
ar aftur í
Möguleikhús-
inu
MÖGULEIKHÚSIÐ er nú að
hefja að nýju sýningar á
barnaleikritinu Einstök upp-
götvun og verður sýning að
þessu sinni á sunnudag 2. febr-
úar kl. 14 í Möguleikhúsinu
við Hlemm.
Einstök uppgötvun er samin
í samvinnu leikhópsins sem
einnig hefur hjálpast að við
gerð leikmyndar og búninga.
Leikstjóri er Alda Arnardóttir,
en leikarar þeir Bjarni Ing-
varsson og Pétur Eggerz.
Hvað er á
seyði í Leik-
brúðulandi?
LEIKBRÚÐULAND frum-
sýndi í nóvember sl. þrjá ein-
þáttunga er nefnast Hvað er
á seyði?. Nú eru sýningar að
hefjast á ný á Fríkirkjuvegi
11 og verða þær á sunnudög-
um fram á vorið.
Handrit, brúður og leiktjöld
eru eftir meðlimi Leikbrúðu-
lands, Bryndísi Gunnarsdótt-
ur, Ernu Guðmundsdóttur og
Helgu Steffensen. Leikstjóri
er Ole Bruun-Rasmussen.
Sýningar hefjast kl. 15.
Miðasala hefst kl. 13. Miða-
verð er 500 kr. fyrir börn og
700 kr. fyrir fullorðna. Sýn-
ingin tekur um eina klukku-
stund.
„7797“ í List-
húsi 39
BERGSTEINN Ásbjömsson
opnar sýningu sem hann nefnir
„7797“ í Listhúsi 39, Strand-
götu 39 í Hafnarfirði, sunnu-
daginn 2. febrúar kl. 14.
Bergsteinn er fæddur í Hafn-
arfirði 1954, en frá árunum
1977 hefur hann verið búsettur
í Svíþjóð. Árið 1987 hóf hann
listnám í Svíþjóð sem hann
stundaði í fjögur ár.
Sýningin verður opin alla
virka daga frá kl. 10-18, laug-
ardaga frá kl. 12-18 og sunnu-
daga frá kl. 14-18. Sýningunni
lýkur 16. febrúar.
Tími bókamarkaðanna kominn
Valdar bækur af
gömlum lagerum í
bland við nýrri
BÓKAMARKAÐUR Máls og menn-
ingar hófst í gær og Eymundsson
opnar bóka- og tímaritamarkað í dag.
Árni Einarsson hjá Máli og menn-
ingu sagði að bækumar á markaði
Máis og menningar-búðanna væm
valdar bækur af gömlum lagerum
forlaganna. Bækurnar væru frá
mörgum útgefendum, bæði stórum
og smáum, eða öllum helstu útgef-
endum. Yngstu bækurnar væra frá
1994 og í þeim efnum væri farið
eftir reynslu og því sem mætti kalla
skynsamlegt. Bækur frá árinu 1994
sem kostuðu 2.800 kr. lækka í 998
kr. Eldri bækur eru margar seldar á
um 400 kr., barnabækur era frá
200-500 kr.
Forlagsverslunum hefur fækkað
að sögn Árna, hann segir að fáar
slíkar séu eftir og forlögin sendi á
aðra markaði. Þetta hefur að mati
hans breyst með tilkomu stórra bóka-
verslana.
Sem dæmi um gott verð á mörgum
bókum á markaði Máls og menning-
ar nefndi Árni Einarsson bækur frá
Háskólaútgáfunni og Vísindafélag-
inu og sagði að það væra bækur sem
fáir hefðu séð vegna takmarkaðrar
dreifíngar, þær kostuðu frá 490 kr.-
790 kr. Margar bækur lægju í
geymslum og kæmu á markaði einu
sinni á ári. Mikið hefði verið verslað,
markaðir bókaverslana hefðu rólegra
yfirbragð en stórmarkaður útgef-
enda og áhersla væri á bitastæð verk.
Ólafur Sveinsson hjá Eymundsson
sagði að markaður Eymundsson-
verslananna hæfist í dag, bæði í
Austurstræti og verslununum í
Kringlunni. Markaðurinn væri bland-
aður, íslenskar bækur, erlendar bæk-
ur og tímarit. Alltaf væri hægt að
gera góð kaup á slíkum mörkuðum.
Aðsókn hefði verið ágæt á und-
anförnum áram og áhugi mikill. Fólk
væri farið að hringja strax upp úr
áramótum og spyija um markaði
verslananna.
Hjá Eymundsson eru yngstu bæk-
urnar frá liðnu ári. Afsláttur er allt
að 85% og geta verið nýlegar bækur
þar á meðal.
Að sögn Vilborgar Harðardóttur
hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda
verður árlegur markaður félagsins
26. febrúar tii 9. mars. Markaðurinn
verður í Perlunni eins og í fyrra,
enda gaf hann góða raun. Vilborg
segir að því hafí verið beint til félags-
manna að setja ekki bækur á aðra
markaði, utan bókaverslana, fyrr en
eftir markaðinn í Perlunni. Bækur á
markaði bókaútgefenda eru ekki
yngri en tveggja ára, þó með ein-
hveijum undantekningum. „Verð-
stríðið hefur haft áhrif og ruglað
myndina," segir Vilborg. Reynt er
að halda mörkuðum Félags íslenskra
bókaútgefenda í hefðbundnum
skorðum. Ekki er leitað einungis eft-
ir þátttöku félagsbundinna bókaút-
gefenda heldur fá 200-300 manns
bréf og er takmarkið að markaðurinn
verði sem fjölbreyttastur.
Jónas spilar Schubert
SCHUBERT tónleikar verða í Digraneskirkju í Kópavogi föstu-
dagskvöldið 31. janúar kl. 20.30, enþá eru liðin 200 ár frá fæð-
ingu Franz Schuberts.
Jónas Ingimundarson, píanóleikari leikur eftirfarandi verk hans;
Ellefu valsa, op. 18a D145, Þijú tónaljóð, op. posth. D946, og
Sónötu í B-dúr op. posth. D960.
Skólasýning með völdum
verkum eftir Sigurjón
SETT hefur verið upp
í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar sérstök
skólasýning með völd-
um verkum eftir Sig-
uijón. Spanna þau
tímabilið 1938-1982
og eru unnin í ólík
efni svo sem gifs,
brons, við og stein.
í safninu gefur
einnig að líta sýningu
um Vejlemyndir Sig-
uijóns, en sem kunn-
ugt er vann lista-
maðurinn tvær stórar,
Sigurjón árið 1944.
táknrænar högg-
myndir úr steini fyrir
Ráðhústorgið í Vejle á
Jótlandi.
Fastur opnunartími
safnsins yfir vetrar-
tímann er laugardaga
og sunnudaga frá kl.
14 til 17. Tekið verður
á móti hópum utan
opnunartímans og
geta kennarar pantað
tíma á skrifstofutíma
safnsins.
B I L L Y
BOKA
Færanlegar hillur, nógu sterkar til að bera
þungar bækur án þess að svigna.
Bættu við Glerhurðum úr hertu gleri fyrir
öryggið og til að verja bækurnar fyrir ryki.
Bættu við topphillu og þær ná alveg uppí loft.
Bættu við aukahillum undir fleiri bækur.
K E A G Æ Ð ! A F R A S Æ R U V E R Ð
Billy bókaskápar fást í fimm
mismunandi litum og fjórum stærðum,
einnig er hægt að bæta við glerhurðum. Allt eftir þínu höfði
Það er engin tilviljun að ótal ánægðir
viðskiptavinir Ikea hafa valið Billy bóka-
skápana. Þeir eru