Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 29

Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 29 1989 með sögu um lítinn rússnesk- an strák að nafni Kolya, sem mamma hans hefur skilið eftir hjá öldruðum sellóleikara. Það er þeirra að læra á lífið saman, sam- tímis því að Rússar eru að yfirgefa landið. Lítið ber á nýjum myndum frá Póllandi að sinni en eftir Andrzej Kondratiuk verður sýnd „Wrzeci- ono Czasu“ eða jólinu snúið, sem var á Reykjavíkurhátíðinni og heimspekileg árstíðamynd hans frá 1984. Hvar endar Evrópa? er spurning sem kann að virðast ágeng í fleiri en einni merkingu. Hún kemur fram í viðfangsefnum eins og leit að uppruna, þar sem leiðin áfram liggur gegnum fortíð. „Few of us“, nefnist nánast orð- laus mynd frá Litháen eftir Shar- unas Bartas. „Við erum sára fá/ fjandakomið sára fá/ en skelfileg- ast er að við erum skilin að“. Þann- ig hljóma ljóðlínur sem leikstjórinn segir leiða sig. Aðalpersónan, ung kona, ferðast inn í eyðilegt fjalla- landslag sunnarlega í Síberíu, inn í fámenni og hreindýrahjarðir. Finnur eldri mann sem hún hefur bersýnilega mælt sér mót við. En hvers vegna? Hvað drífur hana áfram? „Kavkazki Plennik“ (Fangi fjall- anna), nefnist mynd eftir Sergej Bodrov, líklega skærustu leikstjó- rastjörnuna í rússneskri kvik- myndagerð sem stendur. í Tsjetsj- níu tekur gamall maður tvo rúss- neska hermenn til fanga í von um að geta skipt á þeim og syni sínum sem er fangi á valdi Rússa. En fátt reynist fyrirsjáanlegt og ýms- ar tilfinningar stangast á við skyldurækni. Myndin er sögð vera í senn nútíma athugasemd og tíma- laust siðfræðidrama. Loks má nefna að eftir georg- íska snillinginn Otar Iosseliani kemur myndin „Brigands" (Chap- itere VIII.) sem er framleidd í sam- vinnu milli Rússlands, Frakklands, Ítalíu og Sviss. . . . ogaðnorðan Danir njóta athygli í ár og koma með 22 myndir, bæði nýjar og eldri. Meðal þeirra er „Pusher" eftir Nicolas Winding Refn (And- ersson). Þá ber að nefna að 10 sænskar myndir frá í ár verða frumsýndar á hátíðinni. íslensku myndirnar sem verða á ferðinni hafa þegar verið nefndar í fréttum. Frá Finnlandi kemur m.a. verð- launamyndin „Synti“ eða Synd, sem er stutt heimildarmynd eftir Susana Helke og Virpi Suutari. Og Per-Ove Högnás kemur „En fest för framtiden“ sem er heimild- armynd um bændur á Álandseyj- um. Leikstjórinn og framleiðand- inn Mika Kaurismaki lætur sig hvergi vanta, en mun virkur á tveggja daga umræðufundi Evr- ópsku kvikmyndaakademíunnar (EFA) þar sem annar framleiðandi (t.d. „The Crying Game“), formað- urinn Nik Powell, er væntanlegur í aðalhlutverk. Frá Noregi kemur m.a. myndin „Sondagsengler" eftir Berit Nesheim. Hún gerist upp úr öldinni miðri og greinir frá ferm- ingarstúlkunni Maríu, prestsdóttur sem leyfir sér að efast um Guð og Jesú og lætur reyna á þolrif föður síns, sem lítið botnar í uppreisn dótturinnar, og frúarinnar sem er honum undirgefín. Hátíðin mun standa yfir til 9. febrúar og að venju verða einnig á boðstólum margar myndir frá öðrum heimsálfum. Frá bandarísk- um kvikmyndagerðarmönnum má telja á annan tug mynda. En sögu- legt er að hálf tylft mynda verður frá Suður-Kóreu. Áhugafólki um kvikmyndir sem á leið um borgina meðan á hátíð- inni stendur er vísað á upplýs- ingamiðstöð og miðasölu í kvik- myndahúsinu „Draken" við Járn- torgið. Áhorfendum er ætlað nokk- uð meira rými í ár en verið hefur, en hátíðin fer fram í tíu kvik- myndahúsum og er gengt á milli flestra þeirra á innan við 25 mínút- um og góðum skóm. Aenne Langhorst sýnir í Undir pari NU stendur yfír sýning Aenne Langhorst, í Undir pari Smiðjustíg 3. Aenne segir sjálf um sýninguna: „Ljótleiki breytist í fegurð. Fegurð í ljót- Ieika. Mér líkar andstæður og mótsagnir hvernig sem þær birtast. Ég skoða þær og at- huga hvernig ég get nýtt mér þær. Ég kýs að nota ljósrit í þessum verkum. í þeim eru andstæður, þau eru ódýr, svarthvít og mögulegt er að gera eitt eða mörg á afar stutt- um tíma.“ Aenne er fædd í Bremen 1965. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum í Þýskalandi og víðar auk þess að hafa haldið einkasýningar. Hún hefur um tíma rekið gall- erí í Hannover ásamt þremur öðrum. Sýningin stendur til 15. febrúar. Undir pari er opið fimmtudaga til laugardaga kl. 20-23. Fjögnr stór myndverk HOLLENDINGURINN Joris Rademaker opnar sýningu í neðri sölum Nýlistasafnsins Vatnsstíg 3b, laugardaginn 1. febrúar kl. 16 með gerningi. Á sýningunni eru fjögur stór myndverk unnin með bland- aðri tækni. Megináherslan í verkunum er lögð á hreyfíngu . og rými. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson hefur umsjón með sýningu sem er í efri sölum safnsins og ber sýningin heitið: „súm salur: ÉG pallur: ÍMYNDAÐIR VINIR". Sýningarnar eru opnar dag- lega nema á mánudögum frá kl. 14-18 og þeim lýkur 16. febrúar. Sýningar í Sýnirými ÞRJÁR nýjar sýningar á veg- um galleríkeðjunnar Gallerí Sýnirými verða opnaðar laug- ardaginn 1. febrúar. Þóroddur Bjarnason setur upp sýningu í Sýniboxi við Vatnsstíg 3. í gallerí Barm sýnir Sigríður Ólafsdóttir og mun Edda Andrésdóttir fjöl- miðlakona bera galleríið í febr- úar. Surprís ber hlustir í sím- svaragalleríinu Hlust. Nýjasta útibú galleríkeðjunnar, galleri Tré, opnar sínar sýningar á amerískum hátíðisdögum en ekki íslenskum löngum laugar- dögum eins og hjá eldri útibú- unum. Þann 20. janúar sl. var Martin Luther King dagurinn vestra og opnaði þá sýning Margrétar Blöndal í galleríi Tré í New York. Sýning í Gall- erí Fold framlengd ÁKVEÐIÐ hefur verið að framlengja um viku sýningu á nokkrum af síðustu verkum Hrings heitins Jóhannessonar, sem undanfarið hefur staðið yfír í Galleríi Fold við Rauðar- árstíg. Gallerí Fold er opið daglega frá kl. 10-18 nema laugardaga frá kl. 10-17 og sunnudaga frá kl. 14-17. Gallerí Gúlpt tveggja ára 1 dag Listin færð nær fólkinu FARAND- og fjölstaðagalleríið, Gallerí Gúlp!, er tveggja ára í dag. Galleríið er einstakt vegna smæðar sinnar og efnis, því það er í raun bara pappakassi. Fyrir vikið er það að líkindum einstakt í sinni röð hér á landi og jafnvel þótt víðar væri leitað. Vikulega opna nýjar sýningar í Galleríi Gúlp! og stendur hver sýning jafnan eina kvöldstund. Hver listamaður velur galleríinu stað og stund til sýningarhalds og hafa öldurhús borgarinnar oftast orðið fyrir valinu en einnig hafa til dæmis verslanir, kaffistofur vinnustaða og heimahús verið notuð til sýningarhalds. Hlín Gylfadóttir og Særún Stefánsdóttir, nemar í Myndlista- og handíðaskóla Islands, sem reka Galieri Gúlp!, segja að þeg- ar hafi á annað hundrað lista- menn nýtt sér þessa sýningarað- stöðu en samkvæmt grundvallar- reglu Gúlp! getur hver sem er látið ljós sitt skina í galleríinu. Þá taka þær ekkert gjald af lista- mönnunum. „Á þennan hátt höf- um við komið á fót einu öflug- asta og virkasta galleríi á landinu ef ekki í öllum hinum vestræna heimi, þar sem nýrri sýningu er flaggað í hverri viku með opnun- arhátíð og fjölda gesta í hvert einasta skipti." Stöllurnar segja að Gallerí Gúlp! sé byggt á gamalli hug- mynd en fjölmörg ferðagallerí hafi verið starfrækt á íslandi í gegnum tíðina. Ekkert þeirra hafi á hinn bóginn skotið rótum. „Við höfum endurlífgað þessa hugmynd með okkar hætti en markmiðið er fyrst og fremst að auðga menningarflóruna og færa listina nær fólkinu í landinu - í orðsins fyllstu merkingu." Borist um víðan völl Segja þær listamenn hafa tekið Galleríi Gúlp! gríðarlega vel enda hafi þeir óvenju mikið frelsi á þessum vettvangi. Núorðið sé það meira að segja ekki lengur skilyrði að sýna í kassanum. „Eina kvöðin er sú að við viljum fá myndir frá sýningunum.“ Hef- ur kassinn góði líka borist um víðan völl, meðal annars til París- ar, New York og Lundúna. Þá mátti norskur myndlistarmaður, sem sýndi í galleriinu á dögun- um, vart mæla af hrifningu í þakkarbréfi til Særúnar og Hlín- ar. Mikilvægur fylgihlutur Gall- erís Gúlp! er, að sögn aðstand- endanna, gestabók sem inniheld- ur upplýsingar og meiyar um allar sýningar Gúlp! sem haldnar hafa verið til þessa. „Bókin fjall- aði upphaflega um tölvur en er löngu úrelt sem slík núna. Hún hefur hins vegar fengið nýtt hlut- verk og mun nú aldrei úreldast Bæjarhrauni 14 Hafnarfirói 565 3900 Morgunblaðið/Kristinn HLÍN Gylfadóttir og Særún Stefánsdóttir við hönnun afmælis- spilsins Documenta Gúlp II. HLYNUR Hallsson efndi til samsýningar í Galleríi Gúlp! á liðnu ári og fær fyrir vikið afhentan verðlaunavettling „fyrir fyrir- myndarstörf í þágu listarinnar og Gallerís Gúlp!“ á afmælishátíð- inni í febrúar. því að í bókina skrá listamennirn- ir sjálfir upplýsingar um sýning- ar sínar og gestir kvitta fyrir komuna eins og gengur. Þessi bók er bæði stór og stórmerkileg fyrir þær sakir að í henni er að finna ómetanlegan fjársjóð kom- andi menningarkynslóða, svo sem skrásettar upplýsingar um oft og tíðum fyrstu einkasýning- ar komandi listjöfra Islands.“ Særún og Hlín eru innilega sannfærðar um að framtak þeirra sé ekki einvörðungu at- hyglisvert heldur jafnframt lofs- vert. Hafa þær því ritað forseta íslands, Ólafi Ragnari Gríms- syni, bréf, þar sem þær óska eft- ir því að fá fálkaorðuna fyrir „þá öflugu og skemmtilegu lista- stefnu sem við höfum haft að leiðarljósi undanfarin 2 ár“. Bréfinu hefur enn sem komið er ekki verið svarað en stöllurnar eru að prjóna fána í anda Gall- erís Gúlp! sem þær hyggjast af- henda forsetanum „þegar fálka- orðunni verður veitt viðtaka". Til að minnast tímamótanna, tveggja ára afmælisins, munu Særún og Hlín efna til afmælis- hátíðar í nýja nemendagalleríinu í Þingholtsstræti 6 um miðjan febrúar. Verður þar sitthvað á seyði, svo sem siður er á hátíð- um, og glænýtt spil, Documenta Gúlp! II, sem stöllurnar hafa hannað, meðal annars spilað í fyrsta sinn. Er það unnið út frá sýningum ársins 1996 í galleríinu og verður framleitt í fimmtíu eintökum. ENN MEIRI L Æ K K U N Á SÓFUM ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR TILBOÐSDÖGUM LÝKUR Á LAUGARDAG OPIÐ FÖSTUDAG KL. 10.00-18.00 & LAUGARDAG KL. 10.00-14.00 MÖRKINNI 3 SÍMI: 588 0640

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.