Morgunblaðið - 31.01.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 37
AÐSEIMDAR GREINAR
Hnattreisa
Heims-
klúbbsins
HJÁ Heimsklúbbi
Ingólfs er stór áfangi
framundan. Á vegum
hans verður á næsta
hausti efnt til stærstu
og veglegustu heims-
reisu, sem íslending-
um hefur boðist til
þessa, ferð kringum
hnöttinn á 33 dögum
með heimsókn á
marga fegurstu og
frægustu staði heims-
ins. Einungis verður
flogið með flugfélög-
um, sem eru orðlögð
fyrir öryggi og góða
þjónustu, mest með
British Airways og
ástralska flugfélaginu
flestum flugleiðum
Ingólfur
Guðbrandsson
Qantas, á
með nýjum
Boeing-vélum af gerðinni 744.
Suður-Afríka
Fyrst verður farið til Suður-Afr-
íku, sem þykir svo fögur og fjöl-
breytt að hún er kölluð „heill heim-
Einn aðalviðburður
ferðarínnar verður að
koma til Tahiti á
Suður-Kyrrahafseyjum,
segir Ingólfur Guð-
brandsson, en þangað
hefur enginn hópur
íslendinga komið áður,
svo að vitað sé.
ur í einu landi“. Þar er farin hin
fræga „blómaleið" eftir suður-
ströndinni milli Port Elizabeth og
Cape Town, en það þykir ein feg-
ursta ökuleið heimsins, og borgin
Höfðaborg undir Borðfjallinu ein
sú fallegasta á byggðu bóli. Þar
verður dvalist nokkra daga og far-
ið á hina frægu vínbúgarða héraðs-
ins og suður á Góðrarvonarhöfða.
Eftir vikudvöl í þessu gósenlandi
er flogið þvert yfir Indlandshafið
til Ástralíu.
Þvert yfir Ástralíu
I Ástralíu er fyrst stansað í
Perth á vesturströndinni, og er það
fyrsta heimsókn ís-
lensks hóps á þær
slóðir svo að vitað sé,
en þær þykja að nátt-
úrufari og mannlífi
mjög sérstakar, eins
og margt annað í
Ástralíu. Þar gefst
einnig kostur á að
hitta íslendinga, sem
numið hafa land í
Perth og nágrenni.
Ástralía, „Down und-
er,“ er heimur út af
fyrir sig, álfan sem
byggðist síðast af
hvítum mönnum og
er þó sú elsta í nátt-
úrufræðilegum skiln-
ingi.
Eftir dvölina í Perth er haldið
til Sydney, en þó gefst kostur á
að stansa í miðju landi og líta hinn
fræga rauða klett, Ayers Rock, á
leiðinni þangað, en sá klettur þyk-
ir einstakt náttúrufyrirbæri. Sydn-
ey er stærsta borg Ástralíu og
byggðist fyrst á klettunum fyrir
ofan höfnina, þar sem nú stendur
ein frægasta bygging nútímans,
Sydney-óperan, hugverk danska
arkitektsins Jöms Utzon, sem
margfaldaði kostnaðaráætlun
verksins og var rekinn áður en
verkinu lauk. Sydney þykir ein líf-
legasta borg heimsins og hefur
sinn eigin stíl. Eftir fimm daga
dvöl þar og heimsókn á fræga staði
í grenndinni er ferðinni haldið
NATTURUFEGURÐ á Tahiti þykir einstök.
áfram til Nýja Sjálands, sem á
ýmislegt sameiginlegt með íslandi,
þótt það sé alveg andspænis á
hnettinum. Dvalist verður í Auck-
land á norðureynni og farið í kynn-
isferð til Rotorua að sjá bæði þjóð-
lífið hjá innfæddum, maórum,
hverasvæðin og búskaparhætti.
Einnig gefst kostur á heimsókn til
Christchurch á suðureynni. Nýja
Sjáland þykir með fegurstu löndum
heimsins, og íslendingar, sem hafa
kynnst því, hafa tekið við það
miklu ástfóstri.
Franska Pólónesía
Einn aðalviðburður ferðarinnar
verður koman til Tahiti á Suður-
Kyrrahafseyjum,^ en þangað hefur
enginn hópur Islendinga komið
áður, svo að vitað sé. Við komuna
þangað bæta þátttakendur við ein-
um degi í líf sitt, þegar þeir fara
yfir daglínuna og endurtaka dag-
inn 20. nóvember. Tahiti þykir ein
mesta náttúruperla jarðarinnar.
Líf íbúanna og þjóðhættir er al-
gjört ævintýri fyrir Vesturlandabú-
ann, líkt og önnur tilvera á mörk-
um draums og veruleika, hin sanna
náttúrustemmning í paradís þessa
heims. Þannig skynjaði franski list-
málarinn Gauguin þessa tilveru og
gerði ódauðlega í list sinni. Þarna
verður dvalist fjóra daga á einum
frægasta gististað heimsins í Pape-
ete og farið í vettvangskönnun
þaðan og til nærliggjandi eyja.
Suður Ameríka - skemmti-
legasta heimsálfan
Eftir þessa ævintýradvöl á Ta-
hiti er flogið áfram yfir Kyrrahafið
með viðkomu á Páskaeyju og lent
í höfuðborg Chile, Santiago. Eftir
að hafa kynnt sér borgarlífið þar,
er flogið áfram til höfuðborgar
Argentínu, Buenos Aires, og gist
þar í þijár nætur á frægu hóteli.
Þaðan er farið í heimsókn út á
hinar rómuðu sléttur, Pampas, að
sjá eitt mesta landbúnaðarsvæði
heimsins og mannlífið þar.
Skemmtanalífið í Buenos Aires á
vart sinn líka, og tangóinn er enn
í fullu fjöri. Síðan liggur leiðin um
Iguazu að sjá tilkomumestu fossa
heimsins, áður en haldið er til Rio
de Janeiro í Brasilíu. Þar verður
dvalist í ferðalok við frægustu
baðströnd heimsins, Copacabana,
síðustu íjóra daga ferðarinnar og
haldið heim þaðan um London, en
hægt verður að framlengja ferðina
ef óskað er.
Kostnaði stillt í hóf
Gistikostnaður í hnattreisunni
verður í lágmarki, en víðast er gist
á fjögurra stjörnu hótelum með
morgunverði inniföldum. Vandinn
við að skipuleggja ferð sem þessa
er fyrst og fremst háður góðum
viðskiptasamböndum um heim all-
an og staðþekkingu. Auk íslenskra
fararstjóra verða alls staðar sér-
fróðir staðkunnugir leiðsögumenn.
Til að auðvelda sem flestum að
láta drauminn um hnattreisu ræt-
ast, verður boðið upp á afborgun-
arskilmála, sem verða nánar
kynntir síðar, en eins og venjulega
verður staðgreiðsluverð lægst.
Ferðin hefst hinn 1. nóvember
næstkomandi og er þriðjungur
sæta þegar seldur, áður en ferðin
er auglýst.
Höfundur er forstjóri
Heimsklúbbs Ingólfs.
79000
DÆMI
Aður 129.000 kr. stgr. (sjá mynd)
Tæknival
Reykjavíkurvegi 64
220 Hafnarfirði
Sími 550 4020
Netfang:
fjordur@taeknival.is
Skeifunni 17
108 Reykjavík
Sími 550 4000
Netfang:
mottaka@taeknival.is
VERÐ FRA KR