Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 45

Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 45 I I I ► I ) 'f I I I i 5 | i 5 3 1 J FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ Rima Apóteki í Grafarvogi. Mynd um leitarhunda ekki á vegum sveitarinnar MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Björg- unarhundasveit Islands: „Að gefnu tilefni vill stjórn Björgunarhundasveitar íslands koma á framfæri að mynd um leit- arhunda sem sýnd var í sjónvarpinu þann 26. janúar sl. er ekki á vegum sveitarinnar. Björgunarhundasveit- in hefur engan fjárhagslegan ávinning af gerð myndarinnar. Björgunarhundasveit íslands hefur staðið fyrir þjálfun og úttekt á snjóflóðaleitarhundum síðastliðin 16 ár, í náinni samvinnu við Norsk redningshund i Noregi. Meginuppi- staðan í þessari þjálfun er árlegt sjö daga námskeið með dagskrá frá kl. 8 á morgnana til kl. 22 á kvöld- in. Á morgnana og kvöldin eru fyrirlestrar, en verkleg þjálfun yfir daginn. Vikunni lýkur svo með út- tekt þar sem hundur og maður eru prófaðir sem teymi og geta þá náð ýmist C, B eða A gráðu. Fyrirlesar- ar á námskeiðunum hafa m.a. ver- ið frá Almannavörnum ríkisins, Landhelgisgæsluna og Björgunar- skóla Landsbjargar og SVFÍ auk þeirra erlendu leiðbeinenda sem fengnir hafa verið til að aðstoða við hvert námskeið og fjöldamargra annara sem leitað hefur verið til. Björgunarhundasveitin hefur alla tíð starfað í samvinnu við Almanna- varnir ríkisins, Landhelgisgæsluna og Björgunarskóla Landsbjargar og SVFÍ. Næsta námskeið sveitarinnar verður haldið dagana 7.-14. mars nk. Leiðbeinendur verða, auk ís- lenskra, frá Noregi." Nýtt apótek í Grafarvogi OPNAÐ hefur verið nýtt apó- tek, Rima Apótek, í Rimahverfi í Grafarvogi. Apótekið er í nýrri verslunarmiðstöð að Langarima 21-23 sem opnuð var í desem- ber sl. Opnunartími apóteksins er frá 9-19 mánudaga til föstu- daga og á laugardögum er opið frákl. 10-14. Veittur er 10% afsláttur til öryrkja og ellilífeyrisþega. Starfsmenn eru þrír, Kristín G. Guðmundsdóttir, lyfsali, Jóna Björk Elmarsdóttir, lyfjafræð- ingur og Kristín Sveinsdóttir, lyfjatæknir. -----♦.♦.♦---- Tónlistar- dagskrá á Gauk á Stöng Á VEITINGAHÚSINU Gauki á Stöng leika ýmsar hljómsveitir alla daga vikunnar. A föstudags- og laugardags- kvöld leikur hljómsveitiin Zalka með blöndu af britt-poppi og popp- rokki. Sunnudags- og mánudags- kvöld leikur síðan ný hljómsveit sem kallar sig Vestanhafs og gít- arleikaran Björgvin Gíslason í broddi fylkingar. Á efnisskrá hljómsveitarinnar er blús-rokk. Á miðvikudags- og fimmtudagskvöld leikur síðan hljómsveitin Sixties. -----♦ ♦ ♦---- LEIÐRÉTT Sænsk en ekki norsk þýðing ÞÝÐINGIN á bók Kristmanns Guðmundssonar, Gyðjan og uxinn, sem sagt var frá á miðvikudag er ekki norsk heldur sænsk og heitir Gudinnan och tjuren. Fyrir tveim- ur árum kom hins vegar út norsk þýðing á annarri bók Kristmanns sem hét Livet i og fer sig. Beðist er velvirðingar á þessum mistök- um. Ðextrórr-etorfan 3 mg/mt Dexomet mm Ammóníuni klóríö, difonhýdiamin Oxeladín: Notkunarsviö: Oxeladín er hóstastillandi mixtúra og er mýkjandi viö ertingu í öndunarfærum. Frábendingar: Gæta þarf varúðar við notkun hóstamixtúra hjá litlum börnum, því mikilvægt er að þau geti hóstað upp slími og óhreinindum sem kunna að setjast í öndunarfæri. Aukaverkanir: Ekki þekktar. Athugiö: Lyfið inniheldur 7,9% alkóhól. Dexómet: Eiginleikar: Lyfið hefur hóstastillandi verkun í líkingu við kódein, en hefur ekki aðrar verkanir kódeins og engin ávanahætta fylgir notkun þess. Notkunarsvið: Dexómet er hóstamixtúra, sem hefur áhrif á hósta sem stafar af minni háttar ertingu i hálsi eða berkjum. Varúöarreglur: Um 3% einstaklinga geta ekki umbrotið lyfið ( lifur og geta þeir fengiö verulegar aukaverkanir af venjulegum skömmtum. Lyfið skal ekki nota lengur en í viku í senn. Aukaverkanir: Einstaka sinnum geta komið fram útbrot. Einnig ógleði og uppköst. Að auki hefur verið vart við þreytu, svima, ofskynjanir og hjartslátt. Pektólín: Notkunarsviö: Pektólín er hóstastillandi mixtúra og verkar á ofnæmi. Aukaverkanir: Athugið aö lyfið hefur róandi verkun. Því ber að vara við stjórnun vélknúinna tækja samtímis notkun lyfsins. Tússól: Notkunarsvið: Tússól er hóstastillandi mixtúra. Aukaverkanir: Við ofskömmtun geta komið uppköst og truflun á jónavægi líkamans. Athugiö: Lyfiö inniheldur 7,5% alkóhól. Skömmtun: Nákvæmar leiöbeiningar um skömmtun fylgja lyfjunum. Ekki má taka stærri skammta en mælt er meö. Lesiö vandlega leiöbeiningar, sem fylgja lyfjunum. Fást ( apótekum og lyfjabúðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.