Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 46

Morgunblaðið - 31.01.1997, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ -----;---h J/E7A, þA, STI6ÐUA, Hokgrjnp JHiorigittialblteíiiíi BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reyhjavík • Sími 5691100 • Simbréf 5691329 • Netfang: lauga@mbl.is Fatlaðir íþrótta- menn fá ekki nægi- lega viðurkenningu Vegna bréfs Hauks Gunnarssonar Frá Ólafi Sigurgeirssyni: HEILL og sæll Haukur, í Morgunblaðinu 29. janúar skrifar þú opið bréf til íþrótta- fréttamanna vegna lqors íþrótta- manns ársins. Ástæða skrifa þinna er að þér finnst fatlaðir íþrótta- menn ekki fá nægilega viðurkenn- ingu í kjöri „íþróttamanns ársins" hveiju sinni. í grein þinni rekur þú afrek þinna manna, sem alþjóð eru kunnug. Ég rita bréf þetta málstað þín- um til stuðnings. Ég hef æft og keppt í kraftlyftingum í 29 ár og oft hefur sú íþrótt átt samleið með fötluðum og hvorir stutt aðra. Eins og íþróttir fatlaðra hafa kraftlyft- ingar og aflraunir verið homrekur hjá íþróttafréttamönnum. Má sem dæmi nefna, að yfírlýst stefna íþróttadeildar DV er að skrifa ekk- ert um kraftlyftingar, nema nei- kvæðir hlutir séu í boði, þá liggja þeir ekki á liði sínu. Varðandi kjör íþróttamanns ársins vil ég nefna að Guðni Siguijónsson varð heims- meistari 1991 og hversu mörg stig fékk hann í kjöri það árið? Er þetta þó alheimsíþrótt og tæplega 80 þjóðir aðilar að alþjóðasam- bandi og hjá öllum þjóðum heims, að ég tel, eru iðkendur. Þá vil ég benda þér á að okkar fremsti íþróttamaður í dag, Magnús Ver Magnússon, fær aldrei stig í þessu kjöri, þrátt fyrir að hann sé fjórum sinnum búinn að vinna titilinn Sterkasti maður heims. Af þáttum þeim sem nú er verið að sýna í Ríkissjónvarpinu sést hversu gíf- urlega sterkt það mót er orðið. Hver beljakinn og berserkurinn eftir annan verður að lúta í lægra haldi fyrir íslendingum. Magnús er þó frá þjóð með einungis 260.000 íbúum. Nei, Haukur minn, bölvaðu bara í hljóði eins og við. Þetta er bara svona og við breytum þessu ekki nema vinna markvisst að því að koma okkar mönnum í stóla íþróttafréttamanna, eins og bolta- mennimir hafa gert. ÓLAFUR SIGURGEIRSSON, lögfræðingur. Velkomin í strætó - Hafnfirðingar þó í stígvélum Frá Sigurgeiri Þórarinssyni: ÉG SEM notandi Almennings- vagna vil benda á það ófremdar- ástand sem ríkt hefur á skiptistöð Almenningsvagna við Flatahraun í Hafnarfírði ca. síðustu tvö árin. Skiptistöðin var færð úr miðbæ Hafnarfjarðar fyrir um tveimur árum, en þar er mjög góð aðstaða fyrir skiptistöð. Planið í miðbæn- um er malbikað með stæðum fyrir 6 vagna og hellulögðum svæðum með skýlum fyrir farþega á milli. Aðstaðan sem almenningsvagn- ar bjóða Hafnfírðingum upp á í dag er forarplan sem fyllist af vatni ef rignir þannig að farþegar þurfa að vaða for og bleytu upp í ökkla. Þar að auki er planið óupp- lýst þannig að farþegar geta illa séð hvar eru pollar og hvar eru eyjar til að stíga á er þeir koma út í myrkrið úr vel upplýstu vögnun- um. íslendingar tala enn í dag um og fyrirgefa Dönum það seint að Einokunarverslun Dana seldi þeim maðkað mjög á öldum áður. Nú er árið 1997 og í dag veitir einokunarfyrirtækið Almennings- vagnar þá þjónustu að allir Hafn- fírðingar sem þurfa að skipta um vagn á skiptistöðinni vaði for og bleytu upp í ökkla án þess að nokk- ur umræða fari fram um þetta. Ég hef ítrekað haft samband við Almenningsvagna út af þessu máli og þar á meðal rætt við fram- kvæmdastjóra þeirra, en engin við- unandi svör fengið. Hann má þó eiga það að hann viðurkenndi að hann gæti hvorki né vildi veija þá aðstöðu sem boðið væri upp á skiptistöðinni í Hafnarfírði og taldi málið hjá bæjarstjóm Hafnarfjarð- ar. Það er ósk mín og einlæg von að blað þitt sjái sér fært að fjalla um þetta mál á síðum sínum í þeirri von að menn sjái að sér og veiti þá þjónsutu sem slíku fyrir- tæki sæmi. Að öðrum kosti sé ég ekki annað en þeir verði að breyta slagorði sínu úr „Velkomin í strætó" í „Velkomin í strætó - Hafnfirðingar þó í stígvélum". SIGURGEIR ÞÓRARINSSON, Austurgötu 23, Hafnarfírði. Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt 1 upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.