Morgunblaðið - 31.01.1997, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ KR. 400
iLe flclöoS
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
„Eitt fremsta meistaraverk kvikmyndasögunnar"
Brenda Blethyn fékk Golden Globe verðlaun fvrir besta
v leik í aðalhlutverki
T H E
HTH DÆ
DAGSLJOS
i»i©n
Daniel
Vuteui
Pascal
uquenne
Sýnd kl. 6 og 9. MIÐAVERÐ KR. 600
Hrikaleg sprenging hefur lokað göngunum sem tengja
Manhattan og New Jersey. Hópur fólks er lokaður inni og
yfirvöld standa ráðþrota. Hit Latura (Stallone) finnur leið til
að komast inn gegnum ræstingakerfi ganganna.
Framundan eru ótrúlegar hættur og tíminn er naumur því
göngin eru að falla saman og Kit þarf finna einhverja leið út
úr göngunum og koma fólkinu aftur út í dagsljósið.
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Amy Brenneman, (Heat),
Viggo Mortensen (Crimson Tide), Dan Hedaya (Usual
Suspectes). Leikstjóri: Rob Cohen (Dragonheart, Dragon).
Attundi dagurinn fjallar um vináttu tveggja
manna sem hittast fyrir tilviljunog lenda í
ótrúlegu ævintýrum á ferð um Frakkland.
Daniel Auteuil og Pascal Duquenne deildu með
sér verðlaununum á kvikmyndahátíðinni í
Cannes fyrir besta leik í karlhlutverki. Myndin er
framlag Belga til Óskarsverðlaunanna.
Leikstjóri Jaco van Dormel (Toto le Hero).
ATH. breyttan sýningartíma.
Sýnd kl. 6 og 9.
MIÐAVERÐ KR. 600. B.l. 16 ÁRA.
DENNIS QUAID SEAN CONNERY
1 )R\(,e\i !i \iu
Sýnd kl. 5 og 7. B. i. 12
HAMSUN
Ciliita ,\orh\ Ma\ von S\ do\\
Sýnd kl. 9.
Kyntákn
► NÝLEGA gáfu norskir skíða-
kappar út dagatal í fjáröflunar-
skyni og vakti það mikla athygli
í Noregi. Ástæðan var sú að á
myndunum sem prýddu dagatal-
ið voru þeir ekki að renna sér í
sakleysi sínu niður skíðabrekkur
á skíðum
heldur voru þeir hálfberir með
þóttafullan daðursvip. Skíða-
mennirnir sem hér sjást úr daga-
talinu eru frá vinstri: Atle Skaar-
dal, Trine Bakke, Kjetil Andre
Aamot, Marianne Kjoerstad og
Ole Christian Furuseth.
Harmonikuball veröur haldiö í kvöld
31. janúar í Lionsheimilinu Lundi,
Auðbrekku 25, Kópavogi.
Allur dgóöi rennur til líknarmóla.
Húsiö opnaö kl. 21.
Lionsklúbburinn Muninn.
Þroskaðri
en James
Dean
JOHNNY Depp hefur tekist vel að
sneiða hjá hefðbundnum yfirborðs-
legum hlutverkum í bandarískum
stórmyndum og hafa upp á hlutverk-
um sem bjóða upp á dýpri og sér-
stæðari persónusköpun. Nægir þar
að nefna myndir á borð við Cry-
Baby, Edward Scissorhands, What’s
Eating Gilbert Grape, Arizona
Dream, Ed Wood, Don Juan De-
Marco, Nick of Time og Dead Man.
Nýjasta mynd Depps virðist vera
engu síðri. Hún nefnist Donnie
Brasco og er næsta mynd sem Mike
Newell leikstýrir á
eftir Fjórum brúð-
kaupum og jarðar-
för. „Ég var heil-
mikið með hinum
raunverulega
Donnie Brasco, Joe
Pistone. Brasco
var dulnefni," seg-
ir Depp.
„Hann hafði
áhugaverðan
hrynjandi í rödd-
inni sem ég reyndi
að ná eins vel og
„Stráklingurinn
er góður Ieikari,"
segir mafíósinn
Pistone um
Johnny Depp.
mér var mögulegt. Ég lagði mikið á
mig til að gera honum góð skil.“
„Hann lék hlutverkið af tilfinn-
ingu,“ segir Pistone, sem fylgdist með
tökum. „Ekki margir koma auga á
þá hlið á mér. Þetta var ótrúlegt -
ótal sinnum þegar tökur stóðu yfír
lokaði ég augunum og sagði: „Hver
skollinn, þetta er ég sem er að tala.“.
Stráklingurinn er góður leikari."
Ekki aðeins mafíósinn Pistone
lætur vel af Depp. „Jimmy Dean var
besti vinur minn,“ segir Martin Land-
au, sem lék á móti Depp í Ed Wood
og var tilefndur til Óskarsverðlauna.
„Þótt ekki sé auðvelt að bera unga
Íeikara saman við James Dean þekki
ég engan sem stendur honum nær
en Johnny . . . Þeir nálgast hlutverk
sín með svipaðri fágun. En Jim var
mistækari. Hann var ekki eins þrosk-
aður og Johnny.“
Nýtt í kvikmyndahúsunum
WHITNEY Houston og Denzel Washington í hlutverkum sínum.
Sambíóin sýna mynd-
ina Kona klerksins
BÍÓHÖLLIN og KRINGLUBÍÓ
hafa hafið sýningar á kvikmyndinni
Kona klerksins eða „The Preacher’s
Wife“ sem er endurgerð á myndinn-
in „The Bishop’s Wife“ sem gerð
var árið 1947 þar sem stórleikar-
arnir Cary Grant, Loretta Young
og David Niven fóru með aðalhlut-
verkið. Leikstjóri er Penny Marhall.
Whitney Houston leikur Juliu
Biggs, eiginkonu prestsins Henry
Biggs (Courtney B. Vance) sem er
góður maður en efast um hæfileika
sína til að geta bjargað heimili sínu
og hinu erfiða hverfi þar sem söfn-
uður hans er. Hjálpin er ekki langt
undan því hún birtist í formi engils
sem heitir Dudley (Denzel Washing-
ton) en spurningin er hvort hann
sé svarið við bænum Henrys.
I fréttatilkynningu frá Sambíó-
unum segir: „Leikararnir í mynd-
inni eru ekki af verri endanum.
Denzel Washington fer með hlut-
verk engilsins. Hann fékk Óskars-
verðlaun sem besti leikari í aðalhlut-
verki fyrir kvikmyndina Glory. Aðr-
ar myndir sem Denzel hefur leikið
í eru Courage Under Fire, Malcolm
X, Mo Better Blues, Philadelpia o.fl.
Whitney Houston er flestum
kunn en þá aðallega fyrir ótrúlegan
söng sinn sem fær heldur betur að
njóta sín í myndinni þar sem hún
syngur mikið með gospelkórnum.
Hún sló í gegn í kvikmyndinni „The
Bodyguard" þar sem hún lék ásamt
Kevin Costner, kvikmynd sem sló
aðsóknarmet um heim allan. Önnur
kvikmynd Whitney var „Waiting
To Exhale" sem gerði það gifurlega
gott vestanhafs.
Þess má til gamans geta að tón-
listin úr þessum þremur kvikmynd-
um Whitney Houston hefur öll sleg-
ið í gegn.“