Morgunblaðið - 31.01.1997, Qupperneq 60
Jtem&t
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍM 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Trúfélag
múslima
á Islandi
TRÚFÉLAG múslima verður
líklega stofnað hérlendis á allra
næstu vikum, að sögn Hjalta
Zophaníassonar, skrifstofu-
stjóra í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu.
íslenskir múslimar lögðu
nýlega umsókn þessa efnis til
ráðuneytisins, en talið er að
fylgjendur islam hér á landi séu
um 100 talsins, m.a. frá Norð-
ur-Afríku, Miðausturlöndum
og fyrrum Júgóslavíu.
„Við höfum óskað eftir ítar-
legri upplýsingum er varða
kennisetningar þeirra sem hér
dvelja, til dæmis hvort þeir til-
heyri trúarhópi shíta eða
sunnía. Þegar það skýrist ætti
ekkert að vera til fyrirstöðu
lengur," sagði Hjalti í samtali
við Morgunblaðið.
Skráð trúfélög á Islandi eru
átján talsins, að sögn Hjalta,
en leyfin hafa miðast við að
fylgjendur séu 50 eða fleiri.
■ Múslimar/B4
Tillögui- ÁTVR
Lækkun á
bjór og létt-
um vínum
í TILLÖGUM stjórnar Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins, sem eru
hluti af framtíðarsýn stjórnar fyrir-
tækisins, er gert ráð fyrir verðlækk-
un á léttum vínum og bjór, allt að
10%, fjölgun vínbúða og að rekstur
þeirra verði boðinn út.
Stjórn ÁTVR vill að afgreiðslu-
tími verði lengdur og gert er ráð
fyrir því að áfengisverslanir verði í
nálægð við matvöruverslanir og
jafnvel sem sérstakar verslanir inn-
an þeirra.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra segir að tillögur stjórnarinnar
séu í þeim anda sem hann vilji starfa
eftir en málið hefur ekki verið rætt
innan ríkisstjórnarinnar. Fjármála-
ráðherra hefur falið stjórn ÁTVR
að undirbúa gerð frumvarpa til
nauðsynlegra breytinga á lögum.
■ Rekstur/6
-----» ♦ ♦-----
íslenska álfélagið hf.
70 ný störf
ÍSLENSKA álfélagið hf. hefur aug-
lýst eftir starfsfólki til að sinna sér-
hæfðum störfum í steypuskála, ker-
skáium og skautasmiðju, en vegna
stækkunar álversins þarf að fjölga
starfsmönnum þess um rúmlega 70,
að sögn Rannveigar Rist, forstjóra
ÍSAL.
Rannveig sagði í samtali við
Morgunblaðið að flest störfin væru
verkamannastörf og koma konur
jafnt sem karlar til greina í störfin.
„Við réðum fólk í fyrra til að
undirbúa okkur og nýta síðasta sum-
ar, en það er ekki útséð um það hve
margt af því kemur til starfa aftur.
Það gætu því orðið um 40 manns
sem við þurfum að ráða núna,“ sagði
Rannveig.
Hafís fyrir
Vestfjörðum
Siglingaleiðin fyrir Horn lokuð
HAFÍS er orðinn landfastur frá
Rit að Horni. Að sögn Þórs Jak-
obssonar veðurfræðings má búast
við því, miðað við veðurspár, að
ís verði landfastur a.m.k. fram í
næstu viku. Þetta ástand hefur
þegar valdið skipafélögunum
vandræðum og mikilvæg f iskimið
eru farin undir ís.
Flugvél Landhelgisgæzlunnar
TF-S YN fór í gær í ískönnun-
arflug. Kom þá í ljós að hafísinn
var landfastur frá Rit að Horni.
Þá var ís um 10 sjómílur norðaust-
ur af Geirólfsgnúp og 10 sjómílur
norðvestur af Kolbeinsey. Þétt-
leiki íssins var víðast hvar 9/ío.
Siglingaleiðin fyrir Horn er al-
veg ófær, að sögn Þórs Jakobsson-
ar. Voru skip sitt hvorum megin
við ísspöngina í gær og komust
hvergi. Sagði Þór að skipafélögin
hefðu verið í sambandi við Veður-
stofuna í gær og Ijóst væri að ein-
hver flutningaskip yrðu að sigla
hringinn í kringum landið til að
komast á áfangastað. Þá eru mik-
ilvæg rækjumið norður af landinu
komin undir ís, t.d. nálægt mið-
línunni við Grænland.
, Morgunblaðið/Tómas Helgason
HAFIS er orðinn landfastur frá Rit að Horni. Myndin var tekin í ískönnunarflugi í gær og sýnir flutningaskipið Svaninn sigla í ísnum.
Samkomulag um sérmál fiskverkafólks
Kauptrygging fæst
eftir 4 mánaða starf
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Nýir tómatar á markað
ÍSLENSKIR tómatar koma
óvenju snemma á markað þetta
árið. Guðjón Birgisson og Helga
Karlsdóttir, garðyrkjubændur að
Melum á Flúðum, sendu fyr-stu
sendinguna af nýjum tómötum á
markað í Reykjavík sl. föstudag
og er það meira en tveimur vik-
um fyrr en í fyrra. Raflýsing í
gróðurhúsum gerir þetta kleift,
en á síðasta ári keyptu garð-
yrkjubændur raforku fyrir um
55 milljónir króna. Nú eru rækt-
aðir tómata í gróðurhúsum við
raflýsingu í 1.800 fermetrum og
lýstar gúrkur í 4.200 fermetrum.
Á myndinni er Helga að tína
saman fyrstu tómatauppskeruna.
BÚIÐ er að ganga frá nær öllum sérmálum fiskvinnslufólks í samningum
Verkamannasambandsins og vinnuveitenda. Samkomulag liggur fyrir um
kauptryggingu, orlofsmál, starfsmenntamál og bætt réttindi erlends fisk-
verkafólks. Þá er hafin vinna fyrir alvöru við breytingar á launalið samninga.
Gengið var frá samkomulagi um
breytingar á kauptryggingarsamn-
ingi fiskverkafólks í gær. Samkomu-
lagið var lagt inn hjá ríkissáttasemj-
ara síðdegis en verður ekki undirritað
strax. Að sögn Aðalsteins Baldurs-
sonar, formanns fiskvinnsludeildar
Verkamannasambandsins, er um að
ræða stórt mál fyrir fiskvinnslufólk
og því væri hann ánægður með þenn-
an áfanga.
Að sögn Arnars Sigurmundssonar
formanns Samtaka fiskvinnslustöðva
hefur samkomulagið um kauptrygg-
inguna einhver útgjöld í för með sér
fyrir fiskvinnsluna.
Tveggja vikna
rekstrarstöðvun
í samkomulaginu felst m.a. að fisk-
vinnslufólk fær kauptryggingu eftir
4 mánaða starf í stað 9 mánaða eins
og nú er, en kauptrygging tryggir
fólki laun þótt fiskvinnsluhús loki
vegna hráefnisskorts. Þá er í sam-
komulaginu hert á ýmsum réttinda-
málum fólks á kauptryggingu og loks
er skilgreint, að langvarandi rekstrar-
stöðvun fiskvinnsluhúsa þurfi að hafa
staðið í a.m.k. tvær vikur áður en
hægt sé að taka fólk af launaskrá.
Þessi atriði tengjast nýlegum deilu-
málum sem orðið hafa þegar fisk-
vinnslufyrirtæki hafa stöðvað rekstur
tímabundið vegna hráefnisskorts og
sent starfsfólk heim.
Farnir að vinna
Aðalsteinn sagði að þegar sam-
komulag hefði tekist um kauptrygg-
ingarsamninga væri aðeins kaupliður-
inn eftir og örfá önnur minniháttar
atriði. Hann sagði að þó að breitt bil
væri á milli samningsaðila um kaupl-
iðinn mætti segja eftir samningafund,
sem var í fyrradag, að menn væru
farnir að vinna. Þar var ákveðið að
setja á stofn vinnuhóp til að endur-
skoða starfsaldursþrepakerfið.
Næsti fundur stóru samninga-
nefndar VMSÍ og VSÍ er á fimmtu-
dag. Þá eiga starfshópar, sem vinna
í afmörkuðum málum, að skila tillög-
um. í gær hófust einnig aftur viðræð-
ur um vinnustaðasamnmga milli VSÍ
og landssambanda ASI.
■ Rætt um/4