Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 B 5 Ört vaxandi fyrirtæki á internetmarkaði leitar að áhugasömu og drífandi fólki í eftirtaldar stjórnunarstöður sem allra fyrst. Fyrirtækið rekur Internetaðgangs- þjónustu og hefur að markmiði að vera leiðandi afl á íslenskum markaði í hagnýtingu Internetsins til framleiðslu og dreifingar á hvers kyns gagnvirku efni tii almennings og fyrirtækja. Við leitum að: Framkvæmdastjóra með víðtæka þekkingu og starfsreynslu á Internetmarkaðinum eða annarri nýmiðlun. Viðkomandi þarf að hafa ríkulega skipulags- og samskiptahæfileika til að leiða þróun og vöxt fyrirtækisins í hröðu og síbreytilegu umhverfi. Áhersla er lögð á frumkvæði, fagmennsku og dugnað. Markaðs- eða sölustjóra með reynslu af Internetmarkaðinum eða annarri nýmiðlun. Viðkomandi mun þróa og stýra markaðssetningu á aðgangsþjónustu fyrirtækisins, efnisframleiðslu og annarri þjónustu. Reynsla í samskiptum við hugbúnaðarframleiðendur er æskileg. Áhersla er lögð á frumkvæði, samskipta- hæfileika, framsýni og dugnað. Tæknistjóra. Viðkomandi er ábyrgur fyrir tæknilegri skipulagningu fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á Internetinu og tæknilegum hlutum tengdum því og kunna skil á UNIX, Novell og/eða NT, rekstri staðarneta, víðnetstengingum, vefsíðugerð, grafískri hönnun og gagna- grunnsvinnslu. Lögð er áhersla á nákvæm vinnubrögð og fagmennsku. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu fyrirtækis með umtalsverða möguleika á þessum markaði. Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Guðmundsson hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 í síma 533-1800. Vinsamlegast sendið umsóknirtil Ráðgarðs, Furugerði 5,108 R. merkt „Internet 97" og viðkomandi starfi fyrir mánudaginn 24. mars nk. „Au pair" í Luxemborg Reglusöm, barngóð stúlka óskasttil að gæta 2ja barna (21/2 árs og 4 mánaða) og aðstoða við heimilisstörf frá 1. júní 1997. Þarf að vera 18 ára eða eldri, sjálfstæð, með einhverja ensku- eða þýskukunnáttu og ökuleyfi. Uppl. veitir Stella Jóhannesdóttir í s. 00352 35 70 64. Bókhald Starfskraftur óskasttil að sjá um bókhald hjá fyrirtæki í matvælaiðnaði á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Reynsla í TOK hugbúnaði skilyrði. Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl. merktar: „FK97" fyrir miðvikudaginn 19. mars 1997. VINNUSKOLI REYKJA.VÍKUR Vinnuskóli Reykjavíkur auglýsir eftir starfsmönnum í eftirtaldar stöður sumarið 1997: 1. Leiðbeinendum til að vinna með og stjórna vinnuflokkum unglinga. 2. Leiðbeinendum til að starfa með hópi fatlaðra ungmenna sem þurfa mikinn stuðning í starfi. 3. Starfsmönnun til að undirbúa og stjórna fræðslustarfi Vinnuskólans. 4. Yfirleiðbeinendum sem hafa umsjón með ákveðnum verkefnum og vinnusvæðum. Leiðbeinendur skulu vera 22 ára eða eldri og er æskileg uppeldis- eða verkmenntun og/eða reynsla af störfum með unglingum. Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður. Ráðning leiðbeinenda er frá 1. júní og stendur í 8 -10 vikur. Vinnuskólinn býður sumarstörf unglingum sem verið hafa í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla í Reykjavík (verða 14,15 eða 16 ára á árinu). Athygli er vakin á því, að hluti 16 ára hópsins mun starfa á útmörk Reykjavíkur, við verkefni sem hingað til hafa verið í umsjón Skógræktarfélags Reykjavíkur. Er því einnig óskað eftir leiðbeinendum með reynslu af slíku starfi. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Vinnuskóla Reykjavíkur. Þar eru einnig veittar frekari upplýsingar um störfin. Umsóknarfrestur er til 21. mars. n.k. ÍEngjateigur 11 »105 Reykjavík Sími 588 2590 • Fax 588 2597 Rikiskaup er þjónustustofnun er annast innkaup og útboð fyrir ráðuneyti og ríkisstofnanir. Starfsemi Ríkiskaupa skiptist ú útboðs- og innkaupadeild og upplýsinga- og fjárreiðudeild. Marktnið Ríkiskaupa erað framfylgja stefnu ríkisstjómarinnar í útboðs- og innkaupamálum ríkisins. Starfsmenn eru 22 talsins með fjölbreytta menntun og reynslu að baki. VERKEFNASTJÓRI ÚTB0ÐSSVIÐ Laus er til umsóknar staða verkefnisstjóra á útboðssviði. Verkefnisstjóri heyrir undir sviðsstjóra útboðssviðs. Um fúllt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst Starfssvið: • Gerð tíma- og kostnaðaráætlana. • Undirbúningur og umsjón með útboðum. • Gerð útboðsgagna, samanburðurtilboða. • Árangursmat og samningagerð. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði tæknifræði, verkfræði, stærðfræði, viðskiptafræði eða önnur sambærileg menntun. • Reynsla af viðskiptum s.s. tilboðsgerð, útboðum, innkaupum æskileg en ekki skilyrði. • Tungumálakunnátta. • Samskiptahæfileikar og metnaður til að beita vönduðum vinnubrögðum. í boði er áhugavert og krefjandi starf á góðum vinnustað þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Nánari upplýsingar veitir Auður Bjamadóttir hjá Ráðgarði hf. frá kl. 9 -12. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs merktar: ”Verkefnastjóri - útboðssvið” fyrir 29. mars n.k. Öllum umsóknum verður svarað. RÁÐGARÐURhf SIJöRNUNARCXJREKSIRARRÁÐGlCg1 FurugsrilS 108 Reykjavik Slml 533 1800 Pax: 939 1808 Netfang: rgmldlunQtreknet.la MelmaslAa: http://www.treknat.ls/radsardur RÍKISKAUP Ríkisútvarpið auglýsir starf íþróttafréttamanns í Sjónvarpi laust til umsóknar. íþróttafréttamennska í sjónvarpi er lifandi og krefjandi starf. Viö leitum aö fólki ★ sem hefur háskólapróf eða umtalsverða reynslu í frétta- eða blaðamennsku, ★ sem býryfirtraustri þekkingu á íþróttum, ★ sem hefur góð tök á íslensku máli, reglum þess og orðaforða, ★ sem hefur þægilega rödd, er skýrmælt og les áheyrilega, ★ sem á auðvelt með að tjá sig í töluðu máli, ★ sem er reiðubúið að vinna óreglulega og á vöktum, ★ sem er fljótt að hugsa og að greina kjarn- ann frá hisminu, ★ sem heldur ró sinni og öryggi í fasi og framkomu þó að unnið sé undir miklu álagi. Umsækjendur gangast undir sérstakt hæfnis- próf. Umsóknarfrestur er til 4. apríl nk. og ber að skila umsóknum til Sjónvarpsins, Laugavegi 176 eða í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, á eyðu- blöðum sem fást á báðum stöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.