Morgunblaðið - 16.03.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. MARZ 1997 B 13
EF FRÁ eru skildar myndir og frá-
sagnir af sjóslysunum og einstæð-
um björgunarafrekum voru það
tvær fréttamyndir síðustu daga
sem vöktu athygli mína umfram aðrar.
Báðar voru af einbeittu og alvörugefnu
fólki í biðröð. Annars vegar stéttvísir menn
að ganga til atkvæðagreiðslu um verkfalls-
heimild stéttarfélagi sínu til handa. Hins
vegar jafn ábyrgir og ábúðarfullir menn
fyrir utan hjá Kaupþingi, til að kaupa hluta-
bréf í Fóðurblöndunni.
Ég hef sosum séð biðraðir áður. Á mínum
yngri árum biðu atvinnulausir menn í röðum
á hveijum morgni niðri á eyri í þeirri von
að verkstjórarnir hjá Eimskip sæju aumur
á þeim og bentu í áttina til þeirra til merk-
is um að hægt væri að nota þá í uppskipun-
ina þann daginn.
í þeim biðröðum var mikilvægt að þekkja
reddarana eða þá að fá einhvern sem þekkti
mann sem þekkti mann sem þekkti reddar-
ann hjá Eimskip til að fá náð fyrir augum
hans. Sumir mættu morgun eftir morgun
en gengu bónleiðir til búðar.
Svo voru það hinar biðraðirnar hjá banka-
stjórunum, sem ekki voru styttri né þrauta-
minni og aftur var það áríðandi að þekkja
mann, sem þekkti mann sem þekkti banka-
stjórann vegna þess að lánin í bönkunum
voru gulls ígildi, þegar menn höfðu ekki
ennþá fundið upp verðtrygginguna og verð-
bólgan sá um afborganirnar.
Biðraðir hafa sem sagt þekkst áður
á íslandi og hafa ekki gott orð á
sér. Minningarnar um þær tengj-
ast kreppunni og klíkuskapnum
og þeim harða slag sem menn háðu um
kjörin. Stundum tapar maður, segir í aug-
lýsingunni. Og þeir voru margir sem töpuðu
í þeirri fyrirgreiðslupólitík, þeim andstyggi-
lega mannamun, sem gerður var í þessum
biðsölum lífsbjargarinnar.
En biðraðirnar sem myndaðar voru um
daginn, og birtust myndir af í blöðunum
og sjónvarpinu, voru öðru vísi biðraðir. Ein-
hvern veginn fannst mér þetta vera sams
konar fólk og sást í biðröðunum í gamla
daga, fólk af sama sauðahúsi, venjulegir
borgarar sem maður hittir á förnum vegi,
fólk eins og ég og þú, almenningur sem
þarf að sjá sér farborða í kapphlaupinu um
tekjur og eignir og iifibrauð. Og allt í lagi
með það. Hver er sinnar gæfu smiður og
auðvitað kemur mér ekki við hvernig fólk
hagar sínum fjármálum og kaupkröfum og
það eru menn í karphúsinu og það eru
menn í kauphöllunum sem reikna þetta allt
saman út og segja okkur hvað við græðum
Stundum
tapar maður
Það stóð í biðröðum, fólkið, með verkfallsheimildina
í hægri hendinni og hlutabréfín í þeirri vinstri. í huga
Ellerts B. Schram var þetta sama fólkið og þó ekki
sama fólkið, því sumir eru að hugsa um gróðann
meðan aðrir eru að bjarga tapinu.
mikið í fjárfestingum og kaup-
mætti.
Og svo reiknar hver fyrir sig
og ég hef til dæmis reiknað
það út sjálfur að húsbréfin sem
ég skulda standast enga verð-
bólgu og fara með mig á hausinn á undra-
skjótum tíma, án þess að ég fái nokkuð við
það ráðið. Og þótt ég standi í skilum og
jafnvel þótt ég fái hækkun í launum og
eignaðist hlutabréf í fóðrinu. Skuldir heimil-
anna eru því miður ekki til sölu og enginn
sést þar í biðröðum til að kaupa þær og
þó eru nógu margir sem gjarnan vildu losna
við þær með því að eiga eitthvað afgangs
um mánaðamótin til að borga þær upp. Og
nú þýðir víst lítið að fara í bankana og
þekkja bankastjórann, enda gengur banka-
starfsemin helst út á það í seinni tíð að
hvetja fólk til að leggja inn í bankana en
ekki til að taka út úr þeim.
Iþessu felst einmitt þversögnin í þjóð-
félaginu. Fólk á ekki fyrir skuldum
og fólk fær ekki nógu há laun en
samt lítur út fyrir að þjóðfélagið hafi
ekki efni á að heimta kauphækkanir að
neinu ráði, vegna þess að verðlagið og verð-
bólgan sjá um að eyða viðbótinni á miklu
skemmri tíma en hönd á festir. Það dugar
meira segja lítið í því kapphlaupi að bíða í
biðröðum eftir hlutabréfum í gróða fyrir-
tækjanna og vítahringurinn er líka sá að
ef fjárfestingin á að skila sér, þarf fyrirtæk-
ið að hækka framleiðsluverðið og útsölu-
verðið á afurðinni, til að skila arði til hlut-
hafanna. Hvers virði er þá
kauphækkunin?
Þeir eru þess vegna ekki öf-
undsverðir, verkalýðsforingj-
arnir, með verkfallsheimildirn-
ar sínar. Vinnuveitendumir
ekki heldur, sem þurfa að vísa réttmætum
launakröfum á bug af því að báðum megin
borðsins eru menn að glíma við þann draug,
verðbólgudrauginn, sem þjóðin þekkti og
þekkir, sameiginlegan óvin, sameiginlegan
landsins fjanda, sem ógnar heimilum og
húsbréfum og hag þeirra undirstöðuat-
vinnuvega sem standa undir hinu margróm-
aða og fótumtroðna þjóðarbúi.
Já, það stóð í biðröðum, fólkið, með
verkfallsheimildina í hægri hendinni
og hlutabréfin í þeirri vinstri. Þetta
var sama fólkið og þó ekki sama
fólkið, því sumir eru að hugsa um gróðann
meðan aðrir eru að bjarga tapinu. Og stund-
um tapar maður og tapar illa. Oftast þeir
sömu, oftast fólkið sem hvorki hefur fé til
fjárfestingar né fé til heimilishalds. Þessi
venjulegi fótumtroðni almúgamaður i fót-
umtroðnu þjóðfélagi sem situr uppi með
fótumtroðnar tekjur.
Hvert eiga þeir að leita sem eiga hvorki
peninga né pappíra upp á vasann og eru
hættir að standa í biðröðum, vegna þess
að þeir þekkja engan og enginn hefur leng-
ur tíma né tök á því að veita þeim skjól?
Ekki verkalýðsfélögin sem verða sér út um
verkfallsheimildir til að knýja fram kjara-
bætur sem verðbólgan étur upp á auga-
bragði. Ekki vinnuveitendur sem þurfa að
HUGSAÐ
UPPHÁTT
beijast fyrir því að halda laununum niðri
til að fólkið geti lifað. Ekki flokkar eða
pólitísk hagsmunasamtök, sem nú veita
ekkert athvarf nema upp á punt og ekki
er víst hægt að sækja í Kvennaathvarfið
nema maður geti klagað einhvem. Hvern
er hægt að klaga, þegar þjóðfélagið tekur
ekki einu sinni ábyrgð á afkomunni, segist
ekki bera ábyrgð á einstaklingunum? Jafn-
vel þótt biðraðirnar myndist í Kaupþinginu
og á skrifstofu verkalýðsfélagsins, þá gildir
það ekki hót að mæta snemma, því með
verkföllum pissa menn í skóinn sinn og
hlutabréfín em uppseld áður en næsti mað-
ur kemst að. Já, stundum tapar maður og
tapar illa.
Því verður ekki neitað að hún er
skrítin þessi þverstæða í biðröðum
verkfallshótana og biðröðum
hlutabréfagróðans. Sama fólkið,
sama viðleitnin til að bjarga sér og sínum
í bjargarleysinu og sá mæti maður, Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, sem nú er genginn til
feðra sinna, kallaði það auðsöfnun almenn-
ings, þegar hann barðist fýrir því, löngu á
undan samtíð sinni, að fólk legði fé sitt í
atvinnufyrirtækin. Éignaðist þau, ætti þau.
Sú kenning var háleit, eins og flest það sem
Eykon tók sér fyrir hendur, en var náttúr-
lega ekki hugsuð á þann veg, að vinstri
höndin tæki það sem sú hægri hafði í hendi.
Auðsöfnun Eykons gekk út á samspil og
sameiningu stéttanna, sameinað átak til að
létta oki skulda og þrældóms og undirgefni
af fjöldanum. Þá mundi fólkið ganga fram
i fylkingum i stað biðraða. Þetta var ekki
sósíalismi, enda enginn harðari andstæðing-
ur sósíalískra stjórnmálakenninga en Ey-
jótfur Konráð Jónsson. Þetta var ekki sósíal-
ismi frekar en sú skoðun sem hér er sett
fram að markmiðið og framtíðarsýnin hlýt-
ur að vera fólgin í uppreisn þess fólks í
þjóðfélaginu, sem gengur nú til lífsbarátt-
unnar með tóman sparibaukinn í annarri
hendinni og heimilisreikningana í hinni. Það
er verkefni nútímans að snúa þverstæðun-
um í biðröðunum upp í samstillt átak og
eina samfellda röð, sem gerir hróp og aðsúg
að þeim öflum, sem gera auðsöfnun og
sjálfsbjargarviðleitni að aðhlátursefni og
harmleik.
Stundum tapar maður. Það er rétt og
stundum tapar maður illa. En aðstæðurnar
og ástandið um þessar mundir hljóta að
vekja okkur öll til vitundar um það að enn
er langur vegur og enn er full þörf á stjórn-
málabaráttu og félagslegu átaki til að rétta
hlut þeirra sem standa í biðröðum og bíða
þess að hagur þeirra vænkist.
P€DROU.O"
Aflmiklar dælur í ýmsum stærðum!
Rafknúnar dælur
0,37 til 15 kw
Hringrásardælur, brunndælur, sjódælur úr
kopar, neysluvatnsdælur með jöfnunarkút,
olíudælur, smúldælur o.fl.
Dæmi um verð á dælum - 1 eða 3 fasa (verð m/vsk.):
PK alhlíða dælur 40 lítra/mín. 40 m.v.s. kr. 7.180,-
CK olíu- eða vatnsdælur 50 lítra/mín. 47 m.v.s. kr. 19.340,-
JSW neysluvatnsdælur 160 lítra/mín. 60 m.v.s. kr. 33.850,-
SV brunndælur 600 lítra/mín. 12 m.v.s. kr. 55.500,-
F bruna- og smúldælur 700 litra/mín. 55 m.v.s. kr. 83.780,-
Úrvalsdælur á ótrúlega góðu verði.
Sendum um land allt.
VÉLASALAN HF.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.