Morgunblaðið - 28.06.1997, Page 1
80 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
143. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Alnæmi breiðist hratt út í Afríku
Valdaskiptin í Hong Kong um mánaðamótin
Yfírlýsing Kína um
herstyrk vekur óhug
Hong Kong. The Daily Telegraph, Reuter.
KÍNYERJAR tilkynntu í gær að
fjögur þúsund hermenn myndu
halda inn í Hong Kong í dögun á
þriðjudag, 1. júlí, aðeins sex klukku-
stundum eftir að Kínverjar taka þar
völdin og síðustu bresku hermenn-
irnir hverfa á braut. Vakti þessi yf-
irlýsing, sem barst frá skrifstofu
Tungs Chee-hwas, verðandi leið-
toga Hong Kong, óhug margra.
„Mér virðist þetta ekki vera rétta
merkið til að gefa samfélagi þjóð-
anna en fyrst og fremst finnst mér
þetta óhugnanlegt merki að gefa
íbúum Hong Kong,“ sagði Chris
Patten, fráfarandi landstjóri Hong
Kong, í gær.
Lýðræðissinar reiðir
Lýðræðissinnar í Hong Kong
brugðust reiðir við. „Kínverjar vilja
að öld niðurlægingar þeirra ljúki
með látum, en þeir ættu að sýna til-
fínningum Hong Kong-búa meiri til-
litssemi," sagði Emily Lau þing-
maður sem ekki hefur hikað við að
gagnrýna kínversk stjómvöld.
Viðskiptum í kauphöllinni í Hong
Kong var nýlokið þegar tilkynning-
in barst og þóttu mikil viðskipti
bera bjartsýni almennings vitni. I
lok viðskipta var hæsta gengi hluta-
bréfa frá upphafí skráð.
Kínverjar munu sjá um vamir
Hong Kong og er búist við því að þeir
muni að minnsta kosti hafa þar jafn
marga hermenn og Bretar höfðu, eða
um tíu þúsund. En fáir áttu von á því
að Kínverjar myndu vera svo fljótir
að sýna hver hefði valdið.
Hermönnunum munu fylgja þyrl-
ur, skip, 21 brynvarin bifreið og 400
ökutæki til viðbótar. Þeir koma
skömmu eftir að hið kjörna þing
Hong Kong verður leyst upp og
ýmsir alþjóðlegir fomstumenn, þar á
meðal Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, og Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
verða enn ófamir. Skip kínverska
sjóhersins munu sigla þar sem
Britannia sigldi nokkmm klukku-
stundum áður á braut með Patten og
Karl Bretaprins um borð.
Bandaríkjamenn segja Kínveija
í fullum rétti
Bandaríkjamenn sögðu í gær að
Kínverjar hefðu fullan rétt til að
senda hermennina til Hong Kong.
„Það er ekkert óvenjulegt við
þetta,“ sagði bandarískur embættis-
maður sem ekki vildi láta nafns síns
getið. „Þetta er þeirra landsvæði.“
Vestrænn hernaðarsérfræðingur
sagði að ekki bæri að gera of mikið
úr þessari ákvörðun Kínverja: „Það
var aldrei ástæða til að ætla að þeir
kæmu í smáskömmtum."
Úrhelli
á Bret-
landi
MIKIÐ hefur rignt á
Bretlandi undanfama
daga og þar hefur ekki
mælst meiri rigning í
júmmánuði á þessari öld.
Ekkert var leikið á
tennismótinu í
Wimbledon annan daginn
í röð og gerðist það síðast
árið 1909. Velta stjórn-
endur nú fyrir sér hvort
ekki verði að gera undan-
tekningu og leika á
sunnudag og stytta leiki
hjá körlum. Urhellið varð
hins vegar ekki til þess
að draga úr aðsókn á
Glastonbury-rokkhátíð-
inni í Somerset á
Englandi þar sem 90 þús-
und manns eru saman
komin. Ekki fylgir þó
sögunni hvernig skósal-
anum Kunta frá Hobart í
Ástralíu gekk að selja há-
tíðargestum gegnblautan
varning sinn. Um helgina
er spáð meiri rigningu.
Reuter
Heimsálfa mun-
aðarley singj anna
Brussel. Reuter.
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóð-
anna sagði í gær að hætta væri á að
Afríka breyttist í heimsálfu munað-
arleysingja yrði ekki strax reynt að
stemma stigu við útbreiðslu alnæm-
is.
Peter Piot, framkvæmdastjóri al-
næmisstofnunar SÞ, sagði að millj-
Garrí Kasparov
Vill leyfa
tölvur í
skákmótum
Madrid. Reuter.
GARRÍ Kasparov, heimsmeist-
ari í skák, lagði til í gær, að
stórmeisturunum í íþróttinni
yrði leyft að notast við ferða-
tölvu á mótum til að auðvelda
sér stöðugreiningu.
Heimsmeistarinn sagði á
blaðamannafundi á Spáni, að
skákmeistarar þyrftu ekki síð-
ur á tölvunni að halda en til
dæmis stærðfræðingar. Hún
myndi ekki gagnast slökum eða
miðlungsgóðum skákmönnum
en meisturunum myndi hún
opna nýjar víddir og leiða til
enn betri skáka.
Eins og kunnugt er, tapaði
Kasparov í einvíginu við IBM-
skáktölvuna Dimmblá í maí.
Hann hefur skorað skáktölvuna
á hólm að nýju.
ónir barna ættu á hættu að sýkjast
en auk þess væri áætlað, að níu
milljónir bama undir 15 ára aldri
hefðu misst móður sína úr sjúk-
dómnum. Væru meira en 90%
þeirra í löndunum fyrir sunnan Sa-
hara. Milljónir manna, foreldrar
ungra barna, væru með alnæm-
isveiruna og ljóst, að munaðarleys-
ingjunum ætti eftir að fjölga mikið.
Meira en 90% barna undir 15 ára
aldri, sem sýkjast, fá sjúkdóminn
frá mæðrum sínum, ýmist í með-
göngunni, við fæðingu eða með
móðurmjólkinni. Ekki er þó talið
gerlegt og raunar rangt að reyna að
draga úr brjóstagjöf enda er lífsvon
margra barna undir henni komin.
RISASTÓR kínverskur dreki svífur yfir gönguleið skammt frá menningarmiðstöð Hong Kong.
Nú má vfða sjá dreka, kínversk Ijós og fána í Hong Kong vegna undirbúnings fyrir valdaskiptin 1. júlí.
Reuter
Yfirlýsingar Lars Emils Johansens um geymslu kjarnavopna á Grænlandi
Bandaríkin tilbúin til viðræðna
BANDARÍSK yfírvöld eru reiðubúin að hefja
viðræður við Grænlendinga um að koma fyrir
kjarnaoddum á Grænlandi, að sögn eins helsta
sérfræðings Bills Clintons Bandaríkjaforseta í
afvopnunarmálum, Gary Samore. Málið hefur
hins vegar ekki verið tekið formlega fyrir hjá
bandarískum stjórnvöldum. Grænlendingar
virðast skiptast í tvö horn í afstöðu sinni til
málsins og varð Lars Emil Johansen, formaður
Landstjórnarinnar, að halda heim degi fyrr til
að ræða málið á heimavelli.
Johansen hefur lagt til að Bandaríkjamönnum
og Rússum verði boðið að geyma kjarnavopn sem
falla til vegna afvopnunar. Við heimkomuna lagði
Johansen áherslu á að um væri að ræða kjarna-
odda, ekki geislavirkan úrgang. Er hann hefði
neitað geymsluhugmyndum í febrúar, hefði verið
rætt um úrgang, ekki aflóga vopn.
í dag verður skyndifundur í flokki hans, Si-
umut, um málið. Að mati fjölmiðlamanna sem
Morgunblaðið ræddi við í gær, er staðan í flokki
Johansens óljós. Einhverjir séu andvígii' en staða
Johansens sé svo sterk að hann geti líklega barið
stjórnina og flokk sinn til hlýðni. Stjómarand-
stöðuflokkurinn Inuit Ataqatigiit hefur mótmælt
harðlega og krafíst afsagnar Johansens.
Skiptar skoðanir eru um það hversu ígrunduð
yfirlýsing Johansens er en ljóst er að hún kom
mjög á óvart í Grænlandi. Jens Bronden, ritstjóri
Gmnkindsposten, segir þetta ekki í fyi-sta sinn
sem Johansen komi löndum sína í opna skjöldu
en þetta sé alvarlegasta dæmið.
Johansen hefur lagt til að einn þeirra staða þar
sem geyma megi kjarnaodda sé aflóga blýnáma í
Meistaravík á austurströndinni.
Afvopnunarsérfræðingurinn Samore segist í
samtali við Jyllunds-Posten ekki í vafa um að
Bandaríkjastjórn myndi taka vel í að ræða hug-
myndir Johansens. Hann sagði stjórnina hafa
fulla vitneskju um deilurnar sem málið hefði
valdið í Grænlandi og Danmörku. Hins vegar
getur Samore sér þess til að Rússar hafí lítinn
áhuga á málinu. Tilboð um efnahagslegan stuðn-
ing, kynni þó að breyta afstöðu þeirra.