Morgunblaðið - 28.06.1997, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sparisjóðir Glæsibæjarhrepps, Akureyrar og Arnarneshrepps sameinast
Sparisjóður Norðurlands stofnaður
STOFNAÐUR hefur verið á Akureyri nýr spari-
sjóður undir nafninu Sparisjóður Norðurlands,
sem varð til við samruna Sparisjóðs Glæsibæjar-
hrepps og Sparisjóðs Akureyrar og Arnarnes-
hrepps, sem báðir hafa starfað á Akureyri til
fíölda ára. Samruni sjóðanna var samþykktur
samhljóða á fundi í fyrrakvöld.
Samruni sjóðanna tekur gildi nk. mánudag
og tekur Sparisjóður Norðurlands þá við allri
starfsemi, réttindum og skyldum sjóðanna
tveggja. Gagnvart viðskiptavinum verður öll
starfsemi óbreytt og verða afgreiðslur sjóðanna
í Brekkugötu 1 og 9 opnar áfram næstu mán-
uði. Sjóðurinn verður til heimilis í nýju húsnæði
að Skipagötu 9 í framtíðinni og verða afgreiðsl-
ur sjóðanna sameinaðar þar undir lok ársins.
Jón Kr. Sólnes var kjörinn formaður stjórnar
Sparisjóðs Norðurlands. Jón sagði í samtali við
Morgunblaðið að rekstur sjóðanna hafi gengið
vel í gegnum árin og þeir hafi ekki þurft að
horfa upp á mikil útlánatöp. Um síðustu áramót
var eiginfjárstaða sjóðanna um 257 milljónir
króna.
Hjá báðum sjóðunum starfa nú 11 manns en
Jón segir að ráðinn verði nýr sparisjóðsstjóri en
að öðru leyti séu ekki fyrirsjáanlegar breytingar
á starfsmannahaldi á næstunni.
Stofnfé hins nýja sjóðs nemur tveimur milljón-
um króna og skiptist jafnt á milli eigenda að
stofnfé Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps
og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps. Stofnfjárbréf í
hinum sameinaða sparisjóði verða til afhending-
ar, gegn afhendingu stofnfjárbréfa í sjóðunum,
tveimur vikum eftir að samruni tekur gildi.
Húseignir sjóðanna seldar
Markmiðið með stofnun sjóðsins er að til verði
fjárhagslega sterkur sparisjóður sem verði í
fremstu röð peningastofnana að því er varðar
markaðshlutdeild, tæknimál, gæði og þjónustu
við viðskiptavini og að árangur sjóðsins verði
slíkur að litið verði á stofnfjáreign í honum sem
áhugaverðan fjárfestingakost.
Húseignir sjóðanna tveggja við Brekkugötu 1
og Brekkugötu 9 voru auglýstar til sölu fyrir
nokkru. Jón segir að þegar sé búið að selja
Brekkugötu 1, þar sem Sparisjóður Akureyrar
og Arnarneshrepps er til húsa. Þá liggur fyrir
að hægt er að selja Brekkugötu 9, þar sem
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps er til húsa og
segir Jón að það verði gert á næstu vikum.
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
Aldrei fleiri umsóknir
um nám í háskólanum
Fjár-
rekstur í
Fjörður
Grýtubakkahreppur. Morgunblaðið
BÆNDUR frá fjórum bæjum í
Grýtubakkahreppi, Höfðabæjun-
um og Grýtubakka I og II, fóru
með fjárrekstrur í Fjörður um
síðustu helgi. Óvenjuleg snjóalög
eru á hluta afréttar bænda í
Fjörðum í ár en þokkalegur
gróður á engjum og út við sjávar-
ströndina.
Eins og oft áður var féð rekið
á snjó á hluta leiðarinnar á af-
réttina og voru bílar notaðir við
að mynda slóð fyrir reksturinn.
UM 460 umsóknir hafa borist
Háskólanum á Akureyri um skóla-
vist næsta vetur og hafa aldrei
verið fleiri. Af þessum 460 um-
sóknum er helmingur, eða um 230
frá nýnemum.
Síðastliðið skólaár voru nem-
endur skólans 390 talsins og er
aukningin því tæp 20%. Eins og
komið hefur fram hefst kennsla í
iðjuþjálfun við skólann á hausti
komanda og bárust 43 umsóknir
um nám í iðjuþjálfun.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir að
fjölgunin sé mest í heilbrigðisdeild
og kennaradeild og þá vegna
kennslu í iðjuþjálfun og uppeidis-
og kennslufræði. „Við útskrifuð-
um einn hóp frá skólanum í fyrra-
vor í uppeldis- og kennslufræði en
sú grein var ekki í gangi hjá okk-
ur sl. vetur vegna fjárskorts. Við
stöndum aðeins betur að vígi fjár-
hagslega núna og teljum okkur
geta farið af stað að nýju og það
skýrir líka fjölgun umsókna,“ seg-
ir Þorsteinn. Umsóknir um nám í
uppeldis- og kennslufræði eru
tæplega 60.
Flestir verða nemendur í kenn-
aradeild eða um 160, í heilbrigðis-
deild um 150, í rekstrardeild um
80 og um 70 í sjávarútvegsdeild.
„Við höfum sumarið til að koma
öllum þessum fjölda fyrir. Vanda-
málin eru til að leysa þau og öll
kennsla fer fram innan veggja
þess húsnæðis sem við höfum þeg-
ar yfir að ráða,“ sagði Þorsteinn.
Bókasafn Háskólans á Akureyri
verður flutt úr Þingvallastræti að
Sólborg í haust.
Framkvæmdir við 1000 fer-
metra húsnæði bókasafnsins í Sól-
borg ganga samkvæmt áætlun.
Verklok eru áætluð 5. ágúst og
stefnt er að vígslu bókasafnsins 6.
september.
Breskir kylfingar gera
tilraun við heimsmet
Leika 17
hringi á ein-
um sólarhring
FJÓRIR breskir kylfingar eru
komnir til Islands til þess að
gera tilraun við nokkuð sérstakt
heimsmet á golfveilinum á Akur-
eyri á morgun, sunnudag. Þeir
félagar ætla að spila 17 hringi
eða 306 holur á einum sólar-
hring. Nái þeir takmarkinu er
talið að hver þeirra leggi að baki
um 75 mílna göngu/ skokk eða
um 120 km.
Spilað verður með tvær kúlur
og slá tveir kylfinganna upphafs-
höggin en hinir tveir bíða úti á
vellinum, tilbúnir að slá áfram í
átt að holunum. Golfvöllurinn á
Akureyri varð fyrir valinu þar
sem hann er nyrsti 18 holu golf-
völlur heims og þar er dagsbirta
allan sólarhringinn í júnímánuði.
Eru einnig að safna peningum
Auk þess að reyna við heims-
metið ætla Bretarnir að safna
20.000 pundum, rúmlega 2,3
milljónum króna, fyrir bresku
samtökin Macmillan cancer reli-
ef, sem hafa helgað starfsemi
sína framförum í umönnun
krabbameinssjúkra og fjöl-
skyldna þeirra á Bretlandi.
Heimsmetið sem þeir félagar
ætla að reyna að slá á morgun
er 16 hringir á 24 tímum. Það
var sett árið 1991 og tók einn
fjórmenninganna þátt í að setja
það á sínum tíma. Þeir hafa æft
sig af kappi á heimaslóðum en
hituðu upp fyrir heimsmetstil-
raunina með þátttöku í Arctic
Open-gólfmótinu sem lauk á Jað-
arsvelli á Akureyri i nótt.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11.00 sunnudag-
inn 29. júní, séra Birgir Snæ-
björnsson. Guðsþjónusta verð-
ur á Hlíð kl. 16.00, séra Birg-
ir Snæbjörnsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Almenn samkoma sunnudag-
inn 29. júní kl. 20. Níels Jakob
Erlingsson talar.
HVÍTASUNNUKIRKJ AN:
Almenn samkoma sunnudaginn
29. júní kl. 20.00. G. Theodór
Birgisson predikar. Andlegar
þjálfunarbúðir miðvikudaginn
2. júlí kl. 20.30. Unglingasam-
koma föstudaginn 4. júlí kl.
20.30. Mikill og flölbreyttur
söngur, allir velkomnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Messa laugardaginn 28. júní
kl. 18.00 og sunnudaginn 29.
júní kl. 11.00 að Eyrarlands-
vegi 26.
Minnisvarði um
Jónas Hall-
grímsson af-
hjúpaður
MINNISVARÐl um Jónas Hall-
grímsson frá Hrauni í Öxnadal
verður afhjúpaður í Jónasarlundi í
dag og hefst athöfnin kl. 14.00.
Jónas fæddist þann 16. nóvember
1807 og á þessu ári eru því 190
ár liðin frá að þjóðskáldið og nátt-
úrufræðingurinn fæddist.
í tilefni þessa hefur stjórn Jónas-
arlundar í Óxnadal og vinir Jónasar
látið gera minnivarða um þetta
mikla ljóðskáld. Við athöfnina rnun
Hannes Pétursson skáld flytja ræðu
um Jónas og Mánakórinn syngja
nokkur lög undir stjórn Michaels
Jóns Clark. Að athöfn lokinni verð-
ur kaffisamsæti í Gistiheimilinu
Engimýri.
Til sölu
Hjalteyrargata 10, Akureyri
Vel staðsett atvinnuhúsnæði á hafnarsvæði Akureyrar. Húsnæðið
er 1.156 fermetrar að grunnfleti og er stærstur hluti þess
með 4,5 metra lofthæð. Húsinu fylgir mjög stór lóð.
Einstakt tækifæri fyrir
aðila með hafnsækinn
rekstur sem krefst
mikils athafnasvæðis.
Upplýsingar veitir. _
o
HOLT
FASTEIGNASALA
Strandgötu 13, Akureyri.
Sími 4613095. Fax 4611227.