Morgunblaðið - 28.06.1997, Side 24

Morgunblaðið - 28.06.1997, Side 24
24 LAUGARDAGUR 28. JUNI1997 MORGUNBLAÐIÐ NÚ geta menn farið í útileguna á þyrlu. LITLA eins manns þyrlan Mini-500 á flugsýningu í Bandaríkjunum. LIIMDRA - FLUE- VÉLEIM - hln ntjrrl Sjálfsagt eiga margir ljúfar bernskuminningar við smíði flugmódela og raunar hafa sumir haldið þeirri iðju áfram fram á fullorðinsár. Samsetning alvöru flugvéla 1 heimahúsum verður hins vegar æ auðveldari og ódýrari og nú geta menn jafnvel smíðað sína eigin þyrlu fyrir svipað verð og kostar að kaupa góðan bíl. Sveinn Guðjónsson ræddi við áhugamenn um um þyrlusmíði og kynnti sér nýjungar á því sviði. Iskáldsögunm UndraSlugvélin, úr ritverki Armanns Kr. Ein- arssonar um Árna í Hraunkoti, segir frá því þegar Árni og félagi hans, Olli ofviti, settu saman þyrlu úr pörtum sem sendir voru í köss- um frá Englandi. í þá daga var sag- an um „undraflugvélina" heillandi ævintýri og sjálfsagt fáum lesend- um komið til hugar að sá dagur rynni upp, að þyrlusmíði yrði raun- hæfur möguleiki fyrir very'ulegt fólk. Sú er þó orðin raunin og verð- ur slík „flugmódelsmíði fyrir full- orðna“ sífellt aðgengilegri, auðveld- ari og ódýrari með hverju árinu. Nú er til dæmis hægt að fá senda frá Bandaríkjunum parta í tveggja manna einkaþyrlu, af gerðinni EXEC 162F, fyrir um það bil 5 milljónir króna, og fyrir eins manns þyrlu, af gerðinni The Mini-500 er kostnaðurinn um 2,5 milljónir króna, eða eins og einn góður bíll. Þessar „heimasamsettu þyrlur" eru einnig orðnar mun öruggari en áður var og tæknilega fullkomnari og er nú svo komið að ýmsir eru famir að tala um það í fúlustu alvöru að einkaþyrlan eigi eftir að taka við af einkabílnum. Vissulega hefur sá draumur lengi fylgt mannkyninu að fljúga um loft- in blá, frjáls eins og fuglinn, og bara hugsunin um að geta stigið upp í þyrlu í garðinum heima hjá sér og flogið hvert á land sem er hlýtur að vekja upp fiðring hjá þeim, sem bera ævintýramanninn í brjósti sér. í auglýsingu frá bandaríska fyrir- tækinu „RotorWay“ er einmitt sleg- ið á þessa strengi þar sem segir meðal annars: ,Jið lyfta sér upp, sveima yfír stórkostlegu landslagi, frá sjávar- strönd inn til sveita, yfír skóga og akra, meðfram ám og vötnum, yfír fossa og gljúfur og hrikaleg fjöll, yf- ir staði sem jafnvel enginn hefur augum litið áður. - Ef þetta er þinn draumur, láttu hann þá rætast með EXEC 162F!“ Og það er einmitt sú undraflugvél sem hér er til umfjöll- unar. Fékh fíugtímann í férmingnrgjöf Áður en lengra er haldið er þó rétt að nefna til sögunnar Þorgeir Yngvason, sem fyrir tíu árum hóf smíði tveggja manna einkaþyrlu, fyrstur manna hér á landi svo vitað sé. Þorgeir hefur verið flugáhuga- maður frá bamsaldri, byrjaði í hefð- bundinni flugmódelsmíði sem strák- ur, tók svifflugupróf aðeins þrettán ára, enda fékk hann flugtímana í fermingargjöf. Á sínum tíma gerði hann upp hersvifflugu og ennfrem- ur smíðaði hann listflugu með öðr- um, áður en hann ákvað að ráðast í smíði lítillar tveggja manna þyrlu af gerðinni RotorWay Eyec-80, en hún er einmitt fyrirrennari EXEC 162F. Þetta var árið 1988 og keypti Þor- geir fimm parta af sjö, það vantaði sem sagt blöðin og mótorinn. Þegar EXEC 162F kom á markaðinn fyrir nokkmm árum ákvað Þorgeir að slá til og klára þyrluna og ætlunin var einnig að ljúka þyrluflugmanns- prófi. „Mótorinn í EXEC 162 er mun gangömggari en áður hefur þekkst, en hann er meðal annars með tvöfaldri kveikju, „magneta", beinni innspýtingu og „turbo“, sagði Þorgeir. ,Áuk þess fylgir henni önnur og fullkomnari gerð af þyrlu- spöðum. Ég var því ákveðinn í að ljúka verkinu með þessari viðbót, enda er skrokkurinn á minni þyrlu mjög áþekkur þeim sem fylgir hinni nýju.“ En áður en Þorgeiri tókst að gera alvöru úr þessum áformum kipptu forlögin í taumana og í kjölfar bílslyss, sem hann lenti i fyrir nokkmm áram, varð hann að gefa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.