Morgunblaðið - 28.06.1997, Qupperneq 25
EXEC 162F ósamsett í pörtum og þarna er allt sem til þarf.
ÞORGEIR Yngvason í Eyec-80 þyrlunni í kjallaranum heima.
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 25
áform um þyrlupróf upp á bátinn og
hefur hann því ákveðið að selja
þyi-luna, sem er nánast fullbúin, ef
kaupandi finnst. Þess í stað hefur
hann hafist handa við smíði venju-
legrar eins hreyfils vélar, af gerð-
inni Sonerai LII sem tekur tvo í
sæti, en Þorgeir hefur einkaflug-
mannspróf og er vanur flugmaður á
slíkar vélar. Hann er auk þess með-
limur í Flugsmíð, klúbbi áhuga-
manna um flugvélasmíðar, sem tel-
ur um 80 meðlimi. Að sögn Þorgeirs
er Húnn Snædal, flugumferðár-
stjóri á Akureyri, þar fremstur
meðal jafningja og sá maður ís-
lenskur sem mesta reynslu hefur af
smíði flugvéla.
Fimmta hynslááin
Þorgeir Yngvason er ekki eini Is-
lendingurinn sem hefur haft uppi
áform um að setja saman þyrlu.
Nokkrir einstaklingar hér á landi
hafa nú ákveðið að festa kaup á
tveggja manna EXEC 162F þyrlu
og eru partarnir væntaniegir til
iandsins nú í haust, en áætlað er að
samsetningin taki um 300 vinnu-
stundir. Má því búast við að hin
nýja „undraflugvél" fari að sjást á
lofti í vetrarbyrjun. Svo er aldrei að
vita nema þyrla Þorgeirs fari einnig
að sjást á lofti áður en langt um líð-
ur.
Samkvæmt kynningarbæklingum
er EXEC 162F „fimmta kynslóðin"
í þróun þessara þyi'la, sem hófst
laust eftir 1970 þegar B.J. Scramm
hugkvæmdist það að búa til litla
eins manns þyrilvængju, Scorpion,
sem knúin var af Evinrude utan-
borðsmótor. Að sögn talsmanna ís-
lenska áhugamannahópsins er hin
nýja EXEC 162F tiltölulega auð-
veld í samsetningu. Skrokkurinn er
úr trefjaplasti og tekur tvo menn í
sæti. Sjálf vegur þyrlan um 440 kíló
tóm. Hún er rúmir átta metrar að
lengd, um 1,60 metri á breidd og
hæðin er um 2,44 metrar. Hún ætti
því að geta komist fyrir í þokkalega
rúmgóðum bílskúr, með því að losa
af henni skrúfuspaðana, en lengd
þeirra er um 7,62 metrar. Vélin
þykir tæknilega vel búin, miðað við
fyrri vélar þessarar gerðar og felur
hönnun hennar í sér ýmsar
tækninýjungar, sem of flókið mál er
að telja upp hér. Þess má þó geta að
hún hefur verið hönnuð og smíðuð
með flugöryggi og þægindi í huga
og er hún margverðlaunuð sem slík,
ef marka má umsagnir um vélina í
fagbókum og tímaritum. Hún hefur
líka sannað notagildi sitt og er not-
uð víða um heim, til dæmis við eit-
urefnaúðun, smalamennsku, eftir-
litsflug og fleira.
Litla eins manns þyrlan, The
Mini 500, sem framleidd er af fyrir-
tækinu „Revolution Helecopter
Corp.,Inc.,“ þykir einnig skemmti-
lega hönnuð, þótt ekki sé eins mikið
lagt í hana og EXEC 162F, sem von
er, enda er hún mun minni og tals-
vert ódýrari. Hún er jafnvel enn
auðveldari í samsetningu en hin
stærri og er áætlað að meðalskussi
þurfi ekki nema um 60 vinnustundir
til að setja hana saman.
íin fleiri tilboð
Gnn stærri
komdu í
Nýiar
vo