Morgunblaðið - 28.06.1997, Síða 27

Morgunblaðið - 28.06.1997, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 27 AÐSEIMDAR GREINAR PERLAN i Öskjuhlíð. Opið bréf til Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra BORGARSTJÓRI, þú hefur sagt að það kostaði okkur útsvars- greiðendur 30 til 40 milljónir á ári að reka Perluna og að þú hafir mikinn áhuga á að losa þennan bagga af okkur Reykvíkingum, jafnvel að selja Perluna. Ég er alveg sam- mála þér og það verður að finna leiðir til að nýta þetta glæsilega mannvirki betur. Fyrir nokkrum árum viðraði ég hugmynd um þetta mál í grein í Morgun- blaðinu en hugmyndin fékk litlar undirtektir á þeim tíma, því miður, en ég vona að tími henn- ar sé kominn og vænt þætti mér um ef þú íhugaðir hana frekar, en hugmyndin er eftirfarandi. Það má segja að Perlan standi á Reykjavíkurflugvelli, það eru ekki nema 3-400 metrar í beinni línu niður að prýðilegu flugvélastæði suðvestan undir Öskjuhlíðinni. Afgreiðsla innanlandsflugs Flug- leiða og annarra flugfélaga í innan- landsflugi eru í skúrum um allan flugvöll og sumir skúrarnir eru frá tímum seinni heimsstyijaldarinnar. Þetta ástand er fyrir löngu orðið ófullnægjandi. Það er í raun ótrú- legt, þegar maður hugsar til þess, hversu stór þáttur innanlandsflug- samgöngur eru í samgöngum lands- manna, að á Reykjavíkurflugvelli hefur aldrei verið reist flugstöð. Mín tillaga er, hvort ekki mætti gera jarðhæð Perlunnar að flugstöð fyrir Reykjavíkurflugvöll. í stuttu máli mætti hugsa sér að flugvéla- stæði og vöruafgreiðsla yrði á flug- vellinum suðvestan undir Öskjuhlíð- inni en farþegar og farangur yrði afgreitt frá Perlunni í aðeins 3-400 metra fjarlægð og síðan flutt til fiugvélanna. Þessi ijarlægð milli flugstöðvar og flugvélar er ekki meiri en gengur og gerist á mörgum flugvöllum erlendis. Til eru margar leiðir við að flytja Rúnar Guðbjartsson farþega milli flug- stöðvar og flugvélar. Til dæmis eins og gert er á Fornebu flugvelli við Ósló en þar voru byggðjarðgöngognot- uð færibönd og lyftur til að flytja farþegana að og frá hinum ýmsu brottfararhliðum. Þessi lausn er dýr og þar að auki eiga margir far- þegar erfitt með að ganga langar vega- lengdir. Eg álít að ódýrast yrði að byggja upphit- aðan veg milli Perl- unnar og flugvéla- og flytja farþegana í vögnum að og frá stæðisins, sérsmíðuðum flugstöðinni. Þessi leið er algeng á Mín tillaga er, segir Rúnar Guðbjartsson, að jarðhæð Perlunnar verði gerð að flugstöð fyrir Reykja- víkurflugvöll. flugvöllum erlendis og hefur þann stóra kost að spara farþegum spor- in. Ég ætla ekki að telja upp alla kostina við að gera Perluna að Flugstöð Reykjavíkur en nefni þó að þessi lausn mundi henta Perl- unni vel. Þetta myndi á engan hátt skerða upprunalegan tilgang Perlunnar að vera glæsilegur út- sýnisveitingastaður, en það fer ein- mitt vel saman með flugstöð. Þetta mundi spara okkur útsvarsgreið- endum hundruð milljóna króna, við að byggja flugstöð fyrir Reykjavík- urflugvöll, sem er nauðsynlegt að komi. Vel mætti hugsa sér að Reykja- víkurborg efndi til hugmyndasam- keppni meðal arkitekta og verk- fræðinga um hagkvæmustu og snjöllustu leiðir við að breyta Perl- unni í Flugstöð Reykjavíkur. Höfundur er flugstjóri Fastir liðir, Lúkas minn Vorkvöld í vesturbænum „ÉG ER mjög vana- föst,“ sagði kona nokkur, „ég á til dæm- is alltaf afmæli sama dag.“ Þetta datt mér í hug þegar ég fregnaði brottrekstur Lúkasar Kostic frá KR eitt vor- kvöldið um daginn og fannst að þar með hefði vorkvöld í vestur- bænum breyst í haust- kvöld í huga hans og margra annarra á Bjarni Stefán þeim bænum þetta Konráðsson árið. Stjórnir knattspyrnudeilda eru orðnar mjög vanafastar þegar illa árar hjá liðum þeirra. Það er illu heilli allt að því fastur liður að þá er þjálfarinn rekinn, og vill þá þetta „illa“ verða mjög teygjanlegt. Ég ætla ekki að fjaHa um þennan brott- rekstur sem slíkan hér, heldur skýra það hvað Knattspyrnuþjálf- arafélag íslands gerir þegar slíkt gerist og bæta við fáeinum hugleið- ingum um þessi mál almennt. Hvað gerir Knattspy r nuþj álfaraf élagið? Knattspyrnuþjálfarafélagið gerir eftirfarandi: Félagið hefur sam- band við viðkomandi þjálfara, aðal- lega í þrenns konar tilgangi. í fyrsta lagi að harma brottrekstur- inn og veita þjálfaranum „andleg- an“ styrk. í öðru lagi að spyijast fyrir um það hvort samið hafi ver- ið um starfslok, s.s. um uppsagnar- frest, ógreidd laun o.þ.h. í þriðja lagi til að láta viðkomandi þjálfara vita það að Þjálfarafélagið er til staðar fyrir hann ef hann vill leita til þess í einhveijum tilgangi, hvort sem það er vegna vanefnda á samn- ingi, starfslokum, launagreiðslum eða að hann telur að félagið hafi brotið á sér á einhvern annan hátt. Ef svo er, og þjálfarinn leitar til félagsins, vísum við honum á lög- fræðinga sem félagið hefur á sínum snærum til að aðstoða þjálfara við að ná fram rétti sínum. Auk þess reynum við að hjálpa á allan annan hátt. Enginn mannamunur Frá því að Knattspyrnuþjálfara- félagið var endurvakið árið 1993, höfum við, sem setið höfum í stjórn félagsins frá þeim tíma, haft af- skipti af nokkrum brottrekstrum. Við höfum alltaf haft þann hátt sem lýst er hér að framan, sama hver hefur átt í hlut. Við gerum ekki mannamun í þessum efnum og heldur ekki hvort menn eru í félag- inu eða ekki. Áhrif þjálfaraskipta Mig langar hér að greina frá rannsókn sem gerð var við háskól- ann í Darmstadt á áhrifum þjálf- araskipta á keppnistímabili á árangur viðkomandi liða. Voru nið- urstöðurnar birtar í tímaritinu „Leistungssport," 4. tbl., júlí, 1996. Rannsóknin náði til 32 ára í sögu þýsku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu eða allt frá því sú deild var stofnuð árið 1963 og til ársins 1995. Meginniðurstöðurnar eru SUMARTILBOÐ Gluggatjaldaefni 20% afsláttur Z-BRAUTIR OG GLUGGATJOLD, FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333. w þær að þjálfaraskipti hafa slæm áhrif á árangur liða til langs tíma. Stundum má sjá betri árangur í allra fyrstu leikjunum eftir þjálfaraskipti en sjaldnast meir. Fleiri hafa komist að sömu niðurstöðu, þ.e. að neikvætt sam- band sé á milli árang- urs liða og þjálfara- skipta, að því fram kemur í umræddri grein. Nefna má rann- sóknir Gruskys á 16 hornaboltaliðum í úr- valsdeild frá 1921- 1941 og 1951-1958, sömuleiðis rannsóknir í hornabolta eftir Loy (1970) og Loy og Theberge (1976), Þegar illa árar hjá knattspyrnuliðum er allt að því fastur liður, segir Bjarni Stefán Konráðsson, að reka þjálfarann. í körfuknattleik (Eitzen og Yetman, 1972) og í knattspymu (Brink- mann, 1979). Þetta eru staðreyndir sem tala sínu máli og ættu að vekja alla til umhugsunar um það að þjálfarinn er aðeins einn hlekkur í keðju sem samanstendur af honum, leikmönnum og stjórn og þar verða allir að axla ábyrgð, ekki bara þjálf- arinn. Það er hættulegt að líta ein- ungis á einn hlekkinn vegna þess að það gæti lokað fyrir þá hugsun að aðrir hlekkir þörfnuðust endur- skoðunar. Mannlega hliðin Sú hlið sem mest líður við brott- rekstur þjálfara, sem minnst er fjallað um, er mannlega hliðin. Þeir sem verða fyrir því að verða reknir bíða mikið persónulegt skip- brot, mannorðið er sært og starfs- heiðurinn oftast í rúst. Oft á tíðum er aðferðin við brott- reksturinn einnig mjög klaufaleg vægast sagt og er sem salt í sárið hjá mönnum. Fjölskyldan verður öll fyrir áfalli, stundum aðkasti, og þetta er á allan hátt mikill harm- leikur. Þess vegna verður að gera þá kröfu til þeirra sem gera þetta, að þeir geri það sómasamlega þannig að áfallið verði sem minnst. Regndans félaganna Þjálfarar eru yfirleitt reknir í kjöl- far ófara. Lið þeirra hafa ekki náð að sigra nægilega mikið að mati þeirra sem ráða og reka þjálfara. Stundum er þó um aðrar ástæður að ræða og ekki betri. Eftir því sem ósigrunum fjölgar styttist væntan- lega í sigurleikinn. Áður en að hon- um kemur er yfirleitt búið að ráða annan þjálfara. Samanburður á árangri rétt fyrir og eftir þjálfaraskipti er hins vegar mjög varasamur. Það væri álíka og að bera saman meðalúrkomu í mán- uðunum fyrir og eftir regndans Hopi- índíána, því að þó svo að sá saman- burður sýndi að úrkoma væri meiri eftir dansinn, væri hann mjög vil- landi, vegna þess að regndansinn er aðeins dansaður á miklum þurrk- tíma. Þetta gæti hins vegar skýrt þá oftrú sem margir hafa á því að skipta um þjálfara á miðju keppnis- tímabili og þann „regndans“ sem stundum er boðið upp í, ekki síst þegar þurrkatíð hefur staðið lengi. Haraldi Haraldssyni óska ég vel- farnaðar og vona að honum fylgi væta. Epilogus Það er skammt stórra högga á milli í þjálfaraheiminum. Varla var lokið við ofanritað þegar Þórði G. Lárussyni var vísað úr starfi sem þjálfara mfl. Stjörnunnar. Það gerðist síðla kvölds 22. þ.m. og var í fréttum daginn eftir. Þann dag hafði ég samband við Þórð Lárus- son og við fórum í gegnum fasta liði í slíkum samtölum. Hann hafði rétt áður farið í útvarpsviðtal þar sem hann bar Knattspyrnuþjálfara- félaginu ekki vel söguna. Hann hefði aldrei talað svo um félagið ef ég hefði talað við hann fyrst. Eftir að hafa heyrt afstöðu og af- skipti félagsins af slíkum málum, dró hann orð sín til baka þannig að það er úr sögunni. Varðandi starfsöryggi þjálfara, höfum við margoft bent þjálfurum á að það verði þeir að tryggja eins og kostur er í samningum sínum við félögin. Það hafa menn gert í auknum mæli, t.d. með ákvæðum um upp- sagnarfrest. Félögin eru líka farin að standa sig betur í þessum efnum en áður. En flestir þjálfarar munu fyrr eða síðar komast að því að í samningagerð, sem öðru, er reynsl- an dýrmæt en mistökin dýrkeypt. Höfundur er íþróttafræðingur og formaður Knattspyrnuþjálfarafélags Islands. ERKUR!!! Garpur er kröftugur drykkur sem býr yfir miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar. Garpur er góður á íþróttaæfinguna, í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn. FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.