Morgunblaðið - 28.06.1997, Side 34

Morgunblaðið - 28.06.1997, Side 34
34 LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SOFFIA TÚBALS + Þuríður Soffía Túbalsdóttir fæddist í Múlakoti í Fljótshlíð 22. jan- úar 1902. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Eir 20. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Túbal Karl Magnús Magn- ússon, bóndi í Múla- koti í Fljótshlíð, f. 31. desember 1867, d. 9. maí 1946, og Guðbjörg Aðalheið- ur Þorleifsdóttir húsmóðir og garð- yrkjufrömuður, f. 27. júlí 1870, d. 8. júlí 1958. Systkini Soffíu eru: Guðbjörg Liíja, f. 23. maí 1894, d. 7.júní 1975, Ólafur Karl Óskar, listmálari, f. 13. júlí 1897, d. 27. apríl 1964, og Ragnheið- ur Agústa, f. 13. desember 1907. Fóstursystur Soffíu eru: Vigdís Eyleif Eyjólfsdóttir, f. 26. ágúst 1893, d. 3. maí 1977, og Soffía Gísladóttir, f. 31. desember 1915. Útför Soffíu fer fram frá Hlíðar- endakirkju í Fljóts- hlíð í dag og hefst athöfnin klukkan 14 og jarðsett verður í heimagrafreit í Múlakoti. Ég kveð Fíu frænku mína með þakklæti fyrir ótal ánægju- og æv- intýrastundir á langri leið okkar saman. Frá því að ég man eftir mér var Fía frænka stór hluti af okkar lífi. Hún keyrði bíl, sem ekki var al- gengt í þá daga, og tók okkur krakkana reglulega með sér austur ^ í Fljótshlíð í ýmsum erindagjörðum. Það átti að planta við bústaðinn, hreinsa Múlakotsgarðinn, girða eða bara hvíla sig í bústaðnum. Hún talaði alltaf við okkur eins og fullorðið fólk og gerði kröfur til okkar sem slíkra. Við reyndum stundum á þolrifin og hún átti þá til að stökkva upp á nef sér, en það rauk úr henni jafnóðum. Fía elskaði dýr og náttúruna og ég hef aldrei kynnst manneskju, sem dýrin löðuðust að í jafn miklum ' mæli. Hún hafði fallega söngrödd og alltaf tilheyrði að syngja í bílnum og þá var „Húmar að kveldi" í sér- stöku uppáhaldi. Ferðirnar með Fíu voru alltaf viðburðaríkar. Til dæmis átti hún sérstakt útskot í Kömbunum þar sem alltaf sauð á bílnum. Þá var Fía tilbúin með vatn í stígvéli, sem hún hafði sótt í ákveðna lækjar- sprænu í Flóanum. Eitt sinn bjó hún til viftureim með því að splæsa sam- an kaðalspotta, annað sinn biluðu þurrkumar í ausandi rigningu og Bjössi bróðir sat í framsætinu og togaði og slakaði til skiptis í tvo spotta, sem hún festi í þurrkumar og leiddi inn um hliðarrúðurnar. ■*» Hún dó ekki ráðalaus hún Fía frænka mín og þekkt er í Fljótshlíð- inni, sagan af því þegar hún sem leiðsögukona með hestamenn inn í Þórsmörk, kom til baka með klárinn sinn klæddan í strigaskó, en hann hafði misst undan sér skeifur og var sárfættur. Hún las stundum fyrir okkur - aldrei barnabækur heldur ættfræði, sögur af Vestur-íslendingum og stöku sinnum „Úrval“. Þó hafði hún skilning á bernskunni á sinn hátt og í jólagjöf þegar ég var sjö ára, fékk ég frá henni þá fallegustu dúkku sem nokkur tíma hefur sést, sem hún hafði látið kaupa fyrir sig í útlöndum. Ég á þessa dúkku enn, og dætur mínar gæta hennar eins og sjáaldurs auga síns. Fía frænka min var að mörgu leyti á undan sinni samtíð. Hún giftist aldrei, en var sjálfstæð kona alla tíð. Hún var með fyrstu konum sem tóku bílpróf á íslandi, stofnaði og rak sitt eigið fyrirtæki - öskju- gerðina - um árabil og fór sínar eigin leiðir. Hún elskaði Fljótshlíð- ina og bernskuheimilið Múlakot, og æðsta ósk hennar var að hefja ævistarf móður sinnar - Múlakots- garðinn - til vegs og virðingar á **ný. Hún stofnað til þess sjóð og væri vel við hæfi að hefjast nú handa um endurreisn þessa fyrrum landsfræga skrúðgarðs. í ár eru nákvæmlega 100 ár síðan Eyjólfur Þorleifsson langafi minn og móður- bróðir Fíu, færði systur sinni Guð- björgu fyrstu hrísluna í garðinn — ættaða úr Nauthúsagili. Síðustu árin dvaldi Fía á hjúkrun- arheimilinu Eir við einstakt atlæti. Við fjölskyldan viljum sérstaklega þakka Guggu frænku okkar fyrir einstaka alúð og umhyggju fyrir henni síðustu árin. Hvil í friði, elsku frænka mín. Þórey. Hún Soffía Túbals frænka mín er búin að fá hvíldina. Það koma ótal minningar upp í hugann á kveðjustundu og eru þær margar tengdar Múlakoti í Fljóts- hlíð, þar sem hún var fædd og upp- alin. Múlakot var mikið menningar- heimili. Guðbjörg móðir hennar hóf fýrst ræktun tijágróðurs við sveita- heimili á íslandi fyrir 100 árum, Túbal faðir hennar var bóndi og rak gistiheimili, en þar var mikið um ferðafólk. Bróðir hennar, Ólafur Túbals, var þekktur listmálari og gestgjafí. Fía var alla tíð nátengd sveitinni sinni og byggði sér sumarbústað í landi Múlakots löngu áður en sum- arbústaðir voru almennt reistir. Hún ræktaði þar yndislegan tijá- lund sem verður ævinlega minnis- varði um hana. Fia vildi alla tíð bjarga sér sjálf og vera ekki upp á aðra komin. Ung setti hún upp mötuneyti í Vest- mannaeyjum og seldi þar sveitung- um sínum og öðrum vertíðarmönn- um fæði. Hún undirbjó þetta allt heima í Múlakoti, saltaði í tunnur og útbjó slátur sem hún flutti til Eyja. Seinna stofnaði hún öskjugerð í Reykjavík þar sem unnar voru öskj- ur undir skartgripi. Hún lagði metn- að sinn í að útbúa þær sem fegurst- ar og var hún fengin til að útbúa öskjur fyrir dýrgripi sem gerðir voru handa erlendum þjóðhöfðingj- um. Þessar öskjur eru örugglega ennþá til víða í skúffum. Fía hafði yndi af ferðalögum og var hún oft leiðsögumaður við ferð- ir á hestum víða um óbyggðir og sveitir á meðan hún bjó enn í Múla- koti. Seinna ferðaðist hún um á eigin bíl, en hún var með fyrstu konum til að taka bílpróf og reka eigin bifreið. Hún þekkti landið mjög vel og hafði næmt auga fyrir fegurð þess. Hún var góður ljósmyndari og tók mikið af myndum á ferðum sínum og hafa margar þeirra verið birtar. Fía reyndist mér alltaf mjög vel. Þegar ég óreynd sveitastelpan fór skiptinemi til Bandaríkjanna var hún ásamt Lilju systur sinni og Nonna manni hennar, mín stoð og stytta við undirbúninginn. Hún sá um að laga á mig upphlut sem Lilja átti og gaf mér að auki það silfur sem vantaði á búninginn. Oft sendi hún mér aura með bréfunum sem kom sér vel. Það var gaman að ferðast með Fíu. Ógleymanleg er ferð sem við fjölskyldan fórum með henni austur að Kirkjubæjarklaustri fyrir rúmum 20 árum. Hún var óþreytandi að fræða okkur á leiðinni og skemmti- legt var að fara í heimsóknir með henni á nokkur sveitaheimili en þarna þekkti hún marga. Stundum fórum við saman í stuttar göngu- ferðir í nágrenni Reykjavíkur og um heiðar Fljótshlíðarinnar. Þar var hún ekki síðri ferðafélagi. Hún frænka mín var alltaf af- skaplega ungleg og frískleg miðað við aldur og langar mig að segja smásögu sem lýsir því. Fyrir u.þ.b átta til tíu árum er hún var um 85 ára gömul vorum við að koma sam- an austan úr Fljótshlíð. í aftursæt- inu sat sjö ára gamall sonur minn sem orðinn var leiður og þreyttur. Eitthvað þreytti hann frænku og fór hún að siða hann til og sagði: „Þú átt að vera góður við gamalt fólk.“ Hann horfði undrandi á hana og svaraði: „Þú ert ekki gömul, Fía mín.“ Það hvarf ekki af henni bros- ið það sem eftir var leiðarinnar. Fía var ákaflega trygglynd og var vinur vina sinna. Það var gam- an að heyra hana tala um vinkonur sínar en þá sagði hún alltaf „við stelpurnar". Hún var hreinskilin og sagði óhikað meiningu sína. Hún var mikill dýravinur og áttu margar heimilislausar kisur skjól hjá henni á Njálsgötunni. Fía hélt hress upp á 90 ára af- mæli sitt á Holiday Inn fyrir fimm árum og tók þar á móti ættingjum og vinum. Þá bjó hún ennþá ein á Njálsgötunni. Síðustu árin naut hún góðrar aðhlynningar á Hjúkrunar- heimilinu Eir. Ég er þakklát fyrir að hafa átt Fíu og Múlakotsfólkið að ættingjum og vinum. Blessuð sé minning frænku minnar. Hrefna. Soffía Túbals er látin í hárri elli. Soffía frænka var af aldamótakyn- slóðinni, fædd árið 1902. Hún var eftirminnileg kona sem fór ótroðnar slóðir í lífinu. Hún var sjálfstæð og ákveðin og stundum gustaði af henni líkt og nöfnu hennar í Kardi- mommubænum. En þótt hún gæti verið hijúf í framkomu var hún öðlingur inn við beinið og mátti ekkert aumt sjá. Soffía fór ekki sömu leiðir og samferðamennimir. Þegar kynsyst- ur hennar stofnuðu fjölskyldu setti hún á stofn smáiðnað og rak eigið fyrirtæki með myndarbrag í áratugi á neðri hæð húss síns á Njálsgöt- unni. í Öskjugerð Soffíu Túbals framleiddi hún öskjur undir skart- gripi og borðbúnað fyrir gullsmiði. Gaman var að fá að vinna með henni og kynnast handbrögðum við að skera, líma og fóðra öskjurnar. Þessi iðnaður var bam síns tíma og þótt Soffía ynni fram undir átt- rætt við fallegu, handgerðu öskj- urnar sínar urðu þær á endanum að víkja fyrir plastumbúðum. Soffía átti bíl mestan hluta ævi sinnar og gat ferðast vítt og breitt um landið. Á ferðum sínum tók hún fjölmargar litmyndir og á veturna kom hún oft í heimsókn og efndi til myndasýninga á tjaldi. Það var eftirminnilegt að aka með Soffíu austur í litla bústaðinn hennar í Fljótshlíðinni. Þá var lagt af stað árla dags, því langferð var fyrir höndum. Soffía keyrði og Moskvíts- inn hristist í rykskýi eftir malarveg- inum. Á leiðinni útskýrði hún fyrir okkur systrum listina að aka bíl og þar var sumt öðruvísi en við lærðum seinna í ökuskóla. Soffía sagði mömmu hvernig hún ætti að bregð- ast við ef bílstjórinn fengi aðsvif undir stýri. Við systur sátum svo óttaslegnar í aftursætinu og óttuð- umst ekkert meira en að Soffía frænka fengi aðsvif. En á leiðar- enda komumst við og rétt vestan við Múlakot kúrði Fíubústaður langt uppi í hlíðinni. Bústaðinn hafði hún reist sjálf, girt af góðan skika og gróðursett fjölmörg tré. Áhugann á garðrækt átti hún ekki langt að sækja því móðir hennar, Guðbjörg Þorleifsdóttir í Múlakoti, gerði frægan skrúðgarð þar árið 1897, þann fyrsta utan Reykjavík- ur. Það var gaman að sitja í blágres- inu við bústaðinn og hlusta á Soff- íu segja sögur af Heklugosinu 1947 og frá mannlífi í Fljótshlíðinni á fyrri hluta aldarinnar. Það var Soffíu ekki að skapi að vera á spítala eða elliheimili enda vön að vera sjálfri sér nóg. Hún bjó ein fram yfir nírætt í húsi sínu við Njálsgötuna en allra síðustu árin dvaldi hún á hjúkrunarheimil- inu Eir. Blessuð sé minning hennar. Vigdís Jónsdóttir. Þegar við hófum búskap okkar að Njálsgötu 39B í upphafi níunda áratugarins bjó Soffía Túbals í GUÐFINNA BJÖRG LÁR USDÓTTIR + Guðfinna Björg Lárusdóttir fæddist í Vörum í Garði 29. nóvember 1901. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 17. júní síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Stef- ánía Ólafsdóttir, fædd á Kirkju- skarði í Laxárdal, Austur-Húnavatns- sýslu, 30. nóvember 1874, og Lárus Lár- usson, fæddur á Litlu-Mörk í sömu sveit 30. október 1868. Systkini hennar voru Sigríð- ur, Ólafur og Finnbogi og er Finnbogi einn eftiilifandi. Árið 1926 giftist Guðfinna Indriða Sveinssyni, sem fæddur var í Hvammi í Dölum 24. júní 1889. Þau hófu búskap í Gröf í Breiðuvíkurhreppi það sama ár, bjuggu síðan eitt ár í Brekkubæ, en síðan allan sinn búskap á Stóra-Kambi eða til 1965. Indriði lést 17. nóvember 1968. Börn þeirra eru: 1) Sveinn, f. 31.3. 1927, maki Sigrún Kristbjörg Arna- dóttir. Börn þeirra eru tvö. 2) Sigurást, f. 29.6 1928, maki Kristinn Júlíusson. Börn þeirra voru sjö, eitt látið. 3) Lára, f. 4.9. 1930. Hún á einn son. 4) Björn, f. 17. 10 1935, börn hans eru tvö og tvö fóstur- börn. 5) Ingjaldur, f. 11.4.1941, maki ingveldur Þórarinsdóttir. Börn þeirra eru fjögur. 6) Kol- beinn Ólafur, f. 29.6. 1943, maki Elísabet Björk Snorra- dóttir. Þau eiga þijár dætur. 7) Kristleifur, f. 5.2.1946, maki Guðríður Jóhannesdóttir. Börn þeirra eru þrjú. Útför Guðfinnu fer fram frá Búðum í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Guðfínna Björg var yndisleg manneskja. Hún var ekki allra en mjög trygglynd. Ég kynntist henni þegar ég var sextán ára, borgar- bam í kaupavinnu. Hún var hafsjór af fróðleik, sögum og vísum, hafði verið vinnukona á Búðum á Snæ- fellsnesi þegar þar var rekið stórbú. Margt í heimili og mikið að gera. Hún kenndi mér að baka og sauma og var mér sem önnur móðir. Bestu stundirnar þetta fyrsta sumar voru eftir hádegi á laugardögum, þá bökuðum við og hún sagði mér sög- ur sem mér unglingnum úr Reykja- vík þótti mjög spennandi að hlusta á. Hún fór til Reykjavíkur að læra að sauma þjóðbúninga á sínum næsta húsi á sömu lóð. Þar hafði hún búið alllengi og stundað þar öskjugerð sem hún var þekkt fyrir en var að mestu hætt þeirri iðju þá. Kynni okkar voru ekki náin í fyrstu en breyttust verulega eftir að dóttir okkar fæddist og urðu enn nánari þegar við fengum kött á heimili okkar. Þá kom nefnilega í ljós að Soffía var bamgóð og ein- stakur dýravinur. Segja má að kött- urinn okkar hafi átt sér tvö heimili því hjá henni átti hann gistingu vísa og gott viðurværi. Um tíma áttum við raunar þijá ketti og lét Soffía sig ekki muna um að hafa þá alla í fæði auk ýmissa villikatta sem hændust að henni. Við sjáum hana fyrir okkur þar sem hún er að þíða ýsuna í vaskinum og katta- skarinn allt um kring með ágirnd í augum. Hún talaði þá til þeirra eins og óþekktaranga. Hún var einstaklega góð við dótt- ur okkar Melkorku enda bankaði hún oftlega upp á hjá Soffíu þegar hún kom heim úr skóla og foreldr- arnir ekki viðlátnir til að taka á móti henni. Tókst með þeim góð vinátta og gagnkvæm virðing. Soff- ía spurði ævinlega um líðan dóttur okkar eftir að við vorum flutt af Njálsgötunni og hún sjálf flutt á hjúkrunarheimilið Eir. Við fylgd- umst með líðan hennar þar enda dvaldi hún á sömu hæð og móðir Ástu. Hugur Soffíu var jafnan bundinn æskuslóðunum í Fljótshlíð. Sagði hún okkur margar sögur af upp- vaxtarárum sínum þar. Þar átti hún lengi vel sumarhús og einhveiju sinni þegar hana langaði heim bað hún okkur að aka sér austur í Fljóts- hlíð. Það var okkur sönn ánægja og er sá dagur okkur ógleymanleg- ur. Við skoðuðum sumarhúsið og heimsóttum systur hennar, Ágústu, og mann hennar, Hjörleif, á Hvols- velli. Það var mikil reisn yfir Soffíu. Hún var sterkur persónuleiki og engum háð. Soffía var náttúrubarn og áhugamanneskja um hvers kyns gróður og garðrækt. Annaðist hún litla skikann við Njálsgötu af kost- gæfni og eins lengi og hún frekast gat. Minnumst við margra ánægju- stunda um leið og við kveðjum hana í dag. Ásta Lijja og Sigurður Jón. yngri árum, var mikil hannyrða- kona og eigum við eftir hana marga fallega hluti. Hún spilaði á harmon- ikku á sveitaböllum og hafði gaman af söng og tónlist. Hún var mikil húsmóðir, átti mjög fallegt heimili og var höfðingi heim að sækja og var þá ekki gerður greinarmunur á kunnugum og ókunnugum. Henni féll aldrei verk úr hendi. Að taka við af henni sem húsmóðir að Stóra- Kambi óx mér í augum. Henni fannst ég allt of ung en reyndist mér stoð og stytta í þessu nýja hlut- verki mínu. Tengdaforeldrar mínir þurftu að bregða búi sökum heilsu- brests og tókum við Ingi við búskap árið 1966. Búskaparár mín kom hún flest öll sumur og dvaldist í nokkr- ar vikur. Það var beðið með mikilli eftirvæntingu því að amma var að koma í heimsókn. Hún sinnti ömmubörnum sínum af kærleik og áhuga. Sagði sögur, las og kenndi þeim bænir. Trúin var henni mjög mikilvæg. Þegar gott var veður var farið í náttúru- skoðunarferðir, hún kunni nöfn á flestöllum íslenskum jurtum og bú- um við enn að þeim fróðleik. Síðustu æviár sín dvaldist hún á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þar hafði hún góðan félagsskap, spilaði á spil og hafði loksins að eigin sögn nægan tíma til að sauma út. Á meðan heilsa hennar leyfði fórum við á góðviðrisdögum út undir hús- vegg, sátum í sólinni og spjölluðum um liðna tíma. Það er sjónarsviptir að henni og sakna ég hennar mjög sem og fjölskyldan öll. Það var mitt happ að fá að vera samferða henni hluta af lífsleiðinni og vil ég þakka fyrir það. Kær kveðja. Ingveldur Guðfinna Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.