Morgunblaðið - 28.06.1997, Page 35

Morgunblaðið - 28.06.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 1997 35 + Jón Þorgeir Þorsteinsson fæddist í Hægindi i Reykholtsda! 30. október 1929. Hann andaðist 22. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Agatha Árnadóttir frá Flóðatanga og Þorsteinn Einarsson frá Skáney. Móður sína missti hann ungur, en faðir hans hélt áfram heimili fyrir börnin fimm. Jón gekk í Hér- aðsskólann í Reyk- holti 1946-1948 og síðar Hóla- skóla og varð búfræðingur það- an 1952. Bóndi í Giljahlíð frá 1959-1996, en þá brá hann búi vegna vanheilsu og fluttist í Borgarnes. Jón var ókvæntur og barnlaus. Utför Jóns verður gerð frá Reykholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jonni mágur er fallinn í valinn eftir mjög langa og hetjulega baráttu við erfíðan sjúkdóm, baráttu, sem hann háði með jafnaðargeði og af fullkomnu æðruleysi fram á síðustu stundu. Hann hafði brugðist vitur- lega við þvf að vera dæmdur úr leik vegna illkynja krabbameins og selt jörðina, búið og vélamar, að vísu fyrir lágt verð en nógu hátt til þess að geta keypt hús í Borgarnesi til að búa sér og systur sinni, Sigríði, sem var ráðskona hjá honum mestall- an hans búskap, svo og hennar fólki, öruggt athvarf. Sjálfur þarf hann ekki lengur á því að halda, enda var hann ekki fyrst og fremst að hugsa um sjálfan sig frekar en fyrri daginn. Jonni kvæntist ekki, en hann lét sér annt um börn systkina sinna, sem ólust sum hver upp undir hand- arjaðri hans, reyndar öll böm, sem hann umgekkst. Öll börn hændust að honum eins og fleirum í þeirri fjölskyldu. Jonni var einstaklega velviijaður og greiðasamur, ævinlega boðinn og búinn til að liðsinna þeim, sem þurftu hjálpar við, þó að hann hefði meir en nóg að gera heima fyrir eins og allir aðrir einyrkjabændur. Til hans þótti öllum gott að leita. Hann var snjall ræktunarmaður á allar skepnur, með afbrigðum glögg- ur og vandlátur, þegar hann valdi fé til ásetnings, enda var leitað til hans sem ráðgjafa í þeim efnum og til þess tekið hvað hann átti fallegan og arðsaman bústofn. Hann átti góða hesta og hafði yndi af þeim en gaf sér of lítinn tíma til að njóta þess. Hann ferðaðist of lítið um dagana, fór þó stundum á hestamannamót, en eftir að hann flutti í Borgarnes átti hann til að aka um héraðið og nágrannahéruðin dag og dag á meðan heilsan var bærileg. Hann hafði góða leik- hæfíleika og tók oft þátt í leiksýning- um Ungmennafélags Reykdæla fyrr á árum. Hann var fastheldinn á fomar dyggðir eins og allt hans fólk, traust- ur, ábyggilegur, hreinskiptinn, heið- arlegur og vildi öllum vel. Systkinum hans, Gísla, Siggu og Unnu, votta ég mína dýpstu samúð. Þriðja mars sl. varð bróðir þeirra, Árni í Fljótstungu, bráðkvaddur, svo að nú er skammt stórra högga á milli. En gott er að minnast góðra manna, og þakklæti er okkur öllum efst í huga, þegar við minnumst þeirra bræðra. Blessuð sé minning þeirra. Ingibjörg Bergþórsdóttir, Fyótstungu. Við fæðumst og við deyjum, það er það eina sem við vitum, allt þar á milli er óskrifað blað hvers og eins. Nú, þegar hann Jonni frændi er far- inn frá okkur þangað sem honum líður vel, hverfur hugurinn til baka til þess tíma sem við vomm yngri og fórum f sveit á hveiju sumri. Já, því öll fórum við systkinin í sveit til Jonna frænda í Giljahlíð. Guðmunda frá 6 ára aldri og fram að fermingu, Nína og Jonni eitthvað styttra. Og ekki leiddist manni í vistinni því hann Jonni frændi kunni það svo sannar- lega að hafa ofan af fyrir okkur því með blíðu sinni og þolinmæði var hann sko aldeilis ekki í vandræðum með að ná til okkar krakkanna, það má með sanni segja að þó hann hafí ekki sjálfur eignast böm hafi hann eiginlega verið pabbi okkar á sinn hátt, því margt sem hann miðlaði til okkar er geymt en ekki gleymt. Alls konar atvik stór og smá koma upp í hugann. Fjárrekstur upp á Amarvatnsheiði í sumarbyijun, við örþreytt en þú hvattir okkur áfram og annaðhvort hélst á okkur eða leiddir hálfsofandi niður heiðina eftir sfðasta rekstur og þá var gjarnan komið við í Fljótstungu hjá Árna frænda og Ingibjörgu þar sem ekki væsti um okkur. Alltaf laumaði Guð- munda sér út með þér og afa í verk- in, sama hvað mamma bað hana að vera duglega að hjálpa Siggu að vaska upp. Það var bara allt sem þið vomð að brasa úti við svo miklu meira spennandi en uppvaskið. Eftir fyrstu sumardvöl hvers okkar, gafstu okkur lamb að launum, sem sett var á. Síðar eignuðust kindumar okkar lömb og á hveiju hausti fóru svo afkvæmin í sláturhús og við fengum svo reikning frá Kaupfélagi Borgfírð- inga. Þótti manni óskaplega gaman að sjá innstæðuna hækka ár frá ári. Já, svona minningar og margar fleiri eigum við systkinin um þig sem við geymum í hjarta okkar og þökkum þér allt það sem þú gerðir fyrir okk- ur og ef við verðum döpur yfír því að þú sért farinn þá lokum við augun- um, látum hugann reika og sjáum þig halla undir flatt, munum hvemig við kúrðum okkur upp að þér og heyrum þig hlæja þessum smitandi hlátri þínum og lundin léttist. Fyrir tæpum tveimur árum greind- ist Jonni frændi með ólæknandi krabbamein. Það hefur sjálfsagt ver- ið erfið ákvörðun er hann ákvað að selja jörðina og hætta búskap. En þetta gerði hann og flutti á Kjartans- götuna í Borgamesi. Þar lét hann sér ekki leiðast, hugsaði um garðinn sinn og fór margar ökuferðir út á land, á staði sem hann hafði langað til að sjá en aldrei gefist tími til. Til dæmis fór hann að Fróðhúsum þar sem hann hafði ekki komið frá því hann átti þar heima u.þ.b. 8 ára gamall. Hann langaði bara svo til að sjá hvar hann hafði leikið sér þegar hann var bam. í vetur fór meinið að heija meira og meira á Jonna frænda og núna síðustu vik- umar og mánuðina vom ferðirnar á sjúkrahúsið á Akranesi æ tíðari. Að lokum sofnaði hann svefninum langa sunnudaginn 22. júní sl. Gísli, Sigga, mamma, frændur, frænkur og vinir allir, það að hafa átt hann Jonna að, getur ekki gert okkur annað en betri manneskjur því okkur vildi hann alltaf allt það besta. Við vitum að nú líður honum vel og alveg örugglega hafa afí og amma ásamt Áma bróður hans tekið á móti honum opnum örmum. Guð blessi minningu Jóns Þor- steinssonar. Guðmunda Helgadóttir, Jónína St. Helgadóttir, Jón Helgason. JON ÞORSTEINSSON + Sigurþór Ein- arsson fæddist á Miðbýli, _ Skeiða- hreppi, Árn., 30. september 1909. Hann lést á hjarta- deild Borgarspítal- ans 20. júní síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Einar Einarsson, f. 10.10. 1880, d. 16.6. 1946, og Helga Hannesdóttir, f. 22.4. 1886, d. 22. maí 1973. Helga og Einar bjuggu á Eg- ilsstöðum 1 í Vill- ingaholtshr til 1946. Systkini Sigurþórs eru: Einar, f. 6.3. 1911, bóndi í Dalsmynni, Vill- ingaholtshr., Sigríður, f. 25.2. 1914, búsett á Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði, Sesselja Guð- björg, f. 15.9. 1926, d. 8.2. 1997. Sigurþór kvæntist 11.9. 1951 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sveingerði Benediktsdóttur, f. 30.4. 1922. Börn þeirra: 1) Ein- ar, kvæntur Georgíu M. Krist- munsdóttur og eru þau búsett í Garðabæ. 2) Kristín Rannveig, gift Snorra Baldurs- syni, búsett í Hvera- gerði. Börn þeirra: Helga Björk, maki Gylfi Pétursson, barn Snorri Fannar. Fanney, maki Árni Ólason. Jóna Krist- ín, unnusti Atli Mar- el Wokes. 3) Jónas Benedikt, kvæntur Birnu Guðmunds- dóttur, búsett á Eg- ilsstöðum í Villinga- holtshr. Börn þeirra: Kristín Birna, Ásgerður Eir og Guðmundur Heimir. 4) Þórdís, gift Jóni ÓI- afi Óskarssyni, búsett á Sel- fossi. Börn þeirra: Linda Ósk, Þórir og Einar Sindri. Sigurþór tók við búi foreldra sinna á Egilsstöðum og bjó þar til ársins 1975, er hann fluttist til Hveragerðis og stundaði þar ýmsa verkamannavinnu i nokk- ur ár, aðallega hjá Hveragerð- isbæ. Útför Sigurþórs fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 16. Þegar hann afí yfírgaf þennan heim rifjuðust upp fyrir mér allar góðu stundirnar pkkar saman, sem voru allmargar. Ég man að ég fór oft til ömmu og afa upp í Hverham- ar eftir skóla og lék mér þar alveg frá því ég var 6 ára gömul. Það var alltaf gaman að koma til afa í vinnu- skúrinn hans og eitt er víst að mað- ur fór aldrei tómhentur þaðan út. Afi var mikill bókaormur, hann hafði þó sérstaklega gaman af ævi- sögum og var ipjög vel að sér í þeim efnum. Hann hjálpaði mér oft við lesturinn og notaði þá oftast Bibl- íuna til að láta mig lesa upp úr. Kannski ekkert spennandi lestr- arefni fyrir litla stelpu en ég er hon- um þó þakklát eftir á, því það hefur komið mér að góðum notu. Það var alltaf stutt í grín og hlát- ur þegar við afí töluðum saman, og alltaf hafði hann tíma til að spjalla. Okkur kom ávallt mjög vel saman og skildum hvort annað, kannski af því að við hugsuðum svo ólíkt. Eins og t.d. eitt sinn sagði hann við mig. „Nei, hvað þú ert orðin búttuð og pattaraleg, Jóna mín.“ Sumir hefðu nú tekið það nærri sér en ég vissi að honum fannst hann bara vera að hrósa mér. Ég veit að ég á eftir að sakna þessara góðu tíma sem við áttum saman. Nú er komið að kveðjustund og þótt ég kveðji með söknuði og sorg í hjarta, veit ég að nú hvílist afí vel og vakir yfír okkur. Elsku amma, ég votta þér innilega samúð mína. Jóna Kristín Snorradóttir. SIGURÞÓR EINARSSON t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALGARÐ Þ. BJÖRNSSON læknir, Þorsteinsgötu 13, Borgarnesi, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 27. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Jófríður Vaigarðsdóttir, Kristín M. Valgarðsdóttir, Sævar Þórisson, Valgarð Sverrir Valgarðsson, Guðrún Ósk Sigurjónsdóttir, Þröstur Valgarðsson og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, BRYNHILDUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Réttarholti 4, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, fimmtudaginn 26. júní. Magnús Eiríksson. t Elskulegur sonur minn, ATLI GUÐMUNDSSON, lést af slysförum í Danmörku þriðjudaginn 24 júnf. Hólmfríður Oddsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, ÞÓRIR ÞORGEIRSSON, Reykjum, Laugarvatni, lést miðvikudaginn 25. júní. Fyrir hönd ættingja, Esther Matthildur Kristinsdóttir og böm. t KELD GALL J0RGENSEN lektor, lést á Háskólasjúkrahúsinu I Óðinsvéum fimmtudaginn 26. júní. Jarðaförin fer fram í Óðinsvéum þriðjudaginn 1. júlí. Ragnheiður Ragnarsdóttir, Marta Gall Jorgensen, Nína Gall Jorgensen. *• t Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, STEINÞÓR SVEINBJÖRNSSON frá Þórshöfn, Langanesi, sem lést á Garðvangi ( Garði þriðjudaginn 24. júní, verður jarðsettur frá Keflavlkurkirkju mánudaginn 30. júní kl. 14.00. Hreinn Steinþórsson, Kristln Sigurvinsdóttir, Margrét Hjartardóttir, barnabörn og barnabamabörn. t Ástkær móðir okkar, GÍSLA SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Teigi, síðast til heimilis I Silfurtúni, Búðardal, er lést laugardaginn 21. júnl, verður jarðsungin frá Hvammi í Dölum laugardaginn 28. júní kl. 14.00. Kristján Sæmundsson, Anna Sæmundsdóttir, Sigurbirna Guðjónsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.