Morgunblaðið - 28.06.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ1997 43
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
BRÚIN yfir affallið úr Lóninu er önnur tveggja brúa sem vigð-
ar verða á sunnudaginn í Þórsmörk.
Brúarvígsla á
Þórsmerkurleið
RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur
átti 75 ára afmæli á sl. ári og
var haldið upp á það með marg-
víslegum hætti. M.a. voru hátíð-
arhöld eina helgi i Elliðaárdal
og fyrir þau var smíðuð vegleg
göngubrú til að auðvelda umferð
um svæðið.
Eftir að þessu lauk fannst for-
ráðamönnum rafmagnsveitunn-
ar tilvalið að gefa brúna á ein-
hvern stað þar sem hún kæmi
að góðu gagni. Þeir höfðu sam-
band við ferðafélagið Útivist og
í sameiningu var ákveðið að
koma brúnni fyrir á gönguleið
til Þórsmerkur. Eftir nokkra at-
hugun var ákveðið að staðseta
brúna yfir affallið úr Lóninu,
segir í fréttatilkynningu.
Flutningur sliks mannvirkis er
nokkuð kostnaðarsamur og því
ákváðu útivistarmenn að smíða
aðra brú og flytja með, þar sem
kostnaður yrði nánast hinn sami
og skyldi hún sett á Steinholtsá.
Þar með væri búið að brúa tvo
verstu farartálmana fyrir göngu-
og hjólafólk.
Yfirumsjón verksins f.h. Úti-
vistar var i höndum Jóns Sigurðs-
sonar, trésmíðameistara. Fjalla-
sjóður tók að sér að greiða út-
lagðan kostnað við flutninginn.
Að fengnum leyfum var þetta
síðan framkvæmt í maí sl. og
aðstoðuðu Farfuglar og Ferðafé-
lag Islands við uppsetninguna á
staðnum.
Sunnudaginn 29. júní kl. 13
mun sr. Halldór Gunnarsson í
Holti vígja brýrnar og af því til-
efni verður hátíðarstund á staðn-
um. Eftir vígslu er boðið upp á
hressingu í skála Útivistar í Bás-
um og þarf að tilkynna þátttöku
á skrifstofu Útivistar á Hallveig-
arstíg 1. Dagsferð með leiðsögn
verður farin frá BSÍ kl. 8.30 á
sunnudagsmorgun.
Arlegur
hjóladagur
BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins
Sniglar halda sinn árlega hjóladag
laugardaginn 28. júní.
„Þau mál sem oftast hafa borið
á góma undanfarin misseri hafa
verið fækkun slysa og í kjölfar þess
lækkun iðgjalda á bifhjólatrygging-
um. Það er augljóst að þessi mál-
efni tengjast beint og gera Sniglar
sér fyllilega grein fyrir því. Því
reyna Sniglar að hafa áhrif hver á
annan og eru þar með að gæta eig-
in hagsmuna,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Sniglunum.
Dagskrá Hjóladags: „Hópakstur
frá Kaffivagninum Grandagarði kl.
14 og ekið eftirfarandi hring:
Grandi - Hringbraut - Vatnsmýr-
arvegur - Bústaðavegur - Kringlu-
mýrarbraut - Hafnarfjarðarvegur
- Vífilstaðavegur - Reykjanes-
braut - Sæbraut - Kalkofnsvegur
- Lækjargata - Austurstræti kom-
ið að Ingólfstorgi kl. 15. Þar mun
dagskrá hefjast og samanstendur
af stuttum ávörpum og lifandi tón-
list og útnefningu Heiðurs-Snigils
nr. 1100. Dagskrárlok á Ingólfs-
torgi eru um kl. 16.
Seinna um daginn mun nokkuð
stór hópur leggja á stað í hringferð
um landið og tilefnið er Landsmót
Snigla sem haldið verður að Vé-
görðum, Fljótsdal, helgina 3. til 6.
júlí.“
Hafnarfjarðar-
meistaramót í
dorgveiði
ÆSKULÝÐS- OG tómstundaráð
HafnarQ'arðar stendur fyrir dorg-
veiðikeppni þriðjudaginn 1. júli við
Flensborgarbryggju.
„Síðastliðin sumur hefur Æsku-
lýðsráð haldið dorgveiðikeppni og í
fyrra voru þátttakendur um 350
börn. Þessi keppni hefur þótt tak-
ast vel og þeir sem ekki eiga veiðar-
færi geta fengið lánuð færi á keppn-
isstað. Einnig verður hægt að fá
beitu og leiðbeiningar hjá starfs-
mönnum. Verðlaun eru veitt fyrir
stærsta fiskinn og þau börn sem
veiða flesta fiska fá einnig verð-
laun. Styrktaraðili að keppninni er
Veiðibúð, Lalla Bæjarhrauni, sem
gefur verðlaun og góð ráð. Fyrir
að veiða flesta fiska og stærsta fisk-
inn eru veitt vegleg verðlaun.
Leiðbeinendur íþrótta- og leikja-
námskeiðanna sjá um öfluga gæslu
auk þess sem björgunarsveitin
Fiskaklettur verður með björgunar-
bát á sveimi. Keppnin hefst um kl.
13.30 og lýkur um kl. 15.00. Allir
krakkar á aldrinum 6-12 ára eru
velkomnir og hvattir til að taka
þátt,“ segir í fréttatilkynningu frá
Æskulýðs- og tómstundaráði Hafn-
arfjarðar.
Fræðslu-
dagskrá á
Þingröllum
„NÁTTÚRUSKOÐUNARFERÐ
um Lambhaga verður farin í dag,
laugardag, kl. 13 á vegum þjóð-
garðsins á Þingvöllum. Hugað verð-
ur að dýralífi og gróðurfari við
Þingvallavatn. Kl. 15 verður litað
og leikið með börnum í Hvannagjá.
Á morgun, sunnudag, kl. 13
verður gengið um gjár og sprungur
að Öxarárfossi, til baka um Fögru-
brekku og ijallað um sögu lands
og lýðs á Þingvöllum.
Þá verður farið í pílagrímsferð
um Árnesþing sem hefst á Þingvöll-
um kl. 13 á sunnudag með ávarpi
við Vellankötlu og svo kristnitöku-
minningu á Lögbergi kl. 13.45.
Allar nánari upplýsingar veita
landverðir í þjónustumiðstöð þjóð-
garðsins,“ segir í fréttatilkynningu
frá landverði.
Sumarferð
Minja og sögu
SUMARFERÐ Minja og sögu,
gönguferð um Þingholtin undir leið-
sögn Guðjóns Friðrikssonar sagn-
fræðings, verður farin sunnudaginn
29. júní kl. 14. Safnast verður sam-
an við Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6.
Gengið verður suður Laufásveg, upp
Skálholtsstíg, þá Grundarstíg til suð-
urs, niður Hellusund, Þingholts-
stræti til norðurs að Amtmannsstíg,
niður hann og Skólastræti til norð-
urs. Gönguferðinni lýkur á horni
Skólastrætis og Bankastrætis.
Hugað verður að sögu, mannlífí
og byggingarlist. Þátttaka er ókeyp-
is og öllum velkomin. Að lokinni
göngu er áætlað að fara á kaffihús,
spjalla saman yfir kaffibolla og beina
fyrirspurnum til Guðjóns Friðriks-
sonar, segir í fréttatilkynningu.
Ferðafélag íslands
og Útivist
Reykjavegur,
5. áfangi
FIMMTI áfangi raðgöngu Ferðafé-
lags íslands og Útivistar um göngu-
leiðina Reykjaveg er á morgun,
sunnudag, og er brottför frá BSÍ,
sunnan megin og Mörkinni 6, kl.
10.30.
Reykjavegurinn er farinn í 10
áföngum, en gönguleiðin liggur á
milli Þingvalla og Reykjanesvita, en
í ferðinni á morgun er genginn
áfanginn frá Bláfjöllum í Vatns-
skarði við Krísuvíkurveg. Þetta er
gönguleið þar sem farið er hjá Þrí-
hnúkum, framhjá Grindaskörðum og
um Lönguhlíð og m.a. er talsvert
af eldstöðvum á þessari leið.
Dómkirkjan -
ferð aldraðra
á Skaga
„MIÐVIKUDAGINN 2. júlí er
áformuð ferð aldraðra á vegum
Dómkirkjunnar á Skaga. Skoðað
verður byggðasafnið í Görðum, kaffi
drukkið í safnaðarheimilinu Vina-
minni á Akranesi og höfð helgi- og
sögustund í Innra-Hólmskirkju. Far-
arstjórar eru prestar safnaðarins sr.
Hjalti Guðmundsson og sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson og sóknarnefnd-
arfólk verður til aðstoðar.
Ferðin kostar 700 kr. og greiðist
í rútunum en nauðsynlegt er að láta
af sér vita og er innritað í ferðina
í safnaðarheimilinu mánudag og
þriðjudag kl. 10-12. Farið verður
frá Dómkirkjunni kl. 13,“ segir í
fréttatilkynningu frá Dómkirkjunni.
Hress flytur í
stærra húsnæði
LINDA Hilmarsdóttir og Jón Þórð-
arson sem undanfarin ár hafa rekið
líkamræktarstöðina Hress í Hafnar-
firði hafa fest kaup á húsnæði að
Dalshrauni 11 fyrir líkamsræktar-
stöð sína. Hress hefur verið starf-
rækt í Hafnarfirðinum í 10 ár.
I nýja húsnæðinu að Dalshrauni
verður rúmgóður tækjasalur, aðbún-
aður í búningsklefum verður mun
betri en áður, opnunartíminn verður
rýmri, opið alla daga vikunnar og
fleiri þolfimitímar í tímatöflu. Boðið
verður upp á hjólatíma (spinning)
sem er hreyfing sem allir geta verið
með í. Tímar verða í boði fyrir sjö á
morgnana, í hádeginu og á kvöldin.
Bamagæsla verður í rúmgóðum
sal alla daga vikunnar, á kvöldin og
um helgar. í nýja húsnæðinu verða
nýir ljósabekkir og nuddaðstaða.
Nýkort
frá Land-
mælingum
LANDMÆLINGAR íslands hafa
gefið út nýtt Aðalkort í mælikvarð-
anum 1:250.000, blað 8, Mið-Aust-
urland. Kortið er það áttunda í
nýrri útgáfu aðalkorta af landinu,
en það níunda og síðasta (blað 9,
Suð-Austurland), er væntanlegt á
markaðinn í ágústmánuði næst-
komandi. Aðalkortin innihalda alla
vegi, vegaslóða og veganúmer auk
fjölda örnefna.
Landmælingar íslands hafa einn-
ig gefið út nýtt veiðikort í mæli-
kvarða 1:25.000 af Stóru Laxá.
Kortið er það fímmta i röð veiði-
korta sem gefin hafa verið út í sam-
starfi við Stangveiðifélag Reykja-
víkur. Hin kortin eru: Elliðaár, Hít-
ará, Norðurá og Sogið.
Göngukort yfir Hornstrandir í
mælikvarða 1:100.000 hefur verið
endurprentað og sett inn í sam-
ræmda röð sérkorta af helstu ferða-
mannasvæðum.
í síðasta mánuði gáfu Landmæl-
ingar íslands út 6 ný staðfræðikort
í mælikvarða 1:25.000 af efri hluta
AA aðstoðar
Grænlendinga
AA-SAMTÖKIN á íslandi héldu
laugardaginn 24. maí átjándu
landsþjónusturáðstefnu sína að
Hótel Selfossi. Ráðstefnuna sóttu
AA félagar víðsvegar að af landinu
en unnið var í vinnuhópum með
verkefnin. Starfshættir og stefna
AA-samtakanna: Eining - þjónusta
- bati. Erfðavenjurnar og sporin
12 í framkvæmd. AA-samtökin og
þjóðfélagið. Málefna- og dagskrár-
nefnd.
Á íslandi í dag eru starfandi 263
AA deildir ásamt 10 íslenskumæl-
andi sem starfa erlendis.
Þá voru í boði AA-samtakanna
tveir Grænlendingar frá Nuuk, en
AA-samtökin þar eru í örum vexti.
1985 var fyrsta AA-deildin stofnuð
í Qaportoq. 1987, 10. júní, voru
fyrstu AA-deildirnar stofnaðar í
Nuuk, AA-félagar voru fimm. 1995
eru AA-fundir á 11 stöðum á land-
inu og hver staður með tvo til þijá
fundi í viku. 1997 eru 17 AA-fund-
ir í Nuuk.
Það er von Landsþjónustunefnd-
ar AA-samtakanna að heimsókn
Grænlendinganna hingað verði
lyftistöng AA-starfí í Grænlandi.
Happdrætti
ESSO o g Ferða-
málaráðs
„ÚT ER komið Vegabréf ESSO og
Ferðamálaráðs íslands fyrir árið
1997. Með Vegabréfínu vilja Olíufé-
lagið hf. og Ferðamálaráð íslands
hvetja landsmenn til þess að ferðast
um landið sitt og kynnast fegurð
þess og fjölbreytileika. Vegabréfið
byggist á skemmtilegum leik sem
gengur út á að safna stimplum, en
þá má til dæmis fá á bensínstöðvum
ESSO, á tjaldstæðum, hjá hestaleig-
um og við sundlaugar víða um land.
Þegar Vegabréfíð er fullstimplað
gildir það sem miði í útdrætti sem
fer fram í beinni útsendingu á Rás 2
í lok sumars. Þá verður dregið um
veglega vinninga þeirra á meðal VW
Polo frá Heklu og Easy-Camp Petit
tjaldvagn frá EVRÓ.
í Vegabréfinu má einnig finna
ýmsar áhugaverðar upplýsingar fyr-
ir ferðamenn og miða í Vegabréf-
spottinn, en úr honum verður dregið
á hverjum föstudegi í tíu vikur í
sumar, í beinni útsendingu á Rás 2.
Vegabréfið er hægt að fá á bens-
instöðvum ESSO um allt land og á
upplýsingamiðstöðvum ferðamála,"
segir í fréttatilkynningu frá ESSÓ.
Fljótsdalshéraðs. Kortin voru unnin
í samvinnu við sveitarfélög á svæð-
inu, Búnaðarsamband Austurlands,
Landsvirkjun, Orkustofnun, Skóg-
rækt ríkisins, Skipulag ríkisins og
Náttúrufræðistofnun.
Söludeild Landmælinga íslands
annast kortasölu stofnunarinnar,
en kortin eru fáanleg á yfir 200
sölustöðum um allt land.
Námskeið
í sálrænni
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst
fyrir tveggja daga námskeiði í
áfalla- og stórslysasálarfræði (sál-
rænni skyndihjálp) 3. og 7. júlí nk.
Kennt verður frá kl. 19 til 22 báða
dagana. „Námskeiðið er ætlað fyrir *
alla þá sem áhuga hafa á áfalla- og
stórslysasálarfræði og eru eldri en
15 ára. Væntanlegir þátttakendur
þurfa ekki að hafa neina fræðilega
þekkingu né reynslu á þessu sviði.
Námskeiðshaldari verður Lárus H.
Blöndai, sálfræðingur. Kennslustað-
ur verður í Fákafeni 11, 2. hæð.
Námskeiðið inniheldur almenna
kynningu í áfalla- og stórslysasálar-
fræði, þar sem megininntakið eru
þau áhrif og afleiðingar sem válegir
atburðir geta haft á fólk og hvernig
hægt sé að draga úr mannlegum
þjáningum í kjölfar þeirra eða í
tengslum við þau. Meðal efnis eru
fyrstu viðbrögð við vá, atriði sem
geta valdið álagi á vettvangi, við-
brögð til skemmri og lengri tíma, "
ýmsar úrlausnarleiðir, s.s. sálræn
skyndihjálp á vettvangi válegra at-
vika og skipulegir upprifjunarfundir
í kjölfar þeirra, sk. andleg viðrun,"
segir í fréttatilkynningu frá Reykja-
víkurdeild RKÍ. Námskeiðsgjald er
kr. 2.000.
950 Safnkorts-
hafar á leið til f
Þýskalands
„SAFNKORTSHAFAR hafa tekið
ferðatilboði Olíufélagsins og Sam-
vinnuferða-Landsýnar opnum örm- r
um. Tilboðið hljóðaði upp á flug og
bíl í viku til Þýskalands fyrir 19.900
krónur, með öllum gjöldum, sköttum
og tryggingum inniföldum. Fyrstu
tvær vikurnar eftir að tilboðið var
kynnt, pöntuðu safnkortshafar 950
sæti og enn eru pantanir að berast.
Einungis 1.150 sæti eru fáanleg hjá
Samvinnferðum-Landsýn á þessu
tilboðsverði og fyrirsjáanlegt að þau
seljist öll á næstu dögurn," segir í
fréttatilkynningu frá Olíufélaginu
og S-L.
LEIÐRÉTT
Forsvarsmenn Veiðimannsins
ÁGÚSTÍNA Ingvarsdóttir vill
árétta, vegnar fréttar Morgunblaðs-
ins í gær um lokun Hafnarstrætis,
að eigandi Veiðimannsins ehf. er
Paul O’Keeffe en Ágústína situr í
stjórn fyrirtækisins.